Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1982, Qupperneq 38

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1982, Qupperneq 38
42 DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 1982. PinkFloyd—A CollectionofGreatDanceSongs „Klassapopp” fyrir böm nýbylgjunnar Það kom væntanlega mörgum spánskt fyrir sjónir þegar spurðist að gefa ætti út safnplötu með „súper- grúppunni” Pink Floyd. Menn spurðu sjálfa sig hvernig í fjandanum ætti að velja lög á slíka plötu. En nú er platan komin og sitt sýnist hverjum. A Collection Of Great Dance Songs nefnist platan og nafngiftin ber vott um einstaklega frjótt ímyndunarafl útgef- enda. Þaðer kannski álika fáránlegt að gefa safnplötu með lögum Pink Floyd þetta nafn eins og að ætla sér yfir höfuð að gefa slíka plötu út. Á plötunni eru aðeins sex lög af fimm plötum hljómsveitarinnar og aðeins eitt þeirra hefur verið tekið upp að nýju (Money) að vísu í óbreyttri mynd. Lagavalið er í sjálfu sér ágætt og gefur ágætan þverskurð af því sem Pink Floyd hefur sent frá sér frá því 1967 (elzta lagið er raunar af Atom Heart Mother frá 1970). En að kippa þessum lögum algerlega úr samhengi er gagnrýnivert því að hver plata Pink Floyd er heilsteypt verk (t.d. Animals frá 1977, Dark Side Of The Moon frá 1973 og The Wall frá 1979). Það eru því helzt þeir sem lítið sem ekkert hafa hlustað á Pink Floyd sem geta haft gagn og gaman af þessari safnplötu. Fyrsta lag plötunnar er „One Of These Days” af „Meddle” (1971), dæmigert Pink Floyd-lag (má raunar PLÖTUR segja um hin lögin fimm). Næst kemur Money sem allir tónlistarunnendur hljóta að þekkja enda eitt af sígildum meistarastykkjum poppsögunnar en allt eins má spyrja hversvegna lagið Time sem einnig er á Dark Side Of The Moon sé ekki tekið með á plötuna. Og af hverju er sú plata ekki öll með? Hverju má sleppa? Slíkar þenkingar koma upp hjá öllum Pink Floyd-aðdá- endum sem á safnplötuna hlýða. Fyrri hliðinni lýkur síðan með laginu Sheep af Animals. Seinni hliðin hefst á tveimur lögum af Wish You Were Here frá 1975; Shine On You Crazy Diamond og titillagi þeirrar plötu. Og plötunni lýkur með hinu sorglega útjaskaða en samt ágæta lagi Another Brick In The Wall frá tónverkinu The Wall. I heild má segja að platan komi fyrir sem kynningareintak fyrir þá unnendur popptönlistar sem aldrei hafa heyrt í Pink Floyd: Þannig séð er ACOGDS kannski tímabær útgáfa því yngsta kynslóðin er að drukkna í nýbylgju- flóðinu og það er nauðsynlegt að kynna fyrir henni meistara poppsins. Og þar sem plata þessi hefur að innihaldi okkur meistarastykki poppsins mælir hún bezt með sér sjálf og þarf ekki á stórkostlegri orðafrösum að halda. -TT. Toyah — Antem: Lofsöngur en Iftið lof Ekki skal fjöður yfir það dregin að umsögn um þessa plötu er heldur seint á ferðinni, en í ljósi þess að Toyah Ann Willcox þykir engin venjuleg Sigga er ekki frágangssök að benda á hana (þó það sé auðvitað ljótt að benda á fólkl). Toyah er brezka söngkonan með appelsínugula hárið og ævinlega þannig tilhöfð að ætla mætti hún væri að fara á grímuball. Hún er fimmtíu og átta módel og hefur náð undraverðum vinsældum meðal brezkra poppunn- enda ef tekið er tillit til þess að tónlist hennar er allt annað en sykursæt. Núna um síðustu áramót kusu til að mynda lesendur táningatímarits í Bretlandi hana sem beztu söngkonuna (sem ég er að vísu innilega ósammála) og aukin- heldur aðdáunarverðasta kven- peninginn. Það er dálítið erfitt að henda reiður á tónlist Toyah, (hljómsveitin heitir i höfuðið á söngkonunni) hún er að sönnu ákaflega persónuleg en laglínur eru skrýtnar á köflum, bitið einhæft, söngurinn blæbrigðalítill og þó lögin séu mörg hver einkennilega sjarmer- andi er ég fullur efasemda um ágæti tónlistarinnar. Mér virðist að henni séu dálítið mislagðar hendur, sérstak- lega á þessari breiðskífu, en síðan hún kom út hafa sex lög borizt frá Toyah (ein tveggja laga plata með aðallaginu Thunder In The Mountains og fjögurra laga platan Four, More From Toyah) og þykir mér hljómsveitin í verulegri framför. 1 Want To Be Free stendur þó uppúr af lögum Toyah, en það er upp- hafslag á Anthem. Toyah Þær frábæru viðtökur sem Toyah hefur fengið í Bretlandi eru vísast að stórum hluta til komnar vegna frá- bærra hljómleika, sem Toyah er ósínk á, enda má að ýmsu leyti fremur telja hana til leikhúsfólks en poppara. Hún hefur leikið talsvert á sviði, meðal annars í þjóðleikhúsi Lundúnaborgar og ekki með ómerkari leikkonum en Katherine Hepurn, en þær fóru með aðalhlutverk í leikritinu The Corn Is Green árið 1978. Hermt er að Toyah nýti leikhúsreynslu sína og leikhæfi- leika til fullnustu á hljómleikum og því má ef til vill gera þvi skóna að hún hafi af þeim sökum borið meira úr býtum, hvað vinsældir áhrærir, en margur annar. Sjálf er hún sögð mikill kven- skörungur, forkunnardugleg og stjórn- söm eftir því, ákjósanleg fyrirmynd í baráttunni gegn karlrembunni í rokkinu. Toyah semur sjálf alla texta á plötum sinum, þeir eru margir hverjir býsna ævintýralegir og lítt jarðbundnir, en tónlistin er því sem næst öll eftir liðsmenn hljómsveitarinnar, Joel Bogen gítarleikara, Nigel Glockler, trymbil, Phil Spalding bassaleikara og Adrian Lee hljómborðsleikara. Toyah hljóðritar nýja breiðskifu í aprílmánuði og mér sýnist allt benda til þess að það gæi orðið öllu athyglis- verðari plata en Anthem. -Gsal. Bee Gees—LivingEyes Þægileg—og kemur á óvart Bee Gees eiga að baki langa sögu í heimi poppsins og hafa skipzt á skin og skúrir hjá þeim. Þeir komu fram á svo- kölluðum bítlaárum og náðu strax miklum vinsældum i Bretlandi og víðar en ekki héldust þær lengi og það var ekki fyrr en 1975 þegar platan þeirra Main Course kom út, að vinsældir þeirra fóru upp á við aftur náðu hámarki með tónlistinni úr kvikmynd- inni Saturday Night Fever. Síðan hafa þeir verið taldir hinir sykursætu popp- kóngar frá Ástralíu. En þótt vinsælustu lög þeirra hafi annað hvort verið þrungin þungum diskótakti eða mjög rómantiskum melódium, hefur það aldrei dulizt neinum að þeir Gibb-bræður kunna að semja lög sem fljót eru að ná eyrum fjöldans og mörg þeirra eru nokkuð góð. Það sem mest hefur farið í taug- arnas á tnér er raddsetning þeirra bræðra hin síðari ár, sérstaklega þó þegar Barry Gibb bregður falseltunni fyrir sig, og ætlar alla að æra. Það fyrsta sem ég tók eftir á Living Eyes er að diskólögunum hefur fækkað mikið og er þaðomjög til bóta. Þá er eins og maður hafi það á tilfinningunni að þeir bræður hafi lagt meiri metnað í gerð þessarar plötu en þær sem hafa komið á undanförnum árum, enda eru sum lögin með því betra sem ég hef heyrt frá þeim. Útkoman er því að Living Eyes er hin ágætasta softrock plata sem vinnur frekar á við hverja hlustun. Beztu lög: Living Eyes, Soldiers og Be Who You PinkFloyd Ozzy Osbourne—Diary ofa madman: Sá gamli gef- ur sig hvergi Þeir unnendur bárujárnsrokksins, sem komnir eru á þrítugsaldurinn sperra vafalítið eymn er þeir heyra nafn Ozzy Osbourne. Fyrir þá, sem ekki vita við hvern er átt,er rétt að geta þess að Ozzy var iengst af á sínum ferli söngvari Black Sabbath, hljómsveitar, sem var tvímælalaust einn af frum- kvöðlum bárujárnsrokksins eins og við þekkjum það í dag. Ozzy var reyndar aldrei neinn afburðarsöngvari en náði því sem mögulegt var úr raddböndun- um. Rétt um tvö ár eru nú liðin síðan leiðir hans og Black Sabbath skildu — eflir 13 ára samstarf. Síðasta verk Sabbath með gömlu liðsskipaninni var útgáfa handónýtrar hljómleikaplötu. Ljótur legsteinn um hljómsveit, sem eitt sinn þótt góð til síns brúks. Ronnie James Dio, fyrrum söngvari Rainbow, tók við af Osbourne sem lagði út í sóló: feril. Árangurinn varð sá að báðir aðilar blómstra á ný. Sabbath hefur náð sér verulega á strik og Ozzy virðist betri en nokkru sinni. Hann gaf út plötuna Blizzard of Oz haustið 1980 og rúmu ári síðar sendi hann frá sér gripinn, sem hér er til umfjöllunar, Diary of a madman. Svo við gerum langa sögu stutta er óhætt að segja að sá gamli komi hressilega á óvart því krafturinn í honum er meiri en nokkru sinni. Ef til vill má rekja taugahrun hans í desember sl. til þess. Þá varð hann að aflýsa fjölda tónleika sökum ofþreytu. Mestu máli skiptir á þessari plötu að hann hefur losað sig við helming hljómsveitarinnar. Reyndar eru öll lögin á þessari plötu eftir meðlimi eldri útgáfu flokksins, en þeir Tommy Aldridge (trommur) og Rudy Sarzo (bassi) skila sínu margfalt betur en forverarnir, Lee Kerslake (já, þessi gamli úr Uriah Heep) og Bob Dainsley. Aldridge þrumubárujánstrymbill og Sarzo þenur bassann í samræmi við það. Þá fær gítarleikur Randy Rhoads að njóta sín margfalt betur en á fyrri skífunni. Ekki er hægt að líta framhjá þeirri staðreynd að mörg laganna eru í anda Black Sabbath, eins og hún var og hét. Hins vegar er úrvinnslan margfalt sterkari og hljóðfæraleikurinn gæða- flokki ofar. Ozzy er ekkert aðfara inn á brautir sem hann ræður ekki við í söngnum þannig að hann fellur vel i heildina. Over the mountain, Believer ogS. A.T.O. eru beztu lög plötunnar. Útilokað er annað en að geta umslagsins sem er vafalítið með þeim „geðveikari” á markaðnum, enda ber platan nafn í þeim dúr. Einhverjar svartagaldurspælingar eru líkast til í kallinum því umslag fyrri plötunnar var viðlíka firrt. En það er innihaldið, sem um ræðir hér og fyrir þá, sem aðhyllast bárujárnstónlist er þessi gripur á heimavelli i safninu. -SSv. Ozz y Osbourne DAGBLAÐ1Ð& VÍSIR. MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 1982. 43 Kvikmyndir Kvikmyndir Tvær bandarískar stórmyndir: RAGTIME 0G REED — Sú síðarnef nda f ékk einróma lof gagnrýnenda en hin fyrrnef nda meiri vinsældir almennings Tvær bandariskar kvikmyndir vöktu sérstaka athygli á sl. ári og gerast þær báðar skömmu eftir alda- mótin 1900. Leikstjóri annarrar er Milos Forman og er myndin gerð eftir skáldsögu E.L. Doctorows, Ragtime. Hinni leikstýrir Warren Beatty. Hún lýsir ævi ameríska kommúnistans og blaðamannsins John Reed, en hann tók þátt í rússn- esku byltingunni og skrifaði bókina Tíu dagar sem komu heiminum í upp- nám. Það vakti líka athygli í myndinni Reed að þar fer leikarinn Jack Nicholson með lítið aukahlutverk. Jack þykir annars nokkuð stór upp á sig og þiggur helzt ekki annað en stjörnuhlutverk. En þegar vinur hans, Warren Beatty, hringdi til hans og bað hann að leika rithöfundinn Eugene ONeill i mynd sinni um Reed sagði hann strax já. — Ég mundi þiggja hvaða hlutverk sem er bara til að fá tækifæri til að leika undir stjórn Warrens, segir Jack þessu til skýringar. Hann er alveg einstakur í sinni röð. Hann gefur okkur leikurunum nægan tima til að byggja upp þau atriði sem vfð teljum mikilvægust og er svo afslappaður að þar er manni hrein ánægja að vinna undir stjórn hans. Enda hefur Reed verið mun betur tekið af gagnrýnendum en Ragtime. Það hefur þó ekki komið i veg fyrir mikla aðsókn að þeirri síðarnefndu og er það m.a. talið byggjast helzt á því að myndin sýnir uppreisn blökku- mannsins Coalhouse Walkers gegn þjóðfélaginu, en hann var á sínum tíma frábær píanóleikari. Hins vegar virðist saga Reeds ekki ætla að lokka að sér jafn marga kvikmyndahúsgesti þrátt fyrir einróma lof gagnrýnenda. Báðar myndirnar voru mjög dýrar í framleiðslu og er talið að hvor um sig hafi kostað unt 30 milljónir Bandaríkjadala. *• *•* Kvikmyndaframleið- andinn Goldie Hawn Fyrsta myndin sem gamanleik- konan Goldie Hawn var bæði fram- leiðandi að og lék aðalhlutverk í, Private Benjamin, gekk svo vel að Goldie hefur nú ákveðið að leika sama leikinn aftur. Efni nýju myndarinnar, Swing Shift, er líka sótt til stríðsumsvifa og er hún kynnt sem rómantísk gaman- mynd frá tímum síðari heimsstyrjald- ar. Handritið skrifaði Bo Goldman, sem fékk óskarsverðlaunin fyrir handrit sitt að Gaukshreiðrinu. Leik- stjóri er Jonathan Demme, en eins og áður er sagt er Goldie bæði fram- leiðandi og aðalleikari. Michclin snjódekk gcfa bcsta grip i snjó og hálku ~MS89 Michelin radial snjódekk endast lengur Fást á næsta hjólbarðaverkstæði UMBOÐ: ISDEKK HF. Smiðjuveg 32 - 200 Kópavogur SÍMI: 91-78680 OPI013-17 Kvikmyndir Kvikmyndir Sandkorn Sandkorn Sandkorn „AHur er varinn góður" Nokkrir stjórnmálamenn íslenzkir hafa öðlazt vinsældir alþýðu manna langt út fyrir fiokksraðir. Ekki tryggir þetta þó ævinlega gengi innan flokks. Engum núverandi þingmanna ætla ég sé gert verulega rangt til, þótt i þessu sambandi séu nefndir þeir Al- bert Guðmundsson og Guðmundur J. Guðmunds- son. Þótt ólikt hafist þeir að, Al- bert umsvifamikill heildsali en Guðmundur harðsnúinn laun- þegaforingi, hafa þeir á sér drengskaparorð, eins og reyndar flestir þingmenn, sem sannmælis njóta. Guðmundur kenndi fyrir skömmu hjartveilu. Var hann fluttur á Borgarspitalann og er talinn úr hættu, sem kunn- ugt er. Er um hann annast af kostgæfni sem aðra sjúklinga. Þó segir sagan, að hjúkkur dekri svo við Guðmund í hví- vetna, að það gæti verið skýr- ing á svari hans, þegar yfir læknir spurði, hvort það kæmi sér ekki illa fyrir þing- mann að vera fjarverandi á úrslitastundu, ef eitthvað mætti marka blaðafregnir af ástandinu í þjóðmálum. Af karlmcnnsku svaraði Guðmundur J.: „Jú, að vísu, en maður kemur í manns stað á Alþingi eins og á Borgar- spítalanum, en ég er ekki frá því að þetta sé aðeins að versna aftur. Ætli það sé ekki vissara að ég verði hérna eitt- hvað áfram. Allur er varinn góður.” Bjartsýni ríkir á sólarlanda markaðinum Ingólfur í Útsýn undirritaði í vikunni samning við Flug- leiðir hf. um sólarlandaferðir ársins. Hann lætur engar úr- tölur efnahagsspekinga draga úr framtaki sínu og notast við eigin spár sem eru sagðar mótaðar af bjarlsýni. Með hliðsjón af þörfum Ferðaskrifstofunnar Úrvals og annars flugs Flugleiða hf. sýnist liggja beint við að Sam- vinnuferðir—Landsýn leiti eftir samningum við Arnar- flug hf. um a.m.k. mjög veru- legan hluta sólarlandaferða sumarsins — nema kannski Líbýu. Er fimmti borgarstjórnar listinn á leiðinni? Stjórnmálaflokkarnir eru nú skelfingu lostnir vegna þeirra válegu tíðinda, sem kvisazt hafa um enn einn framboðsFstann til borgar- stjórnarkosninga. Er þar átt við framboðslista Breiðholts- búa. Þrátt fyrir' ágæta frambjóð- endur á gömlu pólitísku list- unum, er talið, að Breiðholts- listi kæmi auðveldlega að nokkrum borgarfulltrúum. Gæti hann komizt í þá odda- aðstöðu, að erfitt yrði að ganga fram hjá stefnumálum hans. Þá myndi um leið geta farið svo, að öll tímasóun í pólitiskan vaðal hyrfi að mestu og þá líka tröppugang- urinn úr borgarstjórn í Alþingi. Óli blaðasali um samruna síð- degisblaöanna Siðastliðinn fimmtudag seinkaði útkomu Dagblaðsins og Vísis fremur venju. Ástæð- an var sú að beðið var eftir myndum af hörmulegu sjó- slysi. Þegar klukkan var orðin hálfeitt og hádegisumferð í göngugötunni hvað mest, lenti Oli blaðasali í varnar- stöðu gagnvart fastavið- skiptavinum. Þcgar Óli var orðinn þreytt- ur á spurningum um ástæð- ur fyrir seinkun útgáfunnar, varð honum að orði: „Þetta gerir samruninn. Hefði hann ekki orðið, væri ég löngu bú- inn að fá annaðhvort blað- ið.” Ógeðfelldur ráda- hagur Þjóðkunnur maður hafði mikla raun af ráðahag sem haun gat þó ekki með neinu móti spornað við. Dóttir hans, falleg stúlka og kven- kostur hinn bezti, fclldi hug til manns, sem honum gazt ekki að, og hafði raunar hinr. mesta imugust á. Varð úr þessu trúlofun. Unnustinn var nær ölium stundum hjá unn- ustunni, sem var í foreldra- húsum. Þótti einkum föðurn- um nóg um. Kvöld eitt hringdi góð- kunningi unnustans dyra- bjöllunni hjá tilvonandi tengdafólki og spurði, hvort unnustinn væri þar sladdur. Faðir stúlkunnar kom til dyra og gat nú ekki á sér setið. Hann svaraði: „Nei. Hann er nýfarinn út með öðrum róna.” Nú í nafni rétt- lætis - en áður gert í svefni „Samkvæmt símaskránni eiga svona um 40% embættis- manna borgarinnar í hærri skalanum lögheimili utan Reykjavíkur,” segir Jónas Guðmundsson, rithöfundur i Tímanum. Nefnir hann að- eins til borgarlækni, yfirborg- arfógeta og yfirborgardóm- ara, þótt af nógu sé að taka. Fer hann nokkrum orðum um punktakerfið, og segir það einkum tryggja kontór- frið hjá toppunum, sem kveikja á Oslóartrénu til skiptist. Hins vegar flytji tekjuhæsta fólkið úr bænum og greiði útsvör í öðrum „sóknum”. „En þctta er ekki annað en beint framhald af úrræðaleysi meirihlutans frá 1908, þótt nú sé þetta svo í nafni réttlætis, sem áður var gjört í svefni,” segir Jónas á sinni eðlilegu reykvisku. Bragi Sigurðsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.