Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1982, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1982, Blaðsíða 40
44 DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 1982. Mannlíf Mannlíf Mannlíf Mannlíf Spámaðurinn Nostradamus: Heimssty rjöld 1999 Ava Gardner: Ánægð með aldurinn og lífið. Roskin kynbomba Ava Gardner er nú orðin 59 ára en ennþá gjaldgeng á hvita tjaldinu. í f'ebrúar verður myndin „Ástin krefst fórna” frumsýnd i London, en þar leikur Ava roskna kynbombu. Segja þeir sem séð hafa að hún liti mjög vel út og hafi enn sama gamla aðdráttaraflið SÚKKU- LAÐI SEM GREIÐSLA FYRIR HÚS Gamall brandari lýsir því er maður fer til geðlæknis af því að hann er svo sólginn í pönnukökur. — Það er ekkert óeðlilegt við það, segir geðlæknirinn. — Mér þykja pönnukökur lika góðar. — Mikið var það heppilegt, segir sjúklingurinn. — Þá ættirðu endilega að heimsækja mig. Ég á fleiri kistur sneisafullar af pönnukökum. Þessi brandari minnir ekki svo lítið á Ástralíubúann Robert Auguste. Hann átti hús í úthverfi i borginni Perth og auglýsti það til sölu fyrir 997.500 dollara. Hins vegar sagðist hann gjarnan vilja fá hluta vcrðsins greiddan með eftirlætissúkkulaðinu sínu. Og það stóð ekki á tilboði. Bob Roget bauðst til að kaupa húsið fyrir 658.350 dollara — og eina milljón súkkulaðistykkja. Auguste segist ætla að hugleiða tilboðið, en það býður upp á heilmikið greiðsluvanda- mal. T.d'. er afar óheppilegt að taka við milljón súkkulaðistykkjum við undir- skrift samnings, segir Auguste. — Það tæki okkur allan daginn að telja þau og auk þess er enginn hægðar- leikur að koma þeim öllum fyrir í geymslu. Þess má geta að milljón súkkulaði- stykki eru svipað magn og það er allir Ástralíubúar neyta á tveim vikum. sem gerði hana svo vinsæla fyrr á árum. Henni er lika hrósað fyrir leik sinn og er jafnvel talið að hún eigi óskars- verðlaun skilið fyrir hann. — Vitleysa, segir Ava. — Enda er ég ekki að stíla upp á neinn Óskar. Ég tók hlutverkið að mér af því að mér þykir gaman að leika og fæ auk þess vel greitt fyrir það. En auðvitað gleðst ég yfir því ef fólki finnst ég enn falleg kona. — Sá stimpill tilheyrir annars yngri aldursflokki og þegar ég var ung eyddi ég gifurlegum tima i að hressa upp á út- litið. Nú geri ég aðeins það sem þarf til að halda í það sem eftir er. Ava hefur átt þrjá eiginmenn, þar á meðal Frank Sinatra. Hún segist einskis iðrast og að líf hennar hafi alltaf verið mjög þægilegt. — Ég er ekkert óánægð með for- tíðina, segir hún. — Líf mitt hefur kannski ekki verið neitt sérstakt, en alla vega mun þægilegra en flestra annarra. En ég reyni lika frekar að hugsa um framtíðina en fortiðina. Ava þarf heldur ekki að kvarta undan einmanaleika, því hún er nú nýtekin saman við Charles Gray, manninn sem stóð að gerð myndarinnar „Diamonds are Forever.” Spámaðurinn frægi, Michel de Notredame — betur þekktur undir nafninu Nostradamus — fæddist í Frakklandi. árið 1503. Hann starfaði lengst af ævi sinnar sem læknir og var orðinn rúmlega fertugur er hann tók að leggja rækt við skyggnigáfu og skrifa niður spádóma sem liann fléltaði í á annað þúsund vers. Hann lézt árið 1566 og siðan hafa rúmlega 400 túlk- anir á spádómum hans litið dagsins Ijós. Það nýjasta á þessu sviði er bók Jean-Charles de Fontbrune, Frakka, sem barðist í Alsírstríðinu og er enn konungssinni þótt liðin séu 133 ár síðan síðasti konungur Frakka lét af völdum. Segir hann að 17 ára þrælavinna liggi að baki bókarinnar. Bókin kom út í október 1980 og var salan dræm í fyrstu. Það var ekki fyrr en eftir grein um hana sem birtist i blaðinu Paris-Match i júli að bókin fór að seljast eins og heitar lummur. í ágústmánuði einum sanian seldust t.d. 270.000 eintök. Þegar þetta er skrifað hafa selzt rúmlega 600.000 eintök af bókinni þrátt fyrir verð sem þykir fremur hátt i Frakklandi, en hún kostar um 200 krónur. Óglæsileg framtíð Ekki stafar þessi mikla sala af því að túlkun hans á Nostradamusi spái okkur vesælum jarðarbúum svo glæsilegri framtíð, heldur þvert á móti. T.d. segir hann að páfinn verði myrtur er hann heimsækir Lyon á þessu ári. Fimmta lýðveldi Frakka líður undir lok eftir mikið blóðbað í seinasta lagi í september 1984. Gerist það undir stjórn vinstrisinnaðra ráðherra sem hafa rós að tákni og síðan jafnar Rauði herinn París við jörðu. Samsæri Múhameðstrúarmanna hrindir þriðju heimsstyrjöldinni af stað i ágúst 1999. En að henni lokinni verðttr Evrópa eitt konungsríki undir mildri stjórn Frakkans Hinriks hins lánsama. Greinin um (úlkanir de Fontbrune á Nostradamusi í Paris-Match fór ekki fram hjá Rússum og 1. september 1981 mátti lesa eftirfarandi í málgagni stjórnarinnar, Isvestija: — Æsifréttablaðið Paris-Match hefur ráðið sér nýjan leiðarahöfund sem beitir penna sínum af hinni mestu dirfsku hvort sem hann fjallar um utanríkismál eða innanrikismál, viðskiptamál eða hermál. Það ótrúleg- asta er þó að þessi nýi maður þjónar kapítalísku pressunni án þess að taka eyri fyrir það. Því hann heitir Nostra- damus og hefur nú legið í gröf sinni í rúmlega 400 ár. Samkvæmt túlkendum Nostradam- usar vantar ekki heldur að margir af spádómum hans hafi þegar komið fram. Meðal þeirra má telja Bartóló- meusarnóttina frægu 1572 er Karl IX lét slátra húgenottum, innflutning á tóbaksplöntunni til Evrópu, brunann í London 1666, tilkomu járnbrautanna, atómsprengjuna í Hírósima, morðið í Sarajevo, sem kom heimstyrjöldinni fyrri af stað, stofnun Efnahagsbanda- lagsins og bann við að nota bila á sunnudögum sem fylgdi í kjölfar oliu- kreppunnar. Nostradamus: Tízkuspámaður rúm/aga 400 irum eftír dauða sinn. Flaggskipi Hinriks VIII bjargað af hafsbotni — Það sökk árið 1545 og gefur ótrúiega giögga mynd af iífinu um borð U.þ.b. 500 kafarar og froskmenn hvaðanæva úr heiminum hafa unnið að því að ná munum upp úr fiaggskipi Hinriks kóngs VIII, Mary Rose, en áætlað er að ná skipinu upp í heilu lagi í sumar. Þetta verður líka dýrasta björgun fornleifa úr sjó sem um getur og kostar um 75 milljónir króna. FaHbyssukarra um borðiMary Rosa Skipið verður geymt í safni í Ports- mouth, og verður öllum þeim u.þ.b. 1000 munum sem bjargazt hafa komið aftur fyrir á sínum stað í skipinu. Mary Rose lagði af stað frá Ports- mouth 19.júlí 1545 og átti að leggja til bardaga við frönsk herskip. En hún náði aldrei langt. Hún var ekki einu sinni horfin úr sjónmáli er hún hallað- ist skyndilega á hliðina og sökk svo til botns. Um borð í þessu ofhlaðna skipi var 700 manna áhöfn og tókst aðeins að bjarga um 40 þeirra. Skipið tók sem sagt aldrei þátl í nein- um bardögum og það er lika þess vegna sem Mary Rose gefur alveg hárrétta mynd af lífi manna í brezka flotanum á þessum tíma. T.d. fáum við að vita að skipverjar voru lúsugir, þvi enn má finna merki um þær í trégreiðum þeirra. Mary Rose sökk á sunnudegi þegar kokkurinn var önnum kafinn við að útbúa hádegis- verð. í matinn hafði hann ostrusúpu og baunastöppu oga.m.k. liðsforingjarnir fengu vín með matnum. 160 beinagrindur Skipið sökk hratt í þykka leðju i sundinu milli Englands og The Isle of Wight og það er leðjunni að þakka að allt um borð hefur varðveitzt svo vel, jafnvel stígvél, hanzkar, föt og ýmsir munir úr leðri. Kafarar hafa náð upp 160 beiná- grindum og verða þær jarð- aðar að kristinna sjómanna sið þegar vísindamenn hafa lokið við að rannsaka þær. Rannsóknir þeirra hafa þegar leitt í Ijós að elzti maðurinn um borð var á fertugsaldri, en sá yngsti ll ára. Margir af skipverjum voru boga- skyttur, en þá ályktun draga visinda- menn af handleggsbeinum og öllum þeim aragrúa af pílum og bogum sem fundizt hafa um borð. Örvarnar voru mjög hættulegt skotvopn sem gátu borað sér 3—4 sm inn í eikartré á 2— 300 metra færi, að maður tali nú ekki um mun mjúkari hlut eins og manns- likamann. Skipið var líka vel vopnað fallbyss- um. Voru þær steyptar í heilu lagi sem hlýtur að hafa verið nýmæli á þessum tíma. Einnig sýna áttaviti og önnur siglingatæki sem fundizt hafa um borð að menn stóðu mun framar í allri slíkri tækni en við höfum hingað til álitið. Ekki var kaupið hátt Eins og áður er nefnt hafa 500 kafar- ar unnið að björgun muna úr skipinu, flestir áhugamenn í faginu, og hafa þeir svo sannarlega verið biandaður hópur. Má þar t.d. nefna flugfreyju frá British Airways, rannsóknarlögreglumann frá hollenzku fíkniefnalögreglunni, Karl Bretaprins og leigubílstjóra frá London. Og nú höfum við nokkuð góða hug- mynd um hvernig hermenn brezka flot- ans notuðu frístundir sínar á þessum tíma. Þeir spiluðu dómínó og teninga- spil, tefldu, spiluðu á spil og veiddu fisk. Einnig hafa fundizt peningar og launapokar um borð svo við sjáum nokkurn veginn hvað skipverjar hafa liaft í kaup. Daglaun flotaforingja voru um 6 krónur og þrjátíu aurar en óbreytturskipverjivarð að þræla í viku fyrir sömu upphæð. Mary Rose verður aldeilis skraut- fjöður í hattinn fyrir Portsmouth sjó- ferðasafnið. Enda er það vel til faliið þar sem árið 1982 hefur verið útnefnt ár siglinganna á Stóra-Bretlandi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.