Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1982, Side 44

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1982, Side 44
Útgáfa nýs síðdegisblaðs enn á döfinni: Gunnarsmenn vilja leggja fram milljón Áhugamenn um útgáfu nýs síðdeg- isblaðs eru nú vonbetri en áður um að slíkt blað líti dagsins ljós. Ei hermt að allstór hópur sjálfstæðismánna sé alvarlega að íhuga að styðja útgáf- una. Munu það vera stuðningsmenn Gunnars Thoroddsen. Geir A. Gunniaugsson formaður undirbúningsnefndar vildi hvorki staðfesta né neita þessu í viðtali við DV i morgun. Hann sagði það vera rétt að menn úr öðrum flokkum en Alþýðuflokknum hefðu sýnt málinu áhuga. Ekkert hefði þó verið ákveðið í því sambandi, enda hefði hugmynd- in komið upp rétt fyrir helgi. Söfnun hlutafjár hefur gengið treglega að undanförnu. Hefur safn- ast rúmlega einmilljón króna. Telja þeir, sem að útgáfunni standa, sig þurfa allt að þrem milljónum, til að koma blaðinu af stað. Munu Gunnarsmenn þeir sem áhuga hafa á að vera með reiðubúnir að leggja allt að eina milljón í hlutafé. Síðdegisblaðsmenn koma saman til fundar í kvöld til að ræða fram- haldið. Sagði Geir A. Gunnlaugsson að það ætti að ráðast alveg á næstu dögum. -JSS Jósteinn skauzt upp í annaö sætið Kristján Benediktsson varð I efsta sæti í prófkjöri Framsóknarflokksins sem fram fór um helgina. Jósteinn Kristjánsson varð í öðru sæti og Gerður Steinþórsdóttir í þriðja. Alls kusu 1298 manns en ógildir seðlar voru 45. Kristján hlaut 498 atkvæði í fyrsta sætið en 942 atkvæði alls, Jósteinn Kristjánsson hlaut 371 atkvæði í 1.—2. sæti en 494 atkvæði alls, Gerður Stein- þórsdóttir hlaut 432 atkvæði í 1.—3. sæti en 648 atkvæði alls, Sigrún Magnúsdóttir hlaut 433 atkvæði í 1.— 4. sæti en 651 atkvæði alls, Sveinn Grétar Jónsson hlaut 504 atkvæði í 1.—5. sæti en 583 atkvæði alls. í 6. sæti varð Auður Þórhallsdóttir með 557 atkvæði, í 7. sæti Valdemar K. Jónsson með 529 atkvæði, í 8. sæti Jónas Guðqiundsson með 519 at- kvæði, í 9. saefhÁslaug Brynjarsdóttir með 498 atkvæði og í 10. sæti Páll R. Magnússon með 489 atkvæði. Aðrir frambjóóendui, þau Björk Jónsdóttir, Elisabet Hauksdótir, Gunnar Baldvins- son, Pétur Sturluson og Þorlákur Einarsson, hlutu færri atkvæði. Að sögn Gests Jónssonar, formanns kiörstjórnar, hlaut enginn frambjóð- enda 50 prósent atkvæða í viðkomandi sæti og því er kosning ekki bindandi í neinu tilvika. Hann sagði að kjörstjórn myndi skila prófkjörsgögnum til upp- stiliingarnefndar síðar í dag og hún ásamt fulltrúaráði flokksins ákvæði listann endanlega einhvern næstu daga. -KÞ. (DV-mynd Bjarnletfur) Samkomulag um efnahagsmálin: Pakkinn kynntur á morgun Efnahagsmáiapakkinn er nú svo til fullbúinn úr höndum ríkisstjórnar- innar. Hann verður sýndur stuðn- ingsmönnum stjórnarinnar á Al- þingi í dag, meðal annars á fundum þingflokka. Síðan er gcrt ráð fyrir að endanlega verði gengið frá málum á ríkisstjórnarfundi i fyrramálið og að forsætisráðherra kynni Ioks pakkann á fundi sameinaðs þings klukkan 14 á morgun. Samkvæmt heimildum DV verður pakkinn í öllum aðalatriðum eins og blaðið hefur áður skýrt frá. Niður- greiðslur á landbúnaðarvörum verða auknar, tollar lækkaðir á nokkrum, vörutegundum og skattar á iðnað og útflutningsframleiðslu lækkaðir nokkuð. Þá verða fjárveitingar til framkvæmda ríkisins og opinberra sjóða skornar niður unt 5% og eins verða framlög til reksturs ríkisins lækkuð. Jafnframt beinum tilfærsl- um á peningum, hátt i 400 millj- ónum, verður tilkynnt um aukið frelsi í verðlagsmálum og nokkur sérstök stefnumál, þar á meðal samráð við aðila vinnumarkaðarins um nýjan verðtryggingargrundvöll launa. Ráðstafanir ríkisstjórnarinnar miða að þvi að ná verðbólgu niður i 35% til jafnaðar á árinu. Eiga peningatilfærslurnar að greiða niður 3% í verðbótum á laun 1. marz og tryggja að þær verði ekki nema 7%. Úrslit íprófkjöri Framsóknar ekki bindandi: frjálst, nháð dagblað MÁNUDAGUR25. JAN. 1982 Prófkjör sjálfstæðis- manna á Selfossi: ÓliÞ. Guðbjartsson efstur Góð þátttaka var í prófkjöri sjálf- stæðismanna á Selfossi í gær. Samtals kusu 530. í síðustu bæjarstjórnarkosn- ingum fékk listi sjálfstæðismanna um 400atkvæði. Prófkjörið var bindandi fyrir fyrstu fimm sætin. Þau skipa: Óli Þ. Guð- bjartsson, Guðmundur Sigurðsson, Ólafur Helgi Kjartansson, Guðfinna Ólafsdóttir og Örn Grétarsson. f næstu þrem sætunum voru Björn Gíslason, Haukur Gíslason og Valey Guðmunds- dóttir. -Kristján, Sclfossi Prófkjör sjálfstæðis- manna á Nesinu: Sigurgeir var efstur Mikil þátttaka var í prófkjöri sjálf- stæðismanna á Seltjarnarnesi um helg- ina. Alls greiddu 868 menn atkvæði, þar af voru 840 atkvæði gild. Litlar breytingar urðu á listanum frá síðustu kosningum. Sigurgeir Sigurðsson varð efstur í prófkjörinu, hlaut 336 atkvæði í fyrsta sæi og 79,9% allra gildra atkvæða. Magnús Erlendsson varð í öðru sæti með 333 atkvæði í 1.—2. sæti. Júlíus Sólnes varð í þriðja sæti með 348 at- kvæði í 1.—3. sæti, Guðmar Magnús- son fjórði með 379 atkvæði í 1.—4. sæti, Ásgeir S. Ásgeirsson fimmti með 301 atkvæði i 1.—5. sæti. Jón Gunn- laugsson varð sjötti með 359 atkvæði í 1.—6. sæti og Áslaug Harðardóttir varð sjöunda með 426 atkvæði i 1.—7. sæti. Áttunda varð Erna Nielsen, Kristin Friðbjarnardóttir varð níunda og Jónatan Guðjónsson tíundi. Úrslitin eru bindandi í sjö efstu sæt- in. Alls gáfu sextán menn kost á sér í prófkjörinu, og áttu kjósendur að merkja við minnst sjö nöfn og mest tíu. -ATA LOKI Ætíi þaö sé mikið af súr- metí / þorrapakka ríkis- stjórnarinnar? hressir betur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.