Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1982, Qupperneq 6
6
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1982.
Gestur E Jónasson i hkitvarki Þröstur Guöbjartsson ieikur
Versjinín ofursta og hjákarls KúHgin menntaskólakennara,
Mösju. kokkáiaðan eiginmann Mösju.
Ingibjörg Bjömsdóttír letírur
Natösju, mágkonu systranna.
MANNESKJAN
HEFUREKKERT
BREYTZT’
— rætt við Kára Halldór og Jennýju Guðmundsdóttur
um f mmsýningu Leikf élags Akureyrar í gærkvöldi
„Við reynum að segja sögu Tsék-
hovs eins og við upplifum hana í dag,
sem manneskjur, því manneskjan
hefur ekkert breytzt á þeim rúmlega
80 árum sem liðin eru síðan leikritið
var samið, þó ytri aðstæður séu aðr-
ar. Draumurinn um betra líf ersigild-
ur og enn er spurt; til hvers er ég hér
og af hverju er lifið svona, en ekki
einhvcrn veginn öðruvísi — og
bctra?”
Tilvitnunin hér að framan er úr
samtali DV við Kára Halldór og
Jennýju Guðmundsdóttur. Þau eiga
margt sameginlegt. Fyrir það fyrsta
eru þau hjón, en að auki hafa leiðir
þeirra legið saman i vinnunni undan-
farna mánuði. Þau hafa sem sé verið
að setja upp Þrjár systur eftir Anton
Tsékhov með Leikfélagi Akureyrar.
Kári er leikstjórinn en Jenný gerir
leikmyndina og búninga.
Fjölskylduverkefni
Kári Halldór útskrifaðist úr
Leiklistarskóla Þjóðleikhússins fyrir
10 árunt. Eftir það lá leiðin til
Norðurlandanna, Danmerkur,
Finnlands og Sviþjóðar, en til
Akureyrar kemur Kári frá kennslu i
Leiklistarskóla íslands.
Jenný Guðmundsdóttír er
grafíker. Grunnmenntun sína í list-
inni fékk hún í Myndlista- og
handiðaskóla íslands en síðar lá
leiðin i listaháskóla í Stokkhólmi.
Jenný hefur skólazt í leiklistinni með
Kára á undanförnum tíu árum og
áður en til Akureyrar kom höfðu þau
unnið saman að verkefni i Svíþjóð.
— En hvernig er að vinna santan
heima og heintan?
„Við kunnunt því ekki illa enda er-
um við farin að þekkja hvort annað
Þórey Aðaistalnsdóttír ieikur
Anfisu, fóstru systranna.
nokkuð vel eftir nærri 10 ára hjóna-
band og það er með leikhússtarfið
eins og hjónabandið, það byggist upp
á samvinnu,” svaraði Jenný.
„Það hefur líka þann stóra kost,
að það þarf ekki að skipuleggja fundi
með leikstjóra og hugsuði leikntynd-
ar og búninga,” sagði Kári, hló
hressilega og sagði síðan:
„Það er í leiklistinni eins og í öllu
skapandi starfi. Verkefnið er í undir-
meðvitundinni nótt sent nýtan dag á
nteðan það er í vinnslu. Það er ekki
hægt að skilja það við sig á vinnustað
þegar heim er haldið. Ég hef vaknað
upp á morgnana með hugmyndir í
kollinum, ég veit ekki hvort ég hef
fengið þær úr draumi, og uppfærslan
er einnig rædd við matarborðið.
Börnin hafa kontið fram með sínar
hugmyndir líka, þetta er þvi hálfgert
fjölskylduverkefni.”
/\lauðsynlegt að komast hjá
tímahraki
— Hvenær var byrjað að vinna að
leikgerðinni?
„Við Jenný byrjuðunt að vinna við
þessa uppfærslu í júní í sumar,”
sagði Kári. „Þá lét ég leikarana fá
handrit og skipaði í hlutverk. Síðan
hittumst við í upphafi leikárs og unn-
um saman í eina viku. Það starf skil-
aði sér mjög vel fyrir okkur öll, ekki
sízt vegna þess að ntargir leikararnir
þekktust ekki fyrir.
Siðan hófust æfingar af krafti í
desember. Til að byrja með æfðunt
við einn þátt á dag, og á fjórða degi
renndum við öllum þáttunum í gegn.
Verkið hefur þróazt dag frá degi og
breytingar eru gerðar fram á siðustu
stundu. Þess vegna er nauðsynlegt
fyrir alla að tínii gefist til að fín-
Guðjón Pedersen leikur Andrej,
bróður systranna, sem hétt að
hann höndlaði hamingjuna við að
kvænast.
kemba verkið.”
„Já, það er mikið atriði að hafa
nógan tima,” sagði Jenný, „það þarf
að vera tími til að efast og til að gera
mistök. Þetta er likt því að byggja
upp mynd. Það er hægt að gera i
byrjun góðan flöt í myndina sem
reynist síðan ómögulegur þegar
myndin er nær fullgerð.”
AfAntoni Tsókhov
Rússneski læknirinn Anton
Tsékhov er einn þekktasti höfundur
leikhúsbókmenntanna. Þrjár systur
eru eitt síðasta verkið hans en áður
höfðu ívanov, Máfurinn og Vanja
frændi gert nafn hans frægt. Auk
þess samdi Tsékhov ntörg smærri
verk, m.a. fjöldann allan af smásög-
unt til að framfleyta sér í námi. Þrjár
systur voru frumsýndar 1901. 1904
er Kirsuberjagarðurinn frumsýndur
og sama ár lézt Tsékhov úr berklum,
aðeins 44 ára aldri. En hvað kemur
leikhúsfólki til að takast á við verk
hans hartnær 80 árum síðar?
„Ef leikhús á rétt á sér, þá eiga
verk Tsékhovs erindi á svið. Hann
fjallar um grundvallarspurningar i
mannlegu lífi þannig að ég held að
allir skilji. Verk hans eru ekki
tímasett. Þau eru sígild,” svaraði
Kári.
„Ég held að lífsreynsla hvers og
eins hafi áhrif á skilning og túlkun
viðkomandi á þessu verki Þess vegna
held ég að hver og einn konti til með
að upplifa sýningu okkar á sinn hátt
og ég vil hvetja alla sýningargesti til
að gefa sér þann rétt,” sagði Jenný
Guðmundsdóttir í lok samtalsins.
„Ég hef aldrei elskað á ævinni. Mig
hefur dreymt um ástína — lengi —
dag og nótt, en sál min er eins og
slagharpa með læstu hljómborði
og lykillinn týndur." Yngsta
dóttirin, Írína, er leikin af
Guðbjörgu Thoroddsen.
Marinó Þorstektsson krikur Ivan
heriæknl sem eltt skm eiskaði
móður systranna. Harm mmn ekki
lengur hvort hún elskaði hann.
András Sigurvinsson leikur
Nikoiaj barón sem elskar Irinu, en
elskar hún hann?
Theodór Júh'usson lelkur Soljonij
kaptein sem er ástfangin af Írínu.
Jónsteinn Aðalstelnsson leikur
Ferapont, aldraðarr, ráðhúsvörð.
Sjón er sögu ríkati
Það er ekki hægt að lýsa Þrem
systrum LA á prenti. Það verður hver
að dæma fyrir sig. Verkið er alvar-
legt; það er ekki skopleikur, en þaðer
heldur ekki harmleikur. Það er meira
að segja kómískt á köflum og þá er
allt í lagi að hlæja. Það þarf enginn
að skammast sín fyrir að hlæja á vit-
lausum stöðum. Þessi sýning Leikfé-
lags Akureyrar á eftir að koma á
óvart — já, meira að segja skemmti-
lega á óvart.
Sunna Bo’rg, Ragnheiður Elfa Arn-
ardóttir og Guðbjörg Thoroddsen
leika systurnar Olgu, Masju og Írínu.
Aðrir leikarar eru Guðjón Pedersen,
lngibjörg Björnsdóttir, Þröstur Guð-
bjartsson, Gestur E. Jónasson, And-
rés Sigurvinsson, Theodór Júlíusson,
Marinó Þorsteinsson, Jónsteinn
Aðalsteinsson og Þórey Aðalsteins-
dóttir.
Guðlaug Hermannsdóttir er að-
stoðarmaður leikstjóra og Oliver
Kentish hefur samið tónlist við
verkið. Lýsinguna hefur Ingvar
Björnsson séð um og Þráinn Karlsson
smíðaði leikmyndina. Búningameist-
ari er Freygerður Magnúsdóttir.
Aðrir sem við sýninguna vinna eru
Ásgerður Skúladóttir, Viðar Garð-
arsson, Þórarinn Ágústsson, Stein-
grímur Óli Sigurðsson og Elsa
Björnsdóttir.
GS/Akureyri
„ Við erum farin að þekkja hvort annað nokkuð vel." Kári HaHdór og
Jenný Guðmundsdóttir. -D V-myndir/GS Akureyri.
„Það er ekki undan neinu að
kvarta, en ág hofði heldur viljað
vera gift og vera heima allan
daginn. Már myndi þykja væntum
manninn minn." Sunna Borg fer
með hlutverk Olgu, elztu
systurinnar.
og ág, spillast menn — verða bitrir
og ruddalegir." Masja, sú systirin
sem er óhamingjusöm í hjóna-
bandinu, en finnur hamingjuna
með hjákarli sínum og missir hana
svo, er leikin af Ragnheiði Etfu
Arnardóttur.