Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1982, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1982, Síða 12
12 DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1982. Aldarafmæli samvinnuhreyfingarinnar á íslandi: „Hugsjónir samvinnuhreyf- ingarinnar eru sígildar Valur Amþórsson kaupfélagsstjóri og stjórnarformaður SÍS íhelgarviðtali Nú um helgina heldur samvinnuhreyfingin í landinu hátíðlegt að öld er liðin frá stofnun fyrsta kaupfélagsins, Kaupfélags Suður-Þingeyinga. Jafnframt eru liðin áttatíu ár frá því að Samband íslenzkra samvinnufélaga var stofnað. Af því tilefni er Valur Arnþórsson kaupfélagsstjóri Kaupfélags Eyfírðinga á Akureyri og stjórnarformaður Sambands íslenzkra samvinnufélaga í helgarviðtali að þessu sinni. Efnahagslegt og félagslegt róttlæti — Mig langar fyrsl aíi biðja þig að gcra grein fyrir grundvallarhugsjónum slufnenda samvinnuhreyfingarinnar. „Þegar samvinnuhreyfingin var siofnuð ásínum tíma stóð yfir í landinu harðvitug barátta við erlent verzlunar- vald. Verzlunarfrelsi var ekki í reynd þótt svo hafi verið lögleitt. íslendingar höfðu reynt að ná verzluninni í eigin hendur, en þær tilraunir brugðust flestar eins og svonefnd verðkröfufélög og verzlunarhlutafélögin en stærst þeirra var Gránufélagið. Santvinnufélögin spruttu upp í frani- haldi af þessum forverum sínunt úr jarðvegi mikilla pólitískra átaka sent snerust um það að veita íslendingunt efnahagslegt frelsi. Einn mikilvægasti þátturinn í þvi var að íslendingar næðu verzluninni i eigin hendur eins og Jón Sigurðsson forseti hafði bent á. Samvinnufélögin voru nijög öflugt tæki í þeint tilgangi að gera verzlunina innlenda þótt fleiri legðu þar hönd á plóginn. Markntið samvinnu- hreyfingarinnar var að skapa sannvirði vöru og þjónustu þannig að landsmenn fengju sannvirði fyrir vörur sínar og greiddu sannvirði fyrir innfluttar vörur. Að öðru leyti má segja það að samvinnuhugsjónin boði efnahagslegt og félagslegt réttlæti almenningi til Itanda á grundvelli lýðræðislega skipu- lagðra samtaka. Samvinnuhreyfingin boðar samhygð og santhjálp og vill leitast við að ntenn leysi í santvinnu þau meiriháttar viðfangsefni samfélagsins sem leysa þa.rf meðsameiginlegu átaki. Samvinnuhreyfingin vill að þjóðarauðurinn sé almannaeign fremur en að fáir eigi rnikið og flestir lítið. Auk þess vill samvinnuhreyfingin vinna að varðveizlu og eflingu byggðar í land- inu. Segja má að þelta sé megininntakið í hugsjónagrundvelli samvinnumanna þótt auðvitað mætti tína fleira til. ” S/gildar hugsjónir — Eru þessar hugsjónir stofnenda samvinnuhreyfingarinnar enn i fullu gildi? „Hugsjónirnar eru sigildar en sam- vinnuhreyfingin sem slík verður auð- vitað að þróast með þjóðfélaginu. Hún ntá ekki verða eins og saltstólpi við veg- slóð sent þjóðin hefur löngu gengið um. Þess vegna skapa nýir tímar ný viðhorf, ný vinnubrögð og ný viðfangs- efni.” — Samvinnuhreyfingin var í upphafi meira en verziunarsamtök. Hún var ai- mcnn félagsmálahrcyfing sem hafði á stefnuskrá sinni lýðræði og fjöldaþátt- töku eins og þú vikur að hér að framan. En á síðari árum hefur hreyfingin verið mikið gagnrýnd fyrir samþjöppun valds og skort á lýðræðis- Viðtal: Ólafur L Friðriksson Myndir:SveinnÞormódssono.fl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.