Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1982, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1982, Síða 14
14 DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1982. f? Hi iigsj jónir sai nvinn uhreyfi nga rin ina re ri ISI ígil Id a r” því lægsta sem gerist í þróuðum ríkjum. Hins vegar er ekki vafamál að ýmislegt fleira getur orðið til að lækka vöruverð annað en starfsemi samvinnu- félaga. Þar kemur m.a. til gildi sam- keppninnar, sem ég hef áður minnzt á, og það má segja að stundum hafi aðrir aðilar en samvinnuhreyfingin fengið beztu tækifærin á aðalmarkaðstorgi þjóðarinnar til þess að skapa sér að- stöðu sem hefur gert þeim kleift að vera með hagstætt vöruverð en hafa jafn- f ramt góða afkomu. í þessu efni vill samvinnuhreyfingin sitja við sama bórð og aðrir og fá tæki- færi til að sýna getu sína. Það mun tvímælalaust leiða til enn lægra vöru- verðs.” — Situr samvinnuhreyfingin ekki við sama borð og aðrir? „Hún hefur ekki gert það varðandi smásöluverzlunina á aðalmarkaðstorgi þjóðarinnar sent er hér á höfuðborgar- svæðinu. Þetta vita allir sem vilja vita og um það þarf ég ekki að fjölyrða frekar.” SÍS auðhringur? — Því má með nokkruin rétti lialda fram að ef fyrirtæki af sömu stærð og gerð og Sambandið væri til í Banda- ríkjunum, með hliðsjón af hlutfalli stærðar þjóðanna og viðskiptaveltu, þá væru því settar skorður sem auðhring. Er Sambandið auðhringur sem hefur einokunaraðstöðu á vissum sviðum viðskiptalifsins? ,,Þessu sjónarmiði má ekki halda fram með neinum rökum eða rétti og ekkert sem bendir til að sambærilegu fyrirtæki og Sambandið er yrðu settar neinar skorður í löggjöf erlendis. Án þess að það skipti neinu verulegu máli má upplýsa það að í Bandaríkjunum, höfuðvígi kapítalismans, er mikill sam- vinnurekstur sem ekki eru settar neinar skorður við. Það skiptir ekki máli fyrir íslendinga hvað gert yrði erlendis heldur á að haga málum eftir því sem hér á við. Í sambandi við samvinnuhreyfing- una í heild sinni og þær auðhrings- kenningar, sem maður heyrir andstæð- inga hreytingarinnar nefna, ber sér- staklega að benda á þá staðreynd að það má alls ekki líta á samvinnuhreyf- inguna sem eitt fyrirtæki eða eina efna- hagslega heild. Einnig verður sérstak- lega að leiðrétta þann misskilning sem maður verður var við hjá aðilum sem fyrst og fremst þekkja samvinnu- hreyfinguna utan frá að megininntak samvinnustarfsins í landinu felist i starfsemi Sambandsins og að það eigi allan reksturinn og þar með talið öll kaupfélögin í landinu. Þessu er öfugt farið.” Kaupfólögin eiga Sam- bandið en ekki öfugt ,,Kaupfélögin í landinu sem eru aðilar að Sambandinu eru rúntlega 40 að tölu og þau eru algerlega sjálfstæð fyrirtæki í eigu fólksins í viðkomandi byggðarlögum. Eignir þeirra eru sam- eign fólksins á viðkomandi svæðum og lögum samkvæmt má ekki flytja fjár- magn þeirra frá byggðarlaginu. Kaup- félögin eiga síðan sameiginlega Samband islenzkra samvinnufélaga sem mjög mikilsverða sameiginlega þjónustustofnun m.a. til innkaupa á vörum og til ’sölu á ýniiss konar afurðum. Stór fjöldahreyfing sem þjónað hefur stórum hluta heillar þjóðar í 100 ár býr ekki í tjöldum og fer ekki í felur á bak við fjöll eða hóla íslenzkra efna- hagsmála. Fjöldahreyfing með yfir 42 þúsund félagsmenn meðal þjóðar sem telur um 230 þúsund manns er að sjálfsögðu stór og áberandi og dregur sízt úr umfangi sínu. Ef einhverjir hafa ánægju af því að kalla samvinnuhreyfinguna auðhring þá vil ég ekki spilla þeirri ánægju þeirra. Þetta eru samtök almennings í landinu. Allir hafa jafnan rétt til að eignast hlut í „auðhringnum”.” — Njóta Sambandiö og kaupfélögin einhverra sérstakra forréttinda í skatta- málum? ,,Nei, samvinnufélögin borga skatta eftir sömu reglum og önnur fyrirtæki í landinu, nema að sjálfsögðu ríkisfyrir- tækin, sem eru nánast skattlaus eins og kunnugt er. Samvinnufélögin hafa rétt til þess að endurgreiða til félagsmanna af vöru- verði. Sú endurgreiðsla er í eðli sínu eins og afsláttur af vöruverði og má dragast frá í uppgjöri til skatts. Einka- verzlun má veita viðskiptavinum sínum afslátt og draga hann frá í uppgjöri til skatts. Báðir sitja í aðalatriðum viö sama borð hvað skatta varðar en það má benda á þá staðreynd að tekju- skattar atvinnulífsins eru í raun óveru- legir vegna þess að rekstursgrundvöllur atvinnulifsins er yfirlei tt ekki þannig í verðbólguþjóðfélagi að um umtals- verðan hagnað séaðræða.” Sam vinnuhreyfingin sett tH hliðar á höfuðborgarsvœðinu — Hver er skýringin á því aö sam- vinnuhreyfingin er ekki eins sterk hér á höfuðborgarsvæðinu í verzlun og kaupfélögin eru annars staöar á land- inu? „Það er ekkert vafamál að hér á höfuðborgarsvæðinu hefur samvinnu- hreyftngin verið sett til hliðar hvað varðar lóðaveitingar. Kron varð að fara með stórmarkað sinn út fyrir borgarmörkin og staðsetja hann i Kópavogi svo dæmi sé tekið. Stórmarkaður hefur starfað hér í iðnaðarhverfi um margra ára skeið og þar voru gerðar töluverðar skipúlags- ráðstafanir til að greiða fyrir umferð. Á sama tíma gat Kron ekki fengið leyfi til starfrækslu stórmarkaðar i Holta- görðum og sýndi þó upphafleg hönn- un byggingarinnar að þar var ætlað að risi stórmarkaður. Það er ekki fyrr en nú alveg nýlega að breyttar aðstæður leiddu til þess að samvinnuhreyfingin fékk leyfi til þess að reisa þar stórmark- að. Tilskilin leyfi eru nú fengin og undirbúningur málsins er í fulluni gangi.” Fjárfestingar og ríkisstyrkur — Þaö var mjög deilt á Sambandið á síöasta ári er það spuröist aö þaö hygö- ist kaupa frystihús á Suðureyri á sama tíma og fariö var fram á ríkisstyrk vegna erfiöleika iönaðarfyrirtækja þess á Akureyri. Er ekki óeðlilegt að standa í fjárfestingum og biðja um ríkisstyrk á sama tíma? „Það er ekki rétt að sótt hafi verið um ríkisstyrk. Sambandið, eins og reyndar aðrir iðnrekendur i landinu, vakti athygli stjórnvalda á ófullnægj- andi rekstursgrundvelli iðnaðarins sér- staklega útflutningsiðnaðar á sviði ull- ar- og skinnavöru. Sambandinu tókst e.t.v. betur en öðrum að vekja athygli á þessu vandantáli og i pólitískum áróðri var þetta túlkað svo að Sambandið hefði verið að biðja um ríkisstyrk. En það var fráleitt. Hvorki Sambandið eða Félag íslenzkra iðnrekenda var að biðja um ríkisstyrk heldur um leiðréltingu á rekstursgrundvelli. Á sama tíma var reyndar til umfjöll- unar sérstakt vandantál varðandi rekst- ur einu skóverksmiðjunnar í landinu, skóverksmiðjunnar lðunnar, sem er í eigu Sambandsins og hafði verið rekin með umtalsverðum halla alllanga hrið. Sambandið benti sérstaklega á að leið- rétta rekstursgrundvöll hennar og taldi nauðsynlegt að fá sérstakt lánsfé til hágræðingar í verksmiðjunni ef það mætti verða til þess að rekstursgrund- völlur fyndist. Stjórnvöld urðu við beiðni Sam- bandsins i því sérstaka tilfelli, að minnsta kosti að hluta, enda var skó- verksmiðjan Iðunn ekki lögð niður og framtíðarhorfur hennar eru nú bjart- ari en unt langa hríð. Fiskiðjuverið sem þú nefndir var boðið samvinnufélögunum til kaUps að frumkvæði þáverandi eigenda. Ég veit ekki til þess að þeir hafi verið taldir sér- stakir samvinnumenn, en það kom fram í viðtölum við þá að þeir töldu framtíð fiskiðjuversins og byggðarlags- ins bezt borgið i höndum samvinnu- manna. Kaupfélagið á svæðinu lýsti jmm Sumum Finnst aö Sambandsfyrirtækin hafi fengið of stóran bita af kökunni. áhuga á kaupununt og Santbandið vildi styðja við bakið á samvinnufólki á svæðinu með þvi að gerast þátttakandi í kaupunum. Sölufyrirtæki íslenzkra samvinnu- manna í Bandaríkjunum hafði vegnað vel þar á markaði niiðað við allar að- stæður og hafði svigrúm til að taka við auknu framleiðslumagni til sölu. Með tilliti til allra aðstæðna var eðlilegt að Sambandið og kaupfélagið á staðnum keyptu fiskiðjuverið.” — Hvernig gengur rekstur kaupfé- laganna um þessar mundir? Eru ein- hver þeirra rekin meö halla? Dreifb ýlis verzlunin ívanda „Þetta er nú mjög ntisjafnt eftir að- stæðum enda eru kaupfélögin innbyrð- is nokkuð ólík hvað varðar þá þætti sem starfsemin byggist á. Meginvanda- málið í rekstri kaupfélaganna tel ég að sé ónógur rekstursgrundvöllur dreifbýl- isverzlunarinnar. Þau verðlagsákvæði sem eru í gildi i landinu gefa í raun ekki nægjanlegt svigrúm til þess að hægt sé að taka tillit til þess aukna reksturs- kostnaðar sern óhjákvæmilega fylgir dreifbýlisverzlun miðað við verzlun i aðalbyggðarkjörnum landsins. Þar kemur sérstaklega til að veltu- hraði birgða verður miklu hægari en í aðalbyggðarkjörnunum og þar af leið- andi verður vaxtakostnaður meiri og afkontan þá að sama skapi verri. Auk þess þurfa þau á auknu húsnæði að halda vegna aukins birgðahalds og því fylgir verulegur aukakostnaður. Það sem einnig skapar sérstaka erfiðleika varðandi rekstursgrundvöll matvöru- “verzlunar almennt og þá sérstaklega hvað varðar dreifbýlisverzlunina eru ónóg sölulaun fyrir landbúnaðarvörur. Verzlun nteð landbúnaðarvörur er mjög hátt hlutfall matvöruverzlunar í dreifbýli og því auka þessi ónógu sölu- laun mjög á vanda hennar.” I Ónóg sölulaun á landbúnaðarafurðir „Maður sér það á samanburði við lönd erlendis að þar eru sölulaun fyrir smásöluverzlun með landbúnaðarvörur verulega hærri en á íslandi, svo sem í Danmörku. Það yrði því eitt stærsta at- ‘riði tii leiðréttingar á rekstursgrundvelli dreifbýlisverzlunarinnar ef stjórnvöld leiðréttu þessi sölulaun. Að öðru leyti má segja að afkoma kaupfélaganna í öðrurn greinum eins og til dæmis í sjávarútvegi sé mjög í stíl við það sem almennt er í landinu á hverjum tima. Yfirleitt má segja það um starfsemi kaupfélaganna eins og marga aðra at- vinnustarfsemi í landinu að fjármuna ntyndum i rekstri er of lítil til að vega upp á móti bruna veltufjármagnsins á verðbólgubálinu.” — Hverjar eru helztu fyrirhuguöu framkvæmdir Sambandsins á næst- unni? „Stórmarkaðurinn í Holtagörðum er eitt þýðingarmesta verkefni santvinnu- hreyfingarinnar á næstunni. Þá má einnig nefna nauðsynlega uppbyggingu fyrir skipadeild Sambandsins á Holta- bakka. Sambandið hefur fengið lóðir við Vesturlandsveg fyrir byggingar- vörusöluna og þar verða hafnar ein- hverjar framkvæmdir áður en langt um líður. Endurnýjun á hluta skipastólsins verður athuguð þegar aðstæður leyfa og eins má nefna að Sambandið er í smáum stíl að byrja í fiskeldismálum. Sambandið hefur lýst áhuga á því að styðja við bakið á þessari nýju atvinnu- grein og því hefur þegar verið ákveðin þátttaka á einum stað á Norðurlandi með kaupfélagi á viðkomandi svæði, bændunum og aðila sem rekur myndar- legt einkafyrirtæki á höfuðborgar- svæðinu. Samvinnuhreyfingin vill stuðla að því að fiskeldismál geti að sem mestu leyti verið í höndum íslend- inga sjálfra. Ég ntan ekki að telja upp fleiri sér- stök viðfangsefni í bili en fullyrða má að strax og aðstæður leyfa mun Sam- bandið og samvinnuhreyfingin beita sér jfyrir áframhaldandi uppbyggingu is- jlenzks iðnaðar sem verður að vera meg- linvaxtarbroddurinn í islenzkri at- jvinnustarfsemi á næstu árum og ára- kugum. Þaö gæti m.a. komið til greina þátt- taka með öðrum íslenzkum aðilum í uppbyggingu á grundvelli ónýttra orku-! linda landsins en þau mál hafa ekki verið nánar mótuð enn sem komið er.” Sambandið myndi athuga útvarpsrekstur efleyft yrði — í viötali viö Ingvar Gíslason menntamálaráöherra nýveriö kom fram aö hann væri þeirrar skoðunar aö ef leyfður væri frjáls útvarpsrekstur þá yröi hann meö þeim takmörkunum að einungis fyrirtækjum eöa félagasam- tökum sem ekki þyrftu að reiöa sig á auglýsingatekjur yröi veitt leyfi. Hefur Sambandiö hugleitt stofnun og rekstur útvarpsstöövar? „Það hefur ekki verið rætt um rekstur útvarpsstöðvar innan sam- vinnuhreyfingarinnar. Þetta sjónarnúð menntamálaráðherra segir aðeins til um hans skoðun. Það er hins vegar per- sónuleg skoðun mín að ef fyrirtækjum eða félagasamtökum yrði leyft að reka útvarpsstöð í landinu þá myndi Sam- bandið athuga það mál sérstaklega fyrir hönd samvinnuhreyfingarinnar. En þetta er eins og hvert annað hvísl inn í framtíðina sem enginn veit hvort einhvern tíma fær eitthvertgildi.” Opið hús hjá kaupfólögunum — Hvernig hyggst samvinnuhreyf- ingin minnast þeirra tímamóta sem eru íár? ,,Það verður gert með ýmsu móti. Sambandið og kaupfélögin verða með svonefnt opið hús, sem verður ýmist 19. eða 20 febrúar, en afmælið sjálft er þann 20. Tímamótanna verður einnig minnzt með því að gefin verður út saga sam- vinnuhreyfingarinnar sem nú er í ritun ,þó ekki sé enn ákveðið hvenær fyrsti hluti þess verks komi út. Þá verða gerð- ar fræðslumyndir um starfsemi sam- vinnufélaganna eins og hún er við þessi tímamót. Aðalfundur Sambandsins verður haldinn á Húsavík þann 18.—19. júlí til minningar um stofnun fyrsta kaup- félagsins í Suður-Þingeyjarsýslu. Sérstakur hátíðarfundur verður síðan að Laugum í Reykjadal. Ýmislegt fleira mætti nefna sem of langt mál yrði að tíunda, s.s. sérstök afmælistilboð kaupfélaganna og Sam- bandsins. En þess má geta sérstaklega að ýmis erlend samvinnufélög niunu heiðra ís- lenzka samvinnumenn með þvi að halda fundi sína hér á landi á þessu ári. Þar má nefna Alþjóðasamtök sam- vinnubanka og Kvennanefnd Alþjóða- samvinnusambandsins og Norræna samvinnusambandið mun halda aðal- fund sinn í Reykjavík í sumar en Sam- bandið er aðili að þeim samtökum fyrir hönd hinnar íslenzku samvinnuhreyf- ingar.” Hefgóða samstarfsmenn — Aö lokum, Vaiur Arnþórsson. Hvernig gengur þér að sameina kaupfé- lagsstjórastörf hjá KEA og störf stjórnarformanns hjá Sambandi ís- lenzkra samvinnufélaga? „Það gengur prýðilega að öðru leyti en því að ég hef ekki nægilega stjórn á veðurguðununt. Þeir rugla oft fyrir mér ferðalög milli Reykjavíkur og Akureyr- ar án þess að ég fái mikið við það ráðið. Aðalstarf mitt er að vera kaupfélags- stjóri í KEA en ég hef svo góða sant- starfsmenn að ég get leyft mér að eyða tíma í sameiginleg mál samvinnuhreyf- [ingarinnar án þess að það bitni á rekstri KEA. Stjórnarformannsstarf í Samband- inu er ekki fast starf, ekki einu sinni að jhluta, þannig að ekki er eins erfitt að jsamræma þetta og ókunnugir kynnu að jhalda. Vinnudagurinn verður oft býsna 'langur en um það er ekki nema gott eitt að segja þegar viðfangsefnin eru áhugaverð.” -ÓEF

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.