Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1982, Side 36
^..y^yur.nn er / aa, ag,,a oetgja tanasmenn sig utafsaftk/ötíog baunum þar tilþeim liggur við hljóðum. Þær Rakelog
Rut i verzlunmm Noatúni voru sammála um það í morgun að sjaldan hefði kjötið verið jafngott ognúna.
Ný og betri kjör á spariskírteinum ríkissjóðs lýra gildi eldri skírteina:
Eldrí bréf seljast
ekki aö óbreyttu
— segir Pétur Kristinsson hjá verdbréfamarkaöi Fjárfestingafélagsins
„Seðlabankinn var að yfirbjóða
markaðinn með því að hækka vext-
ina. Bréfin sem bankinn seldi fyrir
áramót báru 2 1/2% vexti fyrstu
fimm árin en 3,2% jafnaðarvexti allt
timabilið sem er 22 ár. En nú breytti
bankinn kjörunum þannig að hann
lækkar binditímann í þrjú ár og tekur
upp 3,5% vexti strax,” sagði Pétur
Kristinsson hjá verðbréfamarkaði
Fjárfestingafélagsins i samtali við
DV.
„Þetta þýðir að flokkar frá 2.
flokki 1977 til og með 2. flokki 1981
eru með lægri vöxtum heldurenþe.ta
nýja útboð, fram að fyrsta
innlausnardegi hvers flokks. Það
þýðir í raun að fólk sem á þessi bréf
getur ekki selt þau á markaði að öllu
óbreyttu vegna þess að fólk vill
miklu frekar kaupa þetta nýja útboð
Seðlabankans.
Við fórum því út í það að reikna
afföll á bilinu 0,36 til 5,24% inn i
þessi bréf. Við bjóðum því í dag
verðtryggð spariskírteini ríkissjóðs,
1981 og eldri flokka, með lægstu
vöxtum 3,7%, þ.e.a.s. við erum með
hærri ávöxtun en Seðlabankinn er að
bjóða í dag. Þetta er svar
markaðarins við yfirboði Seðla-
bankans til að skemma ekki fyrir því
fólki sem á bréfin frá 1977 til 1981.
Fólk á í dag þrenns konar
möguleika til að verðtryggja sparifé
sitt. í fyrsta lagi verðtryggða
reikninga í bönkum með 1% ávöxtun
á ári. Þá tekur það 70 ár að tvöfalda
raungildi fjársins. í öðru lagi eru það
spariskirteini ríkissjóðs. Miðað við
kjörin í dag tekur það 20 ár að
tvöfalda raungildið en miðað við þau
bréf sem við bjóðum upp á tekur það
19 ár. Loks erum við með verðtryggð
veðskuldabréf útgefín af Pétri eða Páli
úti í bæ. Þau eru til hér á lager, sex
til tiu ára gömul bréf, og eru seld með
afföllum sem miðuð eru við þá for-
sendu að þau geft af sér 8% ávöxtun
á ári umfram verðtryggingu. Það
tekur því ekki nema 9 ár að tvöfalda
raungildi höfuðstólsins með þeim
kjörum.
Eina áhættan sem tekin er með
þessum bréfum er að peningarnir
skili sér kannski ekki á alveg réttum
tíma. En borgi skuldarinn ekki á
gjalddaga koma á þetta dráttarvextir
og dragi hann þetta siðan í einn eða
tvo mánuði er hann búinn að fyrir-
gera rétti sinum á bréfinu og má þá
gjaldfella það allt saman. Næsta
stigið yrði þvi að bjóða út eignina. En
þessar aðfarir verða mjög sjaldan.
Áhættan á því að vera lítil sem
engin með þessi bréf. Við tryggjum
að viðkomandi bréf sé tryggt innan
við 60% af brunabótamati fast-
eignarinnar og við reynum að vinsa
i-i þá alverstu i skuldamálum á
Islandi,” sagði Pétur Kristinsson.
-KMU.
AFLEKHNG UNNULAUSS
0G ÓVÆGINS ÁRÓDURS
— segir Jón Ormur Halldórsson, aðstoðarmaður forsætisráðherra
„Það er margt sem spilar þarna sam-
an. Það hefur verið linnulaus áróður
innan Sjálfstæðisflokksins og í þeim
blöðunt sem sjálfstæðismenn lesa helzl
gegn þessari ríkisstjórn í tvö ár. Þessi
áróður hefur verið mjög óvæginn
þannig að það er ekki óeðlilegt að hann
skili sér eitthvað,” sagði Jón Ormur
Halldórsson, aðstoðarmaður forsætis-
ráðherra, er hann var spurður um
niðurstöður skoðanakönnunarinnar
sem birtist í DV I gær um afstöðu sjálf-
stæðismanna til ríkisstjórnarinnar.
,,Auk þess hefur verið rík tilhneiging
meðal sjálfstæðismanna upp á síðkast-
ið til að efla samstöðuna i flokknum
fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor.
Menn eru orðnir þreyttir á ástandinu í
flokknum og það bitnar að líkindum á
ríkisstjórninni. Einnig kann að vera að
margir sjálfstæðismenn séu óánægðir,
með aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efna-
hagsmálum og finnist ekki nóg að gert.
Hins vegar rekur maður augun í að
það er ekki nema rétt helmingur sjálf-
stæðismanna sem lýsir yfir andstöðu
við ríkisstjórnina en um fjórður.gur er
óákveðinn. Ég held því að ríkisstjórnin
megi sæmilega við una. Þessar tölur
stinga í stúf við þá gífurlega hörðu
stjórnarandstöðu sem flokkurinn og
hans málgagn er í,” sagði Jón Ormur
Halldórsson.
-ÓEF
„Rökrótt afleiðing af
getuleysi stjómarinnar"
,,Vaxandi andstaða við ríkisstjórn-
ina er rökrétt afleiðing af getuleysi
hennar og endalausum bráðabirgða-
ráðstöfunum enda nánast allt i sama
farinu,” sagði Malthías Á. Matthiesen
alþingismaður um niðurstöður
skoðanakönnunar DV í gær, þar sem
athuguð var afstaða sjálfstæðismanna
til rikisstjórnarinnar.
„Vandamál atvinnuveganna hrúgast
upp,” sagði Matthias, „og verðbólgu-
hraðinn er liinn sami og áður. Því sem
rikisstjórnin hafði á stefnuskrá sinni
hefur ekki tekizt að koma í fram-
kvæmd.” -JSS
frýálst, úháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1982
Stjórnin
miklu
óvinsælli
— sagði Matthías
Bjarnason
„Ég hef nú aldrei verið trúaður á
þessar skoðanakannanir en hins vegar
held ég að megi sjá á þeim hvað þessi
ríkisstjórn er óvinsæl. En þetta gefur
bara ekki rétta mynd. Ég er sannfærð-
ur um að ríkisstjórnin er miklu óvin-
sælli en könnunin gefur til kynna,”
sagði Matthias Bjarnason alþingismað-
ur.
„Ef þessi rikisstjórn hefur einhvern
líma haft hljómgrunn þá er það alveg
búið að vera eins og eðlilegt er hjá hióð
sem hefur einhverja dómgreind.” -ÓEF
Selfoss:
Skáru
sundur
hjólbarða
Lögreglan á Selfossi hafði í gær upp
á tveimur 16 ára strákum sem gengu á
bíla aðfaranótt laugardagsins og skáru
sundur hjólbarða. Alls munu þeir hafa
skorið í sundur fjórtán hjólbarða. Bíl-
arnir voru allir i vesturhluta bæjarins.
Að sögn lögreglunnar á Selfossi náðust
piltarnir eftir að saga þeirra hafði bor-
izt út. -EI.A
Innbrot
Brotizt var inn á tveimur stöðum i
nótt, eftir því sem rannsóknarlögregla
ríkisins vissi um í morgun. Farið var
inn i söluturninn á Grandagarði og þar
stolið allnokkru af tóbaki.Þá varbrot-
izt inn í bakariið í Austurveri og stolið
3500 krónum. Ekki er vitað hvort þjóf-
arnir hafa • fengið sér bollur i leiðinni
en eitthvað mun hafa verið til af þeim
eftirdaginnígær. -ELA
,
.0*
v M
LOKI
Ætii nokkur þori að kaupa
nýju spariskírteinin —
næsta útboð gæti orðið enn
betra.
c ískalt
Seven up.
w
hressir betur.