Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1982, Side 15
14
DV.—HELGARBLAÐ. LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1982.
Sérstæð ástamál
Sérstæð ástamál
Sérstæð ástamál
Perlan
Janis Joplin
F. 19. jan. 1943 — D. 4. okt. 1970
FrægOht
Drafandi drykkjumannsröddin,
groddaleg sviðsframkoma og hinn
hrínandi en jafnframt hrífandi söngur
Janis Joplin aflaði henni frægðar og
vinsælda á borð við hénnar eigin átrún-
aðargoð, Bessie Smith og Billie Holi-
day. Seint mun gleymast túikun hennar
á laginu Ball and Chain og breiðskif-
urnai hennar I jórar: Big Brotherand the
Holding Companv, Cheap Thrills,
K"zmic Blues ogPe.ul seljast grimmt
enn þann dag í dag.
Konan
Janis Joplin var af stöndugu
miðstéitarfólki komin. Æskuárunum
eyddi hún í faðmi fjölskyldunnar í hinu
íhaldssama Port Arthur í Texas. Ekki
var hún verulega komin til ára sinna er
kom til árekstra milli hennar og hennar
nánustu. Hún var mjög listræn i eðli
sínu og hafði ganian af því að mála og
lesa góðar bókmenntir en hvorugt at-
hæfið var hátt skrifað hjá þeim sem
áttu að sjá hag hennar borgið. Janis
tamdi sér snemma nokkuð sérkennilega
lifnaðarhætti. Óvenjulegur klæðaburð-
ur, að ekki sé meira sagt, ásamt því
að hún var Verulega gildvaxin og mjög
bólugrafin varð til þess að hún var upp-
nefnd „Svínka” af skólafélögunum. 1
mentaskóla var hún tilnefnd sem
„ljótasti nemi ársins”. Mótleikur
hennar, eða réttast sagt nauðvörn, átti
eftir að móta framkomu hennar það
sem hún átti eftir ólifað. Hún gerði það
lýðum Ijóst að hér væri á ferðinni
hörkukerling sem ekki slægi hendinni á
móti glasi af einhverju góðu eða jafn-
vel því sem sterkara væri og væri yfir-
leitt til í tuskið.
Janis hafði mistekizt að laða fram í
fari sínu og útliti minnsta vott um
kvenlegan yndisþokka þrátt fyrir til-
raunir í þá áttina og þvi sneri hún sér aö
því af alefli að vera tekin í hópinn sem
„einn af strákunum”. í þeim tilraun-
um sínum slóst hún oft í för með ævin-
týramönnum i skólanum þegar þeir
héldu á vit ævintýranna i Louisiana um
helgar. Það var í þeim ferðum sem
Janis kynntist blues-tóniistinni. Hún
fór að reyna fyrir sér sjálf. Likti eftir
söngstíl Bessie Smith og kom víða fram
í Port Arthur á kaffihúsum og smærri
veitingastöðum. Ekki fékk hún nein
laun fyrir sönginn en fyrir kom að
henni var fært glas í þakklætisskyni frá
hrifnum áheyranda eða jafnvel eiganda
staðarins.
Þetta líf átti nú aldeilis við Janis.
Loksins hafði hún fundið eitthvað sem
fólki þótti henni farast vel úr hendi.
Ekki leið á löngu áður en Janis hélt að
heiman í hamingjuleit. Hún slóst í för
með hljómsveitinni Big Brother and the
Holding Company og áður en langt var
um liðið var hún orðin aðalsöngvari
hljómsveitarinnar.
Fyrsta skipti sem Janis Joplin stóð
frammi fyrir verulegum fjölda áheyr-
enda var á fyrstu Monterey popphátíð-
inni (gerð var heimildarkvikmynd uni
hátíðina og þar kemur Janis fram). Þaó
er skemmst frá því að segja að þar slo
Janis þegar í gegn. Þegar síðan breið
skífan Cheap Thrills fylgdi í kjölfarin
voru frægð hennar og framitryggð.
Hún var nú orðin þekkt um gervö I
/
GETRAUNIN
næst drögum viá um
SUZUKI JEPPA
• Suzuki jeppi dreginn út 28. aprfl.
Vorðmœti 85.000 kr.
• Isuzu droginn út 27. jnnúar.
Verðmæti 102.000 kr.
• Opol Kadett droginn út 28. júlí.
Verðmæti 132.000 kr.
DREGIÐ VERÐUR 28. APRÍL.
ÁSKRIFTAR SÍMINN ER 27022.
Bandarikin og lífsstill hennar, sem áður
hafði verið litið á með fyrirlitningu,
varð fyrirmynd þúsunda ungra stúlkna.
Janis neytti verulegs magns áfengis og
eiturlyfja daglega og reyndi ekkert að
fara dult með. Henni tókst meira að
segja að fá framleiðendur Southern
Comfort til þess að gefa henni rándýr-
an pels fyr'ir alla þá auglýsingu sem hún
hefði gefið drykknum. Ofsafengin lífs-
stíll hennar heillaði aðdáendur hennar
en hrelldi í sama hlutfalli alla þá sem
hagsmuna áttu að gæta.
Ekki var annað að sjá en Janis væri
nú á grænni grein. Hún var dáð og
elskuð af þúsundum, frægð hennar
breiddist æ víðar og það var sama hvað
hún tók sér fyrir hendur alltaf sló hún í
gegn. Á hátindi frægðarinnar trúði hún
samt vinum sínum fyrir því að það sem
hún þráði af öllu hjarta væri að eignast
eigið heimili.
„Mig sárlangar til að eiga minn eigin
kall sem ég á sjálf og hefur ekki áhuga
á neinni annarri en mér. Og jafnpott-
þétt og að hann gufar upp á hverjum
morgni klukkan níu þá veit ég að hann
birtist aftur klukkan sex hjá mér og hjá
mér vill hann vera, aðeins mér. Einn
kall, tveir bílskúrar og tveir imbakassar
ogég væri alsæl.”
Þegar vinir hennar lögðu hart að
henni að fara hægar í hörðu lyfin, svar-
aði hún stutt og laggott:
„Við skulum bara horfast í augu við
staðreyndirnar. Ég næ aldrei þrítugs-
aldri.”
Kvöld eitt er hún hafði lokið við að
vinna að upptöku siðustu breiðskífu
sinnar hélt hún heim i herbergi sitt i
Landmarkhótelinu í Hollywood. Þang-
að komin blandaði hún stórum
skamniti af heróíni í sprautu og stakk
beint í æð. Morguninn eftir kom einn
af samstarfsmönnum hennar að henni
látinni.
Dánarursök: Ofneyzla eiturlyfja.
Aldur hinnar látnu: 27 ár.
Kynfífið
Þegar Janis var 18 ára fór hún í ör-
lagaríka ferð til San Francisco í leit að
því listamannalífi sem hana hafði
dreymt um á gagnfræðaskólaárunum.
Hún byrjaði að búa með manni sent
fékk sig fljótlega fullsaddan á henni og
þakkaði pent fyrir og gekk út. Janis
elti hann, varpaði sér fyrir fætur hans
og vafði handleggjunum utan um fót-
leggi hans. Liggjandi á götunni grátbað
hún mannjnn um að yfirgefa sig ekki.
Maðurinn lét hana ekki hefta för sína
og um hríð dróst Janis eftir honum á
DV.—HELGARBLAÐ. LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1982.
Sérstæð ástamál Sérstæð ástamál Sérstæð ástamál
Frægöin varð henni adfjörtjóni
götunni. Þá var eins og rynni upp fyrir
henni ljós hvernig komið væri fyrir
henni. Lægra varð varla lagzt. Hún
sleppti fótum mannsins, reis á fætur og
sagði: „Allt í lagi, gamli minn, farðu
I rassgat.”
Jafnframt hét hún sjálfri sér því að
betta yrði í síðasta sinn sem hún grát-
bændi einhvern um aðelska sig.
llla haldin af eiturlyfjaskorti, yfir-
gefin og auralaus.reyndi Janis að verða
sér úti um fé með því að snúa sér að
elztu atvinnugreininni. Hún bauð
hverjum sem var blíðu sína fyrir fimm
dali shortarann. Þá hrundi heimurinn
að lokum að fullu. Þeir sem henni virt-
ust vænlegir viðskiptavinir annaðhvort
hlógu að henni eða virtu hana ekki við-
lits.
Loks sneri hún aftur til Port Arthur
til þess að sleikja sárin. Sjálfri sagðist
henni svo frá um þetta tímabil í lífi
sínu:
„Ég hefði hleypt hverju sem var upp
á mig, ég hefði tekið inn hvað sem var,
það get ég svarið. Ég hefði tekið það,
sogið það, sleikt það, reykt það,
sprautað því, gleypt það, elskað
það. . .
Árið 1966 fór Janis sína aðra ferð til
San Francisco. Ferðafélagi hennar var
einn af meðlimum Big Brothers sem
samrekkti henni til þess að tryggja að
hún hlypist ekki undan merkjum og
svikist um að syngja með hljómsveit-
inni. Ein af uppáhaldssögum Janis,
sem hún siðar sagði í vinahópi, var um
það hvernig henni hefði verið riðið inn í
hljómsveitina. Tíðar og hryssingslegar
frásagnir Janis af eigin ástarlífi og elsk-
hugum urðu smám saman einkennandi
fyrir hana.
Þó svo að kynlífsáhugi Janis beindist
aðallega að karlniönnum álti hún það
til að gamna sér með kynsystrum
sínum. Einnig átti hún það til að fara
með einhverri ástkonu sinni á karlafar,
þ.e. að þær fóru tvær saman og náðu
sér í stegg í þriggjamannaleik til einnar
nætur.
Janis var svo blátt áfram eða réttara
sagt óhefluð þegar hún vildi fá nienn
(eða konur) til fylgilags við sig að vænt-
anlegum elskhugum féllust hreinlega
hendur og sitthvað fleira sem til ástar-
leikjanna þurfti og flúðu af hólmi.
„Hvað segirðu um að skreppa með
mér fram í búningsherbergi og sjá
hvort við getum ekki hrist fram úr hon-
um í sameiningu?”
Til slíkra skyndileikja var Janis vön
að velja sér unga pilta á aldrinum 16 til
17 ára.
Aðkastið sem Janis hafði orðið fyrir
á upglingsárunum varð þess valdandi
að henni var með öllu ókleift að við-
halda þeirri kynæsandi ímynd, sem á
sviðinu birtist, þegar af sviðinu var
stigið. Það fór þó ekki á ntilli mála að
að gerði það að verkum að hún gerði
sér upp móðursýkislegt fullnægingar-
leikrit í hvert skipti sem farið var á
hana. Það að fá ekki fullnægingu úr
samförum var hún sannfærð um að
yrði talin hennar sök. Á öðrum stund-
um hreinlega gekk hún af elskhugum
sínum hálfdauðum með ofsa sínuni og
sviðsframkoma hennar og söngur hafði
sömu áhrif á karlntenn og Mick Jagger
og Elvis Presley höfðu á konur. Janis
hafði oftsinnis orð á því að hún væri of
ófríð til þess að geta laðað menn að sér.
Hún átti það einnig til að hafa á orði:
„Ég á að heita kynæsandi súper-
stjarna og kem varla nokkrum karl-
manni uppámig.”
Ekki var þetta nú alveg sannleikan-
um samkvæmt en aftur á móti voru
þeir fáir sem gerðu sér tíðförult í bólið
hennar. Einu sinni eftir langa lestarferð
kvartaði Janis undan því að um borð í
lestinni væru 365 karlmenn og hún
hefði aðeins haft samfarir við 65
þeirra.
Janis átti við gífurleg öryggisleysi að
striða og óttinn við að henni yrði hafn-
það svo að þeir fengu varla að blása úr
nös á milli sprettanna. Þrátt fyrir öll
þessi skyndikynni gætti Janis þess vel
að láta þau aldrei verða of náin af ótta
við að menn niyndu reyna að féfletta
hanaáeinhvernhátt.
Janis gerði skýran greinarntun á
reiö reiðarinnar^cgna, og hinum alvar-
legri ástarsamböndum og einu sinni
mun hún jafnvel hafa hugleitt að gift-
ast einum af rekkjunautum sínum.
Nánasta ástarsamband hennar við
aðra stjörnu var þegar hún varð ást-
fanginn af Kris Kristofferson. Því
miður kom upp heldur óheppilegur ást-
arþríhyrningur því að ein af ástmeyjum
Janis varð einnig ástfangin af Kris.
Janis átti fjögurra mánaða ástarævin-
týri með söngvaranum Country Joe
McDonald sem lýsti Janis þannig að
hún hefði verið mjög lagleg og mjög
kvenleg.
Hennar
eigin orð
„Söngur minn er æsandi og ég vil að
hann sé æsandi. Ég vil ekki að hann
æsi áheyrendur mina til óeirða eða ill-
virkja. Ég vil að hann komi þeini til
þess að langa til að „riða”.”
„Á meðan ég er á sviðinu elska mig
tugir þúsunda manna og kvenna og síð-
an held ég ein heim í ískalt bólið mitt.”
Gerð hefur verið kvikmynd um sið-
ustu œviár Janis Joplin ■ >g lók Bette
MkHer aðalhlutverkið. Hún sóst hór
ásamt Alan Bates sem einnig lék í
myndinni.
XEROX
Leiðandi merki í Ijósritun
1 tilefni 100 ára afmælis
Samvinnuhreyfingarinnar
veitum við verulegan afslátt af
BUICK SKYLARK- CHEVROLET CITATION - ISUSU GEMINI ’81
Verð kr. 215.000.—
Verð kr. 213.000.—
Notið einstakt tækifæri til að eignast frábæran framhjóladrifinn
SKYLARK/CITATION eða vandaðan japanskan ISUSU GEMINI (Gengi J7>2
MÁTTUR hinna mörgu
VtlADEILD
SAMBANDSINS
Ármúla 3 Reykjavík S. 38 900
mAtturhinnamörgu