Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1982, Síða 16
16
DV.—HELGARBLAÐ. LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1982.
d ári aldraöra?
vcrdur það sama tuggan og undanf arin ár?
—eða raunhæf t átak öldruðum til góðs?
Fremur er það orðið algengt en hitt að
tileinka sérhvert ár einhverjum
ákveðnum málaflokki. Kvennaárið, ár
barnsins, húsfriðunarár, ár trésins,
norræna málaárið og ár fatlaðra eru öll
liðin og menn velta þeirri spurningu
fyrir sér hver árangurinn hafi orðið af
þessu öllu saman. Telja margir að nóg sé
komið af slíkum árum sem að framan
eru nefnd, því árangur þeirra láti á sér
standa. Beri því að leita inn á nýjar
brautir. Ófáir eru þeir sem nefna þessi ár
friðþægingu samvizkunnar gagnvart
þeim málum sem gleymzt hafa eða lítt
hefur veriðsinnt í tímanna rás.
Hvað sem því liður er árið sem nú lifir
tileinkað málefnum aldraðra og því er
ekki úr vegi að velta fyrir sér aðstöðu og
aðstöðuleysi gamla fólksins I íslenzku
þjóðfélagi. Hver eru helztu vandamál
sem aldraðir eiga við að stríða og hvað
ber að gera svo úr þeim málum verði
leyst? Og er yfirleitt fyrirhugað aö gera
eitthvað?
Nefndir
Eðlilegt má teljast að hefja þessa
umræðu á orðum Svavars Gestssonar
heilbrigðis- og félagsmálaráðherra sem
fer með æðsta valdið I þessum efnum.
Var hann fyrst spurður að því hver
undirbúningurinn hefði verið fyrir ár
aldraðra?
„Heilbrigðisráðuneytið skipaði i fyrra
nefnd til þess 'að gera sérstakt átak á
þessu ári í þeim málefnum aldraðs fólks
sem verður að ráða bót á. í þessari nefnd
eiga sæti 3 stjórnarmenn i stjórn Fram-
kvæmdasjóðs aldraðra. Ein,i maður frá
ASÍ, annar frá VSÍ op tveir menn sem
sérstaklega voru skipaðir af ráðu-
neytinu, þeir Pétur Sigurðsson
alþingismaöur og Hrafn Sæmundsson
prentari sem eins og kunnugt er hafa
mjög látið má! aldraða til sín taka. í
upphafi var þessari nefnd fyrirgert að
undirbúa frumvarp til laga um heil-
brigðis- og félagsþjónustu fyrir aldrað
fólk. Það frumvarp hefur verið lagt fyrir
i ríkisstjórninni og fær vonandi
afgreiðslu fljótlega.
Auk téðrar nefndar var skipuð nefnd
undir stjórn Sigurðar H. Guð-
mundssonar prests í Hafnarfirði.
Hlutverk hennar er að skipuleggja og
samræma starf í þágu aldraðra á þessu
ári og komandi árum. Það skal tekið
fram að þessar tvær nefndir vinna mjög
náiðsaman.”
Frumvarp
um heilbrigðis-
og félagsþjónustu
Hvert finnst þér brýnasta
hagsmunamál aldraðra vera um þessar
mundir?
„Ég legg höfuðáherzluna á það að
frumvarpið um heilbrigðis— og félags-
þjónustuna verði að lögum sem fyrst,
vegna þess að það markar stefnu til
langs tíma í málefnum aldraðra. Þar
með yrði lögfestur sá vilji að aldraöir eigi
sjóðs hefur þegar birzt hér á Reykja-
víkursvæðinu. Má þar m.a. nefna B-
álmu Borgarspítalans sem risið hefur
með óvenjulegum hraða, en þar verður
vistrými fyrir 170—180 hjúkrunarsjúkl-
inga.
Þá hefur Reykjavikurborg gert
verulegt átak I málefnum aldraðra.
Bráðlega verður tekið í notkun nýtt.
dvalar- og hjúkrunarheimili við
Snorrabraut. Þar er gert ráð fyrir 44
hjúkrunarsjúklingum, auk annarra vist-
manna.
í Kópavogi eru í byggingu hjúkrunar-
heimili fyrir aldraða, auk Hrafnistu í
Hafnarfirði. Loks má geta þess að úti á
landsbyggðinni er mikið í gangi og
fyrirsjáanlegar eru miklar framkvæmdir
þar í þágu aldraðra.
/ sæmilegt
horfá árinu
1984
Það er þvi ljóst, að ef fram heldur
sem horfir í framkvæmdum fyrir aldr-
aða, þá verða hjúkrunarmál á höfuð-
borgarsvæðinu komin í sæmilegt horf
Svavar Gestsson, heilbrígðis- og fólagsmálaráOharra.
DV-mynd.-Einar Ólason.
að geta búið við viðunandi lífskjör úti I
þjóðfélaginu, hvort sem það er á
heimilum sínum eða vistheimilum.
Jafnframt er ástæða til þess að benda
á nauðsyn þess að til staðar séu heimili
fyrir það fólk sem þarf á sérstakri
þjónustu að halda.”
Fyrir einu ári eða svo, var mikið rætt
um neyðarástand hjá öldruðum á þétt-
býlissvæðinu vegna skorts á hjúkrunar-
rými. Hefur ráðizt bót á þessu vanda-
máli?
„Já, I framhaldi af þessari umræðu
voru samþykkt lög um Framkvæmda-
sjóð aldraðra sem breyta miklu í þessum
efnum. Samkvæmt þeim lögum voru
innheimtar, á síðasta ári, 100 krónur af
hverjum skattgreiðanda I landinu og á
þessu ári verða innheimtar 200 krónur.
Þessar fjárhæðir renna óskertar til
Framkvæmdasjóðsins og á móti kemur
framlag rikissjóðs á þessu ári til sjóðsins
sem verður un. 11 milljónir króna.
Þaðerþvígert ráð fyrir þvl að I ár verði
til ráðstöfunar til framkvæmda í þágu
aldraðra allt að 30 milljónir króna. Þessa
tölu má bera saman við þær 8 milljónir
sem voru til ráðstöfunar á síðasta ári.
Árangurinn af starfi Framkvæmda-
i síðasta lagi á árinu 1984. Þó verður að
sjálfsögðu stöðugt að halda þessum
framkvæmdum áfram á komandi ár-
um.
Ég vil að endingu fá að segja það, að;
við eigum þeirri kynslóð sem nú telst
til gamals fólks mikið að þakka.Hún
leiddi þjóðina frá frumstæðu bænda-
þjóðfélagi allt til nútímaþjóðfélags og
það er því engin ástæða til annars en
allir leggi sitt af mörkum til að gera
átak á þessu ári, málefnum aldraðra til
góðs.”
í orðum Svavars Gestssonar kom
fram að ríkið mun leggja sitt af mörk-
um til árs aldraðra. Vert er að benda
einnig á öll félagasamtökin í landinu,
sem án efa munu gera sitt til þess að
átak í málefnum aldraðra verði að
raunveruleika.
En hvað finnst almenningi að gera
þurFi á ári aldraðra? Ber að leggja
áherzlu á eitthvert eitt hagsmunamál
gamals fólks öðrum fremur? Og hvað
Finnst gamla fólkinu sjálfu um þetta
umstang sem verður í kringum það á
þessu ári? Við leituðum svara hjá
fjórum einstaklingum úti í bæ og fara
svör þeirra héráeftir
-SER.