Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1982, Side 9
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MIÐVIKUDAGUR 10. MARZ 1982.
9
Útlönd Útlönd Útlönd
Mála-
liðarn-
irfyr-
irrétt
Réttarhöldin í S-Afriku yfir inála-
liðunum 45 sem sakaðir eru um rán á
indverskri flugvél eftir misheppnaða
valdaránstilraun á Seychelles-eyjum í
nóvember síðastliðnum hefjast i dag.
Lögfræðingar búast við að þau verði
bæði löng og ströng og einhver þau
dýrustu í dómssögu landsins.
Málaliðamir undir forystu „Óða
Mike” Hoare ofursta komu síðast
fyrir rétt fyrir tveim mánuðum, þegar
þeim voru birtar ákærurnar. Þeir hafa
gengið lausir gegn tryggingu.
Allir eru mennirnir Suður-Afríkanar
(af misjöfnu þjóðerni) og lék grunur á
að valdaránstilraun þeirra hefði verið
studd af S-Afríkustjórn. Virtust yfir-
völd ætla í fyrstu að taka létt á brotum
mannanna, en vegna viðbragða er-
lendis voru ákærur þyngdar.
Sadruddin Aga Khan prins greindi
mannréttindanefnd Sameinuðu þjóð-
anna frá því í gær, að heimsbyggðin
ætti í æ meiri erfiðleikum við að ala
önn fyrir hinum mikla fjölda flótta-
manna, sem fer stöðugt vaxandi.
Flóttafólk er orðið yfir tiu milljónir.
Aga Khan prins, sem áður veitti
flóttamannahjálpinni forstöðu, skilaði
mannréttindanefndinni sérstakri
skýrslu, sem hann hefur unnið um
fjöldaflótta eða þjóðflutninga. Segir
hann að á sumum svæðum ( heiminum
Mubarak vill
sé flóttamannastraumurinn slíkur að
minni á óstöðvandi blæðingu:
„Nýjar hugmyndir misskildar eða
óaðgengilegar fyrir hluta íbúa, grímu-
laust kynþáttamisrétti, borgarastríð,
hryðjuverk, harðstjórn, innrásir út-
lendinga eða hrein örbirgð hafa neytt
milljónir manna til þess að ákveða að
það hljóti að vera þolanlegra að lifa
utan síns föðurlands.”
Án þess að nefna til flóttafólk frá
Afghanistan (sem er talið vera yfir 2,5
milljónir manna) segir prinsinn að
flóttamannastraumur til nágrannaríkja
hafi lagt slíka byrði á gestgjafa og
mannkynið 'að það sé orðið æ erfiðara
undir henni að standa. — Skoraði hann
á Sameinuðu þjóðirnar að koma sér
upp aðstöðu til þess að hafa meiri and-
vara á sér, þar sem búast mætti við
landflótta í stórum stil, svo að unnt
yrði að láta í té hjálp í tæka tíð.
7 af útlenzku málaliðunum, sem reyndu
að ræna völdum á Seychelles-eyjum,
urðu eftir þar meðan 45 félagar þeirra
sluppu til S-Afríku með því að ræna ind-
verskri farþegaþotu. — Sjömenningarnir
svara til saka fyrir innrásina, en hinir eru
ákærðir fyrir flugrán.
fylgja áfram
friðarbraut
með ísrael
Hosni Mubarak Egyptalandsforseti
lét hafa eftir sér í morgun að Egyptar
mundu halda áfram á friðarbraut sinni
með ísrael þegar ísrael hefði skilað
þeim aftur Sinai eins og til stendur 25.
apríl.
Mubarak sagði að skil ísraelsmanna
á Sinaí gengju samkvæmt áætlun en í
Egyptalandi mundi þó ekki verða efnt
til neinna sérstakra hátíðarhalda í til-
efni 25. april.
Yfir standa enn viðræður Egypta og
ísraela til þess að leysa úr ágreiningi um
orlofsbæinn Taba við Rauða hafið.
„Friðarstefnan er nokkuð sem
Egyptar völdu sér. Egyptaland mun
ekki láta nauðga sér til eins eða neins,”
sagði Mubarak. Hann sagðist mundu
fagna bættri sambúð við arabalöndin,
en Kairó mundi ekki neyða sig upp á
neinn hinna arabísku bræðra.
Egyptalandsforseti vék síðan að
ýmsum þjóðarvandamálum Egypta,
eins og efnahagsörðugleikum og
offjölgunarvandanum. Sagðist hann
hafa skorið niður ýmis útgjöld forseta-
embættisins til þess að setja öðrum
ráðuneytum fordæmi. Eins verður
hætt við hersýningar 6. október (í
tilefni sóknarinnar yfir Súez) til
sparnaðar.
Murbarak kvaðst hafa í bígerð ráð-
stefnu til þess að fjalla um offjölgunar-
vandann. Egyptar eru um 44 milljónir
og þeim fjölgar um 1,3 milljónir áári.
Mála
selina
græna
Menn viluðu ekki fyrir sér að brjót-
ast með skip sitt gegnum ísbreiðurnar á
Lawrenceflóa við Kanada í gær til að
mótmæla þeim selveiðum sem þegar
eru hafnar þar.
Var hér kominn Rainbow Warrior
þeirra Grænfriðunga. Hafði hann verið
sex daga á leiðinni frá Halifax og átti
enn um 20—30 mílur ófarnar að veiði-
svæðinu. Vonaðist talsmaður Græn-
friðunga til að þeir næðu þangað í dag.
Selveiðimenn hafa nú þegar veitt
5000 seli af þeim 20.000 sem þeir mega
veiða á flóanum en aðalveiðarnar und-
an Labrador ströndinni eru vart hafn-
ar.
Grænfriðungar hafa í hyggju að
mála selina græna. Álita þeir að þeir
bjargi lífi dýranna með því að gera
skinn þeirra verðlaus.
vaxandi byrði
á mannkyninu
Flóttafólk sf-
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 112. og 114. tbl. Lögbirtingablaðs 1981 og 4. tbl. þess
1982 á hluta I Laugavegi 69, talinni eign Siguröar Einarssonar, fer fram
eftir kröfu Gísla Baldurs Garðarssonar hdl. og Tryggingast. ríkisins á
eigninni sjálfri föstudag 12. marz 1982 kl. 16.15.
Borgarfógetaembættið i Reykjavfk.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 112. og 114. tbl. Lögbirtingablaðs 1981 og 4. tbl. þess
1982 á hluta í Hvassaleiti 12, þingl. eign Stefáns V. Pálssonar, fer fram
eftir kröfu Baldurs Guðlaugssonar hdl. á eigninni sjálfri föstudag 12.
marz 1982 kl. 10.45.
Borgarfógetaembættið I Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var I 112. og 114. tbl. Lögbirtingablaðs 1981 og 4. tbl. þess
1982 á hluta I Háalcitisbraut 43, þingl. eign Hilmars Sigurbjartssonar, fer
fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar I Reykjavfk á eigninni sjálfri föstudag
12. marz 1982 kl. 10.30.
Borgarfógetaembættið f Reykjavfk.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var I 112. og 114. tbl. Lögbirtingablaðs 1981 og 4. tbl. þess
1982 á hluta í Laugavegi 18, þingl. eign Vegamóta hf., fer fram eftir kröfu
Gjaldhcimtunnar I Reykjavik á eigninni sjálfri föstudag 12. marz 1982 kl.
16.00.
Borgarfógetaembættið í Reykjavfk.
MMMAmMSm
óskar eftir umboðsmanni
í Bolungarvík.
Upplýsingar gefur Sjöfn Þórðardóttir
ísíma 94-7346.
cr NÚ í fromstu röð hátalara