Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1982, Síða 36
Væringar innan Framsóknar vegna f ramboðsiistans í Reykjavík?
JÓSTBNISPARKAD EN
VALDIMAR í 4. SÆTI?
Búizt er við geysilega hörðum
átökum á fulltrúaráðsfundi Fram-
sóknarflokksins í Reykjavík, sem
fram á að fara á mánudaginn kemur
en jiar verður endanleg afstaða tekin
lil skipanar efstu sæta lista fram-
sóknarmanna í borgarstjórnarkosn-
ingunum í vor.
Uppstillingarnefnd flokksins er
klofin í áliti sínu á skipan efstu sæt-
anna og koma a.m.k. tvær uppá-
stundur frá henni til atkvæðagreiðslu
á fulltrúaráðsfundinum á mánudag-
inn. Þá hefur heyrzt að fulltrúaráðið
sjálft eða aðilar innan þess ætli að
koma með þriðju tillöguna og má bú-
ast við mikilli sprengingu innan
flokksins ef hún verður samþykkt.
Samkvæmt þeirri tillögu mun
Jósteinn Kristjánsson verða settur út
af listanum. í hans stað i 4. sætið
komi aftur á móti Valdimar Kr.
Jónsson en hann neitaði að taka sæti
á lista uppstillingarnefndar á dögun-
um, þar sem hann taldi sig ekki hafa
fengið nægilega góða kosningu á
prófkjöri flokksins fyrr í vetur.
Jósteinn Kristjánsson, sem allur
slagurinn stendur um, varð í 3. sæti i
prófkjörinu. Hann bauðst til þess að
skipta á sæti við Sigrúnu Magnús-
dóttur, sem varð þar í 4. sæti.
Meirihluti uppstillingarnefndar gekk
að þessu tilboði hans og samþykkti
að efstu sætin yrðu þar með skipuð
þeim Kristjáni Benediktssyni, Gerði
Steinþórsdóttur, Sigrúnu Magnús-
dóttur, Jósteini Kristjánssyni og
Sveini G. Jónssyni.
DV bar þessa frétt undir Jóstein i
morgun en hann sagðist ekkert vilja
um málið segja á þessu stigi. Sama
sögðu nokkrir aðilar úr fulltrúa-
ráðinu sem við töluðum við. Sumir
þeirra þóttust ekkert við þetta kann-
ast, en viðurkenndu þó að þarna
væri um mjög viðkvæmt mál innan
flokksins að ræða.
-klp-
„Nú er úti veður vott, verður attt að klessu..." segir í kvæðinu sem
vel á við þessa l/ósmynd Einars Ólasonar er hann tók í ofankomunni
sem reið á búka Reykvíkinga í morgun. Þeir á Veðurstofunni tjáðu
blaðinu að éljaveður myndi ríkja á öllu landinu í dag. Áttin yrði
breytileg og búast mætti við kalda og víðast vægu frosti frameftir kvöldi.
Frjáls fJSImiðlun hf.:
KAUPIR EKKI
VIDEÓSÓN
— Undirbýr stofnun nýs kapalkerf is
Allar horfur eru nú á þvi, að ekkert
verði af kaupum Frjálsrar fjölmiðl-
unar hf., útgáfufélags DV, á meiri-
hluta hlutafjár í fyrirtækinu Video-
són hf. Þess í stað er að hefjast á
vegum Frjálsrar fjölmiðlunar hf.
undirbúningur að stofnun nýs kapal-
kerfis.
Þetta kom fram í samtali DV við
stjórnarformann Frjálsrar fjölmiðl-
unar hf., Svdn R. Eyjólfsson.
Kaupsamningur var gerður hinn 2.
niarz sí. milli nokkurra hluthafa i
Videosón hf. og Frjálsrar fjölmiðlun-
ar hf. um kaup á 66% hlutafjár í
Videosón hf. svo sem skýrl var frá i
DV sl. fimmtudag. Í kaupsamningi
þessum voru ýmsir fyrirvarar svo að
ekki átti að verða Ijóst fyrr en að
nokkrum dögum liðnum hvort hann
kæmi endanlega til framkvæmda.
Sagði Sveinn R. Eyjólfsson í sam-
talinu við DV. að ein aðalástæðan til
þcss að kaupin yrðu að ganga til
baka væri djúpstæður ágreiningur
milli núverandi hluthafa í Videosón
hf., m.a. um skuldastöðu fyrirtækis-
ins.
Stofnun sjálfstæðs kapalkerfis
hefur um skeið verið til athugunar
hjá stjórnendum Frjálsrar fjölmiðl-
unar hf. og verður þeim undir-
búningi nú haldið áfram. Sveinn R.
Eyjólfsson kvað ekki tímabært að
ræða um þau áform. Þó væri Ijóst
að áhcrzla yrði lögð á þrjú megin-
atriði: vandaða dagskrá, tp.a.
þannig að einungis yrði sýnt efni
sem löglegur sýningarréttur væri að,
góða þjónustu við notendur kerfis-
ins, og innlenda dagskrárþætti,
aðallega með því að kaupa efni til
sýningar af íslenzkum kvikmynda-
gerðarmönnum. -SG.
Tel eðlilegt
aðþaðsé
samkeppni
— segir Steingrímur Hermannsson
,,Ég kallaði flugráðsmenn, flug- — En er ekki verið að selja Iscargo
málastjóra og fleiri aðila á minn fund með leyfunum?
i gær og ræddi almennt við þá um . ,,Nei. Ef af kaupunum verður þarf
þær tilraunir sem farið hafa fram sið- Íscargo að skila inn leyfunum og
ustu mánuðina um að fá flugfélögin ráðuneytið rnun síðan úthluta þeim
til að gera tillögur um skiptingu leiða aftur. Hvorl þau koma i hlut Arnar-
og viðtækt samstarf. Einnig ræddi ég Eugs er ekki Ijóst en þeir munu
um það viðhorf sem kynni að skapast væntanlega sækja um þau. ”
ef Arnarflug keypti cignir lscargo eða Steingrímur sagði að hann myndi
féiögin rynnu saman á einn eða eiga fundi með flugféiögunum á
annan hátt. Þetta var almenn næstunni til að ræða frckari skipt-
umræða og ég lýsti viðhorfum "'gu fiugleiða ef til þess kæmi.
mínum til þessara mála.” Samkvæmt upplýsingunt blaðsins
Hver voru þau viðhorf? lýsti ráðherrann þvi yfir á fundinum
Flugfélögin ættu að vera a.m.k. með flugráði að hann hygðist veita
tvö í áætlunarflugi, þar af annað meö Arnarflugi leyfi til áætlunarfiugs til
stærstu leiðirnar en hitt sem væri að Amsterdam. Eins og fram kom í DV í
mestu í leiguflugi en hefði þó eitt- gær samþykkti meirihluti stjórnar
hvert áætlunarflug til að gefa því Arnarflugs að kaupa Iscargo á tæp-
betri starfsgrundvöll. lega 30 milljónir króna. -ÓEF.
frjálst, úháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 10. MARZ 1982.
Skoðanakönnun
framsóknarmanna í
Hafnarfirði:
Markús fékk
flestatkvæði
Síðari umferð í skoðanakönnun
framsóknarfélaganna í Hafnarfirði
fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor
var haldin sl. Iaugardag. Félögin höfðu
kosið 100 kjörmenn til að taka þátt í
skoðanakönnuninni og af þeim greiddu
99 atkvæði. Tólf manns voru í kjöri og
átti að raða þeim í sæti 1,—4. Kosn-
ingin var ekki bindandi.
Markús Á. Einarsson, núverandi
bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins,
hlaut flest atkvæði eða 80, þar af 76 í 1.
sæti. Næst kom Arnþrúður Karlsdóttir
með 68 atkvæði þar af 21 í 2. sæti.
Ágúst Karlsson hlaut samtals 66 at-
kvæði, þar af 47 í 2. sæti og Garðar
Steindórsson hlaut 42 atkvæði þar af
21 í 3. sæti. Aðrir fengu færri atkvæði.
-ÓEF.
Stúdentapólitíkin:
Útvarpaðfrá
kappræðu-
fundiíkvöld
í kvöld verður útvarpað frá kapp-
ræðufundi í hátíðarsal Háskóla Is-
lands. Þar leiða saman hesta sína fram-
bjóðendur til stúdentaráðs og háskóla-
ráðs. Þrír listar bjóða fram: A-listi
Vöku, B-listi Félags vinstri manna og
C-listi Félags umbótasinnaðra.
Fundurinn hefst kl. 20.00 og munu
frambjóðendur hinna þriggja fylkinga
halda framsöguræður í þrjátíu minútur
hver. Að framsögu lokinni er mæl-
endaskrá opin hverjum sem taka vill til
máls. Útvarpað verður á FM 90,9.
Núverandi staða í háskólapólitíkinni
er sú að Vaka og Umbótasinnaðir
mynda meirihluta í stúdentaráði gegn
vinstri mönnum og bendir flest til að sá
meirihluti haldist eftir kosningar.
-gb.
LOKI
Tollurinn rannsakar nú
skjaldbökumálið með hraða
snigi/sins.
hressir betur.