Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1982, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1982, Blaðsíða 2
2 DAGBLAÐIÐ & VlSIR. LAUGARDAGUR12. JUNI 1982 Jarðvinnsla MF 50 grafa til leigu í minni og stærri verk. Uppl. í síma 14804 e. kl. 19. Iðnskólinn í Reykjavík Stundakennara vantar til að kenna al- mennar greinar og íþróttir. Iðnskólinn í Reykjavík. fKennara vantar til Vestmannaeyja Nokkra almenna kennara vantar aö Grunnskóla Vestmanna- eyja, bæöi aö yngri og eldri deildum. Meöal kennslugreina í eldri deildum eru stærðfræöi og danska. Þá vantar tónmennta- kennara, myndmenntakennara og sérkennara, m.a. tal- og blindrakennara. Framhaldsskóli Vestmannaeyja leitar einnig eftir kennurum, m.a. í íslenzku, ensku, þýzku og sögu (æskilegt að kennari geti kennt fleiri en eina kennslu- grein). Upplýsingar veita viðkomandi stjórnendur eða skólafulltrúi. Umsóknarfrestur til 1. júlí nk. Skólafulltrúi Vestmannaeyja. Útboð Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboöum í eftirfarandi: RARIK—82021. Suðurlína — Upphengibúnaður úr stáli (Hardware) Opnunardagur: Föstudagur 6. ágúst 1982 kl. 14:00 Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins, Laugavegi 118,105 Reykjavík fyrir opn- unartíma, og verða þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum er þess óska. Utboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagns- veitna ríkisins, Laugavegi 118,105 Reykjavík, frá og með fimmtudeginum 10. júní 1982 og kosta kr. 50,-hvert eintak. Umboðsmönnum aðila sem ætla sér að bjóða í ofangreint efni er bent á hugsanlega stöðvun póst- samgangna við útlönd þann 18. þ.m. Reykjavík 9. júní 1982 Rafmagnsveitur ríkisins Frumleg- urpíanisti Ivo Pogorelich íHöllinni Eins og flestum er kunnugt forfall- aöist flautuleikarinn James Galway á síöustu stundu og í hans staö kemur píanóleikarinn Ivo Pogorelich á vegum Listahátíöar. Ivo Pogorelich er ákaf- lega umdeildur tónlistarmaöur. Hann er í augum margra snillingur en öör- um finnst túlkun hans á verkum gömlu meistaranna röng eöa beinlínis vit- laus. Hann olli miklum úlfaþyt er hann tók þátt í Chopin-keppni sem haldin var í Varsjá. Þar klofnaði dómnefndin í tvennt. Annar helmingur hennar gaf honum hæstu einkunn en hinn helming- urinn lægstu. Ivo Pogorelich tók sig þá til og spilaði inn á plötu sem hann til- einkaði þessari dómnefnd í Varsjá. Hann gengur til fara eins og Elton John og ekki virðist hann skorta sjálfs- öryggiö. „Eg er gáfaöasti og þroskaö- asti ungi maöurinn sem heimurinn á í dag,” lét hann hafa eftir sér í viötali. En þaö voru úrslit dómnefndarinnar í Varsjá sem veittu honum frægö og frama. Hann hefur veriö einn af umtöl- uöustu píanóleikurum heimsins síðan. Ivo Pogorelich hefur yfir aö ráöa mikilli tækni og nótur lítur hann á sem forskriftir. Og forskriftinni fylgir hann eftir því sem honum hentar. Hann túlk- ar klassísk verk á persónulegan máta og hvort sem menn eru sammála um aö hann sé virtúos eöa eitthvað annaö meira leiöistengum aö hlusta á hann. Hann leikur meö Sinfóníuhljómsveit- inni í Laugardalshöllinni á mánudags- kvöld kl. 20.30. Þá geta Frónbúar sjálfir séö og heyrt Ivo Pogorelich í hamviðpíanóiö. -Eg. Ivo Pogoralich sem leikur verk meistaranna oins og hann hafi sam- Brexki miðillinn Eileen Roberts. Brezkurmiðill íheimsókn Nú um helgina er væntanlegur til landsins brezkur miöill, Eileen Ro- berts aö nafni. Þaö er Sálarrannsókn- arfélag Islands sem stendur fyrir komu hennar hingaö. Eileen Roberts mun halda skyggnilýsingafundi næst- komandi sunnudag, þriöjudag og föstu- dag aö Hallveigarstöðum. Ennfremur mun hún vera með sérstakan fund fyrir félagsmenn aö Garöastræti 8 en uppiýsingar um þann fund fást á skrif- stofu félagsins. Eileen Roberts er mörgum Islend- ingum aö góöu kunn en hún hefur áöur komiö hingaö og haldið skyggnilýs- ingafundi við góöan orðstír. -Eg. ROMMÍ Á SUÐIIR- OG AUSTURLANDI Leikfélag Reykjavíkur sýnir Rommí á Suðurlandi og Austfjörðum á næstunni. Fyrsta sýningin verður í Vík í Mýrdal, mánudaginn 14. júní, og síðan veröur haldið austur um og endaö á Egilsstöðum, þriðjudaginn 23. júní. Leikendur í Rommí eru þau Sigríður Hagalin og Gísli Halldórsson. Leikritiö hefur verið sýnt á þriöja ár i Reykjavik og eru sýningar orönar 142. DV-bömum boðið á Galdraland í dag Blaöburöar- og sölubörnum DV er boðiö að sjá Galdraland eftir Baidur Georgs í Kópavogsleikhúsinu í dag kl. 17 (ekki 16 eins og áður var auglýst). Það er Garða- leikhúsið í Garðabæ sem býður börnum í tilefni þess að sýningin verður tekin upp á myndsegulband af fyrirtækinu Framsýn. Leikstjóri er Erlingur Gíslason en leikarar eru Þórir Steingrimsson, Aðalsteinn Bergdal og Magnús Ölafsson og sjást þeir hér á myndinni í hlutverkum sinum. Polýfónkórinn selur kaffi og heldur tónleika Pólýfónkórinn, sem boðiöi hefur verið á listahátíð á Spáni í byrjun næsta mán- aðar, heldur kaffisölu í Súlnasal Hótel Sögu, sunnudaginn 13. júní nk. frá kl. 14—17 síðdegis. Á boðstólum verður ilmandi kaffi af könnunni og gómsætt kaffibrauð á hlað- boröi. Meðan á kaffisölunni stendur verður hlutavelta i gangi meö fjölda glæsi- legra vinninga. Þá munu kórfélagar skemmta kaffigestum með söng. Kórinn heitir á alla velunnara sína aö koma og kaupa kaffi og styrkja á þann hátt starf- semi kórsins. Þriðjudagskvöldið 29. júni nk. mun Pólýfónkórinn halda tónleika i Háskólabiói. Verður þar flutt sama efnisskrá og kórinn flytur á listahátiðinni á Spáni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.