Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1982, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1982, Blaðsíða 19
DAGBLAÐIÐ & VISIR. LAUGARDAGUR12. JUNI 1982. 19 að fagna. Elvar lék af sér peði gegn honum snerruna 1 mótinu, en vann samt; gegn ofanrituöum teygði Helgi sig of langt í jafnteflislegri stöðu og í næstsíðustu umferð missti Helgi gjör- unna stöðu út úr höndunum gegn Jóhanni Hjartarsyni. I sömu umferð gerðu sá er þetta ritar, og Karl Þor- steins jafntefli, svo að Jóhann náði hálfs vinnings forskoti og tryggði sér sigurinn með því aö vinna Ásgeir í síð- ustu umferð. Þeir Tómas Bjömsson og Davíð Olafsson skiptu með sér unglinga- verðlaunum, dvöl á skákskólanum Kirkjubæjarklaustri. Halldór Karlsson varð hlutskarpastur eldri manna og Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir fékk kvennaverðlaun. Jóhann Hjartarson varö tvöfaldur Skák Jón L Árnason sigurvegari á Hvolsvelli, því að hann varð einnig efstur á hraðskókmótinu. Hlaut 111/2 vinning af 14 mögulegum. Aðspuröur kvaðst hann ekki hafa teflt neina „birtingarhæfa” skák á mótinu, hvort sem það er vegna hæversku eða kröfuhörku. Lesendur veröa því að gera sér að góðu eina af skákum minni spámannanna, teflda í 3. umferð. Hvít- ur er Lárus Jóhannesson, sem kom mjög á óvart á mótinu. En hér teflir hann byrjunina of hægfara. Hvítt: Lárus Jóhannesson Svart: Jón L. Árnason Vængtafl. 1. Rf3 c5 2. b3 d6 3. Bb2 e5 4. d3 g6 5. c4 Bg7 6. Dc2 Rge7 7. e3 Rbc6 8. a3 0-0 9. Be2 f 510. Rc3 h611. Hbl a612. h4?! Eðlilegra er að hróka stutt, en hvítur óttast e.t.v. framrás svarta g-peðsins. Svartur hefur þegar náð rýmri og virk- ari stöðu, svo að varla fær byrjunar- taflmennska hvíts góð meðmæli. 12. -Hb8 13. g3 Be6 14. Kfl b5 15. Kg2 Da516. Hal? Yfirsést taktisk brella. Nauðsynlegt er að styrkja stöðuna með t.d. 16. Hhcl, en hvítur stendur þröngt. 16! -e4! 17. dxe4 bxc418. b4 Ekki 18. bxc4 vegna 18. -Hxb2 19. Dxb2 Bxc3 og vinnur. 18. -cxb4 19. axb4 Dxb4 20. Hhbl fxe4 21. Rd2 Hvítur tapar liði eftir 21. Dxe4 Bf5! 22. Dxc4+ Dxc4 23. Bxc4 Kh7 24. e4 Hxb2! 25. Hxb2 Bxc3. Eftir textaleik- inn eru mörg svört peð í uppnámi og drottningin að auki í skotlínu hróksins á b-Iínunni. En svartur á leið út úr vandanum sem tryggir honum vinningsstöðu. 21. -d5! 22. Rxd5 Annars víkur svartur drottningunni undan með vinningsstöðu. 22. -Dxb2! 23. Hxb2 Hxb2 24. Rxe7+ Rxe7 25. Dcl Eða 25. Ddl Hd8 og svartur vinnur ógrynniliðs. 25. -c3 26.Hxa6 Hvítur á eina leið til þess aö bjarga manninum, 26. Bc4, en þá vinnur svartur á eftirfarandi hátt: 26. -Bxc4 27. Rxc4 Hfxf2+ 28. Kgl (28. Kh3 Hh2+ 29. Kg4 Hbf2! og hvítur kemst ekki hjá máti) Hg2+ 29. Kfl Hbf2+ 30. Kel He2+ 31. Kfl Rf5! og óverjandi mát eða stórfellt liðstap blasir við. 26. -cxd2 27. Dc7Hxf2+! Hvítur gafst upp. Ef 28. Kxf2, þá 28. - dl =D og biskupinn er leppur. Jóhann Hjartarson Efnalaugin Vesturgötu 53 veröur lokuö frá og meö 24. júní til 12. ágúst. Viö- skiptavinir vinsamlega sækið fatnaö ykkar. Opið þriðjud. og fimmtud. frá 9—18. Ath. engin móttaka fram að lokun. ERENGIN SMÁ- AUGLÝSm TEKUR WJ AHÆTT UNA? Þú þarft þess ekki lengur þvi nú getur þú fengiö eldtraust- an og þjófheldan peninga- og skjalaskáp á otrulega hagstæðu veröi. Lykill og talnalás= tvöfalt öryggi. Innbyggt þjófaviðvörunarkerfi. 10 stærðir, einstaklings og fyrirtækjastærðir. Japönsk gæðavara (JIS Standard). Viöráöanlegt verð. Eldtraustir og þjófheldir. Japönsk vandvirkni i frágangi og stil. Hallarmúla 2. — Sími 83211. STOR- GLÆSILEGAR baðinnréttingar eidhúsinnréttingar fataskápar og innihurðir úr massífri eik. FRAMLEITT §ER- STAKLEGA FYRIR ÍS LENZKAR AÐSTÆÐ UR (FYRIR HÆRRA HITASTIG OG LÆGRI LOFTRAKA INNAN- HÚSS EN TÍÐKAST ERLENDIS). ELDHÚS AÐ VINNA [ ELDHÚS SEM VEITA ÁNÆGJU. kynningar- afsláttur tíí 25. júní. Komið og fáið tilboð. Sendum mann á staðinn til ráðlegginga. GÖÐ GREIÐSLUKJÖR 20% við samning 30% við afhendingu eftir- stöðvar á 3—4 mánuðum. Nýbýlavegi 4, Kópavogi Sími 40800 lliffp |Tfi; /V | < i ; É|||j; ; 4 2l t |

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.