Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1982, Blaðsíða 28
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. LAUGARDAGUR12. JÚNI 1982.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 108. og 113. tölublaöi Lögbirtingablaðsins 1980 og 3.
tölublaði 1981 á Engihjaila 5 — hluta —, þingl. eign Ástu Sigtryggsdótt-
ur, fer fram á eigninni sjálfri miðvikudaginn 16. júní 1982, kl. 16.00.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 55., 60. og 62. tölublaöi Lögbirtingablaösins 1981 á
Hamraborg 6 — hluta —, þingl. eign Heiöars Breiðfjörö, fer fram á
eigninni s jálfri miðvikudaginn 16. júní 1982, kl. 15.00.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 27., 31. og 37. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1982 á
Holtagerði 11 — hluta —, þingl. eign Björns Kristjánssonar, fer fram á
eigninni sjálfri miðvikudaginn 16. júní 1982, kl. 11.30.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 27., 31. og 37. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1982 á
Engihjalla 19 — hluta —, þingl. eign Stefáns Stefánssonar, fer fram á
eigninni sjálfri miövikudaginn 16. júní 1982, kl. 10.30.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 5., 11. og 14. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1982 á
Furugrund 68 — hluta —, þingl. eign Rúnars J. Olafssonar, fer fram á
eigninni sjálfri miðvikudaginn 16. júní 1982, kl. 10.00.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 84., 85. og 86. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1981 á
Nýbýlavegi 53, þingl. eign Sigurðar Stefánssonar, fer fram á eigninni
sjálfri miðvikudaginn 16. júní 1982, kl. 16.30.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 105., 108., 1981 og 2. tölublaði Lögbirtingablaðsins
1982 á eigninni Bugðutangi 38, Mosfellshreppi, þing). eign Guðmundar
Haukssonar, fer fram eftir kröfu Innheimtu ríkissjóðs á eigninni
sjálfri mánudaginn 14. júní 1982, kl. 15.00.
Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 105., 108., 1981 og 2. tölublaði Lögbirtingablaðsins
1982 á eigninni Brekkutangi 22, Mosfellshreppi, þingl. eign Hafsteins
Daníelssonar, fer fram eftir kröfu Ara ísberg hdl., á eigninni sjálfri
mánudaginn 14. júní 1982, kl. 14.30.
Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 105., 108., 1981 og 2. tölublaði Lögbirtingablaðsins
1982 á eigninni Njaröarholt 7, Mosfellshreppi, þingl. eign Júlíusar
Sigurðssonar, fer fram eftir kröfu Innheimtu rikissjóðs á eigninni
sjálfri mánudaginn 14. júní 1982, kl. 14.00.
Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu.
Aspirín:
Kra l‘í a vor kalyf
gegn svo
mörgum kvillum
Dagblaðiö og Vísir hefur aflað sér réttar til birtingar á efni, sem
dreift er af International Medical Tribune Syndicate, þar sem
f jallað er á hagnýtan hátt um ýmis mál er varða heilbrigði, heilsu-
far og læknavísindi. Hér er um að ræða almenna fræðslu sem við
vonum að lesendur kunni að meta. Ritstj.
Ekkert lyf er notað jafnalhliða og
aspirín (acetylsalicylsýra).Fólk tekur
það gegn verkjum, sótthita og bólgum.
Það er til á hverju heimili og er í
mörgum kvef- og höfuðverkjarlyfjum.
Rúmlega 50.000 lyf á markaöinum
innihalda aspirín. Sum þeirra eru vel
þekkt eins og t.d. Alka Seltzer, Anacín,
Bufferín, Sine-Aid, Codei-magnyl og
ýmis kvalastillandi lyf gegn liðagigt og
höfuðverk.
En þótt aspirín sé jafnalgengt og
raun ber vitni var vitneskjan um verk-
anir þess þó lengi ófullkomin.
Rannsóknir síðustu ára hafa þó aö
mestu svipt hulunni af því.
I likama okkar eru hormónar sem
kallast prostaglandín. Þeir endur-
nýjast mjög ört og þess vegna er mjög
örðugt að rannsaka þá. Og nú hafa
vísindamenn komizt að því að þessir
hoimónar eiga þátt í því nær allri
frumustarfsemi likamans, eins og t.d.
flutningi taugaboða, vöðvasamdrætti,
myndun meltingarsafa í maga og blóð-
storknun.
Aspirín virðist breyta f ramleiöslunni
á þessum hormónum. Og þar sem
prostaglandín virðist vera hlekkur í
keðjunni: verkanir—sótthiti—bólga
minnka einkennin ef framleiðsla
hormónanna er hindruð. Þetta er
kraftaverkið sem aspirín gerir.
Aspirín: Getur hamlað gegn
heilablóðfalli og hjarta-
áföllum
Hlutverk prostaglandín í
blóðstorknun hefur vakið athygli
vísindamanna á því að aspirín gæti
hamlað gegn heilablóðfalli og hjarta-
áföllum. Blóðstorknunin virðist hafa
mikil áhrif á hægfara myndun slagæða-
þrengsla sem síðan leiða til æöakölk-
unar — og hjartaáfalla og heilablóö-
falls.
Umfangsmiklar kannanir á heila-
blóöfallssjúklingum benda til að þeir
sem tóku aspirin yrðu síður fyrir öðru
áfalli en þeir sem tóku ekkert nema
sykurpillur. Niðurstöður í sambandi
við hjartaáföll eru ekki jafnskýrar.
Kanadisk könnun benti til að aspirín
gæti dregið úr líkunum á því aö sjúkl-
ingurinn fengi annað áfall. En könnun
sem fór f ram á vegum bandarísku heil-
brigðisþjónustunnar sýndi ekkert
slíkt. Tæplega 4.500 manns tóku þátt í
þeirri könnun.
Þeir sem gagnrýna síðamefndu
könnunina segja að sjúklingamir hafi
ekki byrjað á aspirínkúr fyrr en hálfu
ári eftir aö þeir fengu hjartaáfalliö.
Aðrir halda því fram að þeim hafi
verið gefinn of stór skammtur af lyfinu
þannig að það hafi í rauninni stuölað aö
annars konar blóðstorknun.
Hins vegar greinir færri á um
jákvæö áhrif aspiríns i sambandi viö
heilablóðfall.
— Ég er alveg sannfærður um að
aspirín dregur úr líkunum á heilablóö-
falli hjá þeim sjúklingum sem
fá köst vegna
skammvinns
blóöskorts i heila
ef það blandar aspirini saman við gos-
drykki. Þetta ef algjör hégilja. Komist
einhver í vímu af slíkri blöndu er þaö
eingöngu hans eigin fjömga ímynd-
unarafliaðþakka.
Því hefur einnig verið haldið fram að
ef aspirín væri nýtt lyf fengist það ein-
göngu út á lyfseðil.
— Það er ekki rétt, segir Edward
Nida, starfsmaður fæðu- og lyfjaeftir-
litsins, sem tekur öll ný lyf til umf jöll-
unar áður en þau koma á markaö.
— Aspirín er alveg skaðlaust, segir
Nida. — Og það slær fljótt á kvalir,
sótthita og bólgur. Aspirín hefur
einnig sitt eigið viðvörunarkerfi. Ef þú
tekur of stóran skammt færöu suð í
eyrun.
Nida segir þó að aspirín verði aö
Sannleikurinn er sá aö maginn gefur
frá sér u.þ.b. hálfa teskeið af blóöi á
dag. Aspirín eykur þennan leka um
aðra hálfa teskeið, eöa svipað magn og
við getum misst við þaö að bursta í
okkur tennurnar.
U.þ.b. einn af hverjum fimmtíu fær
magaverk af venjulegum aspirín-
skammti. Þaö lagast þó ef viðkomandi
gætir þess að borða eða drekka ávaxta-
safa eða mjólk um leið og hann tekur
inn lyfið.
Ekki mega þó allir taka inn aspirín.
Læknar vara þá sem hafa magasár
eða dreyrasýki við því að taka inn
aspirín. Einnig er til fólk sem hefur
ofnæmi fyrir aspiríni.
Vanfærum konum er ráðlagt að nota
ekki aspirín þrjá síðustu mánuöi með-
göngutímans. Ekki er það þó vegna
þess að aspirín skaði fóstrið, heldur
getur það aukið á blæðingar í
sambandivið fæðinguna.
Aspirín: Enginn vímugjafi
Enn önnur þjóösagan í sambandi viö
aspirín er sú að fólk geti komist í vímu
segir dr. Michael Walker, starfsmaður
heilbrigðisþjónustunnar.
Hann á þar við minniháttar heila-
blóðfall sem orsakast af æðasam-
drætti.
— Það verður varla langt aö bíða
þess að við mælum með aspiríni sem
sjálfsögðu meðali fyrir þá sem virðast
liklegir til að fá heilablóðfall, heldur
hann áfram.
Heppilegra að taka ekki inn
aspirín á fastandi maga
Til eru ótal þjóðsögur um aspirinið,
t.d. að það trufli meltinguna. Mest af
slíkri gagnrýni kemur frá fyrirtækjum
sem framleiða acetominophen sem á
aö koma í stað aspirins og er eitt af
aðalefnunum í lyfi eins og Tylenonl.
geyma þar semböm ná ekki tilþess.
— Börn þola aðeins mjög lítinn
skammt þar sem þau eru svo miklu
léttari en f ullorönir, segir hann.
U.þ.b. 65.000 böm leita til sjúkra-
húsa á ári i Bandarík junum vegna þess
að þau hafa tekið inn of stóran skammt
af aspiríni. Sem betur fer er þó auðvelt
að bæta úr því og of stór skammtur er
afar sjaldan lífshættulegur.
— Foreldrar mega samt ekki láta
aspirínið liggja á glámbekk og verða
auk þess aö gæta þess vandlega aö
fylgja fyrirmælum um bamaskammta
út í yztu æsar, segir Nida. — Bama-
skammtarnir eru reiknaðir út
samkvæmt aldri bamsins og þyngd.
Hann bætir því við að fæðu- og lyfja-
eftirlitið hafi ekki viljað samþykkja að
aspirín fengi merkingu sem lyf gegn
liöagigt.
— Það er vegna þess að aspirín
læknar í raun og veru ekki liðagigt, það
dregur bara úr einkennum hennar,
bólgunni, segir Nida. — En þetta er
frábært lyf, sannkallað kraftaverka-
meðaL