Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1982, Blaðsíða 45
DAGBLAÐIÐ & VISIR. LAUGARDAGUR12. JUNI, 1982
45
Messur
ÁRBÆJARPRESTAKALL: Guösþjónusta í
Safnaðarheimili Árbæjarsóknar kl. 11 árd. Sr.
Guðmundur Þorsteinsson.
ÁSPRESTAKALL: Messa að Norðurbrún 1
kl. 11. Sr. Ami Bergur Sigurbjörnsson.
BREDDHOLTSPRESTAKALL: Messa í Bú-
staðakirkju kl. 11. Organleikari Daníel
Jónasson. Sr. Lárus Halldórsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Lárus
Halldórsson prédikar, organleikari Daníel
Jónasson. Sóknamefndin.
DÖMKIRKJAN: Messa kl. 11. Sr. Þórir
Stephensen. Dómkórinn syngur, organleikari
Marteinn H. Friðriksson.
LANDAKOTSSPÍTALI: Messa kl. 10. Organ-
leikari Birgir Ás Guðmundsson. Sr. Þórir
Stephensen.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Messa kl. 10. Sr.
Þorsteinn Björnsson.
FELLA- OG HÖLAPRESTAKALL: Messa
fellur niður vegna vorferðar kirkjukórsins.
Samkoma nk. þriöjudagskvöld kl. 20.30. Sr.
Hreinn Hjartarson.
GRENSÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Organleikari Árni Arinbjamarson. Sr. Hall-
dór S. Gröndal.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Karl
Sigurbiörnsson. Þriðjudaga kl. 10.30: Fyrir-
bænaguðsþjónustur, beöið fyrir sjúkum.
Messa fyrir heymarlausa og aöstandendur
þeirra kl. 14. Séra Miyakó Þórðarson.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10, Sr. Karl
Sigurbjörnsson.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Tómas
Sveinsson.
KÖPAVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11/
Sr. ÞorbergurKristjánsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Organleikari Jón Stefánsson, prestur sr. Sig-
urður Haukur Guðjónsson. Sóknarnefndin.
LAUGARNESPRESTAKALL: Laugardagur
12. júní: Guðsþjónusta að Hátúni 10B, 9. hæð,
kl. 11. Sunnudagur 13. júní: Messa fellur niður
vegna skemmtiferðar safnaðarins. Lagt verð-
ur af stað frá Laugarneskirkju kl. 9.30. Farið
verður í Þykkvabæ, að Odda og á Hvolsvöll.
Tekið þátt í guðsþjónustu í Þykkvabæ kl. 14.
Nægilegt er að taka með nestisbita fyrir eina
máltíð. Fólk fær kaffi í hádegi og kaupir sam-
eiginlegt kaffi á Hvolsvelli. Þriðjudagur 15.
júní: Bænaguðsþjónusta kl. 18. Sóknarprest-
ur.
NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Miðviku-
dagur 16. júní: Fyrirbænamessa kl. 18.15,
beðið fyrir sjúkum. Sr. Frank M. Halldórsson.
SELJASÓKN: Guðsþjónusta í ölduselsskóla
á sunnudag fellur niður vegna þátttöku í guðs-
þjónustu Selfosskirkju kl. 10.30. Fimmíudag-
ur 17. júní: Bænastund í Tindaseli kl. 20.30.
Sóknarprestur.
FRÍKIRKJAN I REYKJAVÍK: Messa kl. 2.
Organleikari Sigurður Isólfsson, prestur sr.
Kristján Róbertsson. Safnaðarprestur.
KIRKJA ÖHÁÐA SAFNAÐARINS: Messa kl.
11 árdegis. Emil Björnsson.
"■" ■ ...... ' —
Ferðalög
Útivistardagur
fjöiskyldunnar
Næstkomandi sunnudag, 13. júní, verður
haldinn svokallaður útivistardagur fjöl-
skyldunnar á vegum Ferðafélagsins
Otivistar. Er það einn af þremur slíkum á
ferðaáætlun þessa árs. Sá fyrsti var 9. maí og
tóku um 100 manns þátt í honum.
Á útivistardeginum verður boðið upp á
tvær gönguferðir, lengri og styttri. Kl. 10.30
verður gengið á Skálafeil á Hellisheiði sem er
eitt af beztu útsýnisfjöllum suðvestanlands
og auðvelt uppgöngu. Verður gengið frá
Skálafelli um Hellisskarð bak við Kolviðarhól
aðDraugatjöm.
Kl. 13 verður styttri og léttari ganga. Þá
verður gengið að hluta eftir gömlu vörðuðu
leiðinni yfir Hellisheiði og um Hellisskarð að
Draugatjöm. Er það mjög hæfileg leið fyrir
fullorðna að fara með böm með sér. Á þeirri
leið má sjá djúp hófaför eftir hesta liðinna
kynslóða og einnig verður Hellukofinn
skoöaöur sem er sæluhús topphlaðið úr
hraunheUum. Við gömlu fjárréttina hjá
Draugatjöm sameinast báðar
gönguferðirnar. Þar verður haldin
pylsuveizla, sungið og jafnvel farið í leiki.
Brottför í ferðimar er frá BSI að vestanverðu
og þarf ekki að tilkynna þátttöku fyrirfram.
Sjáumst. 0Uvist
ÚtivistarferAir
Útivist
Lappland; ódýr hringferð 15.—23. júní.
Dagsferðir sunnudaginn 13. júnL
1. Þórsmörk. Brottför kl. 8.00. Verð 230 kr.
2. Utivlstardagur fjölskyldunnar:
a. Kl. 10.30 SkálafeU — Gamla þjóðleiðin um
Hellisheiði — pylsuveizla.
b. Kl. 13.00 Gamla þjóðleiðin um HeUisheiði -
Draugatjöm — pylsuveizla. Verð 100 kr. fyrir
fuUorðna og 20 kr. pylsugjald fyrir böm. Far-
ið frá BSI, bensínsölu.
Sumarieyf is f erðir:
1. Djúp og DrangajökuU. Fuglaparadísin
Æðey o.fl. Góð gisting. 17.—20. júní.
2. öræfajökuU — SkaftafeU 26,—30. júní.
Upplýsingar og farseðlar á skrifstofunni
Lækjargötu 6a, s-14606. Sjáumst.
Göngudagur Ferðafélags
íslands sunnudaginn 13. júní
Gangan hefst á veginum hjá Jósepsdal,
nokkru fyrir sunnan Litlu kaffistofuna. Geng-
ið verður um Jósepsdal, Olafsskarð og austur
fyrir Sauðadalahnúka og þaöan að upphafs-
stað. Áætluð gönguleið er 10 km. Farið verður
Garðyrkja
SLÁTTUVÉLAVIÐGERÐIR
SLÁTTUVÉLALEIGA
Skemmuvegi 10 M. Kópavogi,
sími 77045. Opið milli kl. 8 og 19.
Viðtækjaþjónusta
Skjót viðbrögð
Það er hvimleitt aö þurta aö
biöa lengi meö bilaö rafkerti,
leiöslur eöa tæki.
Eöa ný heimilistæki sem þarf
aö leggja tyrir.
Þess vegna settum viö upp
neytendaþjónustuna - meö
harösnúnu liöi sem bregöur
skjótt viö.
ÍlíRAFAFL
••• SmiBshöfGe. 6
ATH. Nýtt simanúmer: 85955
RAFLAGNAVIÐGERÐIR OG NÝLAGNIR
Dyrasímaþjónusta.
Eudurnýjum gömlu raflögnina, látum skoða yður að
kostnaðarlausu. Önnumst allar nýlagnir og teikningar.
Viðgerðir á dyrasímum og uppsetning á nýjum.
eðvaro r. guorjörhsson,
1 sími 21772 09 71734.
Sjónvarpsviðgerðir
Heima eða á verkstæöi.
Allar tegundir.
3ja mánaða ábyrgð.
Skjárinn, Bergstaðastræti 38.
Dag-, kvöld- og helgarsimi
21940
frá Umferðarmiðstöðinni austanmegin kl.
10.30 og kl. 13. — Verð kr. 50. — Fritt fyrir
börn í fylgd fullorðinna. Þátttakendur geta
einnig komið á eigin bílum og tekið þátt í
göngunni.
Listasöfn
Gallerí Hverfisgötu 32 —
Listiðnaðarsýning
Lárus Þorsteinsson sýnir nýjung í listiðnaði,
s.s. vasa og skáiar úr leðri. Sýningin stendur
yfir til 18. júní og er opin daglega frá kl. 14—
22.
Nonni í
Djúpinu
„Við erum til sölu” & „1 Djúpinu hefst náttúr-
an”
Nonni opnar myndlistarsýningu í Djúpinu,
Hafnarstræti 15, föstudaginn 11. júní og stend-
ur sýning hans út mánuðinn. Sýningin skiptist
í tvo hluta sem nefnast: „Við erum til sölu”
og „I Djúpinu hefst náttúran”. Að sögn lista-
mannsins verður sýningin öll ein allsherjar
uppákoma en boðið verður upp á sérstaka
sjónleiki með magnaðri músík. Fyrsti sjón-
leikurinn verður sunnudaginn 13. júní kl. 17.00
og síðan föstudaga, laugardaga og sunnudaga
kl. 22.00 og sunnudaginn 20. júní kl. 15.00.
Listasafn
íslands
Nú stendur yfir í Listasafni Islands stór sýn-
ing á verkum kínverska Ustmálarans Wal-
asse Ting og sýning á íslenzkum verkum. Sýn-
ing Ting stendur fram til 4. júU en sýnmgin á
íslenzku verkunum eitthvað áfram. Lista-
safnið er opið frá klukkan 1.30 til 10.
Myndlistarsýning í Gallerí
Austurstræti 8
Sýning þessi er í tveimur sýningarkössum
utan á húseignmni Austurstræti 8.
Sýningm er ekki á vegum Listahátíðar,
heldur sett upp í tilefni hennar, svona til að
auka á fjölbreytnma í listaUfi borgarinnar.
Ætlunin er að sýna þar verk eftir 13 mynd-
listarmenn og skipta um verk annan hvern
dag, svo lengi sem Ustahátíð stendur yfir.
Þannig ætti þaö aUtaf að vera forvítnilegt aö
ganga framhjá og glugga í kassana.
Þeir Ustamenn sem sýna eru: Árni Ingólfs-
son, Ámi PáU Jóhannesson, Ásta Ríkharðs-
dóttir, DaUi, Eggert Pétursson, EUn Magnús-
dóttir, Harpa Björnsdóttir, Helgi Þorgils
Friðjónsson, Kristbergur Pétursson, Kristinn
Harðarson, Magnús Kjartansson, Pétur
Stefánsson, Tumi Magnússon.
Listasaf n ASÍ
I tilefni af Listahátíð er sýnUig á málverkum
eftir Kristin Pétursson og ber sýningin yfir-
skriftina „Vötn á himni”. Kristinn andaðist 1.
september sl. Hann lét eftir sig mikið safn
mynda eða aUs 1367. SýnUigin verður opin
daglega frá kl. 2—10 fram til 27. júní.
Gallerí
Lækjargata
Þar var verið að opna mjög sérkennUega
myndUstarsýnmgu á verkum Bjöms Skapta-
sonar. Gallerí Lækjargata er sölu- og
dreifingaraðili fyrir nýtt byggingarhapp-
drætti SATT en það er mjög óvenjulegt happ-
drætti að því leyti að happdrættismiðinn er
lUnmerki sem líma má í barminn. Þar eru
glæsilegir vinningar í boði, bílar og hljóm-
flutningstæki. Þess má geta að þrátt fyrir
verkfall verður opið í GaUerí Lækjargata en
þar er að finna tónUstardeild þar sem seldar
eru plötur.
Rauða húsið
Akureyri
Nú stendur yfir myndUstarsýnmg Halldórs
Ásgeirssonar í Rauða húsUiu á Akureyri. Á
sýnUigu HaUdórs gefur að Uta verk máluð á
striga og pappír vítt og breitt um veggi og gólf
salarins, gluggatjöld, borð og stóla, svo að
eitthvað sé nefnt. Á sýnmgunni vrnna mál-
verkin saman þannig að það skapast einhvers
konar heild, þó að hvert verk um sig eigi sitt
sjálfstæða líf. Sýningm stendur til 13. júní og
er opin daglega mUli kl. 16 og 20.
Minningarspjöld
Minningarkort
Samtaka sykursjúkra,
Reykjavík
fást á eftirtöldum stööum:
Reykjavík:
Bókabúð Braga, Lækjargötu, Háaleitis-
apóteki Austurveri, Lyfjabúð Breiðholts,
Amarbakka.
Kópavogi:
Bókabúöin Veda, Hamraborg.
Garðabæ:
BókabúðUi Gríma, Garðaflöt.
Hafnarfjörður:
Bókabúð OUvers Steins, Strandgötu.
MosfeUshreppur:
Bókaverzlunm Snerra, Varmá.
Minningarkort '
Styrktarfólags vangefinna
jfást á eftirtöldum stöðum: Á skrifstofu Téíagsinsc
Háteigsvegi 6. Bókabúö Braga Brynjólfssonar,
Lækjargötu 2, Bókaverzlun Snæbjarnar, Hafnar-
stræti 4 og 9, Bókaverzlun Olivers Steins, Strand-
götu 31 Hafnarfiröi.-
Vakin er athygli á þeirri þjónustu félagsins að
tekið er á móti minningargjöfum í sima skrifstof-
unnar, 15941, og minningarkortin síðan innheimt
^tjá sendanda með gíróseðli.
Minningarkort Kvenfélags
Bústaðasóknar
fást hjá Stellu Guðnadóttur, Ásgarði 73, Verzl. Ás-
kjöri, Ásgarði 22, Garðs Apóteki, Bókabúð Gríms-
bæjar, Oddrúnu Pálsdóttur, Sogavegi 78 og í Bú-
staðakirkju hjá kirkjuverði.
Tilkynningar
Kvenfélagið
Fjallkonurnar
Farið ferður í ferðalag laugardaginn 12. júní
,kl. 9.00 frá Fellaskóla. Upplýsmgar í sima
172217 (Bjamlaug) 74505 (Erla).
Ráðstefna
Maður og stjórnmál
Ráðstefna, undir heitinu Maður og stjórnmál,
verður haldm á Hótel Borg laugardaginn 12.
júní á vegum samtakanna Líf og land.
1 Ráðstefnan mun hefjast kl. 10 árdegis og
standa til kl. 18 síðdegis. Á ráðstefnunni munu
verða flutt 36 stutt errndi er ná yfU- sögu
stjórnmála frá grísku borgríkjunum fram til
dagsrns í dag. Ennfremur verður reynt að
skyggnast í framtíðina.
Ráðstefna þessi er hin 7. sem samtökin
halda og er öllum heimil þátttaka. Aðgangs-
eyrir erengmn.Á ráðstefnunni verða gefrn út
erindi í bókarformi og seld.
Slysavarnakonur
í Reykjavík
Munið ferðalagið 26. og 27. júní. Farið verður
á Snæfellsnes. Upplýsingar í síma 84548
(Svala) og 24846 (Ágústa). Farmiðar verða
seldir mánudaginn 14. júní eftir klukkan 8 í
húsi Slysavarnafélagsins.
Ferðanefndin.
Foreldra- og vinafélag
Kópavogshælis
Sjálfboðavinna verður við sundlaug Kópa-
vogshælis laugardag og sunnudag frá kl. 13 til
18. Unnið við mótatimbur og að moka til upp-
fyllingu. Nánari upplýsingar í sUna 41500 og
51208.
Almennur hreinsunardagur
hjá Árbæingum
og Selásbúum
Árbæingar og Selásbúar halda almennan
hreinsunardag í hverfinu laugardaginn 12.
júní. Allir íbúar eru hvattir til þátttöku og
ruslapoka fá þeir afhenta fyrir hádegi í Ár-
seli. Félagasamtökm í hverfinu ætlast til að
_Árbærinn og Selásinn skarti sUiu fegursta á
þjóðhátíð.
Norræna félagið
EUis og undanfarin ár verður í sumar hald-
ið Norrænt æskulýðsmót — Nordisk
ungdomstreff 1982 —. Fer mótið að þessu
sinni fram i Noregi dagana 7 .—14. ágúst nk.
Mót þessi eru haldin og skipulögð af
norrænu æskulýðssamtökunum, og hafa
landssamtök í sérhverju Norðurlandanna veg
og vanda af mótinu til skiptis. Á síðastliðnu
sumri var slíkt mót haldið í Finnlandi og þá í
fyrsta sinn með þátttöku frá Grænlandi svo og
öllum hinum Norðurlöndunum.
A þessum æskulýðsmótum gefst gott tæki-
færi til kynna milli norrænna ungmenna og er
þátttaka öUum heimU sem náð hafa 15 ára
aldri.
Mótsstaðurinn í ár er á strönd Þelamerkur-
fylkis í bænum Kragerö við vestanverðan
Oslófjörð. Ráðgerð er hópferð frá Islandi og
veitir skrifstofa Norræna félagsins í Norræna
húsinu v/Hringbraut aUar nánari upplýsingar
en þátttökutilkynningar þurfa að hafa borist
skrifstofunni fyrir 20. júní n k. Sími 10165.
Norræna félagið
Vinabæjarferð til Finnlands 30. júní til 7. júlí
1982.
Á vegum Norræna félagsins verður farin
vinabæjarferð til Finnlands í sumar. Þangað
fara þátttakendur til 5 bæja sem eiga vina-
bæjatengsl hér. Hluti af hópnum mun dvelja í
Helsingfors, en flogið verður beint þangað.
Þá koma til landsins með sömu ferð gestir
frá Finnlandi sem heimsækja 12 bæi hér á
landi sem eru í vinabæjatengslum við finnska
bæi.
Er þetta Uður í að auka ferðalög um
Norðurlönd, en árið 1982 er norrænt ferðaár.
Vegna forfaUa eru enn nokkur sæti laus i
þessa ódýru og áhugaverðu ferð. Upplýsingar
eru gefnar á skrifstofu félagsins í síma 10165.
Félag Snæfellinga og Hnapp-
dæla í Reykjavík
Snæfellingafélagið í Reykjavik efnir til helg-
arferðar um Snæfellsnes 19. og 20. júní nk.
Lagt verður af stað frá Umferðarmiðstöð-
inni kl. 10.00 laugardaginn 19. og ekið vestur
að Búðum. Þar huga menn að landi félagsins í
Búðahrauni og er áætlað aö dvelja þar í 5 til 6
klukkutíma. Um kvöldið verður farið að Lýsu-
hóli og þar gist nm nóttina. Daginn eftir verð-
ur ekið „kringum jökul” og komið til Reykja-
víkur um kl. 19.00 á sunnudag.
Tekið verður á móti pöntunum á farmiðum
hjá Þorgilsi Þorgilssyni klæðskerameistara í
síma 19276, en þær þurfa að berast fyrir 16.
júní nk.
Kirkja
Óháða saf naðarins
Messa kl. 11 árdegis. Emil Björnsson.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 112. og 114. tbl. Lögbirtingablaðs 1981 og 4. tbl. þess
1982 á hluta í Grænuhlíö 26, þingl. eign Sigríðar Hjálmarsdóttur, fer
fram eftir kröfu Jóns Halldórssonar hdl., Tómasar Gunnarssonar hdl.,
Magnúsar Þóröarsonar hdl. og Veðdeildar Landsbankans á eigninni
sjálfri miðvikudag 16. júni 1982 kl. 13.30.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 27., 31. og 34. tbl. Lögbirtingablaðs 1982 á hluta í
Leirubakka 32, þingl. eign Guðlaugs Þórðarsonar o.fl., fer fram eftir
kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri þriðjudag 15. júní
1982 kl. 16.15.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
óskar eftir umboðsmanni
á Reyðarfirði.
Upplýsingar gefur María í síma 97-4137.
HÚSAVIÐGERÐIR
Vatnsþétt álhúðun og einangrun, höfum 1. flokks amerísk efni
á alls konar þök, ný sem gömul (tanka). Berum silikon á stein-
hús, örugg vörn gegn vatnsveðrun undir málningu (t.d. ný-
byggingar). Vatnsverjum og gerum við malbik og olíumalbik
á heimkeyrslur. Vinnum við sprunguviðgerðir og steinrennur
o.fl. Gerum tilboð í efni og vinnu. Vinnum um allt land. Sími
91-73711.