Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1982, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. LAUGARDAGUR12. JUNI 1982
3
Málverk Ólafs Engilbertssonar;
Medúsufólagar i ham.
Framleiðendur Orobronze:
íhuga málaferii við landlækni
telja hann hafa skaðað markað erlendis
Franska fyrirtækiö Laboratoires
Applipharm íhugar nú málaferli á
hendur Olafi Olafssyni landlækni. Er
þaö vegna viðtals við Olaf í Dagblað-
inu þann 5. september í fyrra. Þar
lætur Olafur þau ummæli falla að
hugsanlegt sé að Orobronze verði
tekið af markaði vegna þess að það
kunni að stuðla að of miklu A
vítamíni í blóðinu og þar af leiöandi
til dæmis bjúg við heilann og sjón-
truflunum. Fyrrnefnt fyrirtæki
framleiðir Orobronze. Éfnið er töflur
og fólk öðlast dökkan hörundslit af
neyzlu þess.
Fréttin um hugsanlegar hættur af
Orobronze birtist á f orsíðu Dagblaðs-
ins. Þann 1. desember var síðan frétt
á 3. síðu blaðsins um að rannsókn á
efninu hefði bent til þess að engin
hætta stafaði af inntöku þess. For-
ráðamenn franska fyrirtækisins
telja hins vegar að það kunni aö
spyrjast meðal lækna erlendis að
landlæknir hér hafi fundið eitthvað
athugavert og telja hann með um-
mælum sínum hafa skaðað markað-
inn.
Ráðgefandi læknir verksmiðjunn-
ar skrifaði Olafi strax þann 21.
desember í fyrra. Aö sögn fram-
kvæmdastjóra fyrirtækisins, sem
staddur er hér á landi, hefur hann
ekki fengið svör ennþá. I bréfi sínu
biður læknirinn um að fá að sjá allar
upplýsingar sem Olafur kunni að
hafa um máliö. Umboðsmaður Oro-
bronze hefur einnig beðið um þaö
sama og f engið neitandi svör.
Með málaferlum hyggjast fram-
leiðendur Orobronze fá það á hreint í
eitt skipti fyrir öll hvort efnið kunni
að valda hættu og þá hverri. Ef ekki
fara þeir fram á skaðabætur frá
Olafi.
DS
Fótaþvottur
Medúsu
I dag munu félagar úr súrrealista-
hópnum Medúsu lesa upp ljóð og lauga
fætur sína. Atburðurinn mun eiga sér
stað klukkan 16.00 í sal súrrealista,
Skruggubúð að Suðurgötu 3a. Jafn-
framt stendur yfir í salnum sýningin
„Medúsa og gestir”. Hún verður opin
framtil25, júní.
Kaupfélag Árnesinga:
Oddur hættir
Oddur Sigurbergsson, kaupfélags-
stjóri Kaupfélags Ámesinga, hefur
sagt starfi sínu lausu, að því er fram
kom á aðalfundi kaupfélagsins á
fimmtudag.
Oddur hefur um 30 ára skeið starfað
sem kaupfélagsstjóri, fyrst hjá Kaup-
félagi Vestur-Skaftfellinga, en síöustu
16 árin hjá Kaupfélagi Arnesinga. Þeg-
ar Oddur tók við síðarnefnda kaupfé-
laginu var rekstur þess í kaldakoli.
Með dugnaði tókst honum að reisa það
við og rekur kaupfélagið nú eitt
stærsta vöruhús landsins. Velta Kaujj-
félags Ámesinga var 160 milljónir á
síðasta ári. Eignaraukning var gífur-
leg og því heildamiðurstaða ársreikn-
ings hagstæð fyrir félagið.
KE/Selfossi.
Fyrirlestur
íNorræna húsinu:
Orkusparnað-
ur í Danmörku
Mánudagskvöldið 14. júní kl. 20.30
heldur orkuráðherra Dana, Paul Nils-
son, fyrirlestur í Norræna húsinu um
orkusparnaö i Danmörku. Danir hafa á
skömmum tíma náð miklum árangri á
sviði orkuspamaðar. Danski ráðherr-
ann kemur hingað í tengslum við fund
orkuráðherra Norðurlanda sem hald-
inn verður í Reykjavík þriðjudaginn
15. júní. Fyrirlesturinn í Norræna hús-
inu er öllum opinn og áhugaaðilar um
orkumál em hvattir til að sækja hann.
Steinunn Þorgilsdóttlr á Breiðaból-
stað á Fellsströnd í Dalasýslu er niræð
í dag, 12. júni. Hún verður að heiman.
Afmæli
1 o)
KKBEm
ÚRVALSVAGNAR
UNDIR EINU MERKI
ÖÐRUM TIL
FVRIRMYNDAR
Vekur Opel áhuga þinn?
Reiðubúinn í ieynsluakstur?
Hringdu og pantaðu tíma.
VEIADEILD
Ármúla3 0 38900
.iflBq8 b iíiriiöiÍBriBlgiI B-iuiy;n niri iojí uijigaiate Bfns?. líult isc| 111619 / -S&'
o
>
<
o
o
1132010 DEOOaOIV iDnuiB$ni