Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1982, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1982, Qupperneq 17
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. LAUGARDAGUR12. JUNI 1982. 17 Myndir: Gudmundur Sigfússon Andrí Páll Sveinsson frá Akureyrí, hlaðinn verðleunagripum. Hann varð ótvíræður aflakóngur mótsins. enda hlógu bæjarbúar aö þessu tiltæki okkar. Þaö þótti ekki merkilegur veiöiskap- ur aö veiða þorsk á stöng. Vestmanna- eyingar voru vanari stórtækari veiði- skap. En viöhorfin breytast meö tímanum og nú stunda þetta fjölmarg- ir. Félagiö okkar dafnaöi lika fljótt, enda áhugasamir menn viö stjómvöl- inn. Núverandi formaöur er Ester Öskarsdóttir. Þaö er einmitt einkenn- andi fyrir félagið hversu konurnar hafa veriðáberandi í félagsstarfinu. Auk hvítasunnumótsins erum viö meö innanfélagsmót á haustin. Einnig sendum viö ávallt þátttakendur á mótin fyrir noröan. Hafa samskiptin viö Akureyringa ætíð verið sérlega ánægjuleg. Ánægjulegtað tengja saman fólk úr ýmsum byggðarlögum landsins Fyrir mig persónuleg^eru þessi mót ákaflega mikilvæg,” hélt Magnús áfram. „Mér þykir svo vænt um þetta fólk sem kemur hingaö ár eftir ár. Enda hef ég í gegnum þessi mót eignazt fjölda kunningja. Og þaö er ákaflega ánægjulegt að eiga sinn þátt í að tengja saman fólk úr hinum ýmsu byggðarlögum landsins. ” — En hvemig er hægt aö stunda sjó- stangaveiði í átta til tíu vindstigum og brælu fyrir opnu hafi? ,,Eg skal segja þér aö þetta mót er þaö erfiöasta sem ég hef stjómað til þessa. Veðrið setti náttúrlega stórt strik í reikninginn nær allan tímann. En þetta tókst þó allt saman furðulega vel. Og ég held ég megi fullyrða aö allir hafi farið ánægöir til síns heima aö mótinuloknu. Nutum mikiHar kvenhyllinú sem oftastáður Aö þessu sinni, eins og reyndar oftast áöur, nutumvið mikillar kven- Magnús Magnússon mótstjórí, ásamt kvennasveitinni sigursælu. Frá vinstri Blínborg Bernódusdóttir, Alda Harðardóttir, Þuriður Bernódusdóttir, lengst tíl hægri stendur formaður SjóVe, Ester Óskarsdóttír. hylli. Fjölmargar konur vom meðal þátttakenda, þar á meöal þrjár stjúp- dætur mínar og ein dóttir. Einmitt á þessu móti varð stjúpdótt- ir mín, Þuríður Bernódusdóttir, afla- hæsta konan. Hún tók reyndar bikar- inn af systur sinni, Þóru, sem varö afladrottning í fyrra. Áriö þar á undan varð Elínborg, elzta systirin, aflahæst. Og Elín Helga, yngsta stelpan, hirti núna verölaun fyrir stærstu lönguna. Þaö má því segja aö sjóstangaveiöin hafi þróazt upp í fjölskylduíþrótt hjá okkur,” sagöi Magnús aö bkum, hress aðvanda. -FÖV. B-sveit Akureyrar varð sigurvegari i sveitakeppninni. Frá vinstri, Kristmundur Bjarnason, Stefán Einars- r-on, Andri Páll Sveinsson og Rúnar Heiðar Sigmundsson. ! Pétur Arnason skipstjóri á Sæbjörgu SU, sem varð aflahæst báta með sjötiu og niu og hálft kilógramm á hverja stöng.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.