Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1982, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1982, Side 26
26 DAGBLAÐIÐ & VISIR. LAUGARDAGUR12. JUNI 1982. Unglingakna ttsp yrnan Unglingakna ttsp yrnan Oft var hart barizt i ieik ÍA og KR i 3. fiokki. Hér sjást þeir Unnar Ingimundarson og Skagamaðurinn efniiegi, Sigurður Jónsson, kljástum knöttinn. 2. FLOKKUR Oskabyrjun KK dngði eldkí -gegn™'' KR og IBV skildu jöfn á KR-velli 1—1. Leikurinn einkenndist af mikilli baráttu og oft sáust skemmtilegir leikkaflar, einkum hjá IBV. KR- ingar fengu óskabyrjun. Stefán sóknarmaður komst inn í sendingu til markmanns og skoraði örugglega. Mark af ódýrari tegundinni. Eyjamenn tvíefldust við markið og fóru að sækja mun meira. KR-vörnin stóð vel fyrir sínu með stórgóðan markvörð, Stefán Amarsson, fyrir aftan sig en hann varði oft á tíðum glæsilega. Eyjamenn héldu uppteknum hætti í síðari hálfleik og uppskáru mark sem Bergur Ágústsson gerði. Bezti maður vallarins var LúðvíkBergvins son IBV sem er mjög leikinn og skemmtilegur leikmaður. Framarar unnu nokkuö sanngjaman sigur á baráttuglöðu Valsliði á Valsvellinum, 2—1. Leik- urinn var nokkuö jafn i byrjun en síðan náðu Framarar undirtökunum og léku oft á tíðum mjög skemmtilega knattspymu. Gísli Hjáimtýsson skoraði bæði mörk Fram. Fyrra markið með góðri hjálp Valsmanna en síðara markiö með fallegumskalla. Mark Vals gerði Guöni Bergsson er 2 mínútur vora til leiksloka. Ekki er hægt að nefna neinn öðrum fremur hjá Fram sem tefldi fram fjórum meistaraflokksmönnum. Hjá Val stóð Geir Steinsson vel fyrir sínu. URSLIT Jón Magnússon Breiðabliki var örugglega á nýpússuöum skóm er Breiðablik fékk KA í heimsókn. Breiðablik sigraði 2—0 og skoraði Jón bæði mörkin, mjög glæsileg. I B-riðli fékk Þór V Breiðablik í. heimsókn. Þór sigraði í miklum markaleik, 4—3. Þórsarar voru mun betri í leiknum og er 20 mínútur voru til leiksloka var staðan 3—0 þeim í hag. Breiðabliksmenn sóttu þá í sig veðrið og náöu að jafna með stór- glæsilegu marki Helga Hjálmars- sonar beint úr aukaspyrnu af 30 metra færi, Þórsarar gáf ust ekki upp heldur tryggðu sér sigurinn með góðu marki. Mörk Breiðabliks skoruðu Ásgeir Pálsson 1, Bergur Barðason 1 og Helgi Hjálmarsson 1. Ekki er vitað hverjir skoraðu fýrir Þór. 2. flokkur 4. fíokkur C-riðUl A-riöill A-riðUl Reynir H-FH 3-1 Þór A-Fram 0-2 ÍK-UBK 3-0 Hverageröi-Þór V 0-13 ÍBK-KR 0-1 IBK-Fram 2-1 UBK-IA 3-1 IR-KR 1-3 Bikarkeppni Valur-KA 2-1 Víkingur-Fylkir 0-0 2. flokkur ÍBV-Selfoss 1-1 iK-ÞórV 1-1 Fram-UBK 5—2 ÞórA-ÍBK 0-3 ÍA-ÞórV 5-0 Valur-Grindavik 3—0 UBK-KA 3-0 lA-Fram 1-3 Víkingur-KR 1—0 KR-IBV 1—1 UBK-Víkingur 1-1 Fylkir-lR 3—2 Selfoss-IA 1-2 IR-ÍBK 1-1 Valur-Fram 1-2 4. FLOKKUR Arnljótnr skoradi tvömörk —er Fram ágradi ÍA Framarar höfðu mikla yfirburði yfir IA á Akranesi á mánudags- kvöldið. Skagamenn vora yfir- spilaðir af léttleikandi Framliði enda var leikgleöin þar í hávegum höfð. Staöan í hálfleik var 1—0 fyrir Fram. I síðari hálfleikhélduFramararupp- teknum hætti og komust í 3—0. Skagamenn fengu þá skyndisókn sem markvörður Fram varði. En sagan er ekki öll, einn vamarleik- maðurinn faömaði markvörðinn fyrir markvörzluna en slæmdi hend- inni óvart í boltann og var réttilega dæmd vítaspyma. Stefán Viðarsson skoraöi öragglega úr henni. Loka- tölur því 3—1. Allir leikmenn Fram áttu toppleik og því erfitt að nefna einn öðrum fremur, en flestir vora þó sammála um að Þórhallur Víkings- son hefði verið maður leiksins. Mörk Fram gerðu Amljótur Björnsson 2 og PállGrímsson 1. IR og IBK gerðu jafntefli 1—1 á Breiðholtsvelli. Eftir gangi leiksins voru úrslitin mjög sanngjörn. Mark tR gerði Jóhann en fyrir IBK skoraði Einvarður J óhannsson. Á Kópavogsvelli áttust við Breiöa- blik og Víkingur. Lauk leiknum meö jafntefli, 1—1. Mark Breiöabliks skoraði Gunnar Friðriksson en Arnar Amarsson skoraöi fyrir Víking. I B-riðli vann Valur FH meö einu marki gegn engu á Valsvellinum. Mark Vals gerði stórefnilegur leik- maður, Einar Pálsson. 5. FLOKKUR Tryggvi skoraöi hat-trick Tryggvi Tryggvason var heldur betur á skotskónum er Skagamenn heimsóttu IK. Tryggvi skoraði þrjú af fjóram mörkum IA, sem voru hvert öðru fallegra. Bjarki Péturs- son bætti síðan einu við til að hafa þau fjögur. Ekki er vitað hverjir skoraðu fyrir IK. Þróttur sigraöi Víking 3—2 í stór- skemmtilegum leik á Víkingsvelli. Mikiö jafnræði var með liðunum en þó sást fleiri samleiksköflum bregða fyrir hjá Víkingum. Þórir ö. Ingólfs- son skoraði 2 mörk fyrir Þrótt og Þórir Eggertsson 1. Fyrir Víking skoraðu Jóhannes H. Jónsson og Agnar H jaltested sitt markið hvor. KR-ingar unnu sanngjaman sigur á IR á Breiðholtsvelli. Lokatölur urðu 4—1 fyrir KR. I hálfleik var staðan 1—1. KR-ingar voru mun betri úti á vellinum en iR-ingar vörðust vel og beittu stórhættulegum skyndisóknum. Tvisvar þurfti Kjartan Briem markvörður KR að taka á honum stóra sínum og gerði það listavel. Mörk KR skoraöu Stefán Guðmundsson, Guðjón Kristinsson, Ásgeir Jónsson og Ing- ólfur Gissurarson, sem skoraði eitt mark í tilefni afmælis síns. Mark IR gerði Hallgrímur Jónasson. Fram vann stórsigur á „litlu” Leiknis liði, á Framvellinum. Fram skoraði 8 mörk gegn engu. Leiknis- drengirnir era mjög ungir aö árum. Þeir eiga eitt til tvö ár eftir í 5.flokki. Engin ástæða er því til að láta deigan síga hvemig svo sem fer í sumar. Mörk Fram í þessum stórskotaleik geröu Gunnar Andrésson 2, Oskar Astþórsson 2, Amar Sigtryggsson 2, Eggert Ingólfsson 1 og Helgi Björg- vinssonl. Á Fylkisvelli áttust við Fylkir og Valur. Valur sigraði 3—0. Mörk Vals gerðu Einar Olafsson, Anton Markússon og Gunnlaugur Einars- son, allir eitt hver. B-riðfll Þróttur R-Víkingur 0—4 IBI-IR 1-4 Fylkir-Stjarnan 1—0 B-riðill Leiknir-Þróttur Valur-FH Njarðvík-Týr Leiknir-Týr 3. FLOKKUR Víðir-Grindavík 0-0 C-riðUl 3. fíokkur Stjarnan-Grindavík A-riðUl IR-KR 0-3 5. fíokkur Fram-Fylkir 4-0 A-riðUl IBK-Valur 3-5 KR-Fram Týr-ÍA 1-7 IR-IK Þróttur-Víkingur 3-0 lA-Valur lA-Fylkir 2-3 Víkingur-Fylkir IR-IBK 3-2 Þróttur-Leiknir Fram-Þróttur 0-0 Fram-Leiknir Týr-KR 2-5 IR-KR Vikingur-Valur 1-1 DC-lA KR-IA 2-1 Fylkir-Valur Fylkir-Þróttur 3-2 Víkingur-Þróttur B-riðUl Haukar-UBK 1—3 B-riðUI Selfoss-Grindavík 9-0 UBK-Stjarnan IK-Grindavik 5-1 Grótta-lBK ÞórV-UBK 4-3 Grindavík-Afturelding Grindavík-FH 0-3 IBK-Grindavík i-i 1-0 1-4 1-2 8-0 2-2 3-0 0-2 3-0 8-0 8-0 1- 4 2- 4 0-3 2-3 0-2 1-6 1-0 3-2 Rjörgvm bjargaði Þrétti Framarar voru óheppnir að vinna ekki sigur á Þrótti er liðin mættust á Framvellinum. Leiknum lauk með jafntefli 0—0. Framarar sóttu nær allan leikinn ef frá era taldar síðustu 10 mínútumar. Björgvin Pálsson, markvörður Þróttar, var hetja leiksins. Oft á tíðam varði hann stór- glæsilega. Má með sanni segja að hann hafi bjargaö Þrótti frá stórtapi. Framarar komust þrisvar sinnum inn fyrir vöm Þróttar en alltaf varði Björgvin. Síðustu 10 minútur leiksins sóttu Þróttarar í sig veðrið og áttu eitt umtalsvert tækifæri en öruggur markvörður Fram, Haukur Braga- son, varði mjög vel. Bezti maður leiksins var Björgvin Pálsson en hjá Fram stóð Matthías Þorvaldsson upp úr. Víkingur og Valur skildu jöfn í miklum baráttuleik á Víkingsvelli. Lokatölur urðu 1—1. Víkingar voru mun frískari í fyrri hálfleik og uppskáru þá eitt mark. Var þar Sigurbergur Steinsson að verki. I síðari hálfleik breyttust hlutföllin í leiknum, Valsmenn náðu smám saman undirtökunum og ekki leið á löngu þar til Ragnar H. Róbertsson náði að jafna fyrir Val með góðum skalla. Rétt undir lok leiksins fékk Snævar Hreinsson gullið tækifæri til að innsigla sigur Vals en skot hans fór yfir markið. Jafntefli var því staðreynd. Valsliðið var mjög jafnt í þessum leik með Snævar Hreinsson sem bezta mann. Mikil og góð bar- átta var hjá Víkingum og sýndi Ágúst Héðinsson markvörður góðan leik. KR sigraði IA á KR-velli 2—1. Leikurinn var mjög jafn og skemmti- legur. Það voru KR-ingar sem skoruðu fyrsta mark leiksins og var Unnar Ingimundarson að verki. Þannig var staðan í leikhléi. 1 síðari hálfleik sóttu Skagamenn meira en þeim mun hættulegri urðu skyndi- sóknir KR. Er 15 mínútur vora til leiksloka náðu Skagamenn að jafna og gerði Jakob Halldórsson þar mark. En KR-ingar gáfust ekki upp og er 5 mínútur vora til leiksloka skoraöi Unnar Ingimundarson aftur fyrir KR,með skalla Bezti maður vallarirts var Sigurður Jónsson IA þó svo aö hann virtist ekki taka mikið á. IR sigraði IBK með þremur mörkum gegn tveimur. Mörk IR skoruðu Jónas Guðjónsson 2, og Gunnlaugur 1. Mörk IBK gerðu Kristján Geirsson og Vilhjálmur Ingvarsson. Fylkir lagði Skagamenn að velli á Skipaskaga 3—2. Leikurinn var mjög fjörugur og sigur Fylkis-manna sanngjarn. Mörk Fylkis skoruðu Guömundur Magnússon 1. Jón Þor- steinsson 1, og eitt var sjálfsmark. Mörk IA skoraðu Guðmundur Guömundsson og Sigurður Jónsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.