Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1982, Page 32
32
DAGBLAÐIÐ & VISIR. LAUGARDAGUR12. JUNI 1982.
Menning Menning Menning Menning
Listahátíð um helgina
Akureyri
Ijstahátíð er í algleymingi þessa
helgi, nóg um aö vera hvert sem litið
er, norðan heiöaeða sunnan. Verteraö
minna Norölendinga og ferðafólk
nyrðra á, að samtímis Listahátíð í
Reykjavík er mikil Vorvaka í höfuð-
borginni viö Eyjafjörð. I dag veröur
opnuð þar sýning þeirra Sigríðar
Jóhannsdóttur vefara og Leifs Breið
fjörð glerlistarmanns í Hússtjórnar-
skólanum og Leifur sýnir einnig í
Amtsbókasafninu.Enginr ætti að láta
listaverk þeirra Sigríöar og Leifs fram
hjásérfara.
I Amtsbókasafninu er einnig sýning
á handritum og bókum frá Landsbóka-
safninu og víst að marga mun fýsa að
líta þar inn. Reykvíkingarnir Rúna og
Gestur Þorgrímsson sýna keramík í
Klettagerði 6 og á vinnustofu Ragnars—■
Lár og Guðmundar Ármanns er einnig
sýning. (Gallerí Stíll, Hafnarstræti).
Trúöurinn Ruben frá Svíþjóð heim-
sækir Akureyri og heldur sýningu í
Samkomuhúsinu á rr.crgun kl. 17.
Ruben hefur gert feiknalukku hvar
sem hann hefur komiö og eflaust munu
krakkamir á Akureyri flykkjast í trúöa-
skólann hans á þriðjudaginn — það er
sko skemmtilegur skóli. Og síðar í vik-
unni heldur The London Sinfonietta
tónleika í Skemmunni, þ. 19.
Reykjavík
I Reykjavík á sá kvölina sem á
völina! Kannski viö byrjum á því létt-
asta sem er Klúbbur Listahátíðar í
Félagsstofnun stúdenta. Þar er hægt
að eta og drekka, jafnt utan húss sem
innan ef veður ieyfir. Á vorkvöldunum
heiðskíru undanfariö hafa hávaxinn
trjálundur Alexanders Jóhannessonar
og vængjaöir söngfuglar glatt augu og
eyru gesta úti við en mannlegri músík
inni. 1 kvöld spilar Kalli Sighvats meö
félögum, annað kvöld hefur leik-
flokkurinn frá Venezuela, Rajatabla,
ofan af fyrir liðinu, sagt er að þeir
musiseri og skemmti sér og öðrum af [
i mikiUi innUfun og ætti því að vera glatt
á hjaUa Listahátíöar kvöldið það.
Rajatabla sýndi leikritið BoUvar í
fyrsta sinn í Þjóðleikhúsinu í gær-
kvöldi. Önnur sýning er í kvöld en á
mánudaginn sýna þau leikritið Forseti
lýðveldisins eftir Asturias. Ekki er þaö
nú á hverjum degi sem Ieikhúsgestum
gefst kostur á að skoða leiksýningar
frá Suður-Ameríku og enginn ætti aö
láta gott tækifæri úr greipum renna.
Bolívar er sótt beint í sögu ríkjanna i
Suður-Ameríku, semnefnt SUnoni
Bolivar, þeim er frelsaði álfuna undan
oki spænsks einræöis Símön Bolivar
lézt fyrir 150 árum en núna er Suöur-
Ameríka heimkynni a.m.k. 11
einræöisherra og harðstjóra, sem hver
í sínu horni þykist þó halda á lofti
minningu frelsarans. Bolivar var af-
Guðrún Jónsdóttir, forstöðumað-
ur Borgarskipulagsins, stýrir iabbi-
túr úr miðbæ upp á Skólavörðuhoit
á morgun.
Þorsteinn Hauksson tónskáld, en
hann á verkið Ad Astra, sem flutt
verður af Kammersveit á rnorgun.
noar nvam, stornanai og stjorn-
andi Passiukórsins frá Akureyri.
Margir biða i ofvæni eftir að heyra
nýstárlegt messuverk, African
Sanctus, sem kórinn flytur annað
kvöld.
Frá einni þriggja sýninga á Kjarvaisstöðum, Hönnun '82. Á Kjarvaisstöðum er einnig verið að sýna verk
eftir Kjarval og Magnús Tómasson.
sprengi skynsemis- og upplýsinga-
stefnunnar og bjartsýnn á framtíð
mannsandans. Hugsjónir hans hafa þó
verið gerðar burtrækar úr Latnesku
Ameríku, þar sem íþróttavellir,
leikhús, jafnvel kirkjur þjóna nú hlut-
verki fangabúða og fjöldaaftökustaöa.
Leikritið Bolivar er um þessar and-
stæöur draums og veruleika í Suður-
Ameríku. Og eins og áður sagöi —
önnur sýning þess er í Þjóöleikhúsinu
kl. 20íkvöld.
En fyrr í dag skemmtir trúðurinn
Ruben í Norræna húsinu, nánar tiltek-
ið kl. 16, og er það síðari sýning hans í
Reykjavík. Ruben hefur í vikunni
rekið nokkurs konar skóla handa litl-
um krökkum, kennt þeim trúðslæti og
undirbúning sýninga við óhemju gleði
bamanna.
Tón/ist
Tónlist af öllu tagi hljómar vítÞog
breitt þessa Listahátíð sem á öðrum og
þessa helgi er af mörgu að taka. Stór-
grúppan The Huamn League heldur
tónleika sem ku vera meiri háttar
„show” í Laugardalshöllinni í kvöld kl.
21 og munu víst fáir poppáhugamenn
láta sigvanta þar.
Á morgun er hins vegar slegið á
nýstárlegri strengi þar sem eru tón-
leikar Kammersveitar Listahátíöar
og söngur Passíukórsms frá Akureyri.
Kammersveitin leikur í Háskólabíói kl.
15. Eitt islenzkt verk er á efnisskránni,
sem heitir Ad Astra og er eftir ungan
og mjög vænlegan höfund, Þorstein
Hauksson. Þorsteinn er fæddur 1949,
lærði við Tónlistarskólann í Reykjavík,
fór síðan vestur um haf og lauk
Masters-prófi frá háskólanum í
Michigan 1977. Þorsteinn vinnur nú aö
doktorsritgerð við tónlistarháskólann í
Stanford, Califomia.
Það er Guðmundur Emilsson, sem
hefur skipulagt þessa tónleika og
stjómar hljómsveitinni. Meðal
tónlistarmannanna eru margir af
okkar þekktustu hljóðfæraleikumm,
Gunnar Kvaran celloleikari, Helga
Þórarinsdóttir lágfiðluleikari, Laufey
Sigurðardóttir fiðluleikari, Unnur
María Ingólfsdóttir, til að nefna aðeins
nokkur nöfn, en alls skipa hljómsveit-
ina 35 manns. Einleikarar eru fjórir,
Sigurlaug Eðvaldsdóttir og Ásdis
Valdimarsdóttir, sem munu leika verk
eftir Mozart (Sinfonia Concertante
fyrir fiðlu og lágfiölu), og Sigurður I.
Snorrason og HafsteinnGuðmundsson,
sem leika Duo Concertino fyrir klarin-
ett og fagott. Auk þessa er á efnis-
skránni Variaciones Concertantes
fyrir kammersveit eftir Alberto Gina-
stera.
African
Sanctus
Þá eru ekki síður spennandi tón-
leikar Passíukórsins frá Akureyri,
sem verða í Gamla bíói annað kvöld kl.
21. Stofnandi kórsins og stjómandi
hans síðan er Roar Kvam og hafa farið
góöar sögur af þeim árangri sem hann
hefur náð með kórfélögunum. Á efnis-
skránni er verkið African Sanctus,
nýstárlegt messutónverk, eftir
Bretann David Fanshawe. African
Sanctus sækir anda sinn til
afaríkanskrar tónlistar sem höfundur-
inn hreifst mjög af á ferðum sínum
suðurþar. Utkomanerfmmleg blanda
af Afríkusöng, latneskum tíöasöng,
djassi poppi og rokki, seiðandi og heill-
andi. Þetta verður í fyrsta sinn, sem
African Sanctus er flutt utan Englands
því Passíukórinn á Akureyri er fyrsti
kórinn utan heimalands höfundar, sem
ræðst í að æfa það og flytja.
Labbitúr
ognáttúran
Vindum þá okkar kvæði í kross, frá
tónlistinni aö húsum! Arkitektafélag
Islands er með gönguferð um miðbæ-
inn á morgun og ætti ekki að vera ama-
legt að virða borgina fyrir sér undir
handleiöslu ekki verri manns en
Guðrúnar Jónsdóttur, forstöðumanns
Borgarskipulagsins.
Gangan er liður af hlut Arkitekta-
félagsins í Listahátíð. Farið verður frá
svonefndu Bryggjuhúsi Vesturgötu 2
kl. 10. fyrir hádegi og labbað sem leið
liggur upp á Skólavörðuholt. Leiðsögu-
menn undir forystu Guðrúnar munu
segja frá húsakosti á leiðinni og kynna
þannig göngufólki kafla úr sögu
Reykjavíkur og þeirra sem í bænum
hafa búið. Þetta ætti að geta veriö
bráðskemmtilegt. Eins og fyrr sagði
lýkur labbinu á Skólavörðuhæð, nánar
sagt í húsi Arkitektafélagsins,
Ásmundarsal við Freyjugötu, en þar
verður þá opin sý*iing, sem ber yfir-
skriftina Náttúrurform. Sýningin
fjallar um byggingarform, sem sótt
Listsýningar
Kjarvalsstaðir
Sýning á verknm Jóhannesar S.
Kjarvals, Sýn lióð og skúlptúr
eftir Magnús Tomasson. Hönnun
’82 — Sýning á íslenzkum hús-
gögnum og listiðnaðarverkum.
Listasafn íslands
Sýning á verkum Walasse Ting.
Norræna húsið
Sýning á graníthöggmyndum
John Rud — utanhúss og innan.
Ljósmyndasýning Ken Reynolds.
Galleri Langbrók
Smælki ’82 — Sýning á íslenzkum
listiönaöi.
Ásmundarsalur
Náttúruform — Sýning á vegum
Arkitektafélags Islands.
Nýlistasafniö
„Thinking of the Europe” —
Verk 10 samtímalistamanna frá 5
þjóðlöndum
Listmunahúsiö
Leirlist ’82 — Fyrsta sýning hins
nýstofnaða Leirlistafélags.
Rajatabla leikflokkurinn frá Venezueia synir leikritið Bolivar i Þjóðleikhúsinu ikvöld og annað kvöld.
Leifur Breiðfjörð og Slgriður Jó-
hannsdóttir sýna á Vorvökunni á
Akureyri.
binder
— r--------—.** ■*
Akureyri.
eru í sjálfa náttúruna, og tilraunir
manna til að lfkja eftir þeim formum.
Margir munu kannast við slík dæmi,
svo sem tjaldið góða yfir Olympíu-
leikvanginum í Miinchen. Litið er enn
um slíka leit til náttúrunnar hér á
landi, þó mætti nefna kúluhúsin hans
Einars Þorsteins, sem sumir kannast
við. En þau form náttúrunnar, sem
skoöuö eru sérstaklega á sýningunni,
eru t.d. egg, kóngulóarvefir og sápu-
kúlur og eflaust leikur ekki fáum for-
vitni á að vita hvemig húsahönnuðir
nýta sér þá hugkvæmni móður náttúru
í eigin verkum. Þessi sýning verður
opnuð í dag og henni lýkur þ. 20. júní.
Er þá talið þaö sem um er að vera
þessa helgi á Listahátíð utan fastra
sýninga. Þeir sem skipuleggja tíma
sinn langt fram á viö gætu skrifað bak
viö eyrar aö á mánudagskvöld sýnir
Rajatabla Forseta lýðveldisins í
Þjóðleikhúsinu og sérstæður píanóleik-
ari, Ivo Pögerlich að nafni, leikur með
Sinfóníuhljómsveitinni í Laugardals-
höll á mánudagskvöld líka. Mun þar
vera á ferðinni einn sjálfstæðasti
Chopin-túlkandi sem nú leikur lausum
hala. En DV mun að sjálfsögðu segja
nánar frá dagskrá Listahátíðarinnar í
næstu viku og þegar þar aö kemur.
Góða skemmtun!
Það voru sorgleg tíðindin um hið
skyndilega fráfall þýska kvikmynda-
gerðarmannsins ' Rainer Wern-
er Fassbinders. Þessi óþreytandi
og sívinnandi listamaður haföi sýnt og
sannað að hann átti fáa jafninga meöal
landa sinna hvað viðvék þrautseig ju og
afkastagetu enda virtist hann senda
frá sér myndir á færibandi. Þótt marg-
ar myndir hans væru svona í meðallagi
þá komu alltaf inn á milli sérstæð lista-
verk sem munu halda nafni
Fassbinders á lofti meðal kvikmynda-
unnenda um allan heim næstu áratug-
ina.
Það sem gerir fráfall Fassbinders
enn sorglegra er að hann virtist hafa
verið að þreifa fyrir sér á nýjum braut-
um og tekist að höfða til mjög breiðs
hóps í þjóöfélaginu með myndum sín-
um aö undanförnu, um þær stöllumar
Maríu Braun, Lili Marlin, Lolu og svo
nú síðast Veroniku Voss.
36 ára gamall
Fassbinder hafði nýlega haldið upp á
36 ára afmælisdaginn sinn áður en
hann lést. Hann var fæddur 31. mai
1946 í Bad Wörishofen í Þýskalandi.
Faðir hans var læknir aö atvinnu en
móðir hans var þýðandi. Síöar meir lék
hún í ýmsum aukahlutverkum í mynd-
um sonar síns en alltaf undir dulnefn-
inu Lilo Pempeit.
Eftir að foreldrar Fassbinders
skildu, urðu þáttaskil i lífi hans. Móðir
hans varð að stunda útivinnu svo hún
sendi oft soninn á kvikmyndahús
meðan hún var við vinnu sína. Má
segja að þar hafi áhugi Fassbinders á
kvikmyndum kviknað. Eftir að Fass-
binder hætti í skóla vann hann ýmis
störf og sótti einnig tíma í leikhússkóla
sem rekinn var af einkaaöila. Þar hitti
hann Hönnu Schygulla sem síðar meir
átti eftir að skipa stórt hlutverk í
myndum hans. Saman hófu þau sam-
starf við leikhóp um mitt árið 1967 sem
nefndist ,,Action Theatre” og var til
húsa í Miillarstræti í Munchen. Þama
komst Fassbinder í kynni við hinn um-
deilda franska kvikmyndagerðar-
mann, Jean-Marie Straub, en hann
notaði í mynd sinni, THE
BRIDGEGROOM, THE COMED-
IENNE AND THE PIMP, uppsetningu
Fassbinders á Krankheit der Jugend,
byggð á verki Ferdinand Bruckner.
Fyrsta mynd
Fassbinders
þýsku nýbylgjunnar (Das neue Kino)
ásamt þeim Alexander Kliige, Volker
Schlöndorff og Werner Herzog. Þeim
Fassbinder og Herzog tókst að endur-
vekja áhuga annarra þjóða á þýskri
kvikmyndagerö og ruddu þar með
brautina fyrir aðra minna þekkta
þýskáleikstjóra.
Vakandi fyrir
vandamálum annarra
Líkt og aðrar myndir þessara frum-
kvöðla nýbylgjunnar, þá eru myndir
Fassbinders frumlegar og í nánum
tengslum við raunveruleikann og það
sem er að gerast i kringum okkur. I
myndum sínum undirstrikar Fass-
binder fyrir áhorfendum að lífið sé
enginn dans á rósum og að fólk verði
því að hafa oft á tíöum æði mikiö fyrir
því að komast án mikilla áfalla gegn-
um lífið. Einnig var Fassbinder
óhræddur við að stinga á kýlum þjóð-
félagsins og taka fyrir efni sem aðrir
leikstjórar þorðu ekki að snerta við.
Fassbinder var alltaf vakandi fyrir
daga í lífi kynskiptingsins Elvira
Weishaupts.
Hér á Islandi tók það nokkuö langan
tíma fyrir íslenska kvikmyndahúsa-
gesti að læra að meta myndir Fass-
binders. Háskólabíó var einn fyrsti að-
ilinn sem kynnti myndir hans á mánu-
dagssýningum sínum og hefur undan-
farin ár sýnt þó nokkuð margar mynda
hans eins og t.d. DER HÁNDLER
DER VIER JAHREZEITEN (1971),
DIE BITTEREN TRÁNEN DER
PETRA VON KANT(1972),
WILDWECHSEL (1972) og FONTANE
EFFI BRIEST (1974). Einnig skutu
upp kollinum myndir hjá Fjalakettin-
um, kvikmyndaklúbbi framhalds-
skólanna, félaginu Germanía og ís-
lenska sjónvarpinu.
Landinn
heillast
En Fassbinder heillaði fyrst landann
að ráði með mynd sinni HJONABAND
MARIU BRAUN í Regnboganum um
Sjónvarpsþættir
Fyrir utan að gera myndir fyrir
kvikmyndahús vann Fassbinder tölu-
vert fyrir sjónvarp og eru þættirnir
ACHT STUNDEN SIND KEIN TAG,
sem voru 5 að tölu, eitt besta efni sem
sýnt hefur veriö í þýska sjónvarpinu.
Þegar þessir þættir voru sýndir 1972—
1973 sáu um 41—64% þjóðarinnar þá og
lýsti yfirgnæfandi meirihluti
áhorfenda yfir ánægju sinni meö efnið.
Einnig gerði Fassbinder hina marg-
lofuöu þætti um BERLIN
ALEXANDERPLATZ fyrir þýska
sjónvarpið.
Þótt Fassbinder sé fallinn frá geta
íslenskir kvikmyndahúsagestir hugg-
að sig við að enn á eftir aö sýna hér á
landi bæði Lolu og Veruniku Voss.
Regnboginn mun í sumar taka LOLU
til sýningar og vonandi verður ekki
langt að bíða hennar VERONIKU
VOSS. En þótt Fassbinder geri ekki
fleiri myndir þá mun minning hans lifa
í hugum okkar með myndum hans.
Baldur Hjaltason
Rainer Werner Fassbinder
1946-1982.
Kvikmyndaunnendur um
allan heim syrgja meistar-
ann um þessar mundir.
Þetta leikhús sem Fassbinder starf-
aöi viö hefur víst verið talið of fram-
sækiö af þýskum stjómvöldum á þess-
um umbrotatímum ungs fólks í
Evrópu, því lögreglan lokaði leikhús-
inu í maí 1968, aðeins einum mánuöi
eftir að leikhúshópurinn hafði fært upp
í fyrsta sinn verk byggt á upprunalegu
handriti Fassbinders. Hann stofnaöi
síðan ásamt Schygulla og fleiri félög-
um annan hóp sem kallaði sig „Anti-
Theatre” og hófu þau starfsemina í
bakherbergi í krá nokkurri. Þetta
reyndist allt laust í reipunum og
flosnaði hópurinn fljótlega upp enda
var Fassbinder á þessum tíma að snúa
árið, en sú mynd markaöi einnig
ákveðin tímamót í ferli hans. Kvik-
myndahátíðin í Berlín var opnuð 1979
með þessari mynd sem fjallaði um
mjög viðkvæman kafla í sögu Þýska-
lands eða árin 1945—1954. Myndin opn-
aði einnig fyrir Fassbinder nýjar
brautir á erlendum mörkuðum sem áð-
ur höfðu verið lokaöar.
HJONABAND MARlU BRAUN var
ein samfelldasta og best unna mynd
Fassbinders og það ásamt stórfengleg-
um leik Hönnu Schygulla gerðu mynd-
ina að fyrstu mynd Fassbinders sem
raunverulega sló í gegn og náði til
fjöldans í stað þess að höfða til
fámenns kjarna í þjóðfélaginu. Fass-
binder fylgdi þessari mynd eftir meö
LILIMARLIN en því miður var árang-
urinn ekki í samræmi við kostnaö
myndarinnar sem var ein sú dýrasta
sem Fassbinder gerði. En næsta
myndin, LOLA, virðisthafakomiö hon-
um á réttan kjöl en hún var dæmigerð
Fassbinder mynd eins og þær gerast
bestar. Fyrir nokkrum mánuöum
vakti Fassbinder enn einu sinni mikla
athygli á kvikmyndahátíðinni í Berlín
meö mynd sinni VERONIKA VOSS
semhlautþarGrand Prix verðlaunin.
Fassbinder (i miðið) leiðbeinir Bernhard Wicki og Dirk Bogarde. Myndin er
tekin við gerð,,Despair" (örvæntingar).
Kalli Sighvats spiiar ásamt félögum
i Klúbbi Listahátiðar i kvöld.
vandamálum sérhópa í þjóðfélaginu,
hópa sem oft á tiðum voru útskúfaðir
af samborgurum sínum. Gott dæmi um
þetta er myndin IN EINEM JAHR MIT
13 MONDEN, sem f jallaöi um síðustu
sér æ meira að kvikmyndagerð og
gerði síðan ári síðar sína fyrstu mynd í
fullri lengd, LIBE IST KÁLTER ALS
DER TOD.
Fassbinder var einn af f rumkvöölum
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. LAUGARDAGUR12. JUNl: 1982.
Menning
Ralner