Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1982, Síða 1
Staöurínn þar sem græni Benzinn< fannst. Lik stúlkunnar var i farangurs-
geymslunni. A þvi voru fjögur skotsár. Á litlu myndinni uppi til vinstri sjást
leitarmenn vera að koma ofan af Svinafellsjökli skömmu eftir að maöurínn
fannst i morgun. Niöri i horninu sést sæluhúsið á Skeiðarársandi, þar sem
ráðizt var á frönsku stúlkurnar.
DV-myndir: Einar Ólason, Þórír Guðmundsson og Kristján Már Unnarsson.
Meintur árásarmaður
fannst heill á húfi
skýrsla verður tekin afmanninum oghann síðan fluttur til Reykjavíkurí dag
Maðurinn, sem lögreglan hefur
leitaö aö í allan gærdag og í nótt
vegna morðmálsins í öræfasveit,
fannst klukkan hálftíu í morgun.
Fannst hann í fylgsni, vopnaður riffli
og haglabyssu, skammt frá þeim
stað sem sporhundur hafði rakið slóð
hans.
Að sögn Þóris Oddssonar, vara-
rannsóknarlögreglustjóra, verður
skýrsla tekin af manninum fyrir
austan og hann síðan fluttur til
Reykjavíkur. Sagðist Þórir ekki
vita til annars en aö maðurinn sé
sá, sem leitað hefur verið að, það er
Grétar Siguröur Arnason.
Leit aö árásarmanninum í
öræfasveit beindist aðallega að
keilulaga gíg í Svínafellsjökli,
einum af skriðjöklum öræfajökuls.
Er gígurinn talinn 50 til 100 metra
djúpur.
Sporhundur rakti i gær slóö
mannsins fram á brún gígsins.
Annarsporhundur rakti einnig slóð
mannsins að sama stað í nótt. Sá
hundur fann hins vegar nýja slóð í
morgun.
Atburðarrásin er talin í grófum
dráttum þessi: Maður, búsettur í
öræfasveit, á leiö heim til sin frá
Höfn í Hornafirði, tekur upp tvær
franskar stúlkur í bíl sinn fyrir
utan Höfn. Ekur þeim í sæluhús á
Skeiöarársandi. Þangaö er komið
umáttaleytiö um kvöldið.
Maðurinn kemur aftur um ellefu-
leytið um kvöldið og ætlar að neyða
stúlkurnar til að koma meö sér.
Það endar með því að hann ræðst á
þær og nemur aðra stúlkuna á brott
meðsér.
Mannræninginn mætir flutninga-
bíl á Skeiðarársandi. Virðist sem
gísl hans hafi þá hent sér úr bíl
árásarmannsins. Flutningabíl-
stjórinn áttaði sig hins vegar ekki á
því sem í raun var að gerast og
trúöi frásögn mannræningjans um
aö þama hefði orðið bílslys. Þegar
flutningabílstjórinn er farinn eftir
hjálp, ekur maðurinn með stúlkuna
upp að rótum Svínafellsjökuls. Þar
finnst billinn um morguninn og lík
stúlkunnar í farangursgeymslunni.
Fjögur skotsár voru á baki líksins.
Hin stúlkan er komin á sjúkrahús í
Reykjavík.
-KMU/GB/GSG.
sjánánarábls.2-3
LOGREGLAN HAFÐIAÐUR TEKID BYSSU AF HONUM
enda þotti hann of beldishneigður og hafði í hótunum um að nota byssuna
taka af honum byssu. Mun það hafa
verið gert af öryggisástæðum enda
þótti maðurinn ofbeldishneigður og
hafði haft í hótunum um að nota
byssuna. Maðurinn hefur einnig
komið við sögu lögreglunnar vegna
Borgarspitalanum heitir Marie
Luce Bahuaud, 29 ára gömul. Þær
bjuggu í úthverfi Parisar.
Grétar Sigurður fluttist til Akur-
eyrar frá Vestfjöröum. Fyrir
norðan þótti lögreglu ástæða til að
avisanamisferlis og víxilsvika.
Vegna fjármálamisferlis hrökklað-
ist hann frá Akureyri og hélt til
Danmerkur. Þaðan fiutti hann í
öræfasveitina.
-KMU.
Maðurinn, sem leitað var að í
öræfajökli, heitir Grétar Sigurður
Ámason. Hann er fertugur aö aldri
og hefur síðastliðin tvö ár búið aö
Hofi í öræf um. Hann er ættaður f rá
Þingeyri við Dýrafjörð en flutti
þaðan fyrir mörgum ámm.
Frönsku stúikurnar komu til
islands í lok maí og hafa ferðazt
um landið. Sú látna var 21 árs
gömul og hét Yvette Marie
Bahuaud. Sú sem liggur slösuð á