Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1982, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1982, Blaðsíða 32
32 DV. MIÐVKUDAGUR18. ÁGUST1982. Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið Lék Beethoven i tólf tíma Bandarískur píanisti telur sig hafa sett tvö heimsmet. Hann tók sig til og lék allar 32 sónötur Beethovens á einu bretti. Tók spilamennskan tólf klukkustundir og fór fram í banda- ríska Viktoríu-safninu í Nevada. Var hljómleikunum útvarpað beint af út- varpsstöð borgarinnar. I því er einmitt annað heimsmetið fólgið. Starfsmenn stöðvarinnar og Gary fullyrða að aldrei áður hafi svo löng útsending á klassískri tónlist farið fram viðstöðulaust. Hitt heimsmetiðervita- skuld fólgið í því að spila allar sónötur Beethovens á einumtónleikum. Reyndar stóð spilamennskan ekki yfir „nema” í níu klukkustundir, því að píanóleikarinn tók sér 15 mínútna hlé aöra hverja klukkustund og hálftíma hlé fyrir siðasta klukkutímann. 110 manns greiddu 40 krónur fyrir að hlýða á spilamennskuna. 15 þeirra entust til að hlusta á alla hljómleikana. Kristín, fyrrverandi vændiskona frá Danmörku. Hún þekkti Richard Burton og Picasso hér áður fyrr. Dönsk vændiskona með einstakan bakgrunn Dönsk vændiskona, búsett í Englandi, hefur verið mikið í fréttum aö undanförnu vegna óvenjulegs lífs- ferils. Kom hún meðal annars fram í sjónvarpi og dönsk blöð hafa tekið við hana viötöl. Kristín — eins og hún kallar sig — fékk alvarlegan sjúkdóm árið 1979 og varð að hætta störfum við fyrirtæki sem hún rak. Lifði hún þá, ásamt tveim sonum sínum, á styrkjum frá ríkinu. Nægðu þær greiðslur engan veginn til framfærslu fjölskyldunnar. Ákvað Kristín því að hefja störf sem vændiskona. Hún er 51 árs ættuö frá Oðinsvéum og er móðir hennar frægur rithöfundur í Danmörku. Nú lifir Kristín á ríkis- framfærslu og framlögum frá móður sinni sem hún fær send vikulega. En þaö sem einna mesta athygli hefur vakiö er fortíð hennar. Hún var þekkt ljósmyndafyrirsæta áður fyrr. Einnig sat hún fyrir hjá Picasso, sem hún kynntist töluvert vegna starfa fyrsta eiginmanns sins. Sá var list- málari. Þá var hún einnig vel kunnug leikaranum Richard Burton. Kristin hefur gifzt þrisvar sinnum. öðrum manni sínum hefur hún lýst sem kynvilltum Itala, sem var í tengslum við Mafíuna. Þriðja manni sínum kennir hún um, að nú skuli hún lifa við sult og seyru í fátækrahvefi í Fulham í London. En Kristín vonast nú til að betri tið sé í vændum hjá henni og sonunum. Hún hefur nú skrifaö endurminningar sínar, sem koma munu út i Bretlandi innan tíðar. Stefna hannar er því sú að feta í fótspor móður sinnar. Hún var 48 ára þegar rithöfundarferill hennar hófst. Kristín hefur einnig í hyggju að skrifa skáldsögur. Kristín lýsti því yfir, að í vændið færi hún ekki aftur. Slíka auðmýkingu gæti hún ekki afborið. Synir hennar vissu um atvinnu móöurinnar og voru að hennar sögn mjög óánægöir yfir þessu. 117 ára Japani Schigechiyolzymifrá Japan hélt ný- lega hátíðlegan 117. afmæhsdaginn með því að fá sér glas af Shoríiu. Mun þaö vera sykurbrennivín. Og hver skyldi vera leyndar- dómurinn á bak viö þennan háa aldur? Izymi er meö þaö á hreinu, að eitt glas á dag af Shochu á þar stærstan þátt. Hann fæddist 28. júni 1865. DV -Eittblað- Tvöiold áhrif Bandarikjamaður nokkur tók sig til og lék sónötur Beethovens i einni lotu, nú fyrir skömmu. UNGFRÚ ÍSRAEL ER HERMAÐUR Það er ekki algengt að hermenn vinni fegurðarsamkeppni. Sú var samt sem áöur niöurstaöan í Israel fyrir stuttu. Hin 19 ára Debi Hess, hermaöur í ísraelska hemum var kjörin „ungfrú Israel 1982”. Er þaö mál manna aö her landsins hafi sýnt á sér nýja hlið meö þessu. Ungfrúin kveðst þó ekki ætla aö hafa hermennskuna aö framtíðar- starfi, heldur hefur hún meiri áhuga á fy rirsætustörf um. Félagar hennar í hernum eru sagöir mjög ánægöir meö aö hafa Debi innan sinna raða — og hver skyldi lá þeim þaö? Ungfrú ísrael í vinnugallanum. Þessi mynd var tekin fyrir skömmu af Viktoriu Principal og nýja félaganum hcnnar, skurölækninum Dr. Harry Glassman. Voru þau stödd á veitingahúsi á Beveriy Hills sem heitir Adriano. Viktoría með skurðlækni Dallas leikkonan Viktoría Principal hefur nú fundið sér nýjan félaga. Sá heitir dr. Harry Glassman og er bandarískur skurðlæknir. Hann sér- hæfir sig í plastískum aögeröum. Hafa þau eytt öllum sínum frístundum saman aö undanförnu. Viktoría er nú 33 ára en læknirinn mun vera 38 ára. Viktoríahafðiekkifyrr sagtskiliö viö söngvarann fræga Andy Gibb þeg- ar hún tók saman viö milljaröa- mæringinn Adnan Kashoggi. Kashoggi haföi þá skömmu áöur misst konu sína, Soraya Kashoggi, 40 ára, í fangið á Robert nokkrum Rupley. Rupley þessi er 24 ára og vitaskuld vel stæöur með afbrigðum. Rupley og Soraya gengu í þaö heilaga fyrir skömmu enda engin furöa þar sem þau eiga von á barni saman. En Viktoría undi ekki hag sínum meö milljarðamæringnum Kashoggi og lét hann lönd og leið. Tók hún svo skjótt saman viö skurðlækninn, hvaö sem það samband kann aö vara lengi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.