Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1982, Blaðsíða 8
DV. MIÐVIKUDAGUR18. ÁGUST1982.
Utlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Spadolini reynir
enn að mynda
ríkisstjórn
Giovanni Spadolini heldur á-
fram tilraunum sínum til að
mynda nýja ríkisstjóm á Italíu.
hina 42. frá stríðslokum, þrátt
fyrir að hinn áhrifamikli flokkur
sóSíalista hafi áður lýst því yfir
aö hann muni ekki taka þátt í
stjórn hans.
Spadolini ræddi i gær við
verkalýðsleiðtoga og fóru vonir
þá vaxandi um að stjórnarmynd-
un undir forsæti Spadolinis væri
ekki vonlaus. Meira að segja
virðist nú komið nýtt hljóð í
strokkinn hjá þeim sósíalistum
og sagði Craxi, leiðtogi þeirra, í
gær að stjórnarskrárumbætur
þær sem Spadolini hcfði heitið,
lofuðu góðu og gætu orðið að
mógulegum grundvelli fyrir
stuðningi sósíalista við stjórn
hans.
Uppreisn á
Seychelleseyjum
Albert Rene, forseti Seyehell-
es-eyja, var í gærkvöldi sagður
hafa snúið aftur til höfuðborgar
sinnar til að semja við
uppreisnarmenn sem segjast
hafa um 200 gísla undir höndum.
Uppreisnarmennirnir krefjast
þess að nokkrir foringjar úr
stjómarhernum verði látnir
víkja. Hafa þeir hótað að myrða
gíslana ef stjórnarhermenn reyni
að veita þeim viðnám.
Gerald Ford, fyrrverandl Bandarfkjaforseti, tók á móti Valery Giscard d’Estaing, fyrrum Frakklandsforseta, við
komu hans til Colorado.
Tveir fyrrverandi forsetar hittust
Tveir fyrrverandi forsetar hittust á
alþjóölegri stjórnmálaráðstefnu í Colo-
rado í Bandaríkjunum á dögunum. Það
vom þeir Gerald Ford, fyrmm Banda-
ríkjaforseti, sem leysti Nixon af eftir
Watergatehneykslið og ríkti frá 1974—
76 og Valery Giseard d’Estaing sem
gegndi embætti Frakklandsforseta á
árunum 1974—1981.
Meöai annarra ráðstefnugesta var
James Callaghan sem var forsætisráð-
herra í stjórn Verkamannaflokksins á
Bretlandifrá 1976 til 1979.
Meðal þess sem rætt var á ráðstefn-
unni var ástandið í Líbanon, styrjöld
Iraks og Irans og afvopnunarmál.
A rgentína var tilbúin
með innrásaráætlunina
— Ákvörðunin var tekin tveimur mánuðum áður en látið var til skarar skríða,
Argentína hafði undirbúið innrás
á Falklandseyjaraar tveimur
mánuðum áður en argentinsku
veðurfræðíngamir drógu fána þjóðar
sinnar að húni á eynni Suður-
Georgíu.
Að sögn dagbiaðsins Washington
Post, sem vitnar í heimildir innan
hersins i Buenos Aires, hafði
argentinska einræðisstjómin lagt á
ráðin um að taka eyjamar annað
hvort með góðu eða iliu í september
skrifar Washington Post
1981, þ.e.a.8. ef samningaviðræður
leiddu ekki til þessarar niðurstöðu þá
yrðu eyjamar teknar með vopna-
valdi. Ákvörðunin um innrás á
eyjamar var tekin i janúar síðast-
iiðnum.
Washington Post segir að
Argentina hefði verið betur undir
styrjaldarátök búin gegn Bretum ef
argentinski herinn hefði beðið i sex
vikur eftir að ný vopn yrðu afgreidd
til þeirra.
Heimildirnar úr argentínska
hemum segja að eín af ástæðunum
til þess að argentinska herstjórain á-
kvað að láta til skarar skríða hafi
verið sú að hún taldi sig njóta
stuðnings Reagan-stjóraarinnar
þrátt fyrir að henni böfðu borizt
aðvaranir frá þáverandi utanríkis-
ráðherra Bandarikjanna, Alexander
Haig.
Argentínski flotinn þvingaði þá-
verandi forseta landsins, Leopoldo
Galtieri, tU að fallast á innrásína
eftir að Bandarikin höfðu tekið
afstöðu með Bretlandi.
Eftir að argentinsku herflug-
vélamar höfðu sökkt brezka orrustu-
skipinu Sheffield trúðu argentínskir
embættismenn því að hersveitir
þeirra myndu fara með sigur af
hólmi, skrifar Washington Post.
Samkomulag í Líbanondeilunni loks í nánd?
ÍSRAELSKIFANGINN í
VEGISAMKOMULAGS
Israelsmenn telja að friðsamleg
lausn á deilunni um brottflutning
PLO skæmliða frá Beirút sé nú alveg
á næsta leiti. Enn séu þó örfá atriði
sem þurfi aö leysa.
Ariel Sharon, varnarmálaráð-
herra Israels, ræddi við Philip
Habib, sáttasemjara Bandaríkj-
anna, í Beirút í gær og sagöi eftir
viðræður þeirra að samkomulag um
brottflutning PLO-skæmliða og
bandamanna þeirra úr liði Sýrlend-
inga væri nú í nánd.
Sharon sagöi að miðað hefði í rétta
átt í þeim þremur ágreiningsefnum
sem enn em fyrir hendi. Frekari
upplýsijiga væri enn þörf.
Sagt var að Habib hefði farið til
Damaskus i Sýrlandi í gærkvöldi til
viðræðna viö ráðamenn þar. Hversu
nærri samkomulagið er veltur mikið
á þeim svörum sem Habib fær í Sýr-
landi en þaðan mun hann halda til
tsrael í dag.
Sharon sagði að eitt þeirra mála
sem þyrfti aö skýra frekar snerti
brottflutning sýrlenzku hersveitanna
frá höfuðborg Líbanon. Hin atriðin
em varöandi lista yfir skæmliða þá
sem fluttir verða frá borginni og sú
krafa Israelsmanna að PLO-menn
láti lausan israelskan flugmann, sem
féll í þeirra hendur eftir að innrásin
hófst, svo og lík níu ísraelskra her-
manna er féllu í bardögum í júní-
mánuöi síðastliðnum og í innrás
Israels í Líbanon 1978.
„Enginn hryðjuverkamaður mun
fara frá Beirút fyrr en flugmannin-
um okkar hefur veriö skilað heilum á
húfi og Habib er sammáia okkur um
það,” sagði Sharon í ísraelska út-
varpinu í gærkvöldi.
Fréttir frá Líbanon vora sam-
hljóða israelsku fréttunum í bjart-
sýninni á að lausn deilunnar væri nú
loks i sjónmáli. Shafiq Al-Wazzan,
forsætisráðherra Líbanons sagöi að
stjórn hans kæmi saman til fundar í
dag og var á honum að heyra að tíð-
inda væri aö vænta að fundinum
loknum. ,,Við vonumst til að geta
hafizt handa,” sagði hann.
Reagan
kvartaði
undan
Formósu-
frétt
Reagan Bandaríkjaforseti hafði í
gærkvöldi samband við CBS-sjón-
varpsstöðina bandarísku og kvartaði
undan fréttaflutningi hennar af sam-
komulagi bandarísku ríkisstjórnarinn-
ar við Kína um aö dregið yrði úr
vopnasölu Bandaríkjamanna til
Formósu.
I frétt CBS-stöðvarinnar hafði sagt
að Bandaríkjastjóm væri með þessu
að hörfa frá fyrri stefnu sinni. Reagan
var greinilega umhugað um að bera til
baka fréttir þess efnis að stefna hans
gagn vart Formósu hefði breytzt frá því
að hann barðist fyrir því að verða kos-
inn f orseti Bandarík janna.
,,Eg hef ekki breytt um stefnu, alls
ekki,” sagði Reagan. Hvita húsið hefur
staðfest að þessar viðræður Reagans
viö fréttamann CBS-sjónvarpsstöðvar-
innar hafi átt sér stað og þykir það
mjög óvenjulegt að forseti Bandaríkj-
anna skuli grípa til slikra ráða. „Við
munum halda áfram að vopna For-
mósu og við munum halda samkomu-
lag okkar við Formósu,” sagði forset-
inn.
Olesen
hrein-
skilinn
gagnvart
Shultz
Kjeld Olesen, utanrikisráðherra
Danmerkur, hittir í dag að máli
Donald Reagan, fjármálaráðherra
Bandaríkjamanna, auk leiötoga
bandaríska þingsins.
Olesen ræddi i eina og hálfa
klukkustund í gær við Shultz utanríkis-
ráðherra og sagði að loknum viðræðum
þeirra að þær hefðu verið „hrein-
skilnislegar”, sem hann kvaöst telja
jákvætt.
Hann kvaðst hafa rætt við Shultz um
samskipti Evrópu og Bandaríkjanna
og ágreining þann sem oröiö hefur
milli álfanna vegna fyrirhugaðrar gas-
leiðslu frá Sovétríkjunum til Vestur-
Evrópu og útflutnings á stáli frá
Evrópu.
Olesen, sem er í Bandaríkjunum,
sem fulltrúi ráðherranefndar
Evrópuráðsins, kvaðst hafa sagt
Shultz að Sovétmenn einir myndu
hagnast á því ef samband Banda-
ríkjanna og bandamanna þeirra í
Vestur-Evrópu versnaði.
Olesen gaf ekki til kynna að
Evrópuþjóðirnar heföu linazt í þeirri
hótun sinni að hafa að engu bann
Reagans Bandaríkjaforseta viö sölu á
bandarískum tækniútbúnaði til gas-
leiöslunnar.
Ætlaði
að drepa
Castro,
forseta
Kúbu
Fyrrverandi fangi, sem kvaðst vilja
til Kúbu til þess að drepa Fidel Castro
forseta, var ákærður í gær fyrir tilraun
til flugráns og að hafa hótað að
sprengja flugvélina upp meö hlut sem
síðar reyndist vera veski utan um rak-
vélhans.
Maðurinn, sem heitir Arthur
Blonkenfeld og er 49 ára gamall, var
handtekinn á flugvellinum í Palm
Beach á Flórída eftir að hafa haft flug-
vél þar á sínu valdi í meira en tvær
klukkustundir.
Blonkenfeld hafði nýverið verið lát-
inn laus úr fangelsi á Flórída þar sem
hann hafði afplánað dóm fyrir vopnað
rán.