Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1982, Síða 13
DV. MIÐVIKUDAGUR18. ÁGUST1982.
13
þrælum sínum og hækka þaö síöan
um smáræöi aftur og kalla þaö kaup-
hækkun og telur s jálfsagt aö allir séu
sælir og ánægðir meö sinn hlut. Eg er
að vísu sammála ráöherrum í því aö
kaup opinberra starfsmanna mætti
hvort heldur sem er vera hærra eöa
lægra, en ég er ósáttur við aðferöina
sem þeir viöhafa. Mér finnst miklu
nær aö nota gömlu góðu pakkaaö-
ferðina og lofa okkur félagslegum úr-
bótum eins og þeim að kaupa fleiri
kaffikönnur í mötuneyti eða auknum
tryggingum eins og t.d. aö borga
okkur kaup í s vo sem tvö þr jú ár eftir
aö viö erum dauðir. Eins mætti bjóöa
mönnum að sofa y fir sig annan hvem
mánudag eöa svo og aö fara til rak-
arans á timabilinu 2—3 einu sinni í
mánuöi, svo eitthvað sé nefnt.
Þaö er hins vegar margsannaö
mál, eftir því sem ráöherrar segja,
aö fleiri krónur í launaumslagi bæta
einskis manns hag, en þetta ættu ráð-
herramir auövitaö að vita manna
best því aö hvergi fjölgar krónunum
meira en einmitt í umslögum þeirra.
Að lokum vil ég aöeins geta þess aö
ég sé mikið eftir Kjaradómi sáluga,
ekki vegna þess að hann hafi verið
sanngjarn eða elskulegur í dómum
sínum, heldur vegna hins aö á sínum
tíma var ort um hann ágæt vísa sem
vel má vera aö ég hafi birt áöur.
Embættismenn með æstum róm
ólmlr á bækkun klifa.
Nú komið er fyrir Kjaradóm
hvort þeir fá aö lifa.
Aö sögn fjármálaráöherra eigum
viö að fá aö lif a, en var ekki einhvem
tíma sagt að viö lifðum þótt viö dæj-
um?
Kveðja,
Ben. Ax.
LEIÐARIDV OG DÆMIN
ár og áratug eftir áratug án þess að
til verði nokkur pólitískur vUji.
í slíku máU dugir ekki, aö Alþýðu-
flokkurinn geri feimnislegar tU-
raunir tU þess að taka undir nokkur
atriði málsins.”
Hvaö á maöurinn viö? Þaö er ekki í
lítið ráöist að ætla sér að umskrifa
þannig stjórnmálasögu siöustu ára-
tuga upp í opið geðiö á fólki sem
sjálft hefur upplifaö viöburöina meö
alltöörumhætti.
Jónas Kristjánsson hefur skrifaö
nokkrar röggsamlegar greinar um
vanda hefðbundinnar landbúnaöar-
framleiöslu. Þau atriöi í þeim skrif-
um, sem byggst hafa á þekkingar-
öflun, hafa ÖU veriö sótt í málflutn-
ing Alþýöuflokksins sem hafiö haföi
rökstuddár ádeilur á landbúnaöar-
pólitikina mörgum árum áöur; á
meðan Jónas var enn blaöamaöur á
Tímanum og skrifaöi grassprettu-
fréttir úr dreifbýUnu.
Alþýöuflokkurinn hefur ekki látið
sér nægja aö gagnrýna heldur hefur
hann einnig flutt tUlögur og laga-
frumvörp á Alþingi um hvaö gera
eigi í landbúnaöarmálunum tU
stefnubreytingar. I fljótu bragöi
minnist ég engrar slíkrar tiUögu frá
Jónasi. Eg minnist þess heldur ekki
aö hann hafi nokkru sinni haft svo
mikiö sem eitt aukatekiö orö um til-
lögur Alþýðuflokksins að segja,
hvorki tU lofs né lasts.
Svo feimnislegar hafa tUraunir
hans veriö.
Þaö er hins vegar rétt aö pólitískur
vUji hefur enn ekki skapast tU veru-
legrar stefnubreytingar í land-
búnaði. Þaö er e.t.v. líka vegna þess
að áhugi margra manna, t.d.
Jónasar Kristjánssonar, hefur beinst
aö því aö vekja stöku sinnum athygli
á nokkrum auösæjustu og heimsku-
legustu ágöUum landbúnaöarstefn-
unnar en hefur aldrei reynst nægi-
legur til þess að þeir komi fram meö
tiUögur til úrbóta sjálfir eöa kynni
sér tUlögur annarra. Stóryrt yfir-
borösgagnrýnin hefur verið látin
duga, en þannig sleppa menn fyrir-
hafnarlausast frá málinu.
Minnkun
skipastólsins
Þriðja dæmið, sem Jónas
Kristjánsson nefnir, er minnkun
skipastólsins. Þar segir hann aö
fyrirstaða Framsóknarflokksins
muni líkast tU bresta um leið og
flokkurinn hættir að þurfa að verja
linku sjávarútvegsráðherra síns.
Fyrirstaöa gagnvart hverjum?
Hver var þaö sem fyrstur hóf bar-
áttuna fyrir nauösyn þess aö offjár-
festingin í fiskiskipastólnum yröi
stöðvuö og geröi það að stefnuatriði?
Það var Alþýðuflokkurinn. Þá átti
hann við ofurefli aö etja — ekki bara
Framsóknarflokkinn heldur einnig
Alþýðubandalagið og fleiri. Hver
man t.d. ekki átökin mUli Alþýðu-
flokks og Alþýöubandalags vegna
skipainnflutnings erlendis frá tU
Neskaupstaöar? Hvar var Jónas
Kristjánsson þá?
Nú segir Jónas aö aiUr séu komnir
á eitt mál nema Framsóknarflokkur-
inn. Hvaöa mál? Á mál Alþýðu-
flokksins sem hann einn, meira aö
segja án stuönings frá Jónasi
Kristjánssyni, hóf baráttu fyrir árið
1978, en sú barátta hefur nú leitt til
þess að pólitískur vilji er aö skapast
hjá meirihluta þjóöarinnar til aö-
geröa.
Svart á hvítu
TUlögur Alþýöuflokksins um
nauðsyn gerbreyttrar efnahags-
stefnu hafa ávallt verið gerðar opin-
berar og eru því öllum aðgengilegar.
Ábendingar, ummæli og tUlögur
Alþýðuflokksins veröa því hvorki
falsaöar, skáldaöar upp né út úr
þeim snúið. Upprifjun þeirra er
lærdómsrík fyrir þjóöina.
* Rányrkjustefnan í landbúnaöi
hefur leitt bændur og þjóöfélagiö á
heljarþröm svo þar krefjast menn nú
stefnubreytingar. Hvaöa stefnu-
breytingar? Þeirrar sem Alþýðu-
flokkurinn hefur árum saman lagt tU
að gerð verði.
* Rányrkjustefna í sjávarútvegi
er aö leggja atvinnulífið í rúst og aö
koma þjóðinni á vonarvöl. Þar tala
menn nú um nauösyn breyttrar
stefnu. Og hvaða breytingar eru
menn að tala um? Þær breytingar
sem Alþýðuflokkurinn hefur barist
fyrir, lengstum einn.
* Alvarlegur viðskiptahalli og ört
vaxandi erlendar skuldir valda
mönnum vaxandi áhyggjum. Nú er
rætt um aö setja heföi þurft skulda-
söfnuninni eriendis tiltekin mörk.
Hvaöa mörk eru tíöast nefnd? Þau,
sem fólust í tiUögum Alþýðuflokksins
frá 1978 og 1979.
* Mönnum er loksins orðiö ljóst aö
þjóðin rís ekki lengur undir stöðugt
vaxandi kröfu um greiöslur út-
Ðutningsuppbóta úr ríkissjóöi vegna
offramleiöslu landbúnaöarafuröa.
Blööin segja að Alþýðubandalagið
hafi nú mótaö tillögur í þeim efnum.
Hvaöa tillögur? Þær sömu og
Alþýðuflokkurinn lagði m.a. fram á
Alþingi veturinn 1979—1980.
Þetta eru aðeins nokkur atriði af
mörgum sem fram eru aö koma. Öll
leiða þau í ljós eitt og hið sama. Til-
lögur Alþýöuflokksins um gerbreytta
efnahagsstefnu, sem hann lagði
fram fyrst vorið 1978, voru tíma-
bærar og nauðsynlegar. Vegna þess
aö þeim var ekki fylgt hefur flest í
okkar þjóöarbúskap snúist á verri
veg. I umfjöllun um vandamál lið-
andi stundar verður ekki fram hjá
þessum staðreyndum gengiö eins og
Jónas Kristjónsson reynir þó aö gera
af einhverjum ástæöum í umræddum
leiðara, sem að ýmsu öðru leyti var
merkileg og þörf ábending.
Sighvatur Björgvinsson,
alþingismaður.
„Upprifjun á tillögum Alþýðuflokksins er
Íærdómsrík fyrir þjóðina,” segir
Sighvatur Björgvinsson í grein sinni.