Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1982, Blaðsíða 3
DV. LAUGARDAGUR 21. ÁGUST1982.
•3
• Lækjargata er
einhver mesta
hryggðarmynd af
götu sem til er í
nokkurri höfuð-
borgl
lrÉg held aö það væri mikilsvert að
byggja hús hér í miðborginni, eða í
námunda við hana, fyrir þetta fólk.
Þannig ætti mikið húsnæði að geta
losnað.”
— Eru uppi einhverjar ákveðnar
hugmyndir um byggingu slíkra íbúða
semþúnefnir?
„Hugmyndir þessu að lútandi eru í
athugun. Ég gæti vel hugsað mér að
byggja þrjú til fjögur tólf til fjórtán
hæða hús meðfram Skúlagötunni fyrir
smærri íbúðir. Þangað ætti eldra
fólk, sem vill flytjast úr sínu stóru
íbúðum, að geta flutt inn.”
Við ætíum að draga
verulega saman í
stjórnkerfínu
— Hvaða lóðir ertu með í huganum
undir þessi háhýsi?
„A lóðum Eimskipafélagsins til að
mynda. Hugsanlega á lóð Sláturfélags-
ins þegar þaö flytur og einnig mætti
hugsa sér að finna þessum húsum stað
þar sem Völundur er til húsa núna ef
um það gæti samizt. ”
— Verða fasteignagjöld lækkuð að
einhverju ráði á þessu ári?
„Þau verða lækkuö núna við næstu
fasteignaálagningu í desember.”
— Hvaða gjöld verða þá lækkuð og
hversumikið?
„Það verða eingöngu fasteignagjöld
á íbúðarhúsnæði sem verða lækkuö í
þessum fyrsta umgangi. Þau verða
lækkuö niður í það sem þau voru áður
fyrr. Þau fara þá niður í 0,421% ef við
berum okkur saman við það sem áður
þekktist. Hugsanlega verða þau lækk-
uð enn meira, til þess að gera þau
algjörlega sambærileg við það sem
tíökast i nágrannalöndum okkar.”
— Hvaöa skattar koma í staðinn?
„Engir.”
— Hvar á þá að herða ólina?
„Við ætlum okkur að spara við okkur
á marga lund og erum raunar þegar
famir að gera það. Við erum að draga
saman í stjórnkerfinu. Við erum að
leggja niður ýmsar nefndir og stjómir.
Og við ætlum að fækka borgarfulltrú-
um eins og vonandi allir vita. Þetta em
aö vísu allt tiltölulega lítil atriöi.
Við erum að hverfa frá byggð við
Rauðavatn sem kostaði borgina stórar
upphæöir að fara útí. Og þaö mun
spara okkur heilmikiö. zVllt gengur
þetta íspamaðarátt.”
— Þýðir þetta ekki að allar fram-
kvæmdir á vegum borgarinnar ganga
hægar fyrir sig en áður hefur þekkzt?
„Jú, kannski má segja það. En þetta
kemur ekki til með að bitna á neinni
þjónustu til að mynda. ”
— Hægagangur framkvæmda.
Verður bygging strandlengjunnar þá
eilífðarverkefni sem loks dettur upp
fyrir eins og nýi miðbærinn gerði?
Ætíum að velja
okkur ákveðin
verkefni og klára þau
„Eg held að það sé nú vaninn, og
það þekkir hver bezt af sjálfum sér, að
ef það er stefnan að nýta fjármunina
vel þá fái þeir ekkert minna út úr þeim
en þeir sem taka bara alltaf meiri og
meiri skatta til eyðslu sinnar. Ef við
skoðum til að mynda framkvæmda-
tímabilið 1974—78, þá er það nú svo
skrítiö að þaö er byggt miklu meira og
gert miklu meira á allan máta fyrir
minna fjármagn en gert var á árunum
1978—’82, þegar allir skattar voru
hækkaöir.”
— En strandlengjan verður samt
sem áður eilíf ðarverkefni?
„Ef við ættum að gera allt sem allir
vilja og ráðast í framkvæmdir af ein-
„Við viljum gera vel vlð Keldur.”
„Ekki byggt á Reykjavíkurflugvelii í
bráð.”
„Borgin á um þessar mundir átta
hundruð leiguíbúðir.”
„Mikilsvert að byggja hús i mið-
borginni fyrir eldra fólk. ”
„Ég gæti vel hugsað mér að byggja
þrjú til fjögur tólf til fjórtán hæða hús
meðfram Skúlagötunni.”
„Fasteignagjöld verða lækkuð núna
við næstu fasteignaálagningu í
desember.”
• Ég þykist sjá fyrir
það að í Kringiu-
bæ byggist fijótt
upp myndarieg
þjónustustarfsemi!
hverju heljarkappi þá er augljóst að
við þyrftum að hækka skatta alveg
stórkostlega. Viö ætlum ekki aö vinna
þannig. Við ætlum bara að velja okkur
ákveðin verkefni og klára þau, í staö
þess að vera með mörg misjafnlega
mikilvæg í gangi á hverjum tíma. Og
ég held að það verði ekki minni kraftur
í framkvæmdum þrátt fyrir þessa
lækkun á fasteignagjöldum.”
— Aður en við snúum okkur að öðru
en lóða- og skipulagsmálum þá langar
mig að spyrja þig hvort þú sért ekki á
því að það verði fyrr eða síðar byggt
viðhiðmargumtalaða Rauðavatn?
„Eg er ekkert viss um það að það
verði byggt við Rauðavatn. Við eigum
á öðrum stöðum í Reykjavík lóðir upp
á fjölgun íbúa um þrjátíu til fjörutíu
þúsund manns. Þessi svæði ættu því að
nægja til næstu ára og áratuga. Og eins
og þú nefndir áðan þá eru hér lönd fyr-
ir sunnan okkur eins og til dæmis Fífu-
hvammslandið sem fara aö byggjast
upp samfara þeim svæðum sem verða
byggð innan landamerkja Reykjavík-
ur í framtíðinni. Því er um nægt rými
að ræða þó ekki verði seilzt inn á
Ra uðavatnssvæðið.
En það er eflaust ekki hægt að full-
yrða neitt í sambandi við þetta Rauða-
vatnssvæði. Eg segi því kannski, að
eftir f immtíu til hundrað ár þá verðum
við neydd til að byggja við Rauðavatn.
Þóefast ég um það.”
Miðbærinn hefur lengi
verið tilskammar
— Ef við víkjum þá að gamla
miðbænum og samgöngum um hann.
Hvað líður deiliskipulagi þessa borgar-
hluta?
„Það var samþykkt fyrir síðustu
kosningar að hafa samkeppni um
skipulag Kvosarinnar. Eftir kosningar
var svo samþykkt að skipa nefnd sem
hefði frumkvæði að því að reist yrði
bílageymsla í miðbænum og þessi sam-
keppni um Kvosina, sem ég nefndi,
verður tengd þesáari nefnd þannig að
samkeppni um skipulag Kvosarinnar
bíður þess að nefndin hefji störf.
Annars held ég miðbærinn í Reykja-
vík hafi verið lengi til skammar og
áform um aö halda honum meira og
minna eins í þeirri niðurníðslu og hann
hefur verið í til þessa eni að minu
mati ófær. Ef viö horfum til dæmis eft-
ir Lækjargötunni þá held ég að allir
séu sammála um aö þar geti að líta
eina mestu hryggðarmynd af götu að
verasemtilerí nokkurri höfuðborg.”
— Ert þú og þinn flokkur með ein-
hverjar stórvægilegar hugmyndir um
breytingar á miðbænum?
„Viö höfum ekki ennþá sett upp nein
ákveðin plön i þessu sambandi. Við
höfum haldiö okkur ennþá við þessa
samkeppnishugmynd og teljum okkur
ekki fært að binda hana fyrirfram við
það sem viö viljum. ”
— Ert þú með einhverjar hugmyndir
sjálfur um gamla miöbæinn?
„Ég er með mjög margar hugmynd-
ir sem ég vildi hrinda í f ramkvæmd.’ ’
— Að hverj u miðast þær?
„Eg vil númer eitt, að þessi
miðbæjarkvos verði gerð upp af nokkr-
um stórhug en ekki að þessum kot-
búskaparhætti sem mér hefur virzt
hafa ríkttilþessa.”
— Verða til dæmis opnaðar fleiri
göngugötur?
„Ekki er það á döfinni, nei.”
— En varðveizla gamalla húsa.
Verður hún í jafnmiklum mæli og verið
hefurtil þessa?
„Ég tel aö það þurfi að fara hóflegan
milliveg í friðun og viðhaldi gamalla
húsa. Það er ekki verjanlegt að mínu
mati að standa algjörlega í vegi fyrir
.....T.
• Það verður a/ls
ekki minni kraft-
ur í framkvæmd-
um þó lækkun
fas teignagja/da
komi til!
því að hin eina og sanna miðborg
Reykjavíkur geti byggzt upp. Hins
vegar má heldur ekki ganga of fast
fram í því að fella burtu svipmót sem
mönnum þykir vænt um.”
Hugmyndir manna um
tilveru Grjótaþorps
byggðar á röngum
forsendum
— Ertu með einhver viss hús í huga
sem þið ætlið að rífa á næstunni?
„Það eru engar sérstakar hugmynd-
ir uppi um niðurrif ákveðinna húsa enn
sem komiö er en það getur alveg komið
til. Við verðum að gera okkur grein
fyrirþví.”
— Verður Grjótaþorp til að mynda
máð af landakortinu?
„Grjótaþorpiö er vandræðamál,
vegna þess aö skipulag þess byggir á
því að húsin þar hafi sögulegt gildi og
þess vegna eigi þau að standa. En jafn-
framt er gert ráö fyrir því að engin
þessara húsa verði friðuð og jafnframt
er gert ráð fyrir því að það megi rifa
þau öll, bara að menn byggi sambæri-
leg hús i staö þeirra sem verði rifin.
Hvar er þá komin saga þessara húsa
sem nú standa í Grjótaþorpi. Eg held
því að þær hugmyndir manna um
tilveru Grjótaþorps sem ræddar hafa
verið séu algjörlega á röngum for-
sendumbyggðar.”
— En þaö má búast viö því að
Grjótaþorp verði í þeirri mynd sem
það er nú, næstu tíu árin eða svo?
„Eg skal náttúrlega ekkert um það
segja. Grjótaþorp er hryggðarmynd
eins og það litur út í dag. Og ég held að
þaö séu ekki allir sáttir við það skipu-
lag sem að því var gert á sínum tíma.
Við sjálfstæðismenn vorum það til að
mynda ekki.
Eg held að það væri hugsanlegt að
vernda innra svæði Grjótaþorps í
þeirri mynd sem það er en byggja hins
vegar upp við Garðastrætið og hug-
leiða mjög vel götumyndina við Aðal-
stræti. Viö verðum að horfast í augu
við það að þama stendur Morgunblaðs-
höllin hvort sem mönnum líkar betur
eða verr.. .”
— Er hún ekki hryggðarmynd á
skipulagi miðbæjarins?
„Sumir segja það jú, en ég vil
kannski ekki endilega taka undir það.
En í þessari götumynd sem Aöalstræti
er þá á hún alls ekki heima. Þannig aö
menn komast ekki hjá því að gera
annað tveggja; að rífa Morgunblaðs-
höllina eða að taka eitthvert tillit til
hennar í skipulagi næsta nágrennis.”
Nóg verður um
bílastæði í miðbænum
í framtíðinni
— Þú minntist á bílageymslur áðan.
Hvar verða þær byggðar?
„Aðalhagmyndimar hafa miðað að
því að byggja þessar geymslur í
tengslum við Kalkofnsveginn, milli
hans og hafnarinnar. Þar ætti að vera
hægt að koma fyrir bifreiðageymslum
fyrir tólf hundmð til tvö þúsund bíla.”
— Er það nægjanlegt ef litið er til
langstíma?
„Já, ég held það. Því jafnframt þess-
ari bílageymslu koma til sögunnar ým-
is ný bilastæöi. Má þar nefna geymsl-
una í kjallara nýja Seðlabankahússins
fyrir bifreiðar starfsfólks þar og svo
verður reist bifreiðageymsluhús við
hliðina á bankanum. Það koma bíla-
geymslur í húsi sem á næstunni verður
farið að reisa við hliðina á Hótel Borg.
Þannig aö þegar á heildina er litið þá
ættum við ekki að þurfa að örvænta um
bílastæði í miðbæ borgarinnar þegar
litið er til langs tíma.”
' /
• Það þarf að fara
hóflegan milliveg
í friðun og viðhaldi
gamalla húsa!
— Haiskipsportiö myndi þannig
hverfa í stað bílageymsluhúss?
„Ja, það myndi alla vega þrengja
töluvert að því. Aðstaöa Hafskips á
þessum stað er að vísu bundin í samn-
ingum til nokkurra ára en ég vonast til
að það verði hægt að semja við það
fyrirtæki á farsælan hátt svo hægt
verði að hefja framkvæmdir við bíla-
geymsluhúsið einsfljótt og unnt er.”
— Þú segir að bilageymsluhúsiö þar
mundi þrengja töluvert að aöstööu
Hafskips. Er þetta port ekki einn af
helztu ágöllum miöbæjarins að þínu
mati?
,^Ég held að það færi ekkert illa á því
að þetta port fjarlægðist að einhverjum
hluta og þar risi myndarlegt bíla-
geymsluhús.”
— Það hefur verið talað um fram-
hald hraðbrautarinnar frá Skúlagötu
yfir höfnina tU að losa um umferöar-
hnútinn við Tryggvagötu. Talað var
um að ráðast ekki í þessa framkvæmd
fyrr en árið 1995. Ætlar þú aö leggja
þig fram um það að þessum fram-
kvæmdum verði flýtt?
„Eg býst síður við því. Eins og þú
nefnir réttUega þá var hugmyndin sú
aö ráöast í þetta 1995 og ég er ekki far-
inn að sjá fram á að breyting veröi þar
á.”
Hraðbrautín yfír
höfnina ekki lögð
á næstu árum
— En er ekki brýn þörf á því að þessi
hraöbraut verði byggð fyrr?
„Eg held aö við ættum fyrst að sjá,
þegar bifreiðageymslumar hafa veriö
teknar í notkun, hvort umferðar-
hnúturinn við Tryggvagötu leysist
ekki. Þá fyrst er ástæða tU að athuga
hvort þessi hraðbraut er aðkaUandi.”
— Verður nýr miðbær reistur?
,ÆIkki sem nýr miðbær. En ég á
samt sem áður von á því að hinn svo-
nefndi Kringlubær muni í framtíðinni
létta mjög undir því þjónustuálagi sem
gamU miðbærinn býr núna við. Hann
er mjög vel staðsettur í borgarlandinu
og því er ákaflega hentugt að þar rísi
mikUvæg þjónustumiðstöð.”
— En hefur það ekki sýnt sig að þar
vUlenginn byggja?
„Ég þykist sjá þaö fyrir þegar aö
þama geti komizt upp myndarleg
starfsemi.”
— Hvað bendir í þá átt?
„Ja, eins og ég sagði áðan, þá vil ég
ekki segja frá því enn sem komiö er.
En þetta mál er í athugun núna, og ég á
von á þvi að sú athugun sæti þeim
tíðindum að Kringlubær byggist upp
hrattog vel.”
— Víkjumað öðru.Áaðdragaaðein-
hverju ráði úr umsvifum borgarbákns-
ins á þessu k jörtímabiU?
„Já, aUar okkar hugmyndir ganga
nú í þá veru að minnka og draga úr því.
Eg er að vísu ekki búinn aö sitja héma
nema í sjötíu—áttatíu daga og þaö
hefur-eitt og annaö gerzt í þá vem.
Afram verður haldið á þeirri braut. ”
— Hvaöa þætti á að fella burt úr
borgarbákninu?
„Við erum með allmargar hug-
myndir í vinnslu, sem miða að þessu, ai
það er ekki tímabært að ég skýri frá
þeim í blööum. Það er eðlUegra að ég
skýri frá þeim fyrst innan borgar-
kerfisins.”
— Em þetta veigamiklar breyting-
ar?
„Já, það eru aUmargar veigamiklar
breytingar sem ég vil gera.”
— Og munu þessar breytingar bitna
á einhverjusérstöku?
„Það veröur bara að koma á daginn,
á hverju þessar breytingar bitna, ef
þær bitna þá á einhverj u. ” -SER.