Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1982, Síða 24
í
I
t
!
Eins og sést á myndinni er steinninn í stærra lagi og hlýtur að teljast fjölmörg tonn. Hann barst hingað til lands með grænlenzkum ísjaka, að því er sögur herma. DV-myndir Bjaraleifur.
Axarfjarðar.
Svo vikiö sé aftur aö grænlenzka
steininum sem fyrst var nefndur
hér að framan þá fylgir honum
dálítil saga. Herma munnmæli að
vinnumenn tveir í Ytri-Tungu (bæ
á vestur Tjörnesi) hafi lagt hug á
sömu stúlku. Þar kom aö lokum aö
annar ruddi hinum úr vegi og reri
síðan með hann á sjó fram og
sökkti til að leyna verknaöinum.
En líkið rak upp hjá steininufii
sem æ síðan hefur borið nafngift-
ina Torfasteinn eftir manninum
sem drepinn var.
-SER.
Það er ekki á hverjum útkjálka
landsins að finna jafnsérstæðan
steinhnullung og þann er getur að
líta á myndunum hér til hliðar.
Þessi steinn er í flæðarmálinu á
vesturbakka Tjörness í Suður-
Þingeyjarsýslu.
Það sem merkilegt er við hann,
er að hann er talinn hafa borizt
hingaö til lands fyrir einhverjum
hundruðum ára með hafisjaka frá
Grænlandi. Hvort afkomendur
norrænu víkinganna — er hurfu
sporlaust þaðan af landi brott
fyrir nokkrum öldum — flutu með
honum hingað til lands, vitum viö
ekki! Aö minnsta kosti eru engin
merki þess að sjá á þessum land-
flótta hnullungi.
Grænlenzki steinninn er mjög
stór, eins og vel sést á myndunum,
og hlýtur aö vega fjölmörg tonn.
Hann er grænleitur og að sögn
kunnugra harðari en gler. Hafa
margir ferðamenn, sem lagt hafa
leið sína að þessum steini, reynt
aö höggva mylsnur úr honum til
minja en jafnan án árangurs. Mun
þessi steinn vera úr graníti en sú
steintegund þekkist ekki í jarövegi
landsins.
Að sögn Karls Grönvolds, jarð-
fræðings hjá Norrænu eldfjalla-
stöðinni, er talsvert mikið af grjóti
við strendur landsins sem borizt
hefur með ísjökum frá Grænlandi
í aldanna rás. Einnig er nokkuð
mikið af erlendum steintegundum
við íslenzkar strendur sem borizt
hafa hingað úr ballestum skipa.
Þessa aðskotasteina er aðallega
að finna við Norðurland allt vestur
á Snæfellsnes og að líkindum mest
viðVestfirði.
HACKVÆMAST ER AÐ VERSLA VIÐ
Ég óska eftir aö fá sendan KAYS pöntunarlista í
póstkröfu á aöeins kr.59,- aö viöb. póstburöarg i.
vlöbótarllstl sendur síðar.
Nafn...........................................
Heimilisfang...................................
Staóur..........................Póstnr.........
■
Hagkvæmnin og þægindin erulvegna þess aö
þú getur valiö úr ótrúlega mörgum vöru-
tegundum, fleiri en nokkur önnur verslun hér-
lendis hefur uppá aö bjóöa og þaö í róleg-
heitum heima hjá þér. Viö sjáum síðan um
allt umstang viö innflutninglnn, en þú bíöur
í aöeins 3-4 vikur og færö síöan vöruna í
næsta pósthús. m m
v'-
S§hhk
CHUI OKHIfl ' PS
i1 Tnl. «■
B.MAGNUSSON
SÆVANGI »9 -SiMI 52866 • P.H. 410 - HAFNARFIRÐI