Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1982, Qupperneq 2
2
DV. FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER1982.
Furðu lostnir yfir
ákvörðun borgarráðs
—segir Hallgrímur Steinarsson, eigandi efnaverksmiðjunnar Eims
Efnaverksmlðjan Etmur séð frá Seljavegi. Á myndlnní má sjá bina umdeildu
turna sem íbúasamtökin hafa farið fram á að verði f jarlægðir. „Það er þó
auðvitað það sama og láta fjarlægja verksmiðjuna,” segir Hallgrimur
Steinarsson, eigandi verksmiðjunnar.
„Við erum að sjálfsögðu undrandi
og furðu lostnir yfir þessari
ákvöröun borgarráðs um brottrekst-
ur fyrirtækisins. Þá er það líka
undarlegt aö þetta skuli vera sett í
fjölmiðla áöur en okkur er gerð
grein fyrir þessari ákvörðun. Það er
þó ef til vill þaö sem vænta mátti frá
borgarráöi og í anda þess sem á
undan hefur gengið frá þeirra hendi
gagnvart fyrirtækinu,” sagði
Hallgrímur Steinarsson eigandi
efnaverksmiðjunnar Eims er DV
spurði hann um ákvörðun borgar-
ráðs um að verksmiðjan flytji frá
Seljavegi.
„Það sem undrar okkur mest er þó
það að allar þær kvartanir sem
íbúasamtökin hér hafa látið frá sér
fara á hendur fyrirtæki okkar hafa
verið rannsakaðar og enginn fótur
fundist fyrir þeim. Enda hljótum við
að spyrja okkur að því hver hin
raunverulega orsök fyrir brott-
rekstrinum sé,” sagði Hallgrímur.
— Nú hafa íbúasamtökin talað um
að þið hafið ekki sótt um starfsleyfi
fyrir 15. september 1972.
„Við hófum þennan rekstur 1968.
Eiturefnanefnd sem heyrir undir
Heilbrigðisefti-litið var sett á
laggirnar 1972 og þar áttum viö víst
að melda okkur inn. En við framleiö-
um kolsýru sem er alls ekki eitur. Og
því töldum við óþarft að tilkynna
okkur. En um leið og þetta kom upp í
vor sóttum við um leyfið en það hef-
ur ekkert svar komið ennþá. ”
— Hvað með öryggissjónarmið
eins og hættu á bruna og
sprengingum eins og bent hfur verið
á?
„Við höfum bréf upp á það frá
Vinnueftirlitinu að þaö sjái ekkert
athugavert við öryggið hér. Og
sprengihættan er engin. I bréfi
Vinnueftirlitsins kemur ennfremur
fram að það hafi skoðaö fyrirtækið
minnst einu sinni á ári og hafi allt
öryggi jafnan verið í lagi. Og um
tækin sem við settum upp og tókum í
notkun um síðustu áramót segir
Vinnueftirlitið að þau séu af full-
komnustu gerð og allur öryggis-
búnaður til fyrirmyndar. Enda sáu
þeir ekkert athugarvert viö það út
frá öryggissjónarmiöi að okkur yrði
leyfð útbygging á lóðinni hér að
Seljavegil2.”
— Ibúasamtökin tala um eldhættu
og fleiri hættur vegna efnisins
mónóetanolamin sem þið notið viö
vinnslu kolsýrunnar. Þá kom einnig
fram að Vinnueftirlitinu er ekki
kunnugt um að alvarlegt slys eða
óhapp hafi orðið í sams konar verk-
smiöjum í Norðvestur-Evrópu.
„Þetta efni er álíka eldfimt og
hráolía og það vita allir að hún er
ekki eldfim. Slökkviliðsstj óri
kannaöi meðal annars málið og hann
hafði ekkert við þetta að athuga. Og
við geymum efnið í þeim tunnum,
sem framleiðendur senda okkur og
veröum við aö gera ráð fyrir að þeir
fari eftir því sjálfir sem þeir ráð-
leggja öörum. Ég segi þetta vegna
þess að íbúarnir hafa haldiö því f ram
að tunnumar væru ekki nógu traust-
ar.”
— Hvað um mengun og útblástur
frá verksmiðjunni?
„Við mengunarmælingar sem
gerðar hafa verið hér kom í ljós að
hámark af brennisteinsdíoxiði
reyndist aðeins vera 9.8 milligrömm
í rúmmetra. Við bámm þetta undir
Jóhann Jakobsson, efnafræðing og
taldi hann þetta ekki vera neina
mengun. Iöntæknistofnunin hefur
athugað útblásturinn frá verksmiðj-
unni og höfðu þeir ekkert við hann að
athuga og töldu hann mjög lítinn.
— Ibúasamtökin hafa gert kröfu
um að þið settuö þak á verksmiðjuna
og létuð múrhúða veggina.
„Við höfum farið fram á að byggja
fleiri hæöir á húsið. Ástæða þess að
við erum ekki búnir að því er sú, að
borgin hafði lofað makaskiptum við
rikissjóð á lóöarspildu hér til aö gera
lóðina homrétta við Seljaveg. Og við
höfum margoft reynt að fá þau fram
en án árangurs. Lóöin hefur því ekki
„Tckln, sem við settnm upp og tókum í notkun um síðustu áramót segir
Vinnueftlrlitið að séu af fullkomnustu gerð og allur öryggisbúnaður til fyrir-
myndar.”
verið talin byggingarhæf og þess
vegna hefur okkur verið neitaö um
byggingarleyfi. Sóttum til dæmis í
fyrra um að byggja hér stigahús við
endann en ekkert hefur komið út úr
því.”
— Hvað með útlit og umgengni hér
viðverksmiðjuna?
„Við mótmælum því algjörlega að
umgengni hér sé slæm og okkur til
skammar. Ég bendi mönnum
einfaldlega á að skoða þau fyrirtæki
hér í grenndinni og gera samanburð
Annars er það greinilegt að íbúarnir
ætlast til að svæðið frá Holtsgötu að
Ánanausti sjávarmegin við Seljaveg-
inn verði gert opið. En á þessu svæði
eru fyrirtæki eins og vélsmiðjan
Héöinn, Járnsteypan, Pétur Snæ-
land, Vita- og hafnarmálastjóm,
Landhelgisgæslan ásamt okkur. Viö
erum næstir fólkinu og því verðum
við fyrstir fyrir barðinu á því.
— Hverjir eru helstu viðskiptavin-
irfyrirtækisins?
„Við framleiðum kolsýru og erum
eina fyrirtækið sem það gerir hér á
landi. Helstu viðskiptavinir okkar
eru gosdrykkjaverksmiðjumar, vél-
smiðjur, spítalarnir og aörir sem
þurfa að nota kolsýru.”
Að lokum gat Hallgrímur þess að
um 17 manns ynnu hjá fyrirtækinu.
-JGH
Jón Laxtíal
með„Der
Welt-
sanger"
— eða Garðar Hólm
upp á þýzku
Jón Laxdal leikari mun leika
gestaleik á fjölum Þjóðleikhússins
sunnudaginn 12. september, en þá
mun hann færa upp sitt eigið leikrit,
Der Weltsanger.
Verkið var fmmsýnt í Þýskalandi
árið 1979 en hefur síðan verið tekið til
sýninga víöa í þýskumælandi
löndum.
I leikritinu er aðeins eitt hlutverk
sem er í höndum Jóns Laxdal. Er
það hlutverk heimssöngvarans
Valgardo Herrlico sem hefst við í
gamalli og gleymdri skonsu á háa-
lofti ríkisóperunnar í smábæ einum.
Þaðan hlustar hann á ómana af
Wagner-óperum á meðan hann
furðar sig á því hvers vegna hann
varð ekki eins frægur og Caruso,
Gigli og allir þeir pamfílar.
Þetta verður eina sýningin á
verkinu hér á landi. Sýningin er sem
fyrr segir í Þjóðleikhúsinu og hefst
klukkan 20.
-ÓEF.
Friðardagur
kirkjunnará
sunnudag
Sunnudagurinn 12. september
verður friðardagur kirkjunnar sam-
kvæmt tilmælum sem prestastefnan,
sem haldin var í sumar beindi til
biskupslslands.
Biskup hefur skrifað prestum og
söfnuðum landsins bréf og fariö fram
á aö sérstaklega verði fjallað um
friöarmál í kirkjum landsins næst-
komandi sunnudag. Utvarps-
guösþjónusta dagsins verður frá
Dómkirkjunni og mun forseti sam-
einaös þings, Jón Helgason, stíga
þar í stólinn. Vmsir gestir munu
prédika í öðrum kirkjum landsins,
bæði stjórnmálamenn og
guðfræðingar, og verður nánar frá
því greint í messutilkynningum á
laugardag.
Biskup hefur að undanförnu átt
viðræður við forystumenn stjórn-
málaflokkanna um hvernig stuðla
megi að auknum upplýsingum og
umræðum um friöarmál. Hafa þær
umræður verið gagnlegar og hefur
komið fram mikill vilji stjómmála-
flokkanna til samstarfs viö kirkjuna
íþessumáli.
ÖEF
Piltur höfuð-
kúpubrotnaði
er tvö reiðhjól
skullu saman
Tólf ára piltur sem var á reiöhjóli
höfuðkúpubrotnaði nýlega á Isafiröi
er hann lenti í árekstri við pilt á öðru
reiöhjóli.
Áreksturinn varð fyrir utan versl-
unina Hamraborg. Hjólaði annar
piltanna út af bilastæöi verslunar-
innar en varö þá fyrir 14 ára pilti
sem kom hjólandi eftir Hafnar-
strætinu. Skullu þeir harkalega
saman með þeim afleiöingum að
báöir voru fluttir á sjúkrahúsið á
Isafirði. Reyndist annar þeirra
höfuðkúpubrotinn en hinn hlaut
stóranskurðáfæti.
Ekki er vitaö til að drengimer hafi
veriö á mikilli ferð þegar þetta
gerðist en á þessum stað er jafn-
slétta og umferð almennt ekki hröð.
-JGH.