Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1982, Síða 11
DV. FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER1982.
11
Hægt er að ná framleiðniaukningu
sem næmi 600 milljónum á ári
— með notkun rafeindatækja íhraðfrystiiðnaði
Starfshópur á vegum Undirbúnings-
félags rafeindaiðnaöarins hefur
komist að þeirri niðurstöðu að ná megi
600 milljón krónum í framleiðniaukn-
ingu í hraðfrystiiðnaðinum og hægt sé
að spara 160 milljónir vegna olíu-
kostnaðar með notkun rafeindatækj a.
Kom þetta fram á blaðamannafundi
sem starfshópurinn hélt á dögunum.
Er þetta gott dæmi um hversu mikil-
væg þessi iðngrein getur reynst
Islendingum. 10 íslensk rafeindafyrir-
tæki hafa sett á stofn Undirbúnings-
félag rafeindaiðnaðarins og vinnur
starfshópur á þeirra vegum að 5 ára
áætlun fyrir fyrirtækin. I starfshópn-
um eiga sæti Jón Hjaltalin Magnússon,
framkvæmdastjóri Undirbúnings-
félagsins, Stefán Guðjohnsen, Gylfi
Aðalsteinsson, Arnlaugur Guðmunds-
son og Jóhann Briem.
I tillögum hópsins að fimm ára
áætlun er meðal annars lagt til aö sett
verði á stofn þjónustumiðstöð
rafeindaiðnaöarins. Einnig verði eitt
framleiöslufyrirtæki eflt sem geti sinnt
þörfumallra rafeindafyrirtækjanna.
Myndi þjónustumiðstöðin búa yfir
vel menntuðum mannskap sem myndi
aðstoöa rafeindafyrirtækin og festa
kaup á tækjum sem fyrirtækin hvert
fyrir sig heföu ella ekki bolmagn til að
verða sér úti um.
Rafeindafyrirtækin myndu síðan
hanna sinn útbúnaö hvert í sínu lagi en
framleiðslufyrirtækið myndi fram-
leiða vörumar. Rafeindafyrirtækin
sjálf myndu síðan gæðaprófa vöramar
aö f ramleiðslu lokinni og selja þær.
Að sögn félaganna í starfshópnum
eru möguleikar íslensks rafeinda-
iönaöar gifurlega miklir. Likast til
væri farsælast fyrir islensk rafeinda-
fyrirtæki að beina athygli sinni að
ýmsum sérhæföum sviðum, til dæmis
sjávarútvegi og fiskiðnaði. Bestu
möguleikamir virðast liggja í því að
framleiða dýr sérhæfð tæki sem vita-
skuld miðuöust við mjög þröngan
markað. A móti kæmi að stóm fyrir-
tækin hefðu ekki áhuga á þeim
markaði.
Starfshópurinn benti á að samvinna
fyrirtækjanna kæmi í veg fyrir „offjár-
festingu.” Miklar fjárhæðir myndu
sparast við það að fyrirtækin keyptu
ýmsa hluti saman.
Um fyrirhugaða þjónustumiöstöð
vildu þeir taka fram að stofnunin
myndi taka gjald fyrir þjónustu sína
og standa undir sér sjálf. Hlutverk
hennar væri ýmiskonar ráögjöf og eins
myndi hún verða eins konar tækja-
Starfshópur Undirbúningsfélags rafeindaiðnaðarins hefur skiiað af sér drögum
að 5 ára áætlun um uppbyggingu rafeindaiðnaðar.
AUGLÝSING
FRÁ SJÚKRALIÐASKÓLA ÍSLANDS
Umsóknareyðublöö um skólavist í janúar 1983
liggja frammi á skrifstofu skólans að Suðurlands-
braut 6, 4. hæð, frá kl. 10—12 til loka umsóknar-
frests 15. nóv. nk. Skólastjóri.
banki.
Starfshópurinn benti á að mikilvægt
væri að ríkið aðstoðaði þennan unga
iðnað með því að ríkisfyrirtæki beindu
viöskiptum sinum til innlendra
rafeindafyrirtækja. Það væri á allan
hátt hagkvæmt fyrir ríkið, bæði hvað
varðar gjaldeyrissparnað og sköpun
atvinnu. Þeir tóku fram að þeir væru
ekki að biðja um ölmusu frá ríkinu
heldur um viðskipti. Þeir bentu á í
þessu sambandi að sums staðar
erlendis væru f jölþjóðafyrirtæki hrein-
lega skylduð til að kaupa tæki og út-
búr.að frá innlendum framleiðendum.
Væri vert að hafaþetta í huga varöandi
stóriðju og virkjunarframkvæmdir.
Þeir sögöu æskilegt vera fyrir
rafeindaiðnaðinn að sami háttur yrði
hafður á við stóriðju og við virkjanir,
að útboð væm bútuð niður. Það myndi
auðvelda innlendu fyrirtækjunum
mjög að taka þátt í f ramkvæmdum.
ás.
F0RSALA
AÐGÖNGUMIÐA
IFÁLKANUM,
KARNABÆ
og
STUÐBÚÐINNI
MIÐAVERÐ
KR. 150.00
RISAROKK
/ Höllinni
föstudaginn 10. sept. ki. 20—24.
BARAFLOKKURINN
EGÓ
GRÝLURNAR
ÞEYR
ÞURSAFLOKKURINN
EVRÓPUKEPPIMI KVENNALANDSLIOA
ÍSLAND - SVlÞJÓÐ
Kvennalandsleikur Fífuhvammsvelli Kópavogi
í dag kl. 18.00
MÆTUM OG HVETJUM
STELPURNAR TIL SIGURS