Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1982, Side 15
DV. FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER1982.
15
SOGULEGAR
SÆTTIR” YFIR
MISTÖKUM
ALLRA?
þeirri einkennilegu stööu að ríkis-
stjórnin er patt og stjórnarand-
staöan er patt. Báöir aðilar hafa
leikið sig fasta: ríkisstjórnin hefir
sett bráöabirgöalög um efnahagsaö-
gerðir, sem hún heflr ekki tryggt, að
fáist samþykkt á alþingi. Slík vald-
beiting er þingræðisleg niösla og
ömurlegur pattleikur fyrir mann
sem þóttist mynda núverandi ríkis-
stjóm til aö b jarga sóma Alþingis.
Á hinn bóginn er meginefni bráða-
birgðalaga ríkisstjórnarinnar til lag-
færingar á efnahagsmálum þjóðar-
búsins meö þeim hætti aö ýmist báðir
eöa annarhvor stjómarand-
stööuflokkurínn hefir beitt eöa taliö
sig vilja beita líkum úrræöum fyrr og
eiga því ekki auövelt meö aö deila á
lögin né heldur fella þau á þingi,
nema þeir kunni og bendi á önnur
efnahagsúrræði betri sem þeir hafa
ekki gert svo skilmerkilega aö
almenningur hafi lagt eyru viö. Hér
hefir stjórnarandstaöan leikiö sig
patt. Hún hefir gætt þess eins aö
benda á vitleysur ríkisstjórnarinnar,
sundurlyndi, aðgerðarleysi, margs
konar mistök en ekki hirt um að
segja, hvernig eigi aö ráöa fram úr
vandanum, hver úrræöi stjómarand-
stööuflokkanna væru.
I augum mannsins á götunni lítur
þetta svo út: Eitthvaö varö aö gera.
Líklega hefði hvaöa flokkur sem er
fellt gengiö og „krukkað í kaupið”,
enginn flokkur er saklaus af slíkum
vinnubrögðum fyrr en hliðarráð-
stafanirnar draga dám af sundur-
lyndinu í ríkisstjórninni og koma því
sennilega að litlu sem engu gagni.
Hann yppir því öxlum og hugsar meö
sjálfum sér: Þessir stjómmála-
menn upp til hópa! Þá varöar ekkert
umþjóðarhag.
Hverju bættari?
Auövitað er það dýrðlegt fyrir and-
stæðinga Alþýðubandalagsins aö sjá
þá súpa þá skál að „krukka í
kaupið”, sem þaö hefir harödæmt
aöra fyrir. Auövitað kitlar þaö mein-
fýsi andstæðinga Framsóknarflokks-
ins aö sjá hann verða gliðsa á „niöur-
talningu” sinni og landbúnaðar-
stefnu sem og stjórn sjávarútvegs-
mála. Auövitaö hlægir þaö margan
sem vitað hefir með sjálfum sér, aö
leikbrögð Gunnars Thoroddsen til
bjargar „þingræöinu og sóma
alþingis” voru öll unnin í þágu eigin
metnaðar að sjá þetta opinberast í
þeim lokaleik að setja bráðabirgða-
lög án vitaðs alþingisfýlgis og auðvit-
aö mun þaö kitla hláturtaugar
margra meinfýsinna stjómarsinna
aö sjá og heyra stjómarandstöðuna
fella á alþingi efnahagsúrræöi, sem
þeir flokkar hafa gripið til fyrr að
einhverju leyti, og munu kannski
veröa aö grípa til eftir ný hjaöninga-
víg.
En hverju verður þjóðin bættari?
Varöar engan um þjóöarhag? Væri
ekki mennilegra af stjórnmála-
flokkunum aö taka þegar í dag upp
viðræður hver viö aöra, reyna aö
finna, hvað best er hægt að gera til
að bjarga þjóðarskútunni út úr
brimgaröinum, áöur en hún fer upp?
Er ekki þegar allt kemur til alls
ánægjulegra að geta brosað yfir
árangursríkum úrræðum og sam-
starfi en hlæja aö vandræöum og
mistökum annarra með allt í kalda-
kolifyrir þjóösinni?
Bragi Sigur jónsson
fv.ráðherra.
• „En hverju verður þjóðin bættari?
Varðar engan um þjóðarhag? Væri ekki
mennilegra af stjóramálaflokkum að taka þeg-
ar í dag upp viðræður hver við aðra, reyna að
finna, hvað best er hægt að gera til að bjarga
þjóðarskútunni út úr brimgarðinum, áður en
hún fer upp?”
PANTANIR
Sími
13010
HÁRGREIÐSLU-
STOFAN
KLAPPARSTÍG 29
SENDILL Á VÉLHJÚLI
óskast sem fyrst, hálfan daginn eöa
nokkra tíma á dag.
Upplýsingar frá kl. 9—17 á Innheimtu-
deild DV, Þverholti 11, sími 27022.
Herraskótískan
erhjá
okkur
Litir:
Rautt, svart
ogblátt
leður
Kr. 698,00
PÓSTSENDUM
ALMA
LAUGAVEGI 46
REYKJAVÍK SÍM119494
Auglýsing
Eftirtaldir læknar (sérfræðingar)
starfa ekki samkvæmt gildandi
samningi um sérfræðilæknishjálp
utan sjúkrahúsa:
1. Ásgeir Karlsson, geðlæknir.
2. Björa Guðbrandsson, baraalæknir.
3. Esra S. Pétursson, tauga- og geðlæknir.
4. Ingvar Kristjánsson, geðlæknir.
5. Jóhann Guðmundsson, bæklunarlæknir.
6. John E. G. Benedikz, taugalæknir (þó
undanskilið, Sjúkrasamlag Hafnarfjarðar).
7. Karl Strand, tauga- og geðlæknir.
8. Sigurður Samúelsson, lyf-, hjarta- og lungna-
læknir.
9. Stefán Haraldsson, bæklunarlæknir.
10. Tómas Helgason, tauga- og geðlæknir.
11. Þórir Helgason, lyf- og efnaskiptalæknir.
Sjúklingar, sem leita til ofangreindra lækna á
stofu, gera það á eigin kostnað og án allrar þátt-
töku sjúkrasamlaga í kostnaðinum.
Reykjavik, 6. september 1982.
TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS
— sjúkratryggingadeild —
<