Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1982, Page 33
DV. FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER1982.
33
Sandkorn
Sandkorn
Sandkorn
Svona og svona
Nú til dags er glfmt við
ungilngavandamál, foreldra-
vandamál, öldrunarvanda-
mál, áfenglsvandamál og
hver veit hvað. Það er nú
samt staðreynd, hvað sem
hver segir, að sé faöirinn
svona og móðirin svona, þá
verður barnið svona og
svona'.
Safna vörubílum
Austur-Húnvetningar eru
nú þegar byrjaðir að undir-
búa sig undir framkvæmdir
við Blönduvlrkjun. Sumir
hafa til að mynda fjárfest í
dýrum vörubQum, sem marg-
ir hverjir hafa staðið verk-
efnalitlir enn sem komið er.
Það er nefnllega starfandi
vörubílstjórafélag í sýslunni,
sem hefur einkarétt á allri
vörubilavinnu. Geti félags-
menn ekki sinnt öllum þeim
verkefnum sem fyrir iiggja,
þá er leitað tfl vörubflstjóra-.
félaganna í Skagafirði og
vestur-sýslunum. Þetta
gremst þeim bflstjórum á
Blönduósi og nágrenni, sem
fjárfest hafa í dýrum bflum,
en ekki fengið inngöngu i bfl-
stjórafélaglð. Það er sem sé
ekki sopinn Blöndugróðinn
fyrr en í ausuna er kominn!
Traustvekjandi
blialeiga
Það þarf fleira en vörubfla
til að byggja Blönduvirkjun.
Bflaieigur hafa löngum
blómstrað vel í nágrenni
slikra virkjana og nú er búið
að stofna Bilaieigu Blönduóss
hf. Þegar litið er til stofnenda
fyrirtækisins, og þeirrar að-
stöðu sem starf þeirra veitir
þeim, þá skyldi maður ætia
að fyrirtækið sé pottþétt, ef
eitthvert fyrirtæki getur þá
verið pottþétt á þessum síð-
ustu og verstu tímum.
Þessir framtakssömu
menn eru: Árni Jóhannsson,
kaupfélagsstjóri, Hilmar
Kristjánsson, oddviti og
framkvæmdastjóri tré-
smiðjunnar Stíganda, Sigurð-
ur Eymundsson, umdæmis-
stjóri RARIK, Gunnar
Rlchardsson, framkvæmda-
stjóri Vélsmiðju Hún-
vetninga, sem væntanlega
sér um viðhaldiö á vögnun-
um, og fimmta hjólið undir
vagninum er Júlíus Fossdal,
sem sér um rekstur ESSO
skálans og afgreiðslu Arnar-
flugs, en Kaupfélagið er með
umboðið.
Horð samkeppni
BUaleiga Blönduóss er
þegar komin með marga bfla,
sem sumir hverjir munu vera
í langtímaleigu hjá opinber-
um fyrirtækjum, til að mynda
hjá Vegagerðlnni. Ástæðan
mun sú, að ekki náðist sam-
komulag við starfsmenn
Vegagerðarinnar um greiðsl-
m- fyrir afiiot af þeirra eigin
bflum. Þá var gripið til þess
ráðs að setja bflaleigubfla
undir starfsmennina.
BUaleiga Akureyrar hefur
verið með um 300 bfla í gangi
í sumar. „Kennedy-bræðurn-
ir”, sem eiga og reka Bfla-
leigu Akureyrar, hafa hugsað
sér að ná bita af Blöndu-
virkjunarkökunni. Er því
hafið stríð milU Bflaleigu
Blönduóss og Bflaleigu
Akureyrar um ákveðna við-
skiptavini.
Karlar undir
Á bæjarstjórnarfundi á
Akureyri i byrjun ágúst náðu
konur meirihluta í bæjar-
stjórn Akureyrar í fyrsta
sinn. Aftur höfðu þær
meirihluta á bæjarstjómar-
fundi sl. þriðjudag. Gerðist
þetta vegna þess, að bæjar-
fulltrúar af karlkyninu tóku
sér frí, en varamenn þeirraaf
kvenkyninu komu inn. Þegar
„ráðhúsherrann” okkar á
Akureyri, hann Rögnvaldur
Rögnvaldsson, ieit yfir
bæjarstjórnarsalinn og sá
hvers „kyns” var, þá varð
bonum að orði:
Bæjarstjómar breytast fundir
brosir kynið þjáða.
Karlar ientu konum undlr
hvað skal nú til ráða?
Undarlegur
Lnnrf'
porsti
I Önefndur vinur minn, við
getum kallað hann Andrés,
datt hressllega í það um dag-
inn og svolgraði stórum. Dag-
inn eftir svolgraði hann vatn
við þrálátum þorsta.
„Eg botna bara ekkert i
þessum þorsta i dag, eins og
ég drakk þó mikið í gær,”
umlaðl í Andrési á milli
jvatnsglasanna!
Umsjón:
Gísli Sigurgeirsson
Stetngrimur Gautur Kristjánsson i ræðustóli. Honum til hliðar era Jón G. Tómasson, Albert Guðmundsson og Alexand-
er Stefánsson. DV-mynd GVA
Sveitarfélög fái
aukið svigrúm til
fjármálaákvarðana
—sagði lón G. Tómasson í f ramsöguræðu á landsþingi
Sambands íslenskra sveif arf élaga
„Allt frá árinu 1950 hafa skattar
sveitarfélaga sem hlutfall af
sköttum ríkisins ekki verið lægri en
var á síðastliönu ári, ef frá eru skilin
árin 1973 og 1974, þegar sveitar-
félögum var fyrirfram synjaö um
heimild til 10 prósent álags á út-
svörin,” sagði Jón G. Tómasson, for-
maður Sambands íslenskra sveitar-
félaga, í framsöguræðu sinni á tólfta
landsþingi sveitarfélaganna, sem
hófst á Hótel Sögu í gær.
„Samkvæmt upplýsingum frá
Þjóðhagsstofnun hafa skatttekjur
hins opinbera í heild sem hlutfall af
vergri þjóðarframleiðslu hækkaö á
liðnum fimm árum úr 31,6 af
hundraöi árið 1977 í um 36,5 af
hundraði árið 1981 og hafa aldrei
verið hærri hér á landi frp því sem
töflursína síðan 1950. Hlutursveitar-
félaganna 1981 er um 7,3 af hundraði
og hefur hækkað um 0,7 af hundraði
frá 1977. Hlutur ríkisins er hins
vegar 29,2 af hundraði og hefur
hækkað um 4,2 af hundraði frá 1977,”
sagði Jón G. Tómasson. Hann sagði
ennfremur:
„Þessar tölur segja okkur annars
vegar aö ríkissjóður tekur stöðugt
hærra hlutfall skattheimtunnar til
sín en hins vegar gefa þær vísbend-
ingu um að í heild sé hiö opinbera
komið á efri mörkin í Skattheimt-
unni.
Sveitarstjómarmenn vilja þó ekki
una því að við þá sé sagt eins og
gjarnan hefur verið gert: Til þess að
tryggja hallalausan rekstur ríkis-
sjóðs hefur verið seiist svo djúpt í
vasa skattborgaranna að ekkert
svigrúm er eftir fyrir sveitarfélögin.
Það hefur verið stefna okkar að
sveitarfélögin eigi að fá aukiö svig-
rúm til fjárhagslegrar ákvörð-
unartöku og ég minni á að þannig var
það í reynd fyrir aðeins einum
áratug, þegar meginreglan var aö
útsvörin áttu að brúa bil gjalda og
tekna.”
Síðarsagði Jón íræðusinni:
„Sveitarfélögin geta enn síður sætt
sig við þá stefnu, sem nú hefur ráðið
hjá ríkisvaldinu í á annan áratug, og
hafa margsinnis mótmælt henni, að
ýmis þjónusta, sem þau láta í té,
megi ekki veröleggjast með hliðsjón
af tilkostnaöi, og þrátt fyrir allar
yfirlýsingar er það í reynd frekleg
skerðing á sjálfstjórnarrétti sveitar-
félaga að svipta þau ákvörðunarrétti
um gjaldskrár fyrirtækja sinna og
stofnana. Þótt sveitarstjórnarmenn
i vilji virða alla viðleitni til við-
náms verðbólgunnar hljóta þeir enn
aö ítreka kröfu sína um aö ríkið hætti
afskiptum af þessum málum og að
eftirlitshlutverk ríkisvaldsins beinist
framvegis einungis aö því að tryggja
aöfariðséað lögum. ’ ’
, I lok ræðu sinnar lýsti Jón G.
Tómasson því yfir að hann hygðist
láta af starfi formanns Sambands
íslenskra sveitarfélaga. Tók Jón þá
ákvörðun vegna þeirra breytinga
sem ráögerðar eru á stjómsýslu
Reykjavíkurborgar. En sem
kunnugt er, er gert ráð fyrir að Jón
taki við starfi borgarritara.
-KMU.
SAMKEPPNI
UM VERKFRÆÐINGAHÚS
Verkfræðingafélag íslands hefur efnt til samkeppni um
Verkfræðingahús.
Lóð hússins er við Suðurlandsbraut gegnt Hótel Esju og
samlagður gólfflötur hússins er áætlaður um 2.500 ferm.
Rétt til þátttöku hafa allir félagar í Arkitektafélagi íslands
og aðrir þeir, sem leyfi hafa til aö leggja aðalteikningar fyrir
Bygginganefnd Reykjavíkur og uppfylla ákvæði bygginga-
laga nr. 54/1978.
Keppnisgögn eru afhent hjá trúnaðarmanni dómnefndar,
Gylfa Guöjónssyni, arkitekt, Úthlíð8, Reykjavík, sími 20629.
Skilafrestur á tillögunum er til 1. des. 1982 kl. 19.00.
Verkfræðingafélag íslands.
INNROMMUN SIGURJONS
Armúla 22 S»m« 31 788
ALRAMIVIAUSTAR
MIKIÐ
. ÚRVAL AF
RAMMA-
W USTUM
V x FYRIR
m MÁLVERK
' X. MYNDIR
Tölvunámskeið
Byrjendanámskeið
Námskeiðin standa yffir í 2 vikur. Kennt
er 2 stundir á dag virka daga, kl.
17.30—19.30 eða 20.00—22.00.
Við kennsluna eru notaðar míkrótölvur af algengustu
gerö. Námsefniö er allt á íslensku og ætlað byrjend-
um sem ekki hafa komið nálægt tölvum áður.
Á námskeiðunum er kennt m.a.:
Grundvallaratriöi forritunarmálsins BASIC. Fjallað er
um uppbyggingu, notkunarsvið og eiginleika hinna
ýmsu geröa tölva. Kynning á tölvukerfum, hugbúnaði
og vélbunaði, sem notuö eru viö rekstur fyrirtækja.
TÖLVUSKÚLINN
SMpholtil Simi 2 5400