Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1982, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1982, Blaðsíða 33
DV. LAUGARDAGUR 9. OKTOBER1982. 33 Messur Guðsþjónustur í Reykjavíkurprófastsdæmi sunnudaginn 10. okt. 1982 ÁRBÆJARPRESTAKALL: Barnasamkoma í Safnaöarhcimili Árbæjarsóknar kl. 10.30. Fermingarguösþjónusta og altarisganga í Safnaðarheimiiinu kl. 14. Sr. Guömundur Þorsteinsson. ÁSPRESTAKALL.Guösþjónusta í Laugames kirkju kl. 14. Ferming og altarisganga. Sr. Arni Bergur Sigurbjörnsson. BREDÐHOLTSPRESTAKALL. Guðsþjónusta í Breiðholtsskóla kl. 14. Sr. Jón Bjarman messar. Sóknarprestur. BUSTAÐAKIRKJA. Barnasamkoma kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Organleikari Guðni Þ. Guömundsson. Kvenfélag Bústaðasóknar heldur basar og kaffisölu að lokinni messu. Sr. Olafur Skúlason dómprófastur. DIGRANESPRESTAKALL. Bamasamkoma í Safnaðarheimilinu við Bjamhólastíg kl. 11. Guösþjónusta í Kópavogskirkju kl. 2. Sr. Þorbergur Kristjánsson. DÖMKIRKJAN. Prestsvígsla kl. 11. Biskup Islands hr. Pétur Sigurgeirsson vígir guð- fræðikandidatana Sigurð Amgrímsson, sem settur hefur verið til að gegna Hríseyjar- prestakalli í Eyjafjarðarprófastsdæmi, og Braga Skúlason, sem ráðinn hefur verið til starfa hjá Fríkirkjusöfnuðinum í Hafnarfiröi. Vígsluvottar: Sr. Stefán Snævarr prófastur, sr. Kári Valsson, sr. Bemharður Guðmunds- son og sr. Emil Bjömsson. Sr. Þórir Step- hensen dómkirkjuprestur þjónar fyrir altari, dómkórinn syngur, organleikari Marteinn H. Friðriksson. LANDAKOTSSPÍTALI. Messa kl. 10. Organ- leikari Birgir As Guðmundsson. Sr. Þórir Stephensen. ELLIHEIMILIÐ GRUND. Messa kl. 10. Sr. Þorsteinn Bjömsson. FELLA- OG HOLAPRESTAKALL. Laugar- dagur: Barnasamkoma í Hólabrekkuskóla kl. 14. Sunnudagur. Bamasamkoma í Fellaskóla kl. 11. Guðsþjónusta í Safnaðarheimilinu að Keilufelli 1, kl. 14. Sr. Hreinn Hjartarson. GRENSÁSKIRKJA. Bamasamkoma kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Organleikari Ami Arin- bjamarson. Almenn samkoma nk. fimmtu- dagskvöld kl. 20.30. Skráning fermingarbama ársins 1983 verður þriðjudagmn 12. okt. kl. 17. Sr. Halldór S. Gröndal. HALLGKIMSKIRKJA. Laugardagur: Kirkjuskóli bamanna kl. 14 í gömlu kirkjunni. Sunnudagur: Messa kl. 11. Sr. Karl Sigur- bjömsson. Messa kl. 14 fyrir heymarskerta og aðstandendur þeirra. Sr. Miyako Þórðar- son. Þriðjud. 12 okt. kl. 10.30 fyrirbænaguðs- þjónusta, beðið fyrir sjúkum. Miðv.d. 13. okt. kl. 22. Náttsöngur. Ljóðalestur, Nína Björk Amadóttir. Fimmtud. 14. okt. kl. 15, opið hús fyrir aldraða. LANDSPlTALINN: Messa kl. 10. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. HÁTEIGSKIRKJA: Bamasamkoma kl. 11. Sr. Tómas Sveinsson. Messa kl. 2.00. Sr. Arngrímur Jónsson. KARSNESPRESTAKALL: Bamasamkoma í- Kársnesskóla kl. 11.00. Guðsþjónusta í Kópa- vogskirkju kl. 11.00 Sr. Arni Pálsson. LANGHOLTSPRESTAKALL. Oskastund bamanna kl. 11. Söngur, sögur og leikir. Guðsþjónusta kl. 14. Organleikari Jón Stefánsson, prestur Sigurður Haukur Guöjónsson. Sóknamefndin. LAUGARNESPRESTAKALL. Laugardagur 9. okt. Guðsþjónusta að Hátúni 10B, 9. hæð kl. 11. Sunnud. 10 okt. Bamaguðsþjónusta kl. 11. Messa kl. 14 í umsjá Ásprestakalls, prestur sr. Ami Bergur Sigurbjömsson. Ferming og altarisganga. Þriðjud. 12. okt., bænaguös- þjónusta kl. 18, æskulýðsfundur kl. 20.30. Föstud. 15. okt. Síðdegiskaffi kl. 14.30. Sóknarprestur. NESKIRKJA. Laugardagur 9. okt. Sam- verustund aldraðra kl. 15. Tómas Einarsson sýnir litskyggnur, Rútur Hannesson leikur á harmóniku. Sunnudagur 10. okt. bamasam- koma kl. 10.30. Fermingarmessa kl. 14. Mið- vikudagur 11. okt., fyrirbænamessa kl. 18.15. Prestarnir. SELJASÖKN. Bamaguðsþjónustur hef jast og guðsþjónustutími færist til kl. 14. Bamaguðs- þjónusta að Seljabraut 54, kl. 10.30. Bama- guðsþjónusta ölduselsskóla kl. 10.30. Guðs- þjónusta ölduselsskóla kl. H.Guðmundur Guðmundsson guðfræðinemi prédikar. Fyrir- bænaguðsþjónusta Tindaseli 3, fimmtudaginn 14. okt. kl. 20.30. Sóknarprestur. SELTJARNARNESSÖKN. Bamasamkoma kl. 11. Sóknamefndin. FRDCIRKJAN I HAFNARFIRÐI. Bama- starfið og guðsþjónusta dagsins falla niður vegna prestsvígslu Braga Skúlasonar sem ráðinn er til starfa hjá söfnuðinum. Prests- vígslan hefst í dómkirkjunni kl. 11 og er safnaðarfólk hvatt til að vera viðstatt. Safnaðarstjóm. Ferðalög Útivistarferðir Helgarferðir 8.—10. okt. 1. Þórsmörk. Komið með áöur en haustlitirnir hverfa. Gist í Otivistarskálanum 1 Básum. Gönguferöir við allra hæfi. Kaffisala Kvenfélags Hafnarfjarðarkirkju Arleg kaffisala Kvenfélags Hafnarfjarðar- kirkju fer fram í Góðtemplarahúsinu á morg- un sunnudag og hefst hún kl. 15.00 að lokinni fjölskylduguðsþjónustu í kirkjunni sem hefst kl. 14.00. Nú sem fyrr er kvenfélag kirkjunnar ein styrkasta stoöin í öllu starfi hennar. Kven- félagskonur hafa mjög borið hag kirkjunnar fyrir brjósti, unnið ötullega að því að bæta búnað kirkju sinnar og jafnan lagt henni lið. þegarþurft hefur. Er þær halda nú kaffisölu sína til að afla sér f jár til frekari starfa, skiptir miklu að safnað- arfólk, og svo aörir velunnarar Hafnarfjarð- arkirkju, f jölmenni í Góðtemplarahúsið, njóti þar ljúffengra veitinga og góðrar samveru. 2. Tindafjöll. Fagurt er í fjöllunum á þessum árstíma. Gist í húsi. Dagsferðir sunnudaginn 10. okt. 1. Þórsmörk. Ekin Fljótshlíð. Verð 250 kr. Hálft gjald f. 7—15 ára. Brottför kl. 8.00. 2. Kl. 13. tsólfsskáli—Selatangar. Létt ganga. Sérkennilegar hraunmyndanir og hellar. Merkar fomminjar t.d. verbúðir, fiskabyrgi og refagildrur. Verð 150 kr. Frítt f. böm í fylgd fulloröinna. Uppl. og farseðlar á skrifst. Lækjarg. 6a, s. 14606. Munið simsvarann. Sjáumst! Ferðafélagið Otivist. Keflavíkurkirkja Sunnudagaskóli kl. 11 í umsjá Málfríöar Jóhannsdóttur fóstru og Ragnars Karlssonar æskulýösfulltrúa. Muniö skólabílinn. Sóknar- prestur. Kvenfélag Bústaðasóknar heldur basar og kaffisölu sunnudaginn 10. október nk. eftir messu. Grænmeti og öðru matarkyns, ásamt kökum og basarvörum veitt móttaka á laugardaginn milli kl. 12 og 14 og á sunnudag frá kl. 101 Safnaðarheimilinu. I dag, 9 október, er „Dagur Leifs Eiriksson- ar” í Bandaríkjunum og af því tilefni er ástæða til að vekja athygli á því að vegna opn- Fríkirkjusöfnuðurinn í Reykjavík Kjörskrá vegna væntanlegrar prestskosn- ingar liggur frammi á skrifstofu kirkjunnar á þriðjudögum og fimmtudögum frá og með 7. okt. nk. til 2. nóv. kl. 17—19, sími 14579. Fríkirkjufólki sem haft hefur aðsetursskipti er sérstaklega bent á að athuga hvort það er á kjörskrá safnaðarins. Kjörstjórain. v Foreldra- og vinafélag Kópavogshælis verður með flóamarkað aö Hallveigarstöðum sunnudaginn 10. okt kl. 10. f.h. Margt góðra muna. Komið og styrkið gott málefni. unar „Scandinavia Today” var gefin út af- steypa af styttu Leifs Eirikssonar, sem stend- ur á Skólavörðuholti í Reykjavík. Afsteypa þessi fékk verðlaun og viðurkenningu í sam- keppni um minjagripi á vegum Ferðamála- ráðs og Iöntæknistofnunar Islands 1981. Hluti upplagsins (25. stk.) var notaður vestra til gjafa til embættismanna sem sérstaklega höfðu unnið að undirbúningi sýnmganna og þeirrar kynningar á íslenskum framleiðslu- vörum sem fram fór á sama tíma i Bandaríkj- unum. Á næstunni munu koma til landsins 100 eintök af umræddri styttu en á hverju eintaki er ágrafin gyllt plata með islenskum texta er tilgreinir tilefni útgáfunnar. Eins og tslendingum er kunnugt var styttan af Leifi Eiríkssyni gefin Islendingum í tilefni 1000 ára afmælis Alþingis árið 1930. Á sér- stakri áletrun á bakhliö styttunnar staðfestir Bandaríkjastjórn að Islendingurinn Leifur Eiriksson hafi fundið Vínland hið góða árið 1000. Þessi áletrun er einnig á afsteypunum. Ferðafélag íslands Sunnudagur 10. október. 1. kl. 10. Langahlíð — Brennisteinsfjöll — Seltún. Nokkuð löng ganga, en ekki erfið. 2. kl. 13. Ketilstígur — Krísuvík — Seltún. Ekið á Lækjarvelli, síðan er gengið um Ketil- stíg, Arnarvatn og í Krísuvik. Létt ganga. Verð í báðar ferðirnar kr. 180 og greiðist v/bílinn. Frítt fyrir böm í fylgd meö for- eldrum. Farið frá Umferðarmiðstöðinni að austanverðu. Helgarferð í Þórsmörk 9.—10. okt. kl. 08.00. Það er líka ánægjulegt að ferðast í óbyggðum á haustin. I Þórsmörk er góð gistiaðstaða í sæluhúsi F.I. og litríkt umhverfi. Farmiða- sala og allar upplýsingar á skrifstofunni öldu- götu 3. Ferðafélag Islands. Tilkynningar \ Leshringir 1 andlegum visindum Martlnusar verða í Ingólfstræti 1A á laugardögum kl. 4. Meðal efnis verður: Kosmisk uppbygging al- heimsins, þróun, tími og rúm, eilífð. Karma eða orsök og afleiðing, endurholdgun, tilgang- ur þjáninga, kynlif, guðdómshugtakið, rök- fræði, lífseiningarlögmálið (stór-, mið- og smáheimur) og fl. og fl. Hafnarfjarðarkirkja Sunnudagskóli kl. 10.30. Fjölskylduguðsþjón- usta kl. 14. Ætlast er til aö fermingarböm og forráðamenn þeirra komi í kirkju. Arleg kaffisala kvenfélags kirkjunnar verður i góð- templarahúsinu kl. 15. Sóknarprestur. Amyndinnl er heimiliskötturinn frá Hraunbæ 148, Lisa, sem hefur verið týnd siðan 24. sept- ember. Þrátt fyrir mikla leit og eftirgrennsl- an hefur hún ekki fundist. Lisa er tæplega árs- gömul. Hvít og bröndótt — bröndótt á baki, skottið bröndótt og sfður. Þá er hún með bröndóttan þvertopp eins og fram kemur á myndinni en hvít að öðm leyti. Hún var með rauða hálsól og tunnumerki þegar hún hvarf. Þeir sem geta gefið einhverjar upplýsingar um afdrif Lisu eöa hvar hana sé að finna vin- samlega hringiö i sima 77921 eða á skrifstofu- tíma í síma 81710. GFTRAMIN næst drik/um dð ttm Áskriftarsíminn er 27022

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.