Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1982, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1982, Blaðsíða 22
DV. LAUGARDAGUR 9. OKTOBER1982. Judy Pfaff fædcfíst i London 1946 en býr nú i New York. Súrreaiisk upplifun herbergisins, þrividdarform og linur minna á kyrra sviðsetningu ur teiknimynd. Claudio Papola, f. 1937, býr i Milano. Eftir hann er litað seglið, strengt likt og útskorið úr sjávarlifsmynd, annars vegar i liki vegvillts, afmynd aðs nytjahluts, hins vegar nýskipan forma húsakynnanna. Bretinn Antony Gormley, f. 1950, býr i London. Járnskúlptúrar hans af stirðum mannsbúkum, kaldir, harðir og framandi, liggja dreifðir um gólfið, einmanalegir og persónulausir. Mannshýði svipt innihaldi og sál, likamningur tæknialdar? Tadashi Kawamatar (f. i Hokk- aido 1953 býr i Tokyó. Utan um sýningarhúsnæði Japana hef- ur hann byggt trégrindaverk, um- skapað útliti hússins svo helst minnir á gamla og góða íslenska stillansasmið. Spýtnaverk hans utan húss sem innan eru finleg og full formtilfinningar, en það ein- kenndi japönsku sýninguna i heild. Eva Sörensen, f. 1940, frá Herning i Danmörku, býr í Mergozzo i Italiu. Teikningar og granitblokkir hennar eru skýrar og hreinar. Hrynjandi linanna og hrjúf formin bera Ijóðrænan kraft náttúrunnar i sér. Filippo Ponseca, f. 1940 i Palermo, býr i Milano. Strangstærðfræðileg form einkenna stil hans en formin eru svo saman sett að yfirbragðið verður súrrealiskt. heldur. Og listin blívur þótt sýningar- nefndir sofni. íslensku þátttakendurnir Framlag Islendinga til þessa menn- ingarmóts þjóöanna var til húsa í sal fjarri hinum Norðurlöndunum, í nýrri byggingu fast viö enn eitt síkið. Full- trúar voru þar Kristján Guðmundsson og Jón Gunnar Ámason. „Lengsta nótt í Feneyjum” nefnir Kristján málaöa myndaröð sína þar sem hver lína táknar eina mínútu nætur. Svartar línur á hvítum grunni mynda til samans svipmikla heild þar sem fagurfræðilegt gildi sameinast úr- vinnslu á vitneskju. Hugmynd, túlkun og sjónmennt eru sameinuð og veitt áfram til skoðanda. önnur verk Kristjáns á sýningunni, „lengsta nótt í Italíu”, „lengsta nótt í Islandi,” stysti dagur í Islandi”, ,,stysti dagur í Italíu”, höfðu sömu grunnhugmynd og túlkunarform til grundvallar. Jón Gunnar sýndi verkin Cosmos og Gravity, hið fyrra veggmynd en hið siðara á gólfi. Þótt um tvö verk sé að ræöa eiga þau frá minu sjónarmiði saman, eins og þau eru upp sett, vegg-, gólf- og loftmynd í einu. Cosmos, stál- speglar á vegg, steinar hangandi í snúru frá lofti fyrir framan, Gravity, stálspeglar á gólfi, einnig með hang- andi steinum yfir sér. Jón Gunnar og Kristján nota sitt myndmálið hvor en ólíkt öðrum sýningarsölum virðist viöræðan milli þeirra í fullu samlyndi. Verk hvorugs stelur „senunni” frá hinu, frekar að hvort gefi hinu fyllingu. Utan verk- anna er salurinn tómur, hvítur, hlut- laus, utan flókins grindaglingurs undir þakinu. Verkin, einföld í formi og lit, túlka margbreytileika og flókin hlut- föUhugtaka. Fátítt var að finna sýningarsal með sliku samræmi verka tveggja lista- manna, að auki svo ólíkra í skapgerð ogtúlkun. Eitt Irtið viðtai við íslensku þátttakendurna Við heimkomu var undirritaöur svo lánsamur að hitta þá Jón Gunnar og Kristján að máli og leita hjá þeim álits á ýmsu því sem vafist hafði fyrir honum. Viðbrögð þeirra við efasemdum um hvort Feneyjar væru heppilegasti staöur til sliks sýningarhalds, innan um svo margt sem dregur athygli frá nútímanum, voru á einn veg. Kristján taldi staðinn sérstæðan og að ánægjulegt umhverfi um listina stæli engu frá henni. Samþykkti Jón þetta sjónarmið og bætti við að t.d. Kúlúsúk væri ekki hentugri. Vanga- veltur um þægindi við uppsetningu í feneyskum sumarhita, samanborið við Kúlúsúk, fylgdu eftir og jafnframt var þvi slegið föstu að Kúlúsúk væri einnig athyglisverður og fagur staður. Mesta eftirtekt þeirra hafði Dieter Roth vakið og að auki minntist Jón a- þýsku og ungversku deildanna en Kristjáni var eftirminnileg yfirlits- sýning Roberts Smithsons og skáli Japananna. Islenska deildin kom Kristjáni samt mest á óvart en Jóni komu mest á óvart verk Kristjáns uppsett. Virðist þeim félögum því hafa heppnast betur uppsetningin en þeir bjuggust við. Bar þeim saman um að verkin hefðu samræmst vel og minnt- ust jafnframt með kátinu opnunar sýningarinnar, þar sem þeir höfðu gestum til glaðnings ekta íslenskan kavíar sem þeir, öfugt við venju annarra sýningarþjóða, greiddu úr eigin vasa. Létu Italir vel af þeim veitingum. Er forvitnast var eftir áliti þeirra á hinum nýju stefnum í Þýskalandi og Italíu, sem undirritaður sjálfur er ekki allskostar hress yfir, urðu viðbrögð alvarlegri. Kristján taldi Italina að vísu skemmtilegri en Þjóðverjana, þeir leituðu allavega dýpra eftir fyrir- myndum. Jón sagði ekki neitt. Báðir voru samt sammála um að vera frjáls- lyndir gagnvart öllum hreyfingum afturábak eða áfram. Er til jákvæðara viðhorf gagnvart listinni? Þegar minnst er á þá kreppu í lista- heiminum sem svo mikið er fárast yfir meðal gagnrýnenda, lætur Kristján í ljós undrun yfir sh'kum tíðindum. Jón telur aö um dellu sé að ræða, mikið sé að gerast, og báðir eru sammála um að allavega sé engin kreppa á Islandi. Er kreppan ef til vill bundin listgagn- rýnendaheiminum? Lokaniðurstaða er að ef um kreppu sé að ræða sé hún eölileg og eigi rétt á sér. Rétt sé að listheimurinn sé rugl- aður en það einskorðist allavega ekki við myndlistina, aörar greinar liggi ekki síður vel við höggi. Hvað varðaði eigin sýningaruppsetn- ingu lofuðufélagamir Italina fyrir ljúf- mennsku og góða fyrirgreiðslu. Sér- staklega minntust þeir Costantino Dardi. Til hagræðis hefði samt verið að hafa til aðstoðar ráðunaut er skildi itölsku og gæti aðstoðaö viö skipulags- hlið slíkra verkefna. Sú sannfæring varð ofan á að ráðuneytismenn hlytu nú aö hafa haft nóga þjálfun á Skandi- navia Today til að fást við slík verk- efni. Báðum þótti vænt um að hafa verið fulltrúar þjóðarinnar, töldu sýninguna hafa heppnast vel og þeir hafa lært mikið af þessari reynslu. Útlendingar •yrðu varir við þátttöku Islendinga í slíkum sýningum og íslénskir lista- menn væru frambærilegir hvar sem væri. Mikilvægt væri að halda áfram. þátttöku í sem flestum alþjóðlegum sýningum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.