Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1982, Blaðsíða 11
DV. LAUGARDAGUR 9. OKTOBER1982.
11
Menning Menning Menning Menning
inn raðar gjarnan inn á myndflötinn
minni form- og litaandstæðum sem
trufla og sprengja upp hið hvíta flæði.
Myndimar byggja enn á formfestu
fyrri mynda en gefa nú auk þess blæ-
brigðaríka sjónræna upplifun. Myndin
Kínverskt ljóð er eflaust ein athyglis-
verðasta mynd sem komið hefur frá
listamanninum á síðastliðnum mánuð-
um. Þar samræmir hann bæði hárfint
línuspil og hvika virkni flatarins.
Einrt myndhöggvari
Eini septembermyndhöggvarinn
Sigurjón Olafsson sýndi okkur meira
en 20 skúlptúra. Þegar gengið er á
milli þessara mynda fær maöur
auðveldlega á tilfinninguna að iista-
maðurinn leiki sér meö náttúruna.
Þetta eru oft trédrumbar teknir beint
úr náttúrunni eða rekaviður, sem lista-
maðurinn umbreytir samkvæmt
listrænum ásetningL Og þá virðist
Sigurjón í nokkrum myndum aðeins
velja og rétt hagræða þeim formum
sem náttúran sjálf hefur skapaö. Það
er eins og listamaöurinn vilji draga
upp í verkum sínum tvær kunnar and-
stæður þ.e. annars vegar náttúruna
með sínum tiiviljunarkenndu sérkenn-
um og tíma og hins vegar hugvitsemi
mannsins sem rökfræðilega mótar í
ef nið geometrískt eða lýriskt táknmáL
Septem í lOár
Septembersýningin 1982 var tíunda
samsýning hópsins. Og þegar litið er
yfir framleiðslu þeirra félaga þennan
áratug er greinilegt að allir þessir
listamenn hafa tekið miklum breyting-
um og unnið rökrétt og markvisst að
eigin myndverki. Allt eru þetta „pro-
fessional” listamenn, sem öðlast hafa í
hinni myndrænu vinnu s jálfstæðan list-
persónuleika þó að upprunann megi
eflaust finna í evrópsku abstraktmál-
verkiö. og 6. áratugarins.
Múrinn eftír Sigurjón Ólafsson. Tvær kunnar andstæður: néttúran með sínum tílviljunarkenndu sór-
kennum og maðurinn sem rökfræðilega mótar ákveðið táknmál i efnið. Ljósm. GBK.
Þa er það athyglisvert að „list-
mennt” þeirra septemmanna ekki
frekar en annarra íslenskra lista-
manna byggist ekki á hugmyndfræði-
legum specúlationum heldur frekar á
myndrænni reynslu, þar sem lista-
maðurinn vinnur sig frá einni mynd til
annarrar, fra einum stíl til annars.
Þannig verður „menntunarþróunar-
tíminn” oft eðlilega langur og skýrir
það eflaust hversu hægt íslenskir lista-
menn þróast eða breytast. En þó
gerjunin hefði í fyrstu verið hæg, er
greinilegt að þeir septemfélagar hafa
allir komist að persónulegum niður-
stöðumí listinni.
Það er því vissulega tilefni til að
óska þessum sjö vaxtarbroddum
íslenskrar myndlistar allra heilla og
ríkrar vinnusemi á komandi árum.
-GBK.
Uppstíllirtg H2 eftír Vattý Pótursson. Mátverkið er rökrótt samsetning
geometriskra eininga sem þýðir og lýsir nærtækum veruleika.
allt sem hugurinn girnist
Stœrsta póstverslun í Evrópu.
f rá QueIIe
Quelle pöntunarlistinn með haust- og vetrartískunni 82/83 er nærri þús-
und blaðsíður, uppfullar af vönduðum þýskum vamingi. Crvalsfatnaður á
alla fjölskylduna, skór, töskur, skartgripir, húsbúnaður, heimilistæki, leik-
föng, já allt sem hugurinn gimist. Allt gæðavörur á hagstæðu verði.
Öruggur afgreiðslumáti.
IVinsamlegast klippið þennan hluta auglýsingarinnar frá og sendið okkur eða hringið —
ef þér viljið kaupa Quelle pöntunarlistann. Verð listans er kr. 72 auk póstkröfugjaldsins.
IQuelle-umboðið Pósthólf 39, 230 Njarövík. Sími 92-3576.
Afgreiðsla í Reykjavík Laugavegi 26, 2.h. Sími 21720.
Nafn sendanda
| heimilisfang
sveitarfélag
póstnúmer
L
QuellB umboóió sími 21720