Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1982, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1982, Blaðsíða 8
DV. LAUGARDAGUR 9. OKTOBER1982. Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIDLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Áöstoöarritstjóri: HAUKUR HELGASON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON ogÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON. Ritstjórn: SÍÐUMÚLA 12—14. SÍMI 84411. Auglýsingar: SÍÐUMÚLA 33. SÍMI 27022. Afgreiðsla, áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI 11. SÍMI 27022. Sími ritstjórnar: 84411. Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: HILMIR HF., SÍÐUMÚLA 12. Pi'entun: ÁRVAKUR HF„ SKEIFUNNI 19. Áskriftarverö á mánuöi 130 kr. Verö í lausasölu 10 kr. Helgarblaö 12 kr. Ekki einfalt að fella Ætla mætti að óreyndu, að stjómarandstæðingar fögn- uðu ákaft, þegar þeir sjá ríkisstjómina riða til falls. En það er vægast sagt misjafnt. Suma þeirra óar nokkuð við að fella bráðabirgðalögin og láta þar við sitja. Lögin eru þó nokkurt viðnám gegn vaxandi verðbólgu og viðskipta- halla. Falli þau, verður ástandið miklu verra. Alþýðubandalagsmenn munu ákveðnir í, að stjómin skuli fara frá, ef bráðabirgðalögin falla. Margir þeirra bíöa þess með óþreyju og vilja strax láta á það reyna. Þá kæmi skerðing verðbóta um helming 1. desember ekki til framkvæmda. Alþýðubandalagsmenn yrðu þá ekki í kom- andi kosningabaráttu að standa frammi fyrir alþýöu manna í vamarbardaga fyrir þá kjaraskerðingu sem orðnum hlut. Þeir yrðu sviptir glæpnum. Þetta finnst mörgum forystumanni Alþýðubandalagsins ódýrt slopp- iö. Þeir yrðu heldur ekki alveg ábyrgöarlausir í augum þeirra, sem sjá nauðsyn harðra aðgerða — því að það yrði stjómarandstaðan, sem hefði hindrað aðgerðir, ekki þeir. Mörgum framsóknarmanninum þætti réttast, að stjómin færi frá, yrðu lögin felld. Þaö kom fram í ummæl- um Guðmundar G. Þórarinssonar, sem DV sagði frá í gær. Guðmundur kvaðst þeirrar skoðunar, að þingkosn- ingar yrðu í marz eða apríl. Guðmundur virtist miða þá dagsetningu við, að lögin kæmu fyrst fyrir í Efri deild, þar sem stjómin hefur meirihluta. „Ég er þeirrar skoö- unar, aö það sé of alvarlegt mál að láta stjómarandstöð- una fella lögin fyrir 1. desember, áður en þau hafa tekið gildi í heild,” er haft eftir Guðmundi. Færi stjómin frá upp úr því, er rétt hjá Guðmundi, aö kosningar gætu orðið í marz eöa apríl. Mörgum þing- manninum þætti einnig æskilegra, að farið væri að draga úr vetrarhörkum, áður en gengið yrði til kosninga. Hverjar yrðu afleiðingar þess, að bráðabirgðalögin yrðu felld? Það viðnám gegn efnahagsvandanum, sem í þeim felst, færi forgörðum. Við tæki vafalaust millibils- skeið, meðan kosningar yrðu undirbúnar. Ekkert bendir til, að alvöru-ríkisstjóm yrði mynduð á meðan. Ástandið færi hríðversnandi. Sú stjóm, sem við tæki eftir kosning- ar, fengi við að glíma margfaldan vanda. 1 þeirri stjóm má búast við að sitji ýmsir þeir, sem nú eru í stjómarand- stöðu. Líf þeirra yrði til mikilla muna ljúfara, ef með ein- hverjum hætti hefði verið til þess séð, að bráðabirgðalög- in hefðu náð fram að ganga. Stjómarandstæðingar í Sjálfstæöis- og Alþýðuflokki hugsuðu ekki svona langt, þegar þeir lýstu yfir í ágúst, að þeir mundu fella lögin. Andstæðingar stjómarinnar í Sjálfstæðisflokknum voru himinlifandi um þær mundir vegna yfirlýsinga Eggerts Haukdal og Alberts Guðmunds- sonar. Nú er hvíslað um, að hugsanlega megi semja með einhverjum hætti, þannig að allar efnahagsaðgerðir væru ekki fyrir bí. Menn segja sem svo, að þeir „styðji lögin ekki óbreytt” eða „þeir séu andvígur skattahækkununum í lögunum. Á þessu sést, að enn er einhver útgönguleið. Stjómmálamönnum, hvort sem er í ríkisstjóm eða stjómarandstöðu, er hollast að gleyma sér ekki í dægur- bardaganum. Hugsi stjómarandstæðingar nú um þjóðar- hag, er ljóst, að í óefni stefnir, taki við langt tímabil stjómleysis í vetur. Þótt þeir hugsuðu eingöngu um eigið skinn, er þeim hollast aö hindra ekki aðgerðir og standa síðan gagnvart kjósendum sem ábyrgðarmenn þess mikla vanda, sem á eftir kemur. Jafnvel þótt þeir ynnu síðan kosningar, sætu þeir uppi með allt klúðrið. Haukur Helgason. Stjómarshrá að tyrhoesteri fyrirmynd? Þaö kom maður aö máli viö mig nú i vikunni og gagnrýndi nokkuð frá- sögn mína af fundi Stjómar- skrársaumaklúbbsins sem birtist hér í síöustu viku. „Þú gerðir kaffi- brauðinu nokkuö góö skil,” sagöi hann, ,,þó að ég heföi persónulega gjama viljaö fá uppskriftina hans Gunnars aö piparkökunum. Konan min býr nefnilega til heimsins verstu piparkökur, enda fékk hún uppskrift- ina úr Kardemommubænum. Eg ætla þó ekki að gera neitt stórmál úr því en kannski skorar einhver á Gunnar i kökuuppskriftaeinvígi og fjölmiðlasælkerar birta svo upp- skriftina. „En,” sagöi hinn hrjáöi eiginmaður, ,,þú gerðir okkur enga grein fyrir því hvernig stjómarskrá- in á aö vera. Þú sagðir okkúr ekki hvaöa hugmyndir eru á lofti innan nefndarinnar.” Eg verö aö viðurkenna aö athuga- semdir þessa kunningja mins ssröu Úr ritvélinni Ólafur B. Guðnason skrifar háþróuö og hin íslenska. Samkvæmt fréttum, sem hingaö hafa borist, er margt í því plaggi sem gæti orðið góð fyrirmynd fyrir stjómar- skrársaumaklúbbsmeölimi hér heima á Islandi. Þar eru til dæmis ákvæði um skoöana-, rit- og félaga- freisi ásamt fyrirmælum um aö rit- skoðun sé stranglega bönnuð. Þetta er auövitað gott og blessað og vel meint, eins og sagt er, en svo koma gagnleguákvæöin! Um tjáningarfrelsi segir: „Tak- marka má þessi réttindi til að koma i veg fyrir glæpi, vernda réttindi (eins og t.d. ritfrelsi), einka- og f jölskyldu- líf, koma í veg fyrir aö atvinnu- og ríkisleyndarmál berist út og ótíma- bæran fréttaflutning sem getur haft áhrif á efnahagslíf þjóöarinnar.” Þetta eru gagnleg ákvæði. Hefði til dæmis starf þessarar stjórnar ekki oröiö miklu auöveldara hefðu blöðin ekki alltaf verið að nöldra i Stein- . ar piportókur J shxi.... * * "• * Yf Í: v mig. Ekki svo að skilja að ég hafi móögast viömanninn! Fjarriþví.Eg brosti undurblítt og bar sár min meö þolinmæði. En ég gat auðvitað ekki látiö hjá h'öa aö leiðrétta þennan mæta mann því aö aðfinnslur hans voru ósanngjarnar. „Kæri vinur. Það er rétt aö ég geröi enga grein fyrir því hvemig stjórnarskráin á aö vera eöa hvaöa hugmyndir eru á lofti innan nefndar- innar. Þaö stafar eingöngu af því aö sjálfir meölimir saumaklúbbsins gera sér ekki grein fyrir því hvemig stjómarskráin á að vera. Og einu hugmyndirnar sem á lofti eru innan nefndarinnar eru þær að fjölga beri þingsætum til að koma í veg fyrir þaö að hræðilegt atvinnuleysis- ástand skapist í þingmannastétt! Atvinna er mannréttindi og þingsæti líka, segja þeir. Eg hef þaö eftir áreiöanlegum heimildum aö vissir þingmenn, sem sjá fram á atvinnu- leysi ef ekki verður fjölgaö þingsæt- um, hafi hótaö aö flytja af landi brott, helst til Svíþjóöar, ef ekki verður aö gert! Sænski sendiherrann hefur nú boðið fram aöstoö sína viö stjórnarskrársmíðina og sænska rikisstjómin boöist til aö útvega saumaklúbbsmönnunum færustu er- lenda sérfræðinga í stjórnarskrám og ætlar aö greiöa kostnaöinn af því beint úr vasa sænskra skattgreið- enda. Til öryggis hefur sænski flotinn haldiö út í skerjagarðinn og hefur fengiö fyrirskipanir um að varna öllum Islendingum landgöngu, ef nokkur minnsta ástæða er til aö ætla að þeir séu þingmenn og varpa djúp- sprengjum á svokallaða kafbáta. Viðhorf sænsku stjórnarinnar er semsagt að Svíþjóö eigi nóg meö farandverkamennina, þó ekki bætist við íslenskir þingmenn, atvinnulaus- ir.” Þegar ég hafði þannig útskýrt máhö fyrir vini mínum, á alþjóöleg- um grundvelh, tók hann gleöi sina aftur og viö sættumst heilum sáttum. Við ræddum síðan nokkra stund um enska fótboltann en sUtum síöan taiinu og kvöddumst meö virktum. En nú hafa borist fréttir frá Tyrk- landi þess efnis að þar í landi sé lokiö smíöi stjórnarskrár, og þykir verkið hafa gengiö vel, enda tyrknesk köku- menning ekki jafnlangt komin og grimi út af togarainnflutningi? Heföi ekki veriö þægilegra lifið hjá Gunn- ari heföi hann getað bannaö blööum að birta yflrlýsingar Ingvars um getuleysi stjórnarinnar? (Þaö er auðvitaö spuming undir hvaöa ákvæði slíkt bann heföi faUið, hvort yfirlýsingamar eru skaðlegar efna- hagslifi landsins eöa hvort væri verið aö upplýsa ríkis- eöa atvinnu- leyndarmál.) Þá em í tyrknesku stjórnarskránni ákvæði sem banna stofnun pólitískra samtaka og banna pólitísk-, allsherj- ar- og samúðarverkföU. Heföi Gunn- ar haft slíkt vopn viö belti sitt hefðu þeir LlU-menn ekki komist upp meö moöreyk. Svo má nefna aö í Tyrklandi verö- ur framvegis bannaö að stofna póU- tíska flokka sem „miða að því að efla stjórnmálaöfl eftir stéttum í landinu.” Hér eftir skal þaö vera „stéttmeðstétt.” Það væri kannski vert að fá hingaö nokkra tyrkneska ráögjafa sauma- klúbbnum tU aöstoöar. Það er alveg víst aö sænska ríkisstjómin væri tilbúin að borga undir þá fariö. ÓBG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.