Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1982, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1982, Blaðsíða 2
2 DV. LAUGARDAGUR 9. OKTÖBER1982. Eimskip og Hafskip stofna fyrirtæki tii reksturs farþegaskips Eimskip og Hafskip hafa stofnað siglingarnæstasumar. rekstrargrundvelli skipsins. Komið sumar. sjáfstætt hlutafélag, Farskip hf., til Félögin athuguðu hvort í sínu lagi hefur í ljós að slíkur rekstur ætti að Einar Hermannsson hefur verið að annast útgerð bílaferju og far- rekstur slíkrar bílaferju. Af hag- vera mögulegur yfir sumartlímann. ráðinn framkvæmdastjóri Farskips þegaskips milli Reykjavíkur, Bret- kvæmisástæðum ákváðu þau síðan Gert er ráð fyrir vikulegum hf. og Ágúst Ágústson markaðs- lands og Þýskalands. Skipið byrjar að vinna saman að könnun á siglingum frá Reykjavík næsta stjóri. -JH SIMI 81530 Sigfús HaUdórsson tónskáld. verðið á notuðu SAAB-bflunum koma þér þægilega áóvart. Veit vel að ég átti ekki að tala í símann — segir fyrrum skúringakona Davíðs Oddssonar „Ég átti ekkert að vera að tala í símann hans, ég efast ekkert um það. Þetta var bara vitleysa og fljót- færni í mér,” sagði ræstingakona sú sem komist hefur í fréttirnar vegna einkasima Davíðs Oddssonar borgarstjóra. „Eg var að tala í símann á skrif- stofunni þegar hann kom að mér. En ég var ekki að tala til útlanda. Eg var að tala út á land. En ég veit vel að ég átti ekki að gera þetta,” sagði konan. Hún er rúmlega fimmtug og hefur ræst skóla í borginni i nokkur ár. Var hún í afleysingum á borgarskrif- stofunum er síroamáiið kom upp. Eins og fram kom í DV í fyrradag, kom Davíð Oddsson að ræstingakon- unni um kvöldmatarleytið. Telur Davíð að konan hafi verið aö tala til útlanda. Oskaöi hann eftir þvi aö hún ræsti ekki f ramar h já sér. -KMU. Sigfús Halldórsson íhljómleika- ferð til Færeyja Myndin er tekin á vesturenda bryggjunnar, en eins og sjá má hallast hún mikið fram. DV-mynd GS/Akureyri Akureyrarhöfn byggð á sandi ,,Hún sígur hægt og rólega, en hún hægir á sér ár frá ári,” sagði Guðmundur Sigurbjörnsson, hafnar- stjóri á Akureyri, aðspurður um vöru- höfnina við Oddeyrartanga. Þegar bygging vöruhafnarinnar var vel á veg komin tóku menn eftir því að hún var á hraðri niðurleið. „Húrraði” hún mikið niður til að byrja með, en síðan hefur hún hægt á sér. Það er suð- vesturhorn bryggjunnar sem sígur hraðast. Hefur þaö sigið um eina 25 cm NOTAÐIR frá því að farið var að fylgjast með sig- inu með mælingum. Þaö er því kominn góður vatnshalli á dekk bryggjunnar. Að sögn Guðmundar hefur komiö til tals að rétta dekkiö af, en sú aögerð þykir þó ekki knýjandi enn sem komið er. Að sögn Guðmundar er ástæðan fyrir siginu sú að hún er byggð á vatnssósa sandi. Vatnið pressast síðan úr sandin- um vegna þungans frá hafnarmann- virkjunum með þeim afleiðingum aö KOMDU OG SKOÐAÐU URVALIÐ BILAR oglattu viðlegukanturinn sígur. „Við vonum bara að vatnið sé að verða búið, þannig að sigið stöðvist fyrr en síðar,” sagði Guðmundur Sigurbjömsson. -GS/Akureyri Sigfús Halldórsson tónskáld heldur á morgun í hljómleikaferð til Færeyja ásamt Friðbimi G. Jónssyni tenór og Snæbjörgu Snæbjarnardóttur sópran. DV hafði samband við Sigfús af þessu tilefni og spurði hann um aðdraganda ferðarinnar: „£g skemmti í sumar á norrænu teiknikennaramóti á Laugarvatni. Þar var einnig kór frá Klakksvík. I honum var bæjarstjórinn í Klakksvík sem sýndi áhuga á því að ég kynnti lögin mín í Færey jum. Ég sló til og við förum til Færeyja á morgun og verðum í viku. Við höldum tónleika í Þórshöfn, Klakksvík og á Eyrarbakka. Einnig stendur til að taka upp tónleika sem við verðum með í útvarpshúsinu í Þórshöfn.” Sigfús var spurður um fyrri hljómleikaferðir: „Ég hef ferðast töluvert hér innan- lands með tónleika. Erlendis hef ég sungið i BBC i Bretlandi á stríðsárun- um og árið 1947 var ég með tónleika í útvarpinu í HelsinkL I hittifyrra fórum við Guðmundur Guðjónsson í hljómleikaferð um íslendingabyggðir í Bandarík junum og Kanada. Ég hef aldrei haldið tónleika fyrr í Þórshöfn, þótt ég þekki staðinn vel, en ég hlakka til að troða þar upp ásamt Friðbirni og Snæbjörgu,” sagði Sigfús Halldórsson að lokum. -gb. Prestvígsla í Dómkirkjunni Tveir nýir prestar verða vígðir á morgun. Þeir eru Sigurður Arngríms- son sem settur er til þjónustu í Hríseyjarprestakalli og Bragi Skúla- son sem ráðinn hefur verið til starfa hjá Fríkirk jusöfnuðinum i Hafnarfirði. Biskup Islands, PéturSigurgeirsson, vígir prestana og fer athöfnin fram í Dómkirkjunni. Vígsluvottar verða séra Stefán Snævarr, séra Kári Vals- son, séra Bemharður Guðmundsson og séra Emil Bjömsson. Þórir Stephensen dómkirkjuprestur ann- ast altarisguðsþjónustu og dómkórinn og Marteinn H. Friðriksson leiða kirkjusönginn. ÓEF Nauðungaruppboð sem auglýst var i 113. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1981 og 1. og 4. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1982 á eigninni Brekkutangi 2, Mosfells- hreppi, þingl. eign Guðmundar K. Stefánssonar, fer fram eftir kröfu Jóns Magnússonar bdl. á eigninni sjálfri mlðvikudaginn 13. október 1982, kl. 15.30. Sýsiumaðurinn i K jósarsýsiu. Nauðungaruppboð annað og síðasta á eigninni Hæðarbyggð 25, Garðakaupstað, þingl. eigin Helgu Jónsdóttur, fer fram á eigninni sjálfri mánudaginn 11. október 1982, kl. 14.30. Bæjarfógetinn i Garðakaupstað. Nauðungaruppboð annað og síðasta á eigninni Asbúð 28, Garðakaupstað, þingl. eign Ama Hróbjartssonar, fer fram á eigninni sjáifrí þriðjudaginn 12. október 1982, kl.16.30. Bæjarfógetinn í Garðakaupstað.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.