Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1982, Síða 11
DV. MÁNUDAGUR 22. NOVEMBER1982.
11
„Miðuð við þekkingu og
áhugasvið 6-10 ára barna”
— segja höfundar bókarinnar Húsdýrin okkar
Höfundar bókarinnar Húsdýrin okkar, Stefán Aðalsteinsson, höfundur
taxtans, og Kristján Ingi Einarsson sem tók Ijósmyndirnar sem bókina
prýða.
Húsdýrin okkar heitir ný íslensk
bamabók sem Bjallan hefur sent frá
sér. Höfundur texta bókarinnar er
Stefán Aðalsteinsson en Kristján Ingi
Einarsson tók þær 70 litmyndir sem í
bókinni eru. I fréttatilkynningu frá
Bjöllunni segir m.a.: „I bókinni er lýst
húsdýrum: kúnni, kindinni, geitinni,
svíninu, hestinum, hundinum, kettin-
um og hænunni. Um öll þessi dýr er
getið hvað pabbinn, mamman og af-
kvæmið heitir. Þá kemur líka fram á
hverju dýrin lifa og til hvers þau eru
notuð hvertfyrir sig.”
Blaðamaður DV rabbaði við höfunda
bókarinnar þá Stefán Aðalsteinsson og
Kristján Inga Einarsson. Stefán sagði
að þeir hefðu báðir unnið viö bækur
fyrir Bjölluna, en þá hvor í sínu lagL
Hann hefði skrifað bók um sauökindina
og þá hefði komið til tals að þörf væri á
bók um ÖU húsdýrin. Kristján Ingi
hafði tekið myndimar í barnabókina
Krakkar Krakkar fyrir BjöUuna og
forlagið hefði síðan átt hugmyndina að
þvi að þeir ynnu saman að bók um ÖU
húsdýrin. Stefán sagði að í bókinni
væri fjallað um átta dýrategundir og
miðaö væri við þekkingu og áhugasvið
sex tU tíu ára barna.
Kristján Ingi sagði að þaö væri mikU
dirfska af forlaginu að ráðast í að gefa
út bók með svo mörgum Utmyndum
því það væri mjög dýrt, sérstaklega
þar sem hér væri á ferðinni barnabók
og hingað til hefði verið talið aö bama-
bækur mættu ekki kosta jafnmikið og
bækur fyrir fullorðna. Hann sagði að í
raun væri verið að láta reyna á hvort
skilningur væri fyrir hendi á því að
barnabækur þyrftu aö vera jafnvand-
aðar (ef ekki vandaðri) en bækur fyrir
fuUorðna.
Um myndanotkun í bókinni sögðu
þeir Stefán og Kristján að bæöi texti og
myndir sköpuöu eina heUd en þær
væra einnig nauðsynlegar fyrir yngstu
börnin sem ekki lesa og hvettu þau tU
að frá að vita meira um dýrin. Síðan
væri heilmikUl fróðleikur í lesmálinu
sem læs böm ættu þama aðgang að.
Að lokum sögöu þeir að þeir væru
DV-myndBj. Bj.
ekki í vafa um að ÖU böm ættu skiUð að
eignast þessa bók. Þeir sögðust vona
að foreldrar, ömmur og afar brygðust
ekki bömum sínum þ ví þeim veitti ekki
af þessari bók nú þegar börnin kynnt-
ust ekki dýrunum í eins ríkum mæU og
áður, öU böm hefðu gaman af dýrum.ás.
TEPPAHÖLUN
Ármúla 22 - Slmi 32501
Ódýru og vönduðu Berber ullarteppin komin
aftur. Verð aðeins kr. 298 ferm.
PRÓFKJÖR SJALFSTÆÐISFLOKKSINS:
JÓNAS BJARNASON
ER FULLTRÚI ÞEIRRA SEM
VILJA BREYTINGAR
- VILT ÞÚ BREYTA KJÖRDÆMASKIPUNINNI 0G GERA
KOSNINGARÉTT JAFNAN?
- VILT ÞÚ LYFTA ATVINNULÍFINU UPP ÚR STÖÐNUN?
- VILT ÞÚ EFLA STÖÐU NEYTENDA?
• ÞESS VEGNA KJÓSUM VIÐ HANN
STUÐNINGSMENN