Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1982, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1982, Síða 14
14 DV. MÁNUDAGUR 22. NOVEMBER1982. I iðnaðinum felst vonin Viö þessi tvö hunduð og f jörutíu þús- und sem í sameiningu stöndum aö því kraftaverki sem búseta í þessu landi er borfumst í augu viö ýmsar grýlur nú á þessum skammdegisdögum. Er þá ekki átt viö þær sem bömin þekkja og ofan komu af fjöllunum? Heldur erátt við hinar efnahagslegu og pólitísku grýlur. Sumar þeirra eiga djúpar rætur langt úti í heimi og rekja ættir sínar til atvinnuleysis, svartsýni, minnkandi eftirspurnar og þar meö þröngra markaösaðstæöna sem bitna á lítilli þjóö eins og okkar sem byggir af- komu sína á frumframleiöslugreinum og sölu fullunninna vara til erlendra þjóða. Við þessu veitist okkur erfitt aö sporna. Og sama gildir um aflaminnk- un sem veldur rýmun útflutnings- tekna. En aörar af þessum grýlum em því HalldórÐnarsson miður heimatilbúnar. Þær birtast í af- leiöingunum af úreltri og rangri land- búnaöarstefnu til margra ára. Þær birtast í sífelldri útþenslu ríkisins og auknu stofnanaveldi. Þær birtast í óaröbærum f járfestingum. Þær birtast í sundurlyndi landsfeöranna og úr- ræðaleysi í þjóöaríþrótt Islendinga — veröbólguglímunni. En þessar heimatilbúnu grýlur getum við kveöiö niöur. Og það er við- fangsefni stjórnmála hér á landi næstu missirin. Annars megum viö undirbúa okkur undir svartnætti atvinnuleysis- ins, sem þegar öllu er á botninn hvolft, er það versta sem við getum staöiö frammi fyrir. En til þess aö árangur náist veröum viö aö horfa jákvæöum augum fram á veginn. Viö þurfum aö gera okkur ljóst, hvar vaxtarbroddurinn er. Við þurfum aö átta okkur á því, hvaöa at- vinnugrein getur tekiö viö vinnufúsum höndum í framtíðinni. Allar efnahagsskýrslur og fram- tíöarspár sýna aö iönaðurinn er eini raunhæfi farvegurinn fyrir vinnuaflið sem kemur út á markaöinn á næstu árum. En það vantar almenna viður- kenningu á þessum staöreyndum og það vantar aö farið verði aö vinna í samræmi viö þessar staðreyndir í sí- vaxandimæli. Eg er sannfæröur um aö íslenzkur iðnaður mun standa undir þeim vonum sem framtíð íslenzka velsældarþjóö- félagsins byggist á. En til þess aö svo megi veröa þurfa fleiri aö vera þeirrar skoðunar en viö sem störfum í iönaðin- um. Okkar hlutverk er aö stuðla að hug- A „Allar efnahagsskýrslur og framtíðar- ^ spár sýna að iðnaðurinn er eini raunhæfi farvegurinn fyrir vinnuaflið sem kemur út á markaðinn á næstu árum,” segir Halldór Einarsson. Að vinna prófkjör á skrefamælingu Eru þaö tilviljanir að nokkrir þingmenn Reykjavíkur eru að gjöra skrefatalninguna svonefndu aö hávaðamáli enn á ný. Eða á kannski prófkjörsbarátta þeirra þar ein- hvernþáttí? Var Ellert B. Schram ritstjóri aö hefja þá baráttu 10. nóvember síöast- liöinn, er hann ritar leiöara í Dag- blaöiö-Vísi sem ber yfirskriftina ,,Burt meö skrefatalninguna”? En grein þessi er samansett af ósannindum og vanþekkingu. Þannig segir Ellert aö skrefatalningin hafi veriö þvinguö í gegn á höfuðborgar- svæöiö, en ekki hróflaö viö skrefa- talningu dreifbýlisins eöa innan- bæjartöxtum annars staöar. Þetta er alrangt, hrein ósannindi, því aö þann 1. nóvember 1981 var alls staðar á landinu þar sem sjálfvirkar símstöövar eru tekin upp mæling á innanbæjar- eöa innansveitar- símtölum. Og lækkun lang- línusímtala er aö sjálfsögðu sú sama hvort heldur talaö er frá lands- byggöinni til Reykjavíkur eöa frá Reykjavik út á land. Síðan segir hann aö óvildarmenn Reykjavíkur hafi ekki mátt til þess hugsa aö þaö væri ódýrara aö tala milli Háaleitis og Sogamýrar en Akureyrar og Hafnarfjarðar. Það hefur ekki verið farið fram á neitt í þá átt. Heldur aö þaö kosti jafnt aö tala frá Dalvík til Akureyrar sem á milli Reykjavíkur og Hafnarf jaröar. En í dag kostar 60 mínútna símtal á laugardegi eöa sunnudegi milli Akureyrar og Dalvíkur kr. 99,80 en símtal í 60 mínútur sömu daga á milli Reykja- víkur og Hafnarfjarðar kr. 0,99 eöa hundraðfaldur munur. Þaö er þessi mikli munur sem þarf að jafna. En hvemig lítur dæmiö út á þeim tímum sem skrefamælingin er á innan- bæjarsímtölunum? Þá kostar simtalið Dalvík-Akureyri í 60 mínútur kr. 198,60, en Reykjavík- Hafnarfjöröur kr. 10,90 eöa rétt tæpur 20 faldur munur. Hverjir hefðu greitt? I Dagblaöiö-Vísi ritar Jóhanna Siguröardóttir alþingismaður kjallaragrein 16. nóvember og f jallar þar um óréttmæti skrefatalning- arinnar og telur að þaö veröi aö afnema hana og helst að hverfa til fyrra ástands. Bendir Jóhanna á, máli sínu til stuðnings, aö þær breytingar sem uröu meö tilkomu skrefatalningarinnar hafi leitt til tekjutaps Pósts og síma um 22,8 milljónir króna. Og víst er það staðreynd aö meö óbreyttri tíma- lengd símtala heföu tekjur Pósts og síma orðiö þessum milljónum hærri. En hverjir heföu þaö veriö sem þær hefðu greitt? Jú, einmitt dreifbýlið, landsbyggðin. Og þrátt fyrir aö sím- gjöld dreifbýlisbúa hafi lækkað, standa þeir enn undir 50% af síma- tekjum Landssímans þó að þeir séu aöeins41% símnotenda. Þaö er undarleg jafnaöar- mennska aö vilja enn auka þennan mismun. Eg vona aö þingmenn dreif- býlisins láti ekki staðar numiö meö því jöfnunarskrefi sem stigið var meö skrefatalningunni 1. nóvember 1981. En það vantar mikiö á aö hlutur landsbyggöarinnar sé þar aö fullu réttur. Þannig eru símnotendur á svæðisnúmeri 91, það er Reykjavík, Mosfellssveit, Bessastaöahreppur, Garöabær, Kópavogur, Seltjarnar- nes og Hafnarfjörður á einu og sama gjaldsvæði. En notendur annarra svæðisnúmera, t.d. 96 eöa 99 verða aö una því aö vera skipt í þrjú mis- munandi gjaldsvæöi. Þannig eru Akureyri og Dalvík með svæðisnúm- er 96, en hlutfallið á gjöldum milli þeirra og höfuðborgarsvæöisins er Kjallarinn GaröarHannesson eins og áöur er getið. Það sama dæmi gildir um aöra staöi á landinu, svo sem Seyðisfjörður-Reyðarfjörður, Akranes-Borgames, Selfoss-Hella. Þaö er talað um aö atkvæöamunur á milli fámennustu kjördæmanna og Reykjavíkur sé allt aö fimmfaldur, en hér er þaö hundraðfaldur munur á 60 minútna símtali laugardaga og sunnudaga og á öörum dögum frá 19.00 aö kvöldi til kl. 8.00 aö morgni. Þaö þarf enga stjómarskrár- breytingu til aö jafna þennan mun, en það þarf pólitískan vilja. Garöar Hannesson, stöðvarstjóri Pósts & síma, Hverageröi. Segjum samringum upp £ „Ef maöur ber saman það sem stjórn- málamenn segja um ástandið og skoðar þær tillögur, sem fyrir liggja, verður ekki séð annað en þjóðareining ríki um kjaraskeröingar br á ðabir g ðalaganna. ’ ’ Rúnar Sveinbjömsson Augljóst er að nú eru miklir erfið- leikar hjá islenska auðvaldinu. Nú eins og alltaf þegar svo ber við eru rekin upp ramakvein, heimtaðaraö- geröir af hálfu ríkisvaldsins og verkafólki uppálagtaöspara og sýna skilning á vanda þjóöarbúsins. Auð- veldasta leiðin og sú sem alltaf er farin á einhvern hátt er árás á kjör launafólks í þessu landi. Olafslög skertu kaupmátt launa reglubundiö meö skerðingu á kaupmætti launa. Einn helsti tilgangur bráöabirgða- laganna er aö skeröa vísitöluna um helming nú 1. desember næstkom- andi eöa um nærri 10%. Með þessum aðgerðum eru ómældar milljónir færöar frá verkafólki til atvinnurek- enda. Fyrir hvaö er svo verkafólk aö blæða? Jú, þaö er fyrst og fremst óstjórn auðvaldsins. Offjárfesting í sjávarútvegi, skraninnflutningur og fleira sem verkafólk hefur ekkert meö að gera. Þetta efnahagsástand er aö fullu á ábyrgð þeirra sem fara meö stjóm efnahagsmála og at- vinnurekstrar. Ef ég keypti mér stórt hús og nýjan bíl get ég ekki vænst aðstoðar frá rík- inu, ef ég stend ekki undir afborgun- um, þegar að skuldadögum kemur. En þetta gera t.d. útgerðarmenn. Þeir minnka á engan hátt einka- neysluna, þeir kaupa ný skip, standa ekki undir afborgunum, en þá kemur rikisstjómin og hleypur undir bagga og allt verður í fínu lagi áfram. Verkafólk sníöur sér stakk eftir vexti en þaö gera atvinnurekendur ekki. Svo er verkalýðurinn látinn borga brúsann þegar offjárfestingin og villt samkeppnin hefur fariö með allt tilfjandans. . Ríkisstjórn og Alþingi Augljóst er aö verkafólk hefur ekk- ert aö sækja til alþingismanna eða ríkisstjórnar. A þingi eru allir sam- mála um innihald bráöabirgöalag- anna nema sjálfstæöismenn og krat- ar vilja ganga lengra í átt til skerö- ingar. Bæði Sjálfstæðisflokkur og Al- þýðuflokkur lýstu því yfir fyrir síð- ustu kosningar aö endurskoöa þyrfti vísitölukerfiö þannig aö koma mætti í veg fyrir víxlverkun kaupgjalds og verölags sem á aö vera aöalverð- bólguvaldurinn. Þaö aö koma í veg fyrir víxlverkun kaupgjalds og verö- lags í gegnum vísitölu er ekkert annaö en að leggja vísitölukerfið niö- ur. Maður á erfitt meö að trúa aö á Al- þingi sé stjómmálalegt öngþveiti. Ef maður ber saman þaö sem stjórn- málamenn segja um ástandið og skoðar þær tillögur, sem fyrir liggja, veröur ekki séð annaö en aö þjóöar- eining ríki um kjaraskeröingar bráöabirgöalaganna síðan Alþýöu- bandalagið geröist kjaraskerðingar- flokkur. Þáttur verkalýðs- hreyfíngarinnar Eins og menn muna var á síðasta ASl-þingi kosin forysta sem endur- speglar ríkisstjómarmynstrið. Á þessu þingi kaus alþýðubandalags- fólk sjálfstæöismann á móti alþýðu- flokksmanni. Síöan hefur stefna ASI verið eitt allsherjarumburðarlyndi gagnvart ríkisstjóminni. Nægir þar aö minna á þá samninga sem hafa verið gerðir síöan þessi stjórn tók viö. I lok samningstíma- bilsins hefur verkafólk alltaf staðið verr. Þó kastar fyrst tólfunum þegar samningar hafa veriö undirritaðir og stjórnin skeröir þá um heil 9% án þess nokkuö sé aö gert utan venju- legra mótmæla. Seg/um samningunum upp Þaö ætti að vera augljóst mál aö þetta er einungis forsmekkurinn aö því sem koma skal. Sú ríkisstjóm sem tekur viö af þessari verður áreiðanlega síst betri en sú sem nú situr. Því er nauðsynlegt fyrir verka- lýöshreyfinguna aö fara aö spyma við fótum, búa sig undir átök og gefa skit í allar ríkisstjórnir. I þeim samningum sem nú eru í gildi eru ákvæði um heimild til upp- sagnar ef hróflað er við visitölunni meö lögum. Nú hefur þaö gerst og þess vegna eru samningar uppsegj- anlegir. Hvort verkafólki tekst aö verja laun sín ræðst fyrst og fremst af styrkleika verkalýðshreyfingarinn- ar. Þarhafa kosningar og ríkisstjórn ekkert aö segja eins og nú er ástatt. Nægir þar að benda á afstöðu verka- lýösflokkanna, Alþýöuflokks og Al- þýðubandalags. Alþýöubandalagiö hefur sýnt þaö í ríkisstjórn og Al- þýðuflokkurinn meö afstööu sinni til vísitölunnar. Rúnar Sveinbjörnsson rafvirki.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.