Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1982, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1982, Blaðsíða 32
40 DV. MANUDAGUR 22. NOVEMBER1982. Andlát Hólmlaug Halldórsdóttlr lést 13. nóv- ember. Hún fæddist aö Garöakoti í Hólahreppi, Skagafirði, dóttir hjón- anna Ingibjargar Jósepsdóttur og Halldórs Gunnlaugssonar. Eftirlifandi maöur hennar er Árni Stefánsson. Varö þeim tveggja bama auöiö. Utför Hólmlaugar verður gerö frá Fossvogs- kirkju í dag kl. 13.30. Magnús Ölafsson, Hofteigi 6, lést i Borgarspítalanum 18. nóvember. Vigdís Jóna Dagný Pálsdóttir, Faxa- braut 25 Keflavík, lést aö morgni hins 19. nóv. í Sjúkrahúsi Keflavíkur. Jarð- arförin auglýst síöar. Þorgerður Gróa Pálsdóttir frá Siglu- firöi andaðist 14. nóvember. Utförin hefur fariö fram í kyrrþey aö ósk hinn- ar látnu. Vilemo Kaijser andaðist þann 17. nóvember 1982. Jarðarförin fer fram í Malexander kyrka föstudaginn 26. nóv. kl. 13. Guömundur Marel Gíslason veröur jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 23. nóv. kl. 15. Auðbjörg Jónsdóttir, Hjarðarhaga 56, lést 13. nóvember 1982. Jaröarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinn- ar látnu. Elka Jónsdóttir, Eiríksgötu 13, veröur jarðsungin frá Fossvogskirkju þriöju- daginn 23. nóv. kl. 13.30. Tilkynningar Stórkonsert í Haf narbíói Föstudaginn 26. nóv. stendur félagsskapurinn Upp og ofan fyrir stórkonsert í Hafnarbiói. Er konsertinn tileinkaöur loftköstulum félags- manna. Meðal þeirra sem fram koma eru Hjörtur Geirsson, Jói á hakanum, Trúðurinn, Hin konunglega flugeldarokksveit, Vonbrigði og Þeyr. Konsertinn hefst kl. 10 og er aðgangseyrir kr. 100. Félagsmenn fá að vanda 20% afslátt á aðgangseyri. Kvenfélag Kópavogs Fundur verður í félagsheimilinu fimmtudag- inn 25. nóvember kl. 20.30. Venjuleg fundar- störf, bingó. Sjálfsbjörg Reykjavík og nágrenni Skrifstofa félagsins, Hátúni 12, tekur á móti munum á basar sem haldinn verður laugar- daginn og sunnudaginn 4.-5. desember í Sjálfsbjargarhúsinu. Samtök um kvennaathvarf Félagsfundur verður haldinn mánudaginn 22. nóvember kl. 20.30 í Sóknarsalnum, Freyju- götu 27. Kvenfé/ag Kópavogs verður með félagsvist þriðjudaginn 23. nóvember í Félagsheimili Kópavogs kl. 20.30. Allir velkomnir. Kvenfé/agið Seftjörn varð að fresta fundinum í síðustu viku. Ákveðið hefur verið að hafa skemmtifundinn þriðjudaginn 23. nóvember kl. 20.30 í félags- heimilinu á Seltjamamesi. Gestir fundarins verða konur úr Kvenfélagi Grindavíkur. Samtök gegn astma og ofnæmi halda kökubasar laugardaginn 27. nóvember kl. 13.00. að Norðurbrún 1, gengið inn sjávar- megin. Félagsmenn og velunnarar sem gefa vilja kökur hafi samband við Báru í síma 32269 eða komi þeim á laugardaginn milli kl. 11 og 12.30 að Norðurbrún 1. Húsmæðrafélag Reykjavíkur Sýnikennsla verður í félagsheimilinu að Baldursgötu 9, þriðjudagskvöldið 23. nóvem- ber kl. 20.30. Sýnikennslan er á vegum Slátur- félags Suðurlands og verða kynntar nýjungar í matargerð úr lambakjöti. Konur, fjöl- mennið. Kvenfélag Neskirkju Aðalfundur félagsins verður haldinn þriðju- daginn 23. þ.m. kl. 20.30 í safnaðarheimilinu. Skemmtiatriði, kaffiveitingar • Konur, takið með ykkur gesti. Frá Blindravinafélagi íslands, Ingólfs- stræti 16 Rvk Dregið hefur verið í merkjasöluhappdrætti sem selt var dagana 16.-17. október sl. Vinningsnúmer eru þessi: 6426, 14051, 21306, 10241, 18431, 5465, 8169. Vinninga má vitja á skrifstofu félagsins Ingólfsstræti 16 Reykjavík. Sportkafarafélag! Reykjavíkur heldur kynningarfund á starfsemi sinni mánudaginn 22. nóvember kl. 20.30. Fundur- inn verður haldinn að Fríkirkjuvegi 11 (húsi Æskulýðsráðs Reykjavíkur), skráð verður á námskeið félagsins. Allir áhugamenn um sportköfun velkomnir. Frá Skákfélagi Hafnarfjarðar Nýlokið er haustmóti Skákfélags Hafnar- fjarðar. Keppendur voru 24.1 a-flokki sigraði Ævar Stefánsson, hlaut 5,5 vinninga af 7 mögulegum. I öðru sæti varð Björn Fr. Björnsson með 5 vinn. og í 3.-5. sæti Jóhann Jónsson, Jón Magnússon og Sigurberg Elent- ínusson með 4,5 v. I unglingaflokki sigraði Þröstur Hjartarson, 2. varð Kristinn Ingva- son og 3. Kristinn Sævaldsson. I flokki 12 ára og yngri sigraði Sigurður Þór Daníelsson, 2. Vikan 22. nóv.—27. nóv. Útdregnar tölur í dag 7,14, Upplýsingasími (91)28010 (Jm helgina LÉTT YFIR KASTUÓSI Jú, þaö ber ekki á öðru en aö maöur sé aðeins oröin léttur, ha, hik. Eitthvað á þessa leið mátti heyra í Kastljósi á föstudagskvöld, þegar helgin steig sín fyrstu skref. Og þaö verður að segjast aö dagskrá rfltis- fjölmiðlanna hafi bara veriö nokkuð létt um helgina, þó auðvitað ekki eins ogþauíKastljósinu. Talandi um Kastljósið, þá kom þessi þáttur mér mjög á óvart, ekki síst áfengisþambiö. Þar gat aö líta fjögur ungmenni taka athyglispróf fyrst án áhrifa og síðan eftir aö nokkrum dobbluöum haföi verið skolaö niöur. Vissulega brýnt aö reka sterkan áróöur gegn ölvunar- akstri. En þrátt fyrir þessar tilraunir fannst mér einhvem veginn sem áróöurinn gegn ölvunarakstrinum kæmist ekki nógu vel til skila. Var ekki nógu afgerandi. Vonandi hefur þátturinn þó orðið til þess aö færri ökumenn bjóöi okkur hinum og þeim sjálfum upp á þá ógæfu að aka með Bakkus í blóðinu. ,,Og hér í sjónvarpinu er komiö aö Lööri,” sagöi kynnirinn á laugar- dagskvöldinu og sýndi okkur hvernig gott flúor virkar. Lööriö svíkur mann aldrei og enn finnst mér þátturinn vera frískur og fyndinn. Þó hef ég heyrt hjá ýmsum að froðan þyki ekki nægilega smeflin þessar vikurnar. Hvaö um það, nýi glamorinn, ,,Svín- iö”, virðist vera sannur „pokamaö- ur” og ætlar greinilega að hreiöra vel um sig viö hliðina á henni Jessíku. Og hann virðist eiga létt með aö hilla kvenfólkiö, kappinn sá, þótt nýkominn sé úr bananaátinu. Hans trikk er aö tala um litla sæta fugla og falleg blóm þegar kvenfólk er annars vegar. Alveg öruggt aö maöur reynir þetta á dansgólfinu um næstuhelgi. Vegna rafmagnsleysis sá ég lítið af Félagsheimilinu en heyrði þeim mun meira skrækt. nokkuð dökkt yfir þessum myndaf lokki að mínu mati. Og þá er þaö hún Alice. Hún býr ekki lengur hér, því miður. Stór- skemmtileg mynd þar sem pjakkur- inn var óborganlegur. Stráksi fór á kostum og ætlaði ég að rifna úr hlátri þegar kappinn byrjaöi að gapa. Sannarlega góö stund fyrir framan kassann. Jæja, helgin er búin og best aö drifa sig í háttinn. Biö að heilsa öflum litlum sætum fuglum og falleg- um blómum. Sjáumst um næstu helgi. Blessá meöan. Jón G. Hauksson varð Lúðvík Arnarson og 3. Marinó Jónsson. Hausthraðskákmótið verður þriðjudaginn 23. nóvember, kl. 19.30. Teflt er í íþróttahúsinu við Strandgötu og er öllum heimil þátttaka. Unglingaæfingar eru á þriðjudögum, kl. 17 til 19. Foreldra- og vinafélag Kópavogshælis Félagsfundur verður haldinn þriðjudaginn 23. nóvember nk. kl. 20.30 í matsal Kópavogshæl- is. Aríðandi umræður um sundlaug hælisins, vetrarstarfið o.fl. / Rithöfundakynning Bókasafnið í Mosfellssveit gengst fyrir rithöf- undakynningu á mánudagskvöldið 22. nóv. nk. kl. 20.30. Auður Haralds kemur og les úr verkum sínum, m.a. úr nýrri bók sem kemur úr fyrir þessi jól og nefnist Hlustarðu á Mozart? eða Ævintýri fyrir rosknar vonsvikn- ar konur og eldri menn. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Náttúruverkur blað Félags verkfræðinema og Félags náttúrurfræðinema viö Háskóla Islands, er komið út. Er það 9. árgangur þess rits. Sem fyrr hefur verið leitast við aö hafa í blaðinu nokkuð f jölbreytt efni, bæði fræðandi, gagnrýnið og skemmtilegt. Fjallað er um málefni sem eru í brennidepli um þessar mundir, s.s. stóriðju, 33. fund Alþjóðahval- veiðiráðsins, vatnatilgátuna um frumþróun mannsins, skaðvalda á fósturþroskum, erfða- verkfræði og náttúruvernd. Náttúruverkur hefur löngum haft það að leiðarljósi að stuðla að aukinni og gagnrýnni umræðu um samskipti manns og náttúru, vísindi og hlutverk þeirra. Slík umræða er ákaflega mikilvæg í samfélagi þar sem tækni- væðingin er í algleymingi, sérfræðingaveldið vex stöðugt og maðurinn fjarlægist náttúruna æ meir. Blaðið fæst víða í bókaverslunum og í Bóksölu stúdenta v/Hringbraut. Áskriftar- síminn er 38708. Fjalakötturinn Fimmtudaginn 18. nóv. 1982 hófust sýningar á myndinni Roots, Rock, Reggae. Sú mynd er gerð á Jamaica 1978, leikstjóri er Jeremy Marre. Hér er reynt að gefa aimenningi inn- sýn í það umhverfi sem reggaetónlistin er sprottin úr. Fram kemur hljómsveitin Ras Michael and the sons of Negus. Þeir leika á þau sérstöku ásláttarhljóðfæri sem eru ein- kennandi fyrir reggaetónlistina. Einnig koma fram margir fleiri tónlistarmenn og má þar nefna Bob Marley. Stór hluti af reggae er rastafari, lifsskoðun þeirra er trúa á Jah. Rastafarimenningin á rætur sínar að rekja til fátækrahverfa Kingston, höfuðborgar Jamaica. Þar, líkt og í flestum stórborgum þriðja heimsins, eru andstæðurnar hrópandi. Tónlistin fer ekki varhluta af þessu en þó beinist pólitík hennar frekar að tilfinningum fólksins en pólitískri sannfæringu, líkt og í blústóniist bandarískra negra nítjándu aldar. Einnig verður sýnd á mánudag myndin Hnífur í vatninu. Leikstjóri er Roman Polanski og er myndin gerð í Póllandi 1962. Þetta er fyrsta mynd hans i fullri lengd og hefur hlotið fjölda verðlauna. Hún fjailar um ung hjón sem ætla að eyða helgi um borð í seglskútu. Á leiðinni taka þau upp í bílinn ungan puttaling og þegar á leiðarenda er komið bjóða þau honum að koma með á segl- skútunni. Milli þessa fólks myndast mikil spenna. Yfirlitssýning á verkum Jóns Þorleifssonar í Listasafni íslands Vegna ágætrar aðsóknar að yfirlitssýn- ingunni á verkum Jóns Þorleifssonar í Lista- safni Islands hefur verið ákveðið að fram- lengja hana um eina viku. Á sýningunni eru alls 107 listaverk, oliumál- verk, steinprent og vantslitamyndir og er elsta myndin frá 1914. Yfirlitssýningunni lýkur sunnudaginn 28. nóvember og er því hver síðastur að nota þetta einstæða tækifæri til að kynnast verkum Jóns Þorleifssonar, en flest verkanna eru í einkaeign. Sýningin verður opin daglega, virka daga kl. 13:30—16 enumhelgarkl. 13.30—22. Karlakór Reykjavíkur heldur þrenna hljómleika i Háskólabíól Næstkomandi miðvikudag, föstudag og laugardag (24., 26. og 27. nóvember) heldur Karlakór Reykjavíkur tónleika fyrir styrktar- félaga sína og gesti í Háskólabíói og hefjast þeir kl. 19 miðvikúdag og föstudag en kl. 15 á laugardag. Á söngskrá kórsins eru að vanda íslensk og erlend lög en í nokkrum þeirra syngja einsöng þeir Hilmar Þorleifsson, tenór; Hjálmar Kjartansson, bassi; Hreiðar Pálmason, barí- tón, og Snorri Þórðarson, barítón. Guðrún A. Kristinsdóttir aðstoðar með píanóleik. Páll Pampichler Pálsson er stjórnandi en hann er nýkominn frá Vínarborg þar sem hann stjórnaði 2. áskriftartónleikum Sinfóníu- hljómsveitar tónlistarmanna í Wiener- Neustadt. Á tónleikum þessum voru m.a. flutt tvö nútímaverk tileinkuð Páli eftir tónskáldin Wemer Schulze („Snúnmgur”) og Herbert Zagler („Kaleidoskop”). Auk þeirra var flutt 4. sinfónía Brahms. Páll fékk þar mjög góöa dóma og segir t.d. blaöiö Niederösterreichische Landeszeitung í Wiener-Neustadt, eftir að hafa hælt báðum nútímaverkunum, að Páll Pampichler sé maður sem hægt sé að gefa hrósyrði. Túlkun hans á þessum verkum hafi algjörlega verið í anda tónskáldanna og hann hafi sýnt nákvæmni og vandvirkni í hvívetna, ekki síst f síðari hluta efnisskrárinnar, er leikin var 4. sinfónía Brahms, sem sé viðkvæmt verk, en þar hafi Páll þó sýnt ákveðni og áhrifamikla túlkun. Peter Schuster, sem gagnrýnina skrifar, bætir við að Páll sé viðkunnanlegri í fram- komu á sviði en hinn mikli skari „Show-diri- gent”. Hann sé fyrst og fremst samvisku- samur stjórnandi í orðsins fyllstu merkingu og vinni af nákvæmni eftir verkum tónskáld- anna og formi þau með hljómsveitinni í anda þeirra af mikilli snifld. Minningarspjöld Minningarspjöld Mígrensamtakanna eru seld á eftirtöldum stöðum: Blómabúðinni Gríms-- bæ, Bókabúðinni Kleppsvegi 150, Félagi ein- stæðra foreldra, hjá Erlu síma 52683, Björgu s. 36871, og hjá Regínu s. 32576. Minningarspjöld Langholtskirkju Minningarspjöld Langhoitskirkju fást á eftir- töldum stööum: Versl. Holtablóminu Lang- holtsvegi 126, sími 36711, Versl. S. Kárason, Njálsgötu, sími 34095. Safnaðarheimili Lang- holtskirkju og hjá Ragnheiöi Finnsdóttur Álfheimum 12, sími 32646. Minningarspjöld Kvenfélags Hafnarfjarðarkirkju fást í bókabúð Böðvars, Blómabúðinni Burkna, bókabúð Olivers Sterns og verslun Þórðar Þórðarsonar. Minningarkort Sjálfsbjargar. Reykjavík: Reykjavíkur Apótek, Austurstræti 16. Garðs Apótek, Sogavegi 108 Verslunm Búðargerði 10 Afmæli 70 ára afmæli á i dag, mánudaginn 22. nóvember, Björn Guðmundsson, for- stjóri verslunarinnar Brynju. — Hann tekur á móti gestum í Snorrabæ (Austurbæjarbíói) kL 4—7 síðdegis. """".\ Fé/agasam tökí Framleiði og útvega alls konar félaasmerki.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.