Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1982, Side 34
42
DV. MÁNUDAGUR 22. NOVEMBER1982.
BREIÐHOLTI
SÍMI76225
Fersk blóm daglega.
Verktakar
Viljum taka á leigu tvo steypubíla frá 1. maí-1. október 1983.
Kaup koma til greina.
Tilboð sendist auglýsingadeild DV fyrir 10. des. nk. merkt
„Steypubílar”.
■ Samtök
Psoriasis- og
exemsjúklinga
Afmælísfundur
verður haldinn fimmtudaginn 25. nóvember kl. 20 í Súlnasal
Hótel Sögu.
Dagskrám.a.:
Jón Guðgeirsson læknir kynnir nýja göngudeild og fleira.
Sænskur læknir kynnir nýtt lyf.
Sýnd verður kvikmynd frá sænsku Psoriasissamtökunum.
Kynntur verður nýr ódýr ljósalampi með UVB geislum.
Fortíð og framtíð samtakanna rædd.
Rætt um sólarferð til Lanzarote.
Mætum öll á afmælisfundinn.
SPOEX.
Tilboð óskast
í eftirtaldar bifreiöar sem skemmst hafa í umferðaróhöppum:
DatsunSunny árg. ’81
Daihatsu Charade Runabout árg. ’79
Datsunl20Y árg. ’76
Galantl600 árg. ’80
Lada árg. ’79
DatsunCherry árg. ’80
Datsun 220e dísil árg. ’79
Simca 1508 g.t. árg. ’78
MinilOOO árg. ’78
Lada 1500 árg. ’80
Trabant árg. ’78
VW 1300 árg. ’73
Bifreiðarnar verða til sýnis mánudaginn 22/11 1982 kl. 12—17.
Tilboðum sé skilað til Samvinnutrygginga f. kl. 17 23/11 ’82.
SAMVINNU
TRYGGINGAR
ÁRMÚLA3 SÍMI81411
5
Vistheimilið Sólborg
auglýsir tU sölu
eftirtalda muni og áhöld
Fyrir miðstöðvarkerfi:
1 stk. vatnsgeymir án spírals en einangraöur, 2801
1 stk. vatnsgeymir án spírals en einangraður, 4801
1 stk. vatnsgeymir með spíral og einangraður, 800—10001
3 stk. þrýstikútar fyrir lokuð miðstöðvarkerfi, 901
dælur, rennilokar o. fl.
Skrifstofuáhöld:
Facit Model 1820 rafmagnsritvél, vals 42 cm
Rex Rotary f jölritari, spritt
Apeco ljósritunarvél.
Annað:
Bauknecht frystiskápur, 2951
Singer 2ou iðnaðarsaumavélar, 2 stk. hentugar fyrir skóla.
Ericson innanhúss kallkerfi, 20 lína miðstöð ásamt sama
fjölda taltækja.
Sjúkrarúm barna.
Upplýsingar veittar í síma 96—21755 kl. 9.00—16.30 mánud.-
föstud.
MIKLAT0RGI
SIMI 22822
Nýjar bækur Nýjar bækur
Hvað gerðist
á íslandi 1981
Bókaútgáfan öm og örlygur hf.
hefur sent frá sér bókina Hvað gerðist
á Islandi 1981 — Árbók Islands eftir
Steinar J. Lúövíksson. Er þetta þriðja
bókin í árbókaflokki — áður hafa kom-
ið út bækur um árin 1979 og 1980 eftir
sama höfund.
Hvað gerðist á Islandi 1981 er sam-
tímasaga innlendra atburöa rakin i
máli og myndum. Myndaritstjóri
bókarinnar er Gunnar V. Ándrésson
fréttaljósmyndari hjá Dagblaðinu &
Vísi en ljósmyndir eftir flesta kunn-
ustu fréttaljósmyndara landsins eru í
bókinni, auk þess sem myndskreyting-
ar eru eftir Gísla J. Ástþórsson sem
túlkar með þeim skoplegu hliöina á
ýmsum atburöum sem f jallað er um í
bókinni.
I bókinni er efninu skipt niður í
flokka eftir eðli atburða og gangur
mála rakinn í yfirlitsgreinum, þannig
að lesendur eiga að fá glögga yfirsýn
yfir hvemig mál hófust, hvernig þau
þróuðust og hver málalok urðu, svo
fremi að þau hafi þá legið fyrir.
Bókin Hvað geröist á Islandi 1981 erí
stóm broti og er hún 400 blaösíöur
þannig að hún er mjög efnismikil, enda
á þar að vera getið um flest það er frá-
sagnarvert þótti á innlendum vett-
vangi á árinu. Sem fyrr greinir er bók-
in prýdd miklum f jölda mynda, og eru
þær um 400 talsins.
Bókin Hvað gerðist á Islandi 1981 er
sett, umbrotin, filmuunnin og prentuð
hjá Prentstofu G. Benediktssonar, en
tvær fyrri bækumar höfðu verið
prentaðar erlendis. Bókband er unnið
hjá Arnarfelli, en kápuhönnun
annaðist Sigurþór Jakobsson.
Njóttu mín
eftir IMettu Muskett
Hörpuútgáfan á Akranesi sendir nú
frá sér nýja ástarsögu eftir ensku
skáldkonuna Nettu Muskett í þýðingu
Snjólaugar Bragadóttur.
Netta Muskett hefur skrifað fjöldann
allan af ástarsögum. Þrjár þeirra hafa
komið út á íslensku og eru algjörlega
uppseldar.
Ástarsagan Njóttu min er spennandi
og áhrifamikil saga ungrar stúlku og
móður sem er ofurseld ástríðum sín-
um. Um leið og hún nýtur karlmanna
er hún kvalin sektarkennd í hjóna-
bandi sínu. Þetta er bók sem skilur eft-
ir spurningu um það hvar hamingjuna
er að finna.
Bókin er 160 bls. Prentuð og bundin í
Prentverki Akraness hf.
Ferðin til
sólar
eftir Hjördísi Einarsdóttur
1 byrjun vikunnar kom út hjá Bóka-
útgáfunni Helgafelli ljóðabókin Ferðin
til sól^r eftir Hjördísi Einarsdóttur.
Hjördís er fædd 11. júní 1930 og ólst
upp í Reykjavík. Á uppvaxtarárum
Hjördísar var það æösta takmark kon-
unnar að eignast góðan maka og böm.
Einnig vann Hjördis á skrifstofu í 10 ár
og rak gistiheimili um skeið. Eftir
hálfs árs spítalalegu og erfiöa upp-
skurði ákvað hún aö hverfa aftur til
náttúrunnar og hefur nú búið með
manni sínum um nokkurra ára skeið
að Hnúki í Klofningshreppi í Dala-
sýslu.
Hjördís er vel hagmælt og hefur
fengist töluvert við að yrkja, bæði rím-
að og órímað, þó að þetta sé hennar
fyrsta ljóöabók.
I Ferðin til sólar eru 27 órímuð ljóð
er flest lýsa viðhorfi höfundar til
sveitalífsins og sveitinni meö ferskum
augum borgarbúans.
Ferðin til sólar er 41 bls. — Kápu-
mynd er eftir Lísbeti Sveinsdóttur, -
sem er dóttir Hjördísar. Bókin er
prentuð í Víkingsprenti.
Óska-
steinninn
eftir Ármann Kr. Einarsson
Bókaforlagiö Vaka hefur nú sent á
markað bók eftir Ármann Kr. Einars-
son sem heitir Oskasteinninn. Með
bókinni vill forlagið kynna nýrri kyn-
slóð ævintýraheim Ármanns og segir i
kynningu aö bókin sé með öllum ein-
kennum þessa vinsæla höfundar, hún
sé ljúf og létt, góð og glettin. I þessari
sögu er hversdagsleikinn ekki grár,
heldur blandaöur lífi og lit — og áður
en varir taka ótrúleg ævintýri að ger-
ast.
Oskasteinninn, sem Vaka gefur nú
út, er aukin og endurskoöuö útgáfa Ár-
manns af bókinni Oskasteinninn hans
Ola. Hún kom út fyrir tveimur áratug-
um, seldist þá upp og hefur verið
ófáanleg síðan. Nú gefur Vaka nýrri
kynslóö kost á að eignast sinn Oska-
stein.
Oskasteinninn er um 100 síður að
stærð, teikningar í bókinni eru eftir
Halldór Pétursson, en hún er sett og
búin til prentunar hjá Korpus hf., en
prentun og bókband annaöist Oddi hf.
ÁRMANN KR. EINARSSON
l P Jr 1 I •. • t' f t f M §
Gilitrutt
með myndum Brians
Pilkingtons
Iðunn hefur gefið út þjóðsöguna um
Gilitrutt með litmyndum eftir
Brian Pilkington. Bókin er með sama
sniði og Ástarsaga úr f jöllunum eftir
Guörúnu Helgadóttur sem út kom í
fyrra og hefur nú verið gefin út í ýms-
um löndum, en Brian gerði einnig
myndir í þá bók. Er hún nú komin á
Norðurlandamálunum öllum nema
finnsku og síöast á færeysku. Gilitrutt
er hér prentuð eftir texta þjóðsagna
Jóns Ámasonar. Prentmyndastofan
hf. litgreindi myndirnar en Oddi
prentaði bókina.
Ljósmynda-
bókin
eftir John Hedgecoe
Bókaklúbbur Álmenna bókafélags-
ins hefur sent frá sér mikla bók um
ljósmyndatækni og ljósmyndagerð eft-
ir J ohn Hedgecoe prófessor í Ijósmynd-
un við Konunglega listaháskólann í
London. Þessi bók er þannig úr garði
gerð að hún hæfir jafnt byrjendum sem
vönum ljósmyndurum, þ.e. hún fjallar
um allt frá undirstöðuatriðum um töku
mynda og vinnslu þeirra, til flókinna
þátta eins og röðun á myndflöt, vinnu á
ljósmyndastofu og myrkrastofutækni.
Fyrstu kaflarnir fjalla um mynda-
vélar, linsur og annan útbúnað viö
myndatöku, síðan eru teknar fyrir
svart-hvítar myndir, eiginleikar
þeirra og vinnsla, þá litfilmur á sama
hátt o.s.frv. Næst er fjallað í ítarlegu
máli og með myndum um töku ljós-
mynda og hagnýtingu ljóssins til að ná
margs konar blæ og áhrifum, innihald
mynda, mannamyndir, ljósmyndun
hreyfingao.s.frv.
Þá er fjallaö rækilega um myrkra-
herbergið, síðan sérstök viðfangsefni
svo sem um ljósmyndun í vatni, mynd-
un stjarna og himingeimsins, geymslu
filma og mynda o.m.fl. I lok bókarinn-
ar eru glöggar skrár og skýringar
orða.
Mikill fjöldi skýringarmynda fylgir
hverjumkafla.
Ljósmyndabókin er 352 bls. að stærð
og unnin bæði hér heima og suður á
Italíu.
Bókaklúbburinn gefur út þessa bók í
samvinnu við bókaútgáfuna Setberg.