Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1982, Page 6
6
DV. FÖSTUDAGUR17. DESEMBER1982.
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Háar upphæöir þarf að greiða fyrir
húshitunarolíu og eru neytendur
Úthlutun olíustyrkja gengur hægt:
HVAR
LIGGJA
PENING-
ARNIR?
Öánægjuraddir frá Neskaupstaö og
Hnifsdal.
Hringt hefur veriö og skrifað til neyt-
endasíöu vegna úthlutunar oh'ustyrks
sem berst neytendum í hendur fá-
einum mánuöum á eftir áætlun.
Olíustyrkur er greiddur út á hverjum
ársfjóröungi og þá 350 krónur fyrir
hvem fullorðinn mann. Neytendur
spyrja hvort sveitarfélög hafi leyfi til
að hggja með olíustyrk í þrjá mánuöi.
Frá Neskaupstaö fengum við þær
upplýsingar að 5 manna fjölskylda
hefur greitt 14.150 krónur fyrir hús-
hitunarohu fyrstu tíu mánuði ársins.
Þau hafa 120 fermetra íbúð í fjölbýlis-
húsi, og fengu fyrsta ohustyrkinn á
miöju þessu ári, en hann var fyrir
fyrstu þrjá mánuði ársins. Síöan hefur
úthlutun dregist sem því nemur, og
ERTÞÚ
viðbúinn
x vetrarakstri? x
yUMFEROAR
RÁÐ
samkvæmt þessu veröur þaö ekki fyrr
en næsta vor sem olíustyrk verður
úthlutaö fyrir síöustu mánuöi þessa
árs. — Þá stóöu m.a. í bréfi frá Hnífs-
dal þessar línur: „Það hefur ahtaf
verið komiö 2—3 mánuöi fram y fir árs-
fjórðungstímabilið þegar við fáum út-
hlutaðan ohustyrk. Einhvers staðar
hggja þessir peningar vaxtalaust, en
hvar?”
Ingvi Ólafsson í við-
skiptaráðuneytinu svarar:
„Þetta er sveitastjórnunum að
kenna. Þeir biöja sumir hverjir ekki
um pening fyrr en tveim vikum eftir
aö ársfjórðungi lýkur,” sagöi Ingvi.
„Þaö berast of seint tölur frá hreppum
og stundum þurfum viö aö biöja þá um
að senda inn tölur og fá olíustyrk,”
bætti hann við.
Viö neytanda á Neskaupstað var
sagt aö „þeir” hefðu leyfi til að hggja
meö olíustyrkinn í þrjá mánuði. Sagði
Ingvi aö ekki væri það tekiö fram í
reglugerð. Neytendum ætti aö hafa
borist ohustyrkur mánuði eftir hvem
ársfjóröung. Gera má ráð fyrir 2
vikum sem fara í útreikninga og
sendingar frá landsbyggöinni til
Reykjavíkur og síðan öörum 2 vikum
óhressir að fá olíustyrkinn ekki
greiddan fyrr en ársfjórðungi of
seint. DV-mynd E.J.
þar til hreppar hafa móttekið sending-
arfrá ráðuneytinu.
Hermann Ólafsson,
bæjarskrifstofum Neskaup-
staðar svarar:
„Við sendum ekki frá okkur beiðni
um ohustyrk, fyrr en við heyrum aug-
lýst að úthlutun sé hafin úr ríkissjóöi,”
sagöi Hermann. Bætti hann því við aö
auglýsing frá ríkissjóði hefði enn ekki
borist um úthlutun fyrir þriðja tíma-
bihð.
Sagði Hermann ohustyrkjum vera
úthlutað þegar þeir bærust. „Uthlutun
er auglýst í vikublaði, en margir sækja
hann ekki fýrr en eftir dúk og disk,”
sagði hann. En þá hefur styrkurinn
verið sendur í pósti, þótt það sé neyt-
andans að bera sig eftir honum.
Taldi hann það ef til vih vera sök i
beggja aðila, hve seint ohustyrkurinn
berst neytendum í hendur.
-RR.
Gjöfín
sem gefur arð
Sodastream tækið er tilvalin
jólagjöf fyrir alla fjölskylduna.
Gerið sjálf gosdrykkina og
sparið meira en helming.
Sól hf.
Þverholti19, sími 91-26300
Raddir neytenda
JÓLAHUGLEIÐ
ING UM NEYT-
ENDASÍÐUNA
Sólveig Eiríksdóttir skrifar frá
Esklfiröi:
Æ styttist tU jóla og hvarflar hug-
urinn tU þeirra eins og þegar bréf-
ritari var á löggiltum tiUilökkunar-
aldri sem virðist því miður vera
settur við um það bU 12 ár. Eg
hlakka þó tU og ófrávUtjanlegur
hluti af mínum undirbúningi fyrir
jólin er að föndra, kUppa út, líma
saman og svo framvegis.
Aður en lengra er haldiö meö
það efni vU ég nöldra yfir því að
mér finnst neytendasíða blaðsins
hafa verið afskaplega slöpp und-
anfariö, það er að segja lítið efni
hefur verið annað en verðkannanir
og verslunarferðir í Reykjavík.
Síðan er mun hflegri og
skemmtilegri og fjölbreyttari þeg-
ar birt eru bréf frá lesendum,
uppskriftir og ýmisleg húsráð.
Sorglega htið hefur sést af því efni
að undanförnu. Eg bið ykkur aö
bæta úr því og í öllum bænum
reynið að hafa efnið sem mest,
gjarnan heila opnu eöa að minnsta
kosti eina og hálfa síðu í hverju
blaði. Dagblaöið hefur frá upphafi
verið með vakandi umræðu um
neytendamál fyrir neytendur og
margt hefur komiö fram. Það má
alls ekki minnka sem aö fóUtinu
snýr þegar blaöið sameinast öðru.
Það eru mál sem koma hverjum
einasta landsmanni viö þegar rætt
er um rekstur heimilanna.
Eitt vil ég fara fram á. Hafðar
verði föndursíöur vegna komandi
jóla í mánuðinum. önnur beiðni:
Er hægt að fá birta smáköku-
uppskrift sem birtist í DV í fyrra í
nóv., des., trúi ég? Kökumar heita
púðursykurskökur og voru sérlega
ljúffengar og fljótlegar.
Spuming: Þegar efni er pliseraö
eru þá notuð sérstök tæki við það
þannig aö ekki er unnt aö gera slíkt
í heimahúsi? Svar óskast.
Þá er hér uppskrift að ljúffengu
kryddbrauði. AUir sem eiga í vand-
ræðum með meltinguna ættu að
gera sér slíkt og neyta í ein-
hverjum mæli. Þetta er afar fljót-
leg uppskrift og er því best að byrja
á því að kveikja á bakarofninum og
stilla á 185 gráður.
160 g púðursykur
160 g sigtimjöl (blanda af rúgmjöh
og heilhveiti).
2 tsk. kakó
1 tsk. sódaduft
120 g haframjöl
1 tsk. kanill
1 tsk. neguU
1/41 m jólk
ÖUu blandaö saman og hrært.
Bakað við 185 gráðu hita í um 40
mínútur, styttra þó í blástursofni
og kannski lengur í sumum öðrum.
Borðið með smjöri. Þetta brauð
inniheldur talsvert jám og B-víta-
mín.
Aö lokum bestu kveðjur og
endUega að láta sjást meira en því
nær eintómar verökannanir. Skihð
því tU ritstjómarinnar að leggja
meira upp úr neytendasíðunni því
að þaö er eingöngu hennar vegna
sem DVer keypt á mínu heimili.
Svar:
Þakka þér fyrir bréfið og
uppskriftina, Sólveig. Viö Þórunn
gætum ekki verið meira sammála
þér um að neytendasíðan er of Util.
Auglýsingar streyma allt of hratt
inn í blaöiö fyrir okkar smekk. En
það er víst á þeim sem þetta blað
Ufir að verulegu leyti þannig að
ekki er svo gott að gera neitt við
því. Við ráðum ekki við að stækka
blaöiö meira en orðið er af
tæknilegum ástæðum í prentverki.
Þú segist kaupa blaðið eingöngu
vegna neytendasíöunnar. Við
gleðjumst að sjálfsögðu yfir því.
Hverjum þykir sinn fugl fagur. Og
hrædd er ég um aö aðdáendur
fréttanna, lesendasíðunnar,
kjaharanna, bókadómanna og alls
annars efnis sem í blaðinu er létu
frá sér heyra ef neytendasíðan yröi
auglýsingalaus á meðan „þeirra”
síður væru fuUar. Það verður að
reyna aö jafna þessu niður og það
vanþakkláta verk kemur í hlut
okkar ágætu útlitsteiknara. Eg
öfunda þá ekki þessa dagana því að
alUr starfsmenn ritstjórnar eru sí-
fellt aö biöja um meira pláss, pláss
sem ekki er til. En þessar elskur
ætla að reyna að láta okkur hafa
auka neytendasíður núna fyrir
jóUn. Vonandi komum við þá ein-