Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1982, Blaðsíða 40
VELDU
ÞAÐ'
RÉTTA —
FÁÐUÞÉR
CLOETTA
i|f;
FomfviirtafnKiáníninffliðlkðtoklað
(arlsbetfr u m boöieu
STmi 20350.1
Skákmótið íBrighton:
JónLí
efsta sæti
Eftir 5 umferðir á skákmótinu í
Brighton er Jón L. Arnason efstur
ásamt Hodgson og Westerinen, með 3
vinninga. Övíst er um röö næstu
manna vegna fjölda biðskáka en ólík-
legt er talið aö nokkur nái að skjótast
upp fyrir þremenningana. Guðmundur
Sigurjónsson er meö 2,5 vinninga og
Jóhann Hjartarson er með tvo.
I þriðju umferð geröi Jón jafntefli
við Jóhann eftir harða baráttuskák en
Guðmundur sigraöi Watson. Hafði
Guðmundur hvítt og tefldi hvasst gegn
drekavörn Watsons og þegar viö blasti
drottningarfóm og mát á eftir gafst
Bretinn upp. 1 fjóröu umferð gerðu
Islendingarnir allir jafntefli, Jón L. viö
Westerinen, Guömundur við Sham-
kovitch og Jóhann við Murey. 5.
umferð var svo teflt í gær og varð það
sama uppi á teningnum. Jón og
Guðmundur sömdu jafntefli eftir
harða viðureign, þar sem Guðmundur
slapp fyrir hom eftir ónákvæma
byrjun á hvítt en góöa vörn í miðtafli.
Jóhann gerði jafntefli við Short.
-BH.
Dýrustu
bílastæði
á landinu
I fjárhagsáíftlun Reykjavíkurborgar,
sem rædd var á fundi borgarstjórnar í
gær, er gert ráð fyrir að borgin kaupi
bílastæði í kjaUara nýbyggingar sem á
að rísa í Pósthússtræti 13. Er fyrirhug-'
að að borgin kaupi 13 bílastæði af 22 og
er kaupverðið 6 mUljónir króna, eða
tæp hálf milljón á hvert stæði. Yrðu
þaö væntanlega dýmstu bílastæði á
landinu öUu. TU samanburðar má geta
þess aö ef byggt yrði bUageymsluhús í
Tryggvagötu myndi hvert stæði kosta í
mesta lagi 100 þúsund krónur ef miðað
er við dýrustu lausnina. Átta tUlögur
eru nú til athugunar um bUageymslu-
hús og er þar gert ráð fyrir frá 100 og
upp í 1300 bUastæðum.
ÓEF
Tvöjólablöð DV
32 síðna jólablað fylgir DV á morgun.
Helgarblaðið verður þá samtals 80
síður. Á mánudaginn fylgir líka 32
siðna blað hinu hefðbundna blaði
þannig að DV verður einnig 80 síður á
mánudaginn.
LOKI
Láglaunabæturnar voru
fljótar að brenna upp í
verðbólgunni.
Raunverulegt tap útgerðarinnar komið í30-38%
GENGISFELUNG UM
ÁRAMÓTIN12-15%
Fiskverð þarf að hækka um minnst
20% um áramót. Fiskvinnslan er
hins vegar rekin á því sem næst núHi.
Hún getur því ekki tekið á sig fisk-
verðshækkun. Því er gengisfeUing
óhjákvæmileg. Að mati sérfræðinga,
sem DV leitaði tU, eru þessar og'
fleiri forsendur fyrir því að gengi
krónunnar verði fellt um 12—15% um
áramótin.
Mikið tap er á útgerðinni. Á bátum
og minni togurum 14—15% og yfir
20% á stærri togurum. Þessi staða
gjörbreytist til hins verra um ára-
mótin. Þá falla úr gUdi niðurgreiðsl-
ur á olíu-.og vöxtum, sem muna 9—
10% í rekstri togaranna og ögn
minna hjá bátunum. Og eins feUur
niður oUugjaldið til útgerðarinnar,
sem munar 7% í rekstri.
Raunverulegt tap útgerðarinnar er
þannig komiö í 30—38% eftir skipa-
tegundum. Á hinn bóginn er fullvíst
að oUugjaldið verði framlengt og Uk-
legt að niðurgreiðslur af einhverju
tagi standi áfram. Þær er þó tæpast
hægt að fjármagna nema með
gengismun, sem fæst aðeins með
gengisfeUingu.
Rekstrarstaða útgerðar er verri nú
en fyrir ári en fiskvinnslan stendur
heldur betur en þá. GengisfelUng í
janúar í fyrra var 12%, sem þýddi
13,6% meðalhækkun á erlendum
g jaldeyri en yfir 15% á doUurum.
Nú eru aðstæður þannig að líklega
opna gjaldeyrisbankamir eftir ára-
mót með nýrri gengisskráningu á
grundvelU bráðabirgöalaga um ára-
mótaúrræði. HERB
Ýsugengd hefur veríð mikil i Faxaflóa að undanförnu. Bátarnir
hafa komið inn hver af öörum og ekki sakar að taka smákapp-
sig/ingu / lokin. Gunnar V. Andrésson, Ijósmyndari D V, tók
þessa mynd af tveimur bátum á lokasprettinum inn í Reykja-
vikurhöfn.
Gyllir ÍS sendur til hafnar
— haffærisskírteinið var ógilt „Vita upp á sig skömmina,”
segir forstjóri Gæslunnar
Togarinn GylUr IS 261 frá Flateyri
var á mánudag sendur til hafnar af
miðunum úti fyrir Vestfjörðum.
Gæslumenn á varðskipinu Oöni fóru
þá um borð í hann og kom þá í ljós að
haffærisskírteini var útrunnið og
fleira vanbúið, að sögn Gunnar Berg-
steinssonar, forstjóra Landhelgis-
gæslunnar. Til dæmis vantaði einn
bjargbát en í staðinn var annar bát-
ur, óskoðaður.
Jón Gunnar Stefánsson, forstjóri
Otgerðarfélags Flateyrar hf.,
kannaöist ekkert við það í morgun að
togarinn hefði veriö sendur inn.
Hann hefði komið í fyrradag vegna
brælu og landað. Rétt væri að varð-
skipsmenn hefðu gert smávægUegar
athugasemdir þegar þeir fóm um
borð í .hann. Búnaðarskoöun heföi
vantað en haffærisskírteinið sem
rann út 1. september verið strax
framlengt tU áramóta. Togarinn fór
afturáveiðarígær.
DV bar þessi ummæU Jóns
Gunnars undir Gunnar Bergsteins-
son og ítrekaði hann aö togarinn
hefði verið sendur til hafnar, þó
menn vildu ekki kannast við þaö.
„Þeir vita greinUega upp á sig
skömmina,” sagði hann.
JBH