Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1982, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1982, Blaðsíða 18
18 DV. FÖSTUDAGUR17. DESEMBER1982. Heyrnar- og talmeinastöð íslands óskar að ráða HJÚKRUNARFRÆÐING til heyrnarmælinga og hjúkrunarstarfa sem fyrst. Umsóknir sendist fyrir 15. janúar 1983 til stjórnar Heyrnar- og talmeinastöðvar Is- lands, Háaleitisbraut 1, pósthólf 5265. JÓLAGJÚFIN EÐA TÆKIFÆRISGJÚFIN í ÁR HEIMSINS ÞYNNSTU KVEIKJARAR Helstu útsölustaðir: Gilbert úrsmiður, Laugavegi 62 arðar Ólafsson, Lœkjartorgi Bristol, Bankastræti 6 iðar ursmiður, Hamraborg 1 'agnus Guðlaugsson, Hafnarfiri Filmuhúsið, Akureyri Tóbaksbúðin, Akureyri. Karl R. Guðmundsson, Selfossi 32. síðna jólablað fylgir mánudagsblaði meðal efnis: Pólsk og kínversk jó! á íslandi. Veglegar teikningar af gömlu jó/a- sveinunum. Jólahald sértrúarsafnaðanna. Beibí og tölvur i jólabögglum barna. A/lt um leikhús og jólakvikmyndir yfir hátíðirnar. Jólamyndagátan á sínum stað. Menning Menning Menning VÍSTITÖLU- FJÖLSKYLDA SEM FÆR FÓLK T1L AÐ BROSA — Þetta er mín terta, hvæsti ég og kreppti finguma í slepjulegri sultunni. — Hjálp. Hann ætlar að stela tertunni minni, grenjaði sú gamla og lagði báðar hendumar ofan á hina dýrmætu tertu. Konurnar sem vom aö afgreiða störðu á mig með heift í augum og ég sá að leikurinn var tapaður. ” Þennan kafla úr bókinni Við skráargatiö tek ég meö sem sýnishorn. I bókinni eru margar lýsingar á ýmsu sem okkur finnst allajafna ekkert stórmerkilegt. En allt er þetta klætt fínlegum húmor. þóttist ég kannast við að hafa lesið einn eða tvo þætti annars staðar í bókinni. Viö skráargatið hefst á þeim tíma, þegar tómarúmið er hvað mest, eftir jól og nýár, en henni lýkur um næstu jól. Þannig fáum við að fylgjast með fjölskyldunni í eitt ár. Verður ekki annaö sagt en aö viökynningin við fjölskylduna, sem Sæmundur kynnir okkur, sé hin besta. Fjölskyldufaðirinn viröist ekki mikill framkvæmdamaöur, en það bætir eiginkonan fyllilega upp ásamt bömum þeirra hjóna. Bókin er fremur stutt lesning. Engu að síður vakti hún marga góöa hlátra, auk þess sem fjölmörg bros tóku sig upp. Það er ekki sem verst núna á síðustu og verstu tímum. 1 rauninni eru sárafáar bækur skrifaöar á íslensku nú á tímum sem ætlast er til að veki kenndir sem þessar. Allt skal vera svona grá- alvarlegt og stórmerkilegt. En þess- ari bók tekst að létta skap lesandans. Sæmundur tínir til ýmis tilvik, sem flestum mun í fyrstu þykja nokkuð hversdagsleg. En honum tekst að finna skoplegu hliöina á hverjum hlut. Þannig fannst mér gaman aö lesa um snáðann, sem dundaði sér viö að mylja innihald kringlupoka í bakaríinu. Eða þegar fjölskyldufað- irinn reyndi aö losa sig við sessunaut í flugvél með aðferðum úr Handbók fyrir flugfarþega. Þá er skemmti- lega lýst hversu þungt veikindi leggj- ast á fílhrausta karlmenn, en síöur á konur og börn. Þannig mætti lengi telja. Yfirleitt held ég aö menn hitti fyrir sjálfa sig í lýsingum Sæmundar af hversdagslífi f jölskyldunnar. Atgangurá jótabasar Þegar líður að jólum (og bókar- lokum) fer fjölskyldan á jólabasar. Meðan á lestri bókarinnar stóö minnti stíll Sæmundar Guðvinssonar mig oft á danska háðfuglinn Willy Breinholst, sem öðlast hefur miklar vinsældir fyrir bækur sínar um hversdagsvandamálin. Höfundar sem þannig fjalla um dægurmálin eru sjaldgæfir hér á norðurhjar- anum. Sannarlega eru þeir þó vel þegnir. Væri gaman að fá að heyra meir frá Sæmundi við fyrsta tækifæri. Léttur og leikandi frá- sagnarmáti hans yljar í skamm- deginu. Stundum er líka áhrifameira að fjalla um vandamál líðandi stundar á þennan hátt. Bókina Við skráargatið gefur bókaforlagið Vaka út. Er þaö verk vel unnið. Teikningu á kápu gerði Þorvaldur Þorsteinsson og hönnun kápu gerði Gunnar Baldursson. Er verk þeirra mjög í anda efnis bókarinnar. Prentstofa Guðmundar Benediktssonar prentaði bókina en Bókfell hf. batt bókina, sem ber iðnaöarmönnum gott vitni. Atganginum lýsir Sæmundur m.a. á eftirfarandihátt: „Ég greip til þess ráðs að láta mig falla skáhallt fram á við í von um að ná taki á borðinu milli tveggja hold- ugra kvenna. En sú gamla sá við mér, beygði sig niður og reyndi aö höggva sér leið með hökunni. Það stóðst á endum, aö þegar ég ætlaði aö láta höndina falla á borðið var hún búin að slefa hökunni upp á borð- brúnina og ég krafsaöi bara í hárið á henni. Hún vældi hátt og örlítil geil myndaöist við hægri hlið hennar. Mér var hrint þar inn svo harkalega að ég skall með magann á boröbrún- ina, lagðist fram á það og ofan í sultutertu. Sá um leið að ekki voru aðrar tertur eftir, heldur bara nokkrir kleinupokar og smákökudót. Mér tókst að rétta mig upp og fálmaöi inn undir mig eftir tertunni. Finn þá að gamla nornin er búin að læsa beinaberri krumlunni í tertuna mína. Ssmundur Guðvinsson: tekst að finna skoplegu hliðina á hverjum hlut. Sem byrjendaverk er þessi bók Sæmundar Guðvinssonar mjög lof- samlegt verk. Án efa á Sæmundur eftir að skoða sína fyrstu bók og læra af því og byggja upp beittari stíl. Márgt er það í dagsins önn, sem skrifa má um á þennan hátt, í góðlát- legumgamantóni. Vísitölufjölskyldan verður bráð- skemmtileg í meöförum Sæmundar Guðvinssonar í bók hans Við skráar- gatið. Hér er um að ræða fyrsta bók- verk höfundarins. Aöur hefur hann ritaö ýmsa pistla í blöð, og raunar Bókmenntir Jón Birgir Pétursson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.