Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1982, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1982, Blaðsíða 11
DV. FÖSTUDAGUR17. DESEMBER1982. 11 Útlönd kosningunum í júní. En þeir boöuöu til þessara kosninga núna, aöeins hálfu ári síöar, þegar samningavið- ræöur við græningja um stjórnar- samstarf runnu út í sandinn fyrir tveim mánuðum. — Sósíaldemó- kratar hafa stýrt Hamborg, ýmist einir eöa í samstarfi við aöra, í samfleytt tuttugu og fimm ár. Þeir misstu meú-ihluta sinn í júni þegar fylgi þeirra hrapaöi niöur í 42,8% atkvæöa. Þar meö uröu kristilegir demókratar stærsti flokkur borgar- innar meö 43,2%, en græningjar komust í oddaaöstööu þegar þeir fengu þá í fyrsta sinn fulltrúa kjöma á Hamborgarþingið meö 7,7% atkvæöa. Kosningastarfsmenn sósíaldemó- krata segjast handvissir um kosningasigur aö þessu sinni og að flokkur þeirra muni endurheimta meirihluta sinn. Niöurstööur skoöanakannana benda þó til þess aö úrslitin veröi tvísýnni. I þeirri nýjustu, sem unnin var á vegum Allensbach-stofnunarinnar, hlutu sósíaldemókratar 44,2%, kristilegir demókratar 42,4% og græningjar 10%. Frjálslyndir demókratar þurrkuð- ust út af Hamborgarþinginu í júníkosningunum þegar þeir náöu ekki tiiskyldum fimm prósentum. Af skoöanakönnunum að dæma sýnist fyrir þeim liggja aö sitja áfram úti í kuldanum meö aðeins 2,2% fylgi. — Innan raöa flokksdeildarinnar i Hamborg hefur hver höndin veriö upp á móti annarri eftir aö frjáls- lyndir yfirgáfu Schmidt í október. Hefur ekki bólaö á neinum bata í fylgi flokksins sem í síðustu tveim fylkiskosningum Þýskalands hefur beöiö herfiiegustu ósigra. Frjálslyndir fengu aöeins 3,1% í kosningunum í Hessen þann 26. september og 3,5% í Bæjaralandi tveim vikum síöar. Margir úr vinstri armi flokksins hafa síöan yfirgefið hann til þess að ganga í raðir sósíal- demókrata eöa til myndunar nýrra fr jálslyndissamtaka. Kohl kanslari var nýlega á kosningaferö í Hamborg. Sagði hann fréttamönnum þá aö menn skyldu ekki taka úrslitin í Hamborg núna á sunnudaginn of bókstaflega sem spá um kosningaúrslitin væntanlegu í vor. Snemma í síðasta mánuði gaf skoöanakönnun á vegum Allensbach- stofnunarinnar til kynna að fylgi kristilegra demókrata á landsvísu væri 51,1%. Benti Kohl á þaö aö fylgistap hjá flokknum í Hamborg þyrfti ekki aö jafngilda tapi um land allt. Af heimamálum Hamborgara þer hæst atvinnuleysiö og í því þykir helsta tækifæri kristilegra demó- krata liggja. Hamborg hefur í gegn- um tíðina veriö mikil uppgangs- og driftarborg, en hefur fengiö aö kenna á kreppunni eöa allavega samdrátt- ar síöustu mánuði. Atvinnuleysiö í V- Þýskalandi komst í síðasta mánuöi upp í 2,04 milljónir manna á skrá, en þaö er 8,4% vinnuaflsins í landinu. I Hamborg var þaö þá þegar komið upp í 8,7%. — Meginástæða þeirrar aukningar voru fjöldauppsagnir hjá skipasmíöastöövum og verktökum, samdráttur í flugiðnaði og byggingariönaði. önnur kosningamál snúast til dæmis um kröfu græningja varðandi afnám kjamorku, fráhvarf stækkunaráætlunar á höfninni, hreinsun og mengunarvamir í ánni Elbu og loks yfirlýsingu um aö Hamborg verði kjamorkuvopnalaust svæöi. Þaö voru einmitt stefnumál sem sósíaldemókratar gátu ekki fallist á og leiddu samningaviöræöurnar við græningja í strand. Vonast sósíal- demókratar til þess aö græningjum hefnist fyrir ósveigjanleikann meö ósigri á sunnudaginn. Fari kosningamar svipað og í júní kunna stóru flokkamir tveir aö neyðast til þess að ganga í eina stjórnarsæng í Hamborg, sem aftur gæti þá orðið mikilvægt fordæmi fyrir sambandsþingið í Bonn eftir kosningarnar fyrirhuguöu í mars. VERÐ: 20" frá kr. 17.980,- 22" frá kr. 21.060,- 27" frá kr. 24.880,- Ætlar þú að fá þér: Litasjónvarp og/eða myndsegulbandstæki fyrir jól? JÓLA TILBOÐ frá kr. 5.000 út. Rest á 6 mán. Myndsegulbönd Verð frá kr. 26.980,- JÓLATILB0Ð Kr. 5.000 út. Restá 6 mán. Þá er valið auðvelt Við bjóðum mesta úrval í bænum yfir 30 mismunandi tæki frá gæðafyrirtækjunum Þú getur valið um 6 stærðir 14,16,18,20,22 og 27 tommur Videotækin frá Nordmende hafa sýnt að þau standa undir naf ni. Hjá okkur gera allir góð kaup. Fáðu þér tæki fyrir jól. Við höfum verslað með sjónvörp i 20 ár og gerum það enn. Reynsla okkar er þinn hagur. Bang&Olufsen

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.