Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1982, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1982, Blaðsíða 12
12 DV. FÖSTUDAGUR17. DESEMBER1982. DAGBLAÐIÐ-VÍSIR Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjómarformaðurogútgáfustjón': SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóriogútgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aðstoðarritstjóri: HAUKUR HELGASON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON ogÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P.STEINSSON. Ristjóm: SÍÐUMÚLA12—14. SÍMI 86611. Auglýsingar: SÍDUMÚLA 33. SÍMI 27022. Afgreiðsla, áskriftir, smáauglýsingar, skrifstcrfa: ÞVERHOLTI11. SÍMI27022. Sími ritstjómar: 86611. Setning, umbrot, mynda-og plötugerð: HILMIR HF., SÍDUMÚLA11 Prentun: ÁRVAKUR HF., SKEIFUNNI19. Áskriftarverðá mánuði 1S0 kr. Verð ilausasölu 12 kr. Helgarblað lSkr. Áíkvörðun Geirs Geir Hallgrímsson er umdeildur maöur. Þaö fer víst ekki framhjá neinum. Andstæðingar hans í stjómmálum hafa ekki hlíft honum, en hitt er þó öllu alvarlegra, þegar eigin flokksmenn snúa viö honum bakinu. Slíkt áfall svíöur sárast. Þar heggur sá er hlífa skyldi. A það hefur veriö minnst að pólitíkin er grimm og miskunnarlaus en úrslit kosninga engu aö síður sá dómur sem stjómmálamenn verða að hlíta. Kosningaúrslit geta verið skýrð með ýmsum hætti en þeim verður ekki breytt. Ýmsir hafa hlakkað yfir útkomu Geirs Hallgrímssonar og þær hvíslingar orðið háværar að hann eigi í framhaldi af prófkosningunum að segja af sér, draga sig í hlé af lista sjálfstæðismanna. Þetta hefur einnig hvarflaö að Geir Hallgrímssyni sjálfum, eins og hann hefur greint frá. Niðurstaöan varð hins vegar sú að hann lét slag standa, stóð af sér mótlætið og ákvað að sitja í sínu sæti. I viðtalsþætti á þriðjudagskvöldið útskýrði Geir þessa ákvörðun með opinskáum og skeleggum hætti. Hann játaði vonbrigði sín og viðurkenndi áfallið. En hann sættir sig við dóminn, sem kveðinn var upp í prófkosningunum, en skýtur máli sínu til kjósenda í komandi þing- kosningum. Það er karlmannlega gert. Hvaða álit sem menn kunna aö hafa á formennsku Geirs Hallgrímssonar þá hljóta allir að virða hann fyrir æðruleysi á erfiðu augnabliki og láta hann njóta sannmælis. Það hefur enn einu sinni komið í ljós að Geir Hallgrímsson er hvorki rekald í hafróti, né spýta sem brotnar við minnsta högg. Hann hleypur ekki frá dómi kjósenda eða skyldum flokksmannsins á örlagastundu. I íslensku þjóðlífi eru veður öll válynd. Öngþveiti efna- hagsmála hefur leitt til upplausnar í stjómmálum. Litlir spámenn stökkva fyrir borð, tilkynnt eru sérframboð og, kjósendur eru að gefast upp á úrræðaleysi ríkisstjómar og Alþingis. Allir flokkar, ekki aðeins Sjálfstæðisflokkur, heldur hver og einn stjómmálaflokkanna, geta goldið þessa ástands. Þess sjást og merki. Forystumenn og þingmenn eru brennimerktir og bannfærðir af eigin flokksmönnum af minnsta tilefni. Uppreisnarseggir, lýð- skrumarar og tækifærissinnar ganga á lagið. Festan í stjómmálunum er á undanhaldi, gamalgrónir flokkar eiga í vök að verjast og mat kjósenda á kostum stjóm- málamannsins hefur brenglast. Undir þessum kringumstæðum er það hálfgerð Þóröargleði ef og þegar andstæðingar Sjálfstæðis- flokksins telja það vatn á sína myllu að stjómmála- foringjar á borð við Geir Hallgrímsson hrekist frá. Hann er fulltrúi staðfestu og stöðugleika í íslenskri pólitík, fulltrúi þeirra mannkosta sem Alþingi Islendinga þarf á að halda. Hagsmunir allra flokka eru í húfi og þá ekki síst þeirra landsmanna sem telja lýðræðinu best borgið í höndum heiðarlegra manna en ekki hentistefnumanna. Með framboðsákvörðun Geirs Hallgrímssonar er nefnilega miklu meira í húfi en persóna hans eða tiltekið þingsæti. Þar er tekist á um hvers konar menn þjóðin vill velja sér; hvers konar þing hún kýs yfir sig. Viljum við upphlaup eða ábyrgö? Viljum við skrípaleik eða skynsemi? I þeim kosningum sem framundan eru reynir á hvort lýðræðið stenst þá prófraun, þær hættur, sem upplausn og öngþveiti síðustu ára hafa leitt af sér. Geir Hallgrímsson ætlar að berjast til þrautar. Það er góðs viti. ebs Æska og elli Æska og elll, er ekki ótrúlega margt líkt meö þessum aldurshópum í dag? Hver er staöa æskunnar í dag? 16 ára eiga þau aö borga skatt af sínum lágu launum, þaö eru tekin af þeim sparimerki. Hvert fara svo þessir aurar? Jú, beint inn í hús- næðisveltu braskaranna. Fá þau þá ekki merki eins og annað fólk? Nei, ekki nema smápart af því, sem hús- næðismálastjórn fær, sem hún svo veltir árum saman. Barniö fékk lengi vel 4% ef þaö lét upphæðina velta til 25 ára aldurs. Ef þau þurfa ,að taka þessa aura vegna náms, fá þau enga vexti. Er þetta ekki líkt með okkur gamla fólkiö? Við erum búin aö vera aö borga skatta, skyldur og tryggingar alla okkar daga til þess að eiga til elliáranna. En höfum við fengiö vexti af þessu fé? Nei, síöur en svo, þaö er tekinn skattur af ellilaunum okkar, þaö er tekin af okkur kauptrygging, ef annað hjóna reynir aö klóra í bakkann. Ellilífeyrir er sagður 5000 í dag en er í raun innan viö 3000. Jú, þetta er fyrir ljósi og hita. Mundu ekki ráöherrar og aðrir toppkarlar telja þetta eitthvað fyrir sig? Sama dag og ég fékk neitun um tollfríðindi af trabbanum mínum, af því aö ég keyri ekki, sá ég í blöðunum, aö Olafur Jó hafl fengið tollfríöindi af sínum fína bíl, keyrir hann sinn bíl sjálfur? En hver er launamunur okkar Olafs, sem hefur veriö kennari í háskóla, ráöherra og guð veit hvaö? Nei, þaö eina sem viö gamla fólkið eigum að gera er aö stofna okkar eigin samtök. Viö eigum ekki aö láta kerfið sem slíkt troöa á okkur, eins og einhverjum undirmálshóp. Við getum ekki einu sinni lagt til hliöar fyrir jarðarför okkar og þá fer í verra meö blessaöan prestinn. Prestsstarfiö, eitt gróöavænsta starf eftir því sem skýrslur segja. Kirkjugarösgjald höfum við borgaö allt okkar líf. Hún hlýtur aö vera orðin dýr holan sú. Hvaö skyldi prestur fá fyrir aö jarða? Þaö er víst þaö eina sem er jafnt fyrir alla, nema heldra fólk fær þaö frítt. En nóg um okkurgamla fólkið. Kennsla í táknmáli Snúum okkur aö æskunni. Æskan er góð í dag, miklu betri en meöan ég var unglingur. Þá var það sjálfsagt aö gera hlut hins minnimáttar og sérstæöa minni. Nú er þessi þáttur í lífi hins fatlaða, blinda og heyrnar- lausa skilinn á allt annan hátt. Æsku- „Heymar- og mállaus börain standa afskekkt og hljóö meðan hin njóta heilbrigði sinnar” skrifar Laufey Jakobsdóttir og leggur til að bókin Við tölum táknmál verði sett í jólapakka baraa um allt land. JOHANNES PALL OG KENNEDY Fyrir nokkrum vikum var sýnd í Bandaríkjunum mynd, þar sem því var haldiö fram að morðtilræöið við páfa væri runniö undan rifjum KGB. Morgunblaðið skýrði frá þessari fréttamynd, en önnur blöö og fjöl- miðlar þögöu um málið í fyrstu. Eg veit til þess aö þeirri hugmynd var komið á framfæri við sjónvarpið aö þessi mynd yröi fengin hingað til sýningar, en þær ábendingar uröu árangurslausar. Hins vegar leið ekki langur tími frá dauöa Bresnefs þar til sýnd var ný fréttamynd frá Bret- landi um hinn nýja einræðisherra í Sovétríkjunum, — manninn, sem væntanlega hefur verið með í ráöum um tilræðið viö hans heilagleika. Nú er ég ekki að kvarta undan Andropovs myndinni, síður en svo.' Eg bendi hins vegar á, aö sjónvarpiö virðist vera mismunandi fljótt aðl taka viö sér um fréttaskýringar- myndir. Aftækni/egum ástæðum Þetta minnir á aö fyrir nokkrum misserum var gerö kvikmynd um Gula regniö og f jallaöi um eiturefna- hemað Sovétríkjanna víðs vegar um heim. Þessi mynd vakti heimsat- hygli, en var að sjálfsögðu ekki sýnd hér. Þaö viil nefnÚega svo til aö kvik- myndir, sem eru sérstaklega óþægi- legar málstað Sovétríkjanna eru helst ekki sýndar í sjónvarpinu. Eg hef heyrt þeirri skýringu haldið fram Kjallarinn Háraldur Blöndal aö þetta sé vegna þess, að .jsvona”' bandariskar fréttamyndir séu ein- göngu gerðar fyrir bandarískt sjón- varpskerfi. Sumir útvarpsráðsmenn trúa þessu. En þetta er eins og hvert annaö bull. Á hverjum degi sjáum viö myndir frá Bandaríkjunum. Þessar fréttamyndir um Gula regniö og morötilræöiö viö páfa hafa verið sýndar víöa um heim. Er enda tiltölulega lítið vandamál aö fá evrópskar útgáfur, ef sóst er eftir. Og alla vega er aldrei hörgull á kvikmyndum frá Bandaríkjunum ef sverta á málstaö Bandaríkjanna, ef draga á fram þá hluti, sem miöur fara í stefnu þeirra. 9 Eg nefni þar sem dæmi ótölulegar kvikmyndir af stríöinu í Víetnam, seríur af kvikmyndum um borgara- styrjöldina í E1 Salvador, þótt úr hafi dregið eftir aö lýöræöislega kjörin stjóm tók þar völdin. Og svo má ekki gleyma alls konar myndum um hugsanleg áform CIA um aö myröa hina og þessa þjóöhöfðingja um víða veröld, eða sögur af stríðsæsinga- manninum Ronald Reagan. Allirþrœðir tHSofíu Lengi vel þagði bæði útvarp og sjónvarp um allar upplýsingar um að tilræöismennirnir á Péturstorginu hafi komiö frá kommúnistaríkjun- um. Hins vegar rámar mig í aö hafa heyrt í þessum fjölmiðlum — (eða var það í Þjóðviljanum?) um að Israelsmenn hafi skipulagt þessa morötilraun. Sú frétt viröist í ljósi síðustu upplýsinga vera dæmigerð villufrétt, búin til af fréttafulltrúum KGB til þéss að blekkja. En nú verður að hrósa því sem vel er gert. Einar örn Stefánsson flutti ágætan fréttaskýringaþátt 1 útvarp- inu sl. þriðjudag og rakti þar þau tengsl, sem rakin hafa veriö milli Búlgaríu og ýmissar glæpastarfsemi á Italíu. Allir þræðirnir liggja til

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.