Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1982, Blaðsíða 7
DV. FÖSTUDAGUR17. DESEMBER1982.
7
Raddir neytenda
Sagan af
Dímmalímm
Nú er þessi
sígilda perla
íslenskra barna-
bóka komin aftur
í nýrri útgáfu.
Bókaútgáfan
fjetgofdl
Veghúsastíg 5
Sími 16837.
Fáum nýtt
lambakjöt
Upplýsingar sem við fengum hjá
Framleiðsluráði landbúnaöarins voru
rangar. Það verður selt ófryst lamba-
kjöt fyrir þessi jól. FuUyrðing okkar
um að svo yrði ekki, höfð eftir Fram-
leiðsluráði í blaöinu á þriðjudag, stenst
þvíekki.
Reyndar verða þetta ekki nein
ósköp. Síðastliöinn mánudag var
slátrað 200 gimbrum á Selfossi og er
kjötið meöhöndlað á sérstakan hátt.
Það hefur verið látið hanga við rétt
hitastig og verður alveg sérstaklega
gott að sögn Vigfúsar Tómassonar,
sölustjóra hjá SláturfélagiSuðurlands.
Kjötiö verður selt í verslunum Slátur-
félagsins og byrjar salan í dag. Þetta
kjöt verður eitthvað dýrara en það sem
slátraö var í haust, því aö búiö er aö
ala lömbin lengur og sérstaklega þurfti
að opna sláturhús til að slátra þeim.
Kjötið er frá nokkrum bændum í Rang-
árvallasýslu. Þetta er af gimbrum
sem fæddust siöastliðið vor en ekki af
lömbum sem fæddust seinna. Það
ófryst kjöt sem við höfum fengið und-
anfarnar stórhátíöir hefur hins vegar
verið af slikum séröldum lömbum. Við
gleöjumst mjög yfir þessu hér á Neyt-
endasíðunni og þykir leiðinlegt aö hafa
fariðmeðrangtmál. -ns.
Teclmics ■
Geröu drauminn aö veruleika
Teclinics Z-25
hverju jólaefni að. I jólablaðinu um
helgina verður lika heil opna með
föndri og ýmsu smálegu.
Varðandi verðkannanirnar þá
fáum við þær frá Verðlagsstofnun
að miklu leyti. Þær eru eins og þú
bendir á allar gerðar í Reykjavík
og nágrenni. En ég held aö þær geti
komið fólki úti um land einnig til
góða. Þær era jú ekki til þess eins
að taka bókstaflega heldur líka til
að miða við þegar innkaup eru
gerö. Fólk úti á landi á lika að
skoða verðmiðana á þeirri vöru
sem það kaupir og athuga hvort
verðmunur er okki eins mikill og
hér í bænum. Við birtum allar verð-
kannanir sem okkur berast með
glöðu geöi, hvaðan sem þær eru.
Einstaka sinnum gerum við eina og
eina sjálfar en þær eru langtum
fleiri en þær sem við fáum sendar.
Verðkönnun úti á landi er lika erfið
fyrir okkur sem í Reykjavík sitjum
og því er ekki úr vegi hér að biðja
fréttaritara okkar aö kanna
vöruverö hver í sínu plássi.
Að lokum fer hér uppskrift af
púðursykurkökum sem viö fundum
í blaðinu frá 10. desember í fyrra
og vonum við að það sé sú sem þú
ertaðbiðja um.
500 g púðursykur
200 g sm jörlíki, lint
500 g hveiti
1 tsk. matarsódi
5 tsk. lyftiduft
1 tsk. negull
1 tsk. engifer
2egg
Deigið er hnoðað og skorið í 5
hluta sem eru rúllaðir upp í jafn
margar, langar pylsur. Hver pylsa
er skorin í sneiðar sem raöaö er á
smurða bökunarplötuna. Um það
bil 20 stk. á plötuna. Hafið gott bil á
milli því að þær renna svolítið út.
Ofninn er hitaður í 170 stig, jafnt
yfir- og undirhiti. Kökurnar eru
bakaöar í 4—6 mínútur.
Ef pylsumar verða of linar og
aflagast við að vera skomar má
vefja þær í álpappír og setja í
frystinn í 10 mínútur.
Samkvæmt upplýsingum sem
viö fengum í versluninni Minervu,
Hrisateigi 47, þá er unnt að plisera
beinar fellingar í heimahúsi. Þá
eru þær þræddar niður og
pressaðar á venjulegan hátt. Slikar
fellingar endast þó venjulega ekki í
þvotti. Svonefnd sólplísering er
hins vegar gerö í vélum sem ekki
em til í heimahúsum. I Mínervu
kosta beinar fellingar í pils 80
krónur. Þá verður að senda pilsið
sniðiö og fald þræddan upp.
Sólplisering kostar 100 krónur í
sniðið pils og 150 í ósniðið. Þú getur
sent þeim efnið með beiöni um
vinnu og færð þaö sent aftur í póst-
kröfuefþúvilt.
Kærkveðja.
Dóra Stefánsdóttlr.
Sagan af
Dimmalimm
ftí-r'í
Verð aðeins
19.890.- stgr.
KEFLAVÍK
KAUPFELAG
HAFNFIRÐINGA
STRANDGÖTU 28
Einar
Guðfinnsson
Bolungarvík
►JAPIS hf.
BRAUTARHOLTI 2 SÍMI 27133
Teclinics m
Neytendur Neytendur