Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1982, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1982, Page 16
16 DV. FÖSTUDAGUR17. DESEMBER1982. Spurningin Hvað langar þig mest aðfá íjólagjöf? Slgríður Harðardóttir, í skóla: Eg veit það ekki, kannski skiöastretchbuxur. Ég fer mikið á skíði. Sif Slgurðardóttir, í skóla: Mig langar. held ég í skauta. Mér finnst svo gaman að fara á skauta. Dagbjartur Geir Guðmundsson vakt- maður: Það eru nú helst svona siglinga- og sjómannabækur. Eg er búinn að vera lengi sjómaður. Þorbjörg Ása Kristinsdóttir, í skóla: Ég veit ekki alveg hvað mig langar mest í. Eg held mig langi í plötuna með Olaviu Newton John. ölöf Benediktsdóttirr Ég hef ekki ákveðið það ennþá. Ég er kannski frekar á bókalinunni en þaö er engin sérstök bók sem mig langar í. Halla Lárusdóttir nemi: Bara eitt- hvað! Góða bók til dæmis. Nei, enga sérstaka. Ég les alls konar bækur. Já, alveg eins plötur líka. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur „Það ar rétt aö þeir sam vinna ( ná- vfgi við tölvur átti sig á þeirri megin reglu að tölvur gera ekki mistök" — segir Valur. Mistökin mannanna — ekki tölvanna I lesendabréfi í DV á fimmtudag seg- ir maður nokkur farir sínar ekki slétt- ar í viöskiptum sinum við Veðdeild Landsbanka Islands. Ekki skal sú frá- sögn tíunduð hér en maöurinn lýkur bréfi sínu á þeirri áskorun til Veðdeild- arinnar að hún kenni ekki tölvunni um mistökin. Forsvarsmaður Veðdeildar bregst jkarlmannlega við kvörtunum manns- ins og segist meira að segja ætla að hitta hann persónulega að máli. Hann getur þó ekki látið hjá líða að kenna tölvunni um. Hann segir aö mannleg- um mistökum sé um að kenna „þótt tölva eigi þar líka hluta af sökinni”. Þaö er rétt aö þeir sem vinna í návígi við tölvur átti sig á þeirri meginreglu að tölvur gera ekki mistök. Mistökin eru mannleg. Þau liggja hjá þeim sem við tölvumar vinna í nær öllum tilvik- um. Tölvan hefur einfaldlega ekki ver- ið frædd af þeirri nákvæmni sem nauð- synleg er. Því er vinsamlega komið á framfæri við starfsmenn stofnana sem notast viö tölvur til hagræðingar að láta af þeim leiða sið að kenna tölvum um allt sem miöur fer. Prófkjör þáttur í auknu lýðræði Dóra Þorsteinsdóttir hringdi frá Sauðárkróki: Ef svokallaö flokksbundið fram- sóknar- og alþýðubandalagsfólk tók þátt í prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins á Norðurlandi vestra, er það sjálfstæðismönnum sjálfum að kenna að það gat tekið þátt í þvr prófkjöri. Ef framsóknar- og alþýðubanda- lagssinnar, þótt óflokksbundnir séu, hafa tekið þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins, þá ættu menn að hugsa sig tvisvar um áður en þeir koma nálægt Sjálfstæðis-| flokknum. Þar er maöur skrifaður niður, geymdur í skúffu í Glaum- bæ, til þess að hægt sé að fletta upp á manni seinna. Og síðan er maður hundskammaöur af Morgunblað- inuáeftir. Prófkjör er þáttur í auknul lýöræöi en ekki „einkaeign” sem hægt er að ráöskast með að vild. rnmI k' ,,/Vú líður að jólum og flestír hlakka tíl. En á þessum irstíma herðir Ifka veturinn og fannfergi eykst. Mig langar þvi tí! þess að minna fólk á að gefa smáfuglunum, "segir Kristín Magnúsdóttir. DV-mynd: Ragnar Th. Munið eftir smáfuglunum — peningum í fóður handa þeim er vel varið Kristin Magnúsdóttir hrlngdi: Nú liður að jólum og flestir hlakka til. En á þessum árstíma herðir líka veturinn og fannfergi eykst. Mig lang- ar því til þess að minna fólk á að gefa smáfuglunum. Sá tími, sem nú fer í hönd, er sá erfiðasti í lífsbaráttu þessara litlu vina okkar. Flest getum við vel séð af þeim krónum, sem fara í að kaupa fóður handa þeim, og peningum í þau kaup er vel varið. Síöan er ekki nóg að fleygj a út nokkrum kornum stöku sinn- um. Best er að gefa fuglunum reglu- lega, þegar snjór hylur jörð og gefa þeim um miðjan dag, þegar bjartast er. Ekki gagnar mikið að strá komum á lausan snjó, heldur er rétt að þjappa hann vel, þar sem gefið er. Norsk vinkona mín setur alltaf út stóra tólgarköku. Smáfuglamir eru sólgnir í aö kroppa í feitmetið og það hjálpar þeim til þess að lifa af vetur- inn. Ef kakan er heil ráða þeir við að fá sér þaö sem þeir þurfa, en ekki er gott að gefa þeim smámola. Ef þeir fá bæði kom og tólg er þeim það mikil björg, enda er alltaf smáfuglamergð um- hverfis húsið hennar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.