Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1982, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1982, Side 24
32 DV. FÖSTUDAGUR17. DESEMBER1982. TILKYIMNING um eftirgjöf aðflutningsgjalda af bifreiðum til fatlaðra. Ráöuneytiö tilkynnir hér meö aö frestur til að sækja um eftirgjöf aðflutningsgjalda af bifreið til fatlaðra skv. 27. tl. 3. gr. tollskrárlaga er til 15. febrúar 1983. Sérstök athygli er vakin á því að sækja skal um eftirgjöf á sérstökum umsóknareyðublöðum og skulu umsóknir ásamt venjulegum fylgigögnum sendast skrifstofu Öryrkjabandalags Islands, Hátúni 10, Reykjavík, á tímabilinu 15. janúar til 15. febrúar 1983. Fjármálaráðuneytið, 15. desember 1982. NÝ SENDING kjólar buxur skyrtur dragtir peysur skór st%vél Nýjar bækur Nýjar bækur Valkyrju- áætlunin eftir Michael Kilian. Bókaforlagiö Vaka hefur sent frá sér bókina Valkyrjuáætlunin eftir banda- ríska blaöamanninn og rithöfundinn Michael Kilian. Valkyrjuáætlunin er hörkuspennandi og sögusviðið Island. I bókinni eru margar íslenskar per- sónur kallaðar til sögunnar og staldrað er við víðs vegar um landið. íslensk stjómmál, orkumál, lögreglan, Land- helgisgæslan, herstöðvarmáhð, fslenska brennivínið og íslenska kven- fólkið koma þar mjög við sögu. Leikurinn berst meðal annars til Egils- staða, Akureyrar, Grindavíkur, Blönduóss, Hveravalla, Stykkishólms ogReykjavíkur. Höfundurinn, Michael Kilian, var hér á landi um skeið meðan á síðasta þorskastríði stóö og skrifaði greinar hliöhollar íslenska málstaönum í mörg bandarisk stórbiöð, þeirra á meðal Chicago Tribune. Meðan á dvöl hans hér stóð kynnti hann sér vel allar aðstæður og er með ólíkindum hve þekking hans á staðháttum og íslensku þjóðlífier mikil. Valkyrjuáætlunin er um 280 blaösiöur að stærð. Um íslenska þýðingu sá Axel Ammendrup. Prent- stofa G. Benediktssonar annaðist setningu og prentun, en Bókfell hf. bókbandið. Sagnaþættir mjólkurbflstjóra á Suðurlandi 1. bindi Ysjur og austræna Sagnaþættir mjólkur- bflstjóra á Suðurlandi I þessu fyrsta bindi ritverks Gísla Högnasonar eru skráðir sagnaþættir eftir sunnlenskum mjólkurbílstjórum og fleirum. Mjólkurbílstjórar þjónuðu mikilvægu hlutverki í lífi og starfi sveitafólks. Hér áður fyrr fluttu þeir mjólkina frá bændum til mjólkurbúa eins og enn þann dag í dag, en þeir gerðu meira; þeir útréttuðu fyrir bændur, keyptu fyrir þá áburð, mat og jafnvel tvinna og saumnálar fyrir hús- freyjumar. Stundum þurftu þeir að borga víxla og þannig voru þeir í senn sendlar og bjargvættir bændanna. Þeir böröust áfram í hríð og ófærö og lögðu nótt við dag til að koma vamingi sínum íáfangastað. I bókinni er sagt frá bemskuárum Kaupfélags Ámesinga og Mjólkurbús Flóamanna og er bókin sérstætt fram- lag til sunnlenskrar sagnaritunar, hún fjallar um einstakt tímabp í atvinnu- sögu þjóðarinnar. Mikill fjöldi ljós- mynda prýðir bókina og henni fylgir itarlegnafnaskrá. Ritgerðir Einar Benediktsson Hjá Skuggsjá er komiö út ritgerða- safn eftir Einar Benediktsson. Er það síðara bindi óbundins máls, hiö fyrra var Sögur skáldsins, en áður hefur for- lagið gefið út Ljóðasafn I—IV eftir Einar. Þessi 6 binda heildarútgáfa á verkum Einars Benediktssonar er öll hin vandaðasta og í handhægu broti og hefur Kristján Karlsson bókmennta- fræðingur annast um útgáfuna en Haf- steinn Guömundsson bókaútgefandi séö um uppsetningu og útlit. Eru nöfn þessara tveggja smekkmanna trygg- ing fyrir vandaðri útgáf u í hvívetna. Þetta safn sem hér birtist er úrval helstu ritgerða Einars um þau efni sem hann lét sig einkum varöa og þar sem sérkennilegur still hans kemur best í ljós. Þar á meðal eru greinar hans um íslensk ljóðskáld í Dagskrá, einhver fremsta gagnrýni, sem skrifuð hefur verið á íslensku. Ritgerðir eftir Einar Benediktsson er 229 bls., setningu annaðist Prent- stofan Blik hf., filmuvinnu Prent- þjónustan hf., prentun Offsettmyndir sf. og Bókfell hf. batt bókina. Kápu- teikning er gerð af Lárusi Blöndal. Tré og runnar á íslandi eftir Ásgeir Svanbergsson Þessa dagana kemur út, að frum- kvæði Skógræktarfélags Reykjavíkur, bókin Tré og runnar á íslandi eftir Ás- geir Svanbergsson. Utgefandi er öm og örlygur. Á þriðja hundrað myndir og teikningar eru í bókinni, þar á meðal fjöldi litmynda tekinn af Vil- hjálmi Sigtryggsyni framkvæmda- stjóra Skógræktarfélags Reykjavíkur. Bókin Tré og runnar á Islandi fjall- ar, eins og nafn hennar bendir til, um tré og runna á Islandi, sögu þeirra og heimkynni ásamt leiöbeiningum um ræktun og hirðingu. Tré og runnar á Islandi opnar fólki í raun nýjím heim því í henni eru ítarlegar lýsingar, fjöldi mynda og greiningarlykla sem lýsa alls 500 teg- undum og afbrigðum trjáa og runna sem er að finna hérlendis, auk nokkurra tegunda sem vaxa í nágrannalöndunum. Bókin er unnin í prentstofu G. Bene- diktssonar. Litgreiningar annaðist Myndamót hf. Kápugerö var í höndum Sigurþórs Jakobssonar en bókbandið hjá Arnarfelli hf. Asdcir Snmlic'igsson 1IVL OG RIMIMAR AISLAJMDl Hjf ÍMI NMi WTTCiUi Á fákspori, um- hirða, þjálfun og keppni eftir Sigurbjörn Bárðarson Eiöfaxi hf, sendir frá sér bókina „Á fákspori”, umhirða, þjálfun og keppni eftir SigurbjÖrn Báröarson. Bókin „Á fákspori” er viðbót í umræðuna um ís- lenska reiðmennsku og samskipti viö hestinn. Bókin skiptist í þrjá meginþætti. I fyrsta hlutanum er fjallað um reiðhest- inn, þjálfun hans og meðferð. í öðrum hlutanum er rætt um þjálfun, uppbygg- ingu og sýningu keppnishrossa, stökk- hesta sem vekringa. I framhaldi af því er fjallaö um gæðingakeppni, íþrótta- keppni og sýningu kynbótagripa. í síðasta hluta bókarinnar er fjallað um umhirðu hesta og aðbúnað, má t.d. nefna kafla um hesthúsbyggingar, járningar og fóðrun. Mikil áhersla hefur veriö lögð á það að hálfu Eiðfaxa að gera þessa bók sem best úr garði, fjöldi ljósmynda og teikninga hefur því verið unninn í þessu skyni til glöggvunar fyrir les- andann. I bókinni eru yfir eitt hundraö ljósmyndir og teikningar. Bókin „Á fákspori” er þriðja bókin í útgáfuröð Eiðfaxa. Fyrsta bókin var „Á hestbaki” eftir Eyjólf Isólfsson og önnur var „Að temja” eftir Pétur Behrens. Um hönnun bókarinnar sá Auglýs- ingastofan, hf, Gísli B. Björnsson. Filmuvinna og prentun er unnin í Prenttækni og bókband í Arnarbergi. Bókin er prentuð á góðan myndpappír og er 136 síður. Bandaríki Norður Ameríku landogþjdA Bandaríki Norður-Ameríku Nýlega er komin út hjá bókaútgáfunni Bjöllunni 6. bókin i landabókaflokki Bjöllunnar Bandaríki Norður- Ameríku, eftir John Bear í þýðingu Helgu Guðmundsdóttur. Áður eru út komnar. Stóra Bretland, Spánn, Frakkland og Holland. Bækur þessar eru auðveldar í notkun fyrir börn og fullorðna. Lesefni er skipt niður í stutta kafla og ítarleg efnisorðaskrá auðveldar lesendum leit að einstökum atriðum. Fjöldi ljós- mynda, korta, teikninga og línurita er í bókinni. Prentstofa G. Benediktssonar sá um setningu, umbrot og filmuvinnu. Bókin er prentuð í Bretlandi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.