Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1983, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1983, Qupperneq 6
6 DV. MIÐVIKUDAGUR19. JANUAR1983. Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur NYJAR REGLUR UM VEITINGAHÚS: Skylt að auglýsa aðgangs- eyri og verð helstu veitinga — óheimilt að taka sérstakan aðgangseyri sé skemmtiatriðum lokið Veitingahúsunum hafa nú veriö sett- ar strangar reglur um þær upplýsing- ar sem þau eiga aö veita viöskiptavin- um sínum. Er þaö Verölagsstofnun sem hefur sett þessar reglur. Aðalatriðiö í þeim er aö skylt er á auglýsingu fyrir framan inngöngudyr að greina frá aðgangseyri. Sé hann hærri en almennur aögangseyrir eöa rúllugjaldiö veröur auk þess aö aug- lýsa hann í blööunum. Einnig eru ítrek- uö fyrirmæli um aö festa skuli upp verðlista þar sem kemur fram verö á helstu veitingum sem boöiö er upp á. I verðinu skal vera innifalið söluskattur og þjón.ustugjald. Verðlagsstofnun hefur líka ákveöiö aö skemmtistööum sem bjóöa upp á ákveðin skemmtiatriöi sé óheimilt aö taka sérstakan aöganseyri, þaö er aö segja hærra verö en rúllugjaldið, eftir aö skemmtiatriöunum er lokið. Sé selt inn á dansleiki þar sem skemmtiatriði eru á boöstólum skal aðgöngumiðinn vera rifgataöur og skal á þeim hluta miöans sem viöskiptavinurinn heldur eftir vera prentaö verð miðans, nafn viðkomandi veitingahúss og dagsetn- ing. Reglur þessar tóku gildi þann 7. janúar. Eins og menn rekur kannski minni til var hér á síðunni rakiö dæmi þess fyrir nokkru aö fólk hefur veriö látið greiöa sérstakan inngangseyri í Broadway eftir aö skemmtiatriðum er lokiö þar. Var haft eftir fulltrúa verð- lagsstjóra aö mikiö bærist af kvörtun- um til Verðlagsstofnunar vegna þessa. Er ekki fráleitt að ætla aö þessar nýju reglur séu orðnar til vegna þessara kvartana og eflaust einhverra á aöra staði. Nú hljóta neytendur aö veröa hið virka eftirlit meö aö þessu sé fram- fylgt. Það eru ekki bara skemmti- staðirnir sem þama em skyldaðir til að gefa góðar upplýsingar heldur veit- ingahús aJmennt. Hljóta matsölustaö- ir og kaffihús að vera undir sömu ákvæöum. I þeim öllum ættu aö vera greinilegar upplýsingar á áberandi stað um verð helstu rétta. Best væri ef sá staður væri utan dyra. Arnarhóll er dæmi um stað sem veitir þegar slíka þjónustu. DS HVAÐ Á AÐ GERA VID KERTASTUBBANA? Dóra Halldórsdóttir hringdi: Hún bað okkur aö koma áskorunum á framfæri viö lesendur að þeir sendu okkur hugmyndir um þaö hvemig nýta má afganga af kertum. Hún sagöist vera með marga stubba eftir jólin sem hún tímdi síður aö henda. Við umsjónarmenn neytendasíðunn- ar höfum aöeins heyrt um einn mögu- leika á nýtingu á svona stubbum. Þaö er að bræöa þá upp, yfir vatnsbaði, og hreinlega steypa sér ný kerti. Þá er bómullarþræði dýft í vaxiö mörgum sinnum þar til úr fæst sæmilega digurt kerti. Einnig má hella vaxinu í fallega skál sem þolir hita og hafa fyrir kerti. Kveikurinn er þá festur viö botninn með t.d. bréfaklemmu. Hellt er örlitlu vaxi á botninn og klemman fest í því. Öðru vaxi er síðan hellt í skálina og kveiknum haldiö í miöjunni á meöan þaö storknar. Þaö má gera til dæmis meö því aö leggja litla spýtu yfir skál- ina miöja og hnýta kveikinn á miöju hennar. Ekki borgar sig aö blanda saman mörgum litum af kertavaxi. Viö þaö fæst ekkert annað en einhver drullulit- ur. Best er að bræða hvem lit fyrir sig. Þá er til dæmis einn litur bræddur fyrst og honum hellt í skál. Hann er lát- inn storkna alveg áður en næsta lit er hellt ofan á. Þannig koll af kolli þar til fæst fallega röndótt kerti. Litir sem eru fallegir saman eru líka tilvaldir í blöndu. Til dæmis geta feng- ist fallega bleik kerti úr hvítum og rauðum jólakertabútum. Viö þekkjum til mjög listrænnar konu sem hefur búið til margt fallegt úr svona kertaafgöngum. Hún bræddi til dæmis upp rautt vax og ritaði nafn systur sinnar á hvítt kerti sem hún færði henni í afmælisgjöf. Notaöi hún eldspýtuenda sem hún dýföi í vaxiö til aö skrifa meö. Sama kona hefur einnig hellt vaxi á plötur, látið það hálfstorkna og skorið út úr því fallegar myndir. Sett þær síð- an á önnur kerti í öðrum lit. Með hugmyndaflugi má þannig búa til ýmislegt úr kertavaxi. En gæta verður þess aö hreinsa vel úr því fyrst öll óhreinindi, eins og gamla kveikinn. Hafi lesendur fleiri hugmyndir skul- um við meö ánægju koma þeim á fram- færi. DS Falleg kerti eru dýr og því engin ástœOa til að láta stubbana fara tH spillis. Þó að ekki só kannski hægt að búa tH svona falleg kerti úr þeim má búa tíl þokkaleg smákertí.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.