Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1983, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1983, Blaðsíða 19
DV. MEDVIKUDAGUR19. JANUAR1983. 23 íþróttir Iþróttir Iþróttir íþróttir fékk oft óblíðar móttökur þegar hann hœtti sér of naitegi vonunm njá Val. Hér er n tekur á honum. Eyjólfur átti yfir 20 skot í leiknum en skoraði ekki nema úr 7 DV-mynd: Friðþjófur. nenn fengu næt stig... leð fyrirhafnarlitlum sigri yfir Stjömunni 20-15 vítaköstum. Valsliðið var betri aðilinn í leiknum þótt ekki sýndu þeir neinn glansleik. Þeir gerðu ótrúlegar vttleysiu- en sóknamýtingin hjá þeim var öllu betri en hjá Stjömunni — eða á milli 35 og 40%. „Þetta var ekki gott en við náðum okkur þó þama í tvö góð stig til að hafa með í fallbaráttunni,” sagði Stefán Gunnarsson, þjálfari Valsmanna. „Við erum með unga stráka í liðinu og þeir eru að koma til, þetta verður gott hjá Val þegar fram líða stimdir,” sagði hann. Valsmenn höfðu yfir í hálfleik 11—9 en Stjömunni tókst að jafna í 11—11 í byrjun síðari hálfleiks. Þá komu Vals- menn með þriggja marka kafla og síðan tvo slíka á móti hverju einu marki sem Stjaman gerði. Komust þeir þannig i 20—13 en Stjarnan átti síðustu tvö mörkin i þessum 20—15 sigriValsmanna. Brynjar Kvaran var ekki í markinu hjá Stjömunni en i hans stað var þar Birkir Sveinsson sem stóð sig vel. Aðrir í Uði Stjömunnar sem eitthvað kvað að vom þeir Guðmundur Oskars- son og Magnús Teitsson. Hjá Val vora ungu strákamir spræk- astir í sóknarleiknum — og þarf nú ekki mikið til að vera betri en hinir þar. Þeir Guðni Bergsson, Brynjar Haröarson, Jakob Sigurðsson og Júlíus Jónasson era framtiöarleikmenn. Þeir l.deild kvenna: Jafntef li hjá efstu liðunum Rlnn mikflvKgnr leikur var lelkinn i X. defld kvenna á islandsmótinu í handknattleik i gcrkvöldi. Valur og IR nuettnst þá i Laugar- daishöflinni og lank lciknum með jafntefli 12—12. Staian í deildinni er ná þessi: Valnr 1« 7 2 1 158—122 16 tR 10 7 1 2 165-133 15 Fram 9 6 1 2 128-106 13 jFH 8 5 2 1 132-99 12 Víklngur 9 3 1 5 108-126 7 KR 8 2 0 6 91-103 4 Haukar 8-0 1 7 88-137 1 Þór.Ak. 6 0 0 6 80-124 0 ddp- eiga enn margt ólært, t.d. í vamar- leiknum en þar hafa þeir við hlið sér góða kennara þá Þorbjöm Jensson og Steindór Gunnarsson. Sjálfsagt að nýta sér þá áður en þeir leggja skóna á hilluna. Mörkin í leiknum fyrir Val gerðu: Brynjar Haröarson 4/1, Jakob Sigurðsson 5, Steindðr Gunnarsson 5, Júlíus Jónasson 2 og þeir Theodór, Guðni Bergs, Jón Pétur og Þorbjöm Jensson 1 mark hver. Fyrir Stjömuna: Eyjólfur Bragason 7/2, Magnús Teitsson 3, Guðmundur Oskarsson 3 og þeir Guðmundur Þórðarson og Sigurjón 1 mark hvor. -klp- ..Þessi leikur var algert kraftaverk” — sagði Hilmar Hafsteinsson, þjálfari UMFN, eftir sigur sinna manna á Fram 93-92 „FTamararnir léku alveg frábæran körfuknattleik í fyrri hálfleik. Eina svar- ið sem við áttum var að leika svæðisvöm . í síðari hálfleik og það tókst vel hjá okkur,” sagði Hilmar Hafsteinsson, þjálfari Njarðvikinga, í gærkvöldi eftir að UMFN hafði sigrað Fram í æsispenn- andi leik í Hagaskóla með 93 stigum gegn 92, eftir að staðan í leikbléi hafði verið 55:42 Fram í vil. Þegar tvær mínútur voru til leiksloka var staðan jöfn 87—87. Framarar náöu ' siðan þriggja stiga forskoti stuttu siðar er staðan var 92:89 og 50 sekúndur voru 'til leiksloka. Arni Lárusson skoraði síðan tvö stig úr vítaskotum fyrir UMFN þegar 37 sekúndur voru eftir og á síðustu sekúndunum skoraði Bill Kotterman sigurkörfuna fýrir Njarðvik og úrsiitin i því 93:92 og fögnuður sunnanmanna var mikilleftirleikinn. Framarar léku stórvel í fyrri hálfleik og voru miklir klaufar að tapa niður 20 stiga forskoti sem þeir höföu náð í fyrri hálfleik, 40:20. Þá tóku Njarðvikingar mikinn kipp og skoruöu 13 stig i beit á meðan Framarar skoraðu ekki stig í fjórar mínútur. Staðan í leikhléi var síöan 55:42 e ins og áður sagði. Njarðvíkingar börðust af miklum eld- móði í síðari hálfleik og þegar sex mínútur voru til leiksloka komust þeir yflr í fýrsta skipti í leiknum 75:74. Loka- minútunum var áður Iýst en þá gekk 'mikiö á við báðar körfumar. Bill Kotterman var stórkostlegur hjá UMFN í síöari hálfleik eftir mjög daufan fyrri hálfleik. Hann skoraöi 21 stig en stigahæstur var Valur Ingimundarson með 22 stig og lék vel, en varð að yfir- gefa samkunduna með 5 villur þegar nokkrar mínútur voru til leiksloka. Þá lék Ingimar Jónsson mjög vel á loka- mínútunum og hirti dýrmæt fráköst. Gunnar Þorvarðarson skoraði 16 stig og var góður, sömuleiöis Sturla örlygsson og Árni Lárusson. Árni skoraði 11 stig og Sturla9stig. Framarar voru miklir klaufar að tapa þessum leik og geta engum nema sjálfum sér um kennt. Þeir áttu ekkert svar við svæðisvörn Njarðvíkinga í síð- ari hálfleik og því fór sem f ór. Viðar Þor- kelsson var mjög góður og hitti eins og berserkur, sérstaklega í fyrri hálfleik. Góðir og jafnir voru þeir Þorvaldur Geirsson, Val Brazy og Símon Olafsson. Þorvaldur skoraði 16 stig, Símon 21 og Brazy22stig. Leikur þessi var mjög spennandi í síðari hálfleik og Njarðvíkingar að vonum hressir eftir hann. „Þetta var einn af þessum kraftaverkaleikjum. Það var stórkostlegt að ná að vinna upp þennan mun og strákarnir léku mjög vel í lokin,” sagði Hilmar, þjálfari UMFN, en hann stjómaði liði sínu snilldarlega í þessum leik. Mjög rólegur orðinn og allt vel hugsað sem hann gerði í þessum leik. Hann átti stóran þátt í þessum sigri. Leikinn dæmdu þeir Hörður Thulinius og Gunnar Valgeirsson og dæmdu þeir erfiöan leik nokkuð vel en geta gert betur. -SK. Jóhann er hættur Badmintonkappinn Jóhann Kjartans- son, sem hefur verið margfaldur íslandsmeistari undanfarin ár, er hættur æfingum og keppni. Þessi snjalli spilari hefur ekkert æft í vetur og er eftirsjá í honum. -SOS. Besti leikur hér í vetur f— fyrir áhorfendur, sagði Jim Dðoiey landsliðsþjálfari I „Það var frábærlega skemmtilegt lað horfa á þennan leik, sem var mjög spenxiandi f lokin,” sagði Jim jDooley, iandsliðsþjáÚari og þjálfari jtR, eftir ieik Fram og UMFN í gær- jkvöldi. j „Þetta er skemmtilegasti letkur sem ég hef séð hér. Hann var mjög spennandi og skemmtilegur fyrir áhorfendur og þeir hljóta að hafa skemmt sér vel.” Nú eigið þið ÍR-ingar að ieika gegn Keflviklngum i kvöld. Hvernig leggst sá lelkuriþig? „Þokkalega. Við verðum að leika vel ef við eigum að eiga möguleika á sigri en sá möguleiki er vissulega fyrir hendi. Það væri virkilega gaman að leggja Keflvíkingana að velli. Við erum búnir að leika tvisvar gegn þeim 'í vetur og höfum verið nálægt því að sigra í bæði skiptin. Kannski rætist draumurinn í kvöld en það kemur ekki í ljós fyrr en í Hagaskóla klukkan átta,” sagöi Jim Dooley. -SK. West Ham hefur ekki unnið á Anfield í 19 ár Leikmenn West Ham ríða yfirleitt ekki feitum hesti frá Anfield Road, þar sem þeir hafa ekki unnlð sigur í 19 ár. Engin breyting var á því í gærkvöldi, þegar 23.963 áhorfendur sáu Liverpool vinna 2—1 í defldabikarkeppninni og tryggðu sér þar með rétt i undanúrslltin. Liver- pool, sem hefur unnið defldabikarinn sl. tvö ár, hefur leikið 23 ieiki án taps í deildabikarkeppninni, sem er nú kölluð MflkCup. Paul Allen skoraöi mark „Hammers” og er það fyrsta mark Lundúnaliðsins á Anfield Road í 7 ár. Þá má geta þess til gamans að Billy Bonds, fyrirliði West Ham, hefur sl. 15 ár farið norður til Liverpool — og aldrei fariö frá Anfield Road með sigur í bakpokanum. Leikurinn var geysilega spennandi og oft mjög vel leikinn. Það var fyrst byrjað að leika með hvítan bolta, en í byrjun leiksins gerði byl þannig að leika þurfti með gulum bolta þaö sem eftir var leiksins. Liverpool náði tljótlega yfirhöndinni en það var þó ekki fyrr en í seinni hálfleik að þeir fóra að skgpa hættu upp við mark „Hammers”. Þar Liverpool og Arsenal í undanúrslit deildabikarkeppninnar var fyrir Phil Parkes, sem varði hvað eftir annað stórglæsilega — fyrst 40 m skot frá Phil Neal á 59. min og síðan þrumufleyg frá Kenny Dalglish á 61. mín. Það var svo á 68. min að hann mátti horfa á eftir knettinum í netiö hjá sér. Phil Neal átti þá fast skot sem Parkes jvarði. Hann hélt ekki hálum knettinum, sem hrökk út til David Hodgson sem þakkaði fyrir sig — renndi knettinum undir Parkes af 6 m færi. Leikmenn West Ham gáfust ekki upp — þeir náðu skyndisókn á 72. mín. Sammy Lee, landsliðsmaður Liverpool, náði knettinum en missti hann klaufa- lega til Paul Allen, sem brunaði fram — lék á Alan Hansen og skaut föstu hægri- fótarskoti frá vítateig, sem Bruce Grobbelaar, markvörður Liverpool, átti ekki möguleika á að verja. Lundúnaliðið dró sig þá í vörn og freistaðist til að halda jafnteflinu og fá nýjan leik á Upton Park. Á 83. mín. sendi Alan Kehnedy góða sendingu til David Hodgson, sem renndi knettinum til Ian Rush, sem féll við. Phil Parkes kom út á móti honum. Áhorfendur vildi víta- spymu, en dómarinn var ekki á sama máli — dæmdi óbeina aukaspymu við vitapunkt. Allir leikmenn West Ham stilltu sér upp á marklinunni hjá sér til aö verjast Kenny Dalglish fékk knöttinn og skaut — knötturinn hrökk í Billy Bonds og aftur fyrir endamörk. Sammy Lee tók homspymuna og sendi fyrir mark West Ham þar sem Ian Rush var og skallaði hann knöttinn i þverslána. Þegar rúmlega þrjár mín. vora til leiksloka branuðu leikmenn West Ham fram. Sandy Clarke fékk knöttinn en missti hann til Alan Hansen, sem sendi hann strax fram til Mark Lawrenson, sem brunaði fram völlinn — hljóp 40 m með knöttinn og sendi hann siðan til Graeme Souness, sem lét skotið riða af frá vítateig — í netinu hafnaði knött- urinn og leikmenn Liverpool fögnuðu — 2—1. Þeir gerðu síðan harða hriö að marki „Hammers” undir lokin. ; Liðin sem léku vora skipuö þessum leikmönnum: Liverpool: Grobbelaar, A. iKennedy, P. Neal, Hansen, Lawrenson, ÍLee, Hodgson, Dalglish, Johnston (Whelan 80 mín.), Souness og Rush. West Ham: Parkes, George Cowie, Martin, Bonds, Gallager, Pike, P. Allan, Goddard, Devonshire, Van der Elst og Clarke. Arsenal áfram Arsenal lagði Sheffield Wednesday aö velli 1—0 á Higbury í miklum rokleik, þar sem leikmenn liðanna áttu erfitt með að hemja knöttinn. Sigurmark Arsenal- kom á 68. mín., þegar Alan Sunderland sendi knöttinn til Júgóslav- ans Vladimir Petrovic, sem gaf síðan góða fyrirgjöf fyrir mark Wednesday þar sem Tony Woodcock var við fjær- stöngina og skoraði öragglega. , Urslitíöðrumleikjumvoru: Orient- 3. deild: -Portsmouth > 4. deild: Bristol C — Tranmere 2-1 1-1 Ðavid Peach skoraöi fyrir Orient en Rafferty fyrir Portsmouth. Riley skoraði sigurmark BristolCity. -hsím/-SOS. óttir íþróttir Iþróttir íþróttir íþróttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.