Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1983, Qupperneq 36
27022 AUGLÝSINGAR SÍÐUMÚLA 33
SMÁAUGLÝSINGAR —AFGREIÐSLA SKRIFSTOFUR
ÞVERHOLTI 11
86611 RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12—14
MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 1983.
Ferðum fækkar
um 25 þúsund
— ef bankarnir auka þjónustu vegna þinglýsinga
0 -v . . Friðjón
IjPr Þórðarson:
wm „Gekk
jy^i. eins og
íævintýri"
„Þetta gekk ágætlega og ég er mjög
ánægöur,” sagði Friöjón Þóröarson
ráðherra þegar DV innti hann eftir viö-
brögöum hans við niðurstööum prót-
kjörs sjálfstæöismanna í Vésturlands-
kjördæmi. „Þetta gekk eins og í
ævintýri, í allri ófærðinni. Fólkiö kom
kafandi á alls kyns farartækjum til
þess aö taka þátt 'í prófkjörinu þótt
sumir hafi því miður ekki komist. -óbg.
Valdimar
Indriðason:
„Úrslitin
verði öllum
til góðs"
„Þaö er ekki annaö um þessi úrslit
að segja en að ég er mjög ánægður meö
útkomu mína,” sagöi Valdimar
Indriöason framkvæmdastjóri, sem
lenti í öðru sæti í prófkjöri sjálfstæðis-
manna á Vesturlandi.
,jEg vona aö úrslitin verði öllum til
góös og nota tækifærið til aö þakka
stuðningsmönnum mínum fýrir gott
starfíþessuprófkjöri.” -ás.
Inga Jóna
Þórðardóttir:
„Ekki ánægð
með mína
útkomu"
,ÍJg er mjög ánægö með þaö hve
margir tóku þátt í prófkjörinu. Þaö er
vísbending um að flokkurinn muni fá
aukið fylgi í næstu kosningum,” sagöi
Inga Jóna Þóröardóttir í samtali viö
DVímorgun.
„Hvaö snertir mig sjálfa, þá keppti
ég að öruggu sæti og er þess vegna
ekkert ánægö meö mína útkomu, þaö
liggur alveg ljóst fyrir.”
„Þetta prófkjör er aöeins þáttur í
undirbúningi kosninganna og nú aö því
loknu tökum viö næsta skref, aö undir-
búa kosningarnar,” sagöi Inga Jóna
Þóröardóttir. -PÁ..
Sturla
Böðvarsson:
„Persónu-
fylgi hvers
og eins"
,Æg get ekki á neinn hátt túlkaö
niðurstöðumar úr þessu prófkjöri sem
stuðningsyfirlýsingu við ríkis-
stjórnina,” segir Sturla Böövarsson,
sveitarstjóri í Stykkishólmi, en hann
varö í þriðja sæti í prófkjörinu. „Eg tel
að úrslitin sýni einungis persónulegt
fylgi hvers og eins, enda höfum við
sjálfstæðismenn hér á Vest'urlandi
reynt aö halda frið í flokknum og ég
gat ekki séö aö menn skiptust í
stjórnarsinna og stjórnarandstæðinga
í prófkjörinu.
Það er ósköp huggulegt
hjá bönkunum aö sjá um
þinglýsingarvesenið en
verður nokkur lán að fá?
,,Að því er stefnt að bankar annist
öflun veðbókarvottorða fyrir lántak-
endur í Reykjavík, sömuieiöis vott-
oröa um brunabótamat og sjái um
þinglýsingar á þeim lánsskjölum
sem eru tryggð meö fasteignaveði,”
sagði Helgi Steingrímsson, for-
stööumaöur hagfræöingardeildar
Landsbanka Islands, í viötali viö DV.
,,Með þessari hagræðingu fyrir
iántakendur ættu aö sparast um 25
þúsund ferðir á ári.”
Á vegum Sambands íslenskra
viöskiptabanka er nú unnið aö sam-
starfi innlánsstofnana, borgarfó-
getaembættisins og fleiri stofnana
um verkspamað í sambandi við
þinglýsingar skuldabréfa.
I dag þarf lántakandi, sem fær lán
hjá banka gegn fasteignaveði, aö
skila vottorði um brunabótamat
viðkomandi fasteignar. Þaö vottorö
þarf að sækja til Húsatrygginga
Reykjavíkur, sé fasteignin í Reykja-
vík, en til Brunabótafélagsins fyrir
fasteignir utan Reykjavíkur.
Fóik fer eina ferð á annan hvom
staöinn og jafnframt fjórar ferðir til
fógeta. Fyrsta ferðin er farin til að
ieggja inn beiðni um veðbókarvott-
orð og greiða fyrir vottoröiö. Daginn
eftir er vottorðið sótt, önnur feröin.
Veðbókarvottorðið er síðan afhent í
banka og þegar bankinn er tilbúinn
meö lánsgögnin eru þau afhent lán-
takenda. Þá er lagt í þriðju för til
fógeta, sem annast þinglýsinguna.
Lántakandinn greiöir sitt gjald en
veröur að koma í fjóröa sinn, næsta
dag, til aö sæk ja gögnin.
„Eins og fyrirkomulagið er 1 dag
meö fjórar ferðir til fógeta og eina
eftir vottorði um brunabótamat, má
ætla, eins og fyrr segir, að árlega
sparist 25 þúsund ferðir. En áætiuð
tala fasteignatryggðra veðlána
bankanna í Reykjavík er um fimm
þúsund,” sagði Helgi Steingrimsson.
Hann vildi taka það fram að málið
væri enn á viðræðustigi en að þessu
hefur verið unnið frá því í haust. -ÞG.
Fárviðri í Danmörku:
Hjuti afþaki
þinghússins
faukaf
- kostaði 2 konur lífið
Frá Ásgeiri Páii Júlíussyni, frétta-
ritara DV í Danmörku:
Fárviðri geisaði í Danmörku í
gasr, eitt hið mesta í sögu landsins.
Mældist vindhraðinn allt að þrettán
stig um morguninn þegar veðrið lét
verst.
Tvær konur í Kaupmannahöfn
létust af völdum veöurofsans. Urðu
þær undir hluta af þaki Kristjáns-
borgarhallar, þinghúss Dana, sem
hreinlega sviptist af húsinu í einni
vindhviðunni. Þá er vitað um
hundruð Dana sem slösuðust
meira og minna í ofviðrinu.
Algjört neyðarástand skapaðist í
umferð bæja og borga á meöan
lægðin sem olli fárviðrinu gekk yfir
landið. Bílar fuku hvort heldur út
af vegum eða hverá annan. Einnig
skapaðist umferöaröngþveiti
vegna trjáa sem brotnuðu og
hentust á götur.
Fárviðrið olli gifurlegum flóðum
víöa við strendur Danmerkur.
Verst var ástandið á vesturströnd
Jótlands þar sem flóð sópuöu
mörgum húsum og bátum á haf út.
I gærkvöldi var veður tekiö að
lægja í Danmörku. Er áætlaö að
eignatjón af völdum þessa fárviðr-
is kosti Dani rúmar tvö hundruð
milljónir islenskra króna. -SER
Kópavogur:
Ung kona
kærðinauðg-
un í nótt
Ung kona kærði tvo menn fyrir
nauögun í Kópavoginum í nótt.
Mennirnir voru báðir handteknir
og eru nú i gæslu lögreglunnar.
Mjög litlar upplýsingar fengust
hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins
um máliö í morgun. Þó liggur fyrir
að konan kærði mennina á þriðja
tímanum í nótt. Þeir veröa báðir
yfirheyrðir f rekar í dag.
Eftir því sem DV kemst næst var
þeim þremur boöið í samkvæmi í
ákveðnu húsi I Kópavoginum.
Afengi mun hafa verið haft um
hönd. Ekki hafa fengist upplýs-
ingar um hvort fleiri hafi veriö í
húsinu þegar hin meinta nauðgun
átti sér stað og ekki liggur fyrir
hvort mennirnir tveir hafi verið
handteknir í umræddu húsi.
Rannsóknarlögregla ríkisins
vinnur nú að frekari rannsókn
málsins. -jgh.
ELDURí
RISÍBÚÐ
Slökkviliðið í Reykjavík var
kvatt að húsinu Skólavörðustíg 16
rétt fyrir klukkan tólf I gærkvöldi
en þar var eldur í risíbúð hússins.
Greiðlega gekk að slökkva eldinn
og urðu skemmdir litlar.
Þegar slökkvilið kom & vettvang
logaði í drasli og teppi í risíbúðinni
og auk þess hafði lampaskermur
brunnið. Slökkviliö bar draslið út
úr íbúðinni og slökkti síðan í því.
Gamall maður býr í risíbúðinni
ogsakaðihannekki. -JGH