Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1983, Blaðsíða 22
22
DV. FIMMTUDAGUR 3. FEBRUAR1983.
DAGBLABSINS - VÍSIS 1982
Takið þátt í að vega og
mcla poppárið 1982
Vinsældaval DV fyrir árið 1982 hefst
í 'dag með birtingu fyrsta atkvæðis-
seðilsins. Til að auövelda þátttakend-
um valið — og til að rifja upp það
helsta, sem gerðist á sviði léttrar tón-
listar á síðasta ári — birtum við hér
með nokkur minnisatriði. Þeir listar
eru þó ekki tæmandi og röð laga, lista-
manna og hljómsveita eru af full-
komnu handahófi. Þeir eru aðeins til
leiöbeiningar.
Og vitaskuld geta allir lesendur
blaðsins tekiö þátt í vinsældavalinu.
Allt og sumt, sem þarf aö gera, er að
merkja við þrjú atriði í hverjum flokki,
í þeirri röð sem lesendur telja sann-
gjarnasta, rífa seðilinn út úr blaðinu og
senda til DV merkt:
Vinsældaval DV '82
Dagblaðið—Vísir
Síðumúla 12—14
105 Reykjavík.
Sigurvegararnir í vinsældavalinu i fyrra samankomnir í lok Stjörnumessu 1982.
DV-mynd:
Atkvæðaseðlar þurfa að hafa
borist blaðinu fyrir 1. mars.
Seðlarnir munu birtast nokkrum
sinnum í blaðinu fram til þess tíma.
Eins og áður hefur komið fram
munu atkvæði lesenda vera höfð
mjög rækilega til hliðsjónar þegar
sérstök dómnefnd greiðir endanlega
atkvæði um úrslit í vinsældavali DV
fyrir árið 1982. Urslit verða síöan
kunngerð á Stjörnumessu ’83, sem
haldin veröur í veitingahúsinu
Broadway 7. apríl næstkomandi.
Daginn eftir verða úrslit kynnt í
blaðinu.
Að þessu sinni varðar vinsældaval
DV eingöngu innlendan markað enda
hefur tilgangur þess allar götur veriö
að stuðla að auknu iífi í popp- og
rokktónlistarlífi innanlands undir
slagorðinu: Lifi lifandi músík. Les-
endur eru hvattir til að taka þátt í
vinsældavalinu og senda inn at-
kvæðaseðla sína sem allra fyrst.
Velja skal þrjá í hverri deild og raða eftir
númeraröð. Rífiðj seðilinn úr blaðinu og
sendið til blaðsins merkt:
VINSÆLDAVAL DV '82
DAGBLAÐIÐ-VÍSIR
SÍÐUMÚLA 12-14,
105 REYKJAVÍK
Lag árslns
1.
Vinsældaval
DV
Sendandi:
Nafn:
Aidur:
Halmlíl:
Hljámsvrit ársins 1. Söngvarl ársíns 1. Textahöf undur árslns 1.
2. 2. 2.
3. 3. 3.
Lagahöf undur ársins 1. Söngkona ársins I. Hljömplata ársins 1.
2. 2. 2.
3. 3. 3.
Tónllstarmadur ársins
1.
3.
SKILAFRESTUR
er til 1. mars.
Úrslit kynnt á
Stjörnumessu '83